NT - 26.03.1985, Qupperneq 11
Verðbólg-
an í fyrra
var 29%
■ Þrátt fyrir kjarasamning-
ana og gengislækkunina síðast-
liðið haust, þá varð meðalverð-
hækkun á milli áranna 1983 og
1984 minni en á milli annarra
ára frá 1973, eða 29%. Þetta
segir í endurskoðuðu yfirliti
Þjóðhagsstofnunar yfir þróun
efnahagsmála á síðasta ári.
Þjóðhagsstofnun segir einn-
ig að síðustu tvo mánuði hafi
dregið úr hraða verðbólgunnar
eftir öldurnar sem gengu yfir í
árslok 1984 ogársbyrjun 1985.
Horfur virðist á að um mitt ár
verði verðbreytingar komnar í
svipað horf og fyrir kjarasamn-
ingana í haust, þ.e. 15-20%
árshraða. Eftir mitt ár sé hins
vegar meiri óvissa í verðlags-
málunum, einkum vegna
kjarasamninga, sem eru flestir
uppsegjanlegir frá 1. septem-
ber. þótt þeir gildi formlega til
áramóta.
Þriðjudagur 26. mars 1985 11
■ Erlendur Einarsson flytur skýrslu sína á aðalfundi Samvinnubankans.
Osta- og smjörsalan:
Salan nálægt
einum milljarði
■ Sala Osta- og
smjörsölunnar á innan-
landsmarkaði nam í
fyrra 750 milljónum
króna, en salan á er-
lendum markaði 190
milljónum króna. Sam-
tals jókst sala fyrirtækis-
ins um 39% frá árinu
áður.
Þessar upplýsingar
koma fram í ársskýrslu
Osta- og smjörsölunnar
fyrir aðalfund. Þar segir
einnig að 1000 tonn af
ostum hafi verið seld til
útlanda á síðasta ári.
sem er 70% aukning frá
árinu áður.
Birgðir af mjólkur-
vörunt jukust yfirleitt á
árinu. Þannig jukust
birgðir af smjöri og
smjörva um 57 tonn,
eða 14%; birgðir af osti
jukust um 176 tonn, eða
25%, og birgðir af
undanrennudufti jukust
um 97 tonn, eða 48%.
Hagnaður af reglu-
legum rekstri Osta- og
smjörsölunnar í fyrra
varð 2,9 milljónir
króna.
Vaxtafesting Seðlabankans kostaði
Samvinnubankann 17 milljónir króna
■ „Sú ákvörðun Seðlabank-
ans að festa vexti á gömlum
útlánum, þegar vextir á nýjum
útlánum fóru hækkandi, kost-
aði Samvinnubankann 17 mill-
jónir í vaxtatap á síðasta ári,“
sagði Erlendur Einarsson, for-
maður bankaráðs Samvinnu-
bankans á aðalfundi bankans
um helgina.
Afkoma Samvinnubankans
stóð í járnum á árinu 1984.
Hagnaður á rekstrarreikningi
varð 2,2 milljónir króna, sem
er um 20% af hagnaðinum árið
1983. Staðan gagnvart Seðla-
bankanum setti sterkan svip á
afkomu Samvinnubankans
eins og afkomu annarra við-
skiptabanka á árinu; þannig
lækkuðu vextir og verðbætur
af innistæðum í Seðlabankan-
um um 54 milljónir króna frá
o$mja
600
*Excluding world services
Víðar góðæri í f lugrekstri
■ Fleiri flugfélögum en Flug-
leiðum gekk vel á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum Avia-
tion Week and Space Techno-
logy þá varð mikið góðæri í
bandarískum flugrekstri á ár-
inu. Stærsta félagið, United,
skilaði t.a.m. 600 milljónadoll-
ara hagnaði sem jafngildir um
9% af veltu félagsins á árinu.
Eina stóra félagið sem átti í
verulegum erfiðleikum var Pan
American, sem tapaði yfir 100
milljónum dollara.
Undantekningarnar eru
einnig hér heima. Þannig mun
Arnarflug enn hafa tapað 49,5
milljónum króna á síðasta ári.
Flugleiðir greiða fetfmumi
fyrsta arð i sexar I
■ Vegna góðrar afkomu á
síðasta ári, þá munstjórn Flug-
leiða leggja til á aðalfundi
félagsins nk. fimmtudag að
hluthöfum verði nú greiddur
10% arður af hlutabréfum sín-
um í Flugleiðum. Ef tillagan
verður samþykkt, þá verður
þetta í fyrsta skipti síðan 1978
sem Flugleiðir greiða arð til
hluthafa.
Flugleiðir högnuðust um 228
milljónir króna á síðasta ári.
Er það um 5,4% af heildartekj-
um félagsins í fyrra. Stærstur
hluti hagnaðarins, eða 170
milljónir, eru söluhagnaður af
sölu félagsins á tveimur DC-8
þotum á árinu, en félagið
keypti tvær vélar í staðinn fyrir
lægra verð.
Starfsmenn Flugleiða voru
1421 á síðasta ári, eða 248
fleiri en á árinu áður.
árinu áður, en vaxtagjöld til
Seðlabankans, vegna yfirdrátt-
ar, jukust á sama tíma um 23
milljónir króna.
Hlutdeild Samvinnubank-
ans í innlánum landsmanna
minnkaði úr 8,4% í 7,5% á
árinu 1984.
Samt sem áður náði nýr
innlánsreikningur bankans,
Hávaxtareikningur, miklunt
vinsældum, og sagði Geir
Magnússon, bankastjóri, á
aðalfundinum að 20% af inn-
lánunt Samvinnubankans væru
nú á þessum reikningi.
Samvinnubankinn fjárfesti
fyrir 12,6 milljónir á síðasta
ári. Auglýsingakostnaður
bankans varð 5 milljónir
króna. Innan skamms hyggst
bankinn setja upp tölvubanka,
eða handraða eins og farið er
að kalla fyrirbærið, í nokkrum
stærstu afgreiðslustöðum
sínum.
Á aðalfundinum var sam-
þykkt að gefa út jöfnunar-
hlutabréf fyrir 56 milljónir
króna, og greiða 5% arð af
hlutabréfum.
Auk Erlendar Einarssonar
sitja í bankaráði Samvinnu-
bankans þeir Hjörtur Hjartar
og Vilhjálmur Jónsson.
Kristleifur Jónsson lét um
áramótin af störfum banka-
stjóra Samvinnubankans.
vígsluleikur
Appleglímirvið
söluerfiðleika
■ Apple tölvufyrirtækið á nú
við alvarlega söluerfiðleika að
etja. Eftir góða sölu fram eftir
síðasta ári hefur salan nú síð-
ustu mánuðina dregist veru-
lega saman: tölvurnar sem
sendar voru í verslanir í
Bandaríkjunum fyrir jólin síð-
ustu sitja þar enn óhreyfðar.
Því hefur Apple ekki séð sér
annað fært en að loka nokkrum
verksmiðja sinna um tíma, á
meðan verslanir eru að vinna
upp birgðirnar.
Þremur verksmiðjum Apple
var lokað í síðustu viku. Þessar
verksmiðjur eru í Dallas,
Texas, Cork á írlandi og Singa-
pore. Fjórðu verksmiðjunni í
Fremont í Kaliforníu verður
lokað um vikutíma í apríl.
Þessi síðasta framleiðir hina
nýju Apple-Macintoshtölvu,
sem seldist í 250 þúsnd eintök-
um í fyrra.
Verst gengur Apple að selja
eldri tölvurnar sínar, Apple 11
og Lisa. Mun fyrrnefnda talvan
vera á útsölu í mörgum versl-
unum í Kew York um þessar
mundir fyrir minna en 800
dollara, eða 34 þúsund krónur.
Apple fyrirtækið segir sjálft
að söluerfiðleikarnir nú stafi
aðeins af hefðbundinni sölu-
tregðu næstu niánuði eftir jóla-
annríkið. En ýmsir markaðs-
spekúlantar hafa haldið því
fram að undanförnu að Apple
væri alltof háð heimilisnotkun
■ Norska stórfyrirtækið Elk-
em skilaði 530 milljóna
norskra króna hagnaði á síð-
asta ári, eða þreföldum hagn-
aði frá árinu áður. Jafngildir
hagnaðurinn 2,3 milljörðum
íslenskra króna.
Elkem styrkti í fyrra stöðu
sína sem stærsti framleiðandi
járnblendis í heiminum. Fyrir-
tækið keypti í júlí tvær járn-
blendiverksntiðjur í Kanada af
Union Carbide. Einnig jók
Elkem hlut sinn í bandarískum
á tölvum, en ekki væri nema
lítill hluti fjölskyldna sem hefði
brýna þörf fyrir tölvur. Apple
hefði hins vegar lítið komist
inn á markað fyrirtækjanna.
járnblendiiðnaði með kaupum
á hlut Jepsen hópsins í Elkem
Metals Company. Sölutekjur
Elkem jukust í fyrra um 33%.
Starfsmenn Elkem um síðustu
áramót voru tíu þúsund og
fjögur hundruð.
Um stöðu markaða segir í
uppgjöri Elkem að hin já-
kvæða þróun sem átt hafi sér
stað á síðasta ári hafi haldið
áfram á árinu 1985. Markað-
irnir fyrir ál, sílikon og járn-
blendi séu nú vel viðunandi.
Elkem þrefald-
ar hagnaðinn
- Ástandið á ál-, silikon- og
járnblendimörkuðum viðunandi