NT - 26.03.1985, Blaðsíða 22
22
____________Þriðjudagur 26. mars 1985
íþróftir
í kvöld á gervigrasinu:
Vígsluleikurmeð
lúðrablæstri...
■ Alfreð Gíslason gerði 8 mörk og stóð fyrir sínu.
V-þýski handknattleikurinn:
Atli Hilmarsson og félagar lögðu efsta liðið, Kiel.
Essen orðið efst
Alfreð átti stórleik og gerði 8 mörk - Atli spilaði einnig vel
mínútur I3-9. Þá kom stórkafli 'yftust Atlj og félagar úr næst
Alfreðs sem skoraði úr hverju neðsta sætinu í deildinni í það
Frá (■uðmundi Karlssyni í V-Þýskalandi:
■ Þeir Atli Hilmarsson og Al-
freð Gíslason áttu báðir góðan
leik með liðum sínum um síð-
ustu helgi. Þeirra lið unnu bæði
og er Essen nú komið á toppinn
í v-þýska handknattleiknum:
Essen-Gummersbach . . 25-14
Fyrir troðfullri höll sýndu Al-
freð og félagar frábæran leik
gegn besta liði síðustu vikna
Essen, besta vörn deildarinnar
gegn Gummersbach, bcstu sókn
deildarinnar. Essen hóf lcikinn
af krafti drifið áfram af góðum
leik Alfreðs og Heckers í mark-
inu. Gummersbach átti ekkert
svar við frábærum varnarleik
Essen og þau fáu skot sem
komu á markið varði Hecker.
Staðan í hálfleik 12-4 Essen í
hag.
I upphafi seinni hálfleiks leit
út fyrir að Gummersbach ætlaði
að jafna leikinn, staðan eftir 40
skoti, eftir 50 mín. var staðan
orðin 20-12 og úrslit leiksins
ráðin. Lokatölur urðu síðan 25-
14 og með þessum sigri tóku
Alfreð og félagar forystu í deild-
inni. Alfreð átti stórleik og
gerði 8 mörk og átti fimm línu-
sendingar sem gáfu mörk. Hann
var besti maður vallarins ásamt
Hecker markverði sem varði
frábærlega.
Alfreð var að vonum ánægður
eftir Ieikinn og sagði að það
væri*gott að eiga slíkan topp-
leik cinmitt er á þyrfti að halda.
Bergkammen-Kiel .... 21-20
1 hnífjöfnum og spennandi
leik sigruðu Atli Hilmarsson og
félagar lið Jóhanns Inga,
sanngjarnt. Sigurmarkið skor-
aöi Kubitscky eftir frábæra
sendingu frá Atla 30 sekúndum
fyrir leikslok. Með þessum sigri
fjórða neðsta. Kiel tapaði sínum
öðrum leik í röð og virðist nú
vera að missa flugið. Fyrri hálf-
Ieikur var jafn og var staðan í
hléi 11-10 fyrir Bergkammen.
Jóhann Ingi sagði eftir leikinn
að sitt lið hefði átt að ljúka
leiknum í fyrri hálfleik en þá
brennduleikmenn Kiel afþrem-
ur vítum.
Atli Hilmarsson átti góðan
leik, skoraði þrjú mörk og lék
með allan tímann. Hann var
hress er fréttamaður NT talaði
við hann eftir leikinn og sagði
að tími væri kominn til að
heppnin væri með þeim. Atli
sagði einnig að næsti leikur
þeirra gegn Huttenberg gæti
haft mikil áhrif á framhaldið því
Huttenberg er nú með einu stigi
minna en Bergkammen.
- Reykjavík og Landið leika
■ Að loknum lúðrablæstrí og
forleik verður háður í kvöld
vígsluleikur á gervigrasvellinum
í Laugardal. Að sjálfsögðu
verður leikin knattspyrna, og
liðin sem mætast eru úrvalslið
Reykjavíkur annars vegar og
landsbyggðarinnar hins vegar.
Leikurinn hefst klukkan 20.30.
Lúðrasveitin Svanur mun
hefja leikinn með lúðrablæstri
klukkan 19.30. Síðan munu tvö
úrvalslið leika forleik, annað
verður skipað borgarstjórnar-
mönnum, hitt að líkindum
meðlimum íþróttaforystunnar í
Reykjavík.
Klukkan 20.30 hefja leik úr-
valslið Reykjavíkur og
„landsins". Þar verður keppt
um veglegan bikar sem fyrirtæk-
ið ísspor hefur gefið til eignar.
Keppt verður með Mitreboit-
um, en innflytjandi þeirra er
hinn sívinsæli knattspyrnudóm-
ari og Þróttari, Magnús Péturs-
son.
Lið Reykjavíkur er undir
stjórn Björns Árnasonar Vík-
ingsþjálfara.og er skipað eftir-
töldum leikmönnum: Mark-
verðir: Guðmundur Erlings-
son Þrótti og Stefán Jóhannsson
KR. Aðrir leikmenn: Kristján
Jónsson og Ársæll Kristjánsson
Þrótti, Þorgrímur Þráinsson og
Guðni Bergsson Val, Ásgeir
Elíasson og Ómar Torfason
Fram, Sæbjörn Guðmundsson
og Gunnar Gíslason KR, Guð-
mundur Þorbjörnsson Val,
Guðmundur Steinsson og Guð-
mundur Torfason Fram, Aðal-
steinn Aðalsteinsson og
Ámundi Sigmundsson Víkingi.
Italía:
Fimm stiga forysta
hjá Verona og titillinn í sjónmáli
Á gervigrasinu:
Reykjavíkurmót með
nýju fyrirkomulagi
- hefst á fimmtudaginn með leik KR og ÍR - ÍR
með í fyrsta sinn
■ Reykjavíkurmótið í knatt-
spyrnu hefst á fimmtudaginn.
■ Þrjú mörk í síðari hálfleik
gegn neðsta liðinu tryggðu Ver-
ona sigur á Cremonese og
áframhaldandi sæti á toppi 1.
deildar á Italíku. Liðið hefur nú
fímm stig umfram Tórínó og
Inter Mílanó.
Di Gennaro skoraði fyrst fyrir
Verona en þeir Elkjær Larsen
og Briegel bættu við mörkum
áður en yfir lauk.
Inter lá fyrir Juventus. Alto-
belli kom þeim yfir en mörk frá
Tardelli, Boniek og Briaschi
gerðu út um leikinn.
Á San Siro leikvellinum í
Mílanó var AC Mílanó mun
betra en Tórínó í fyrri hálfleik.
Það voru 70 þúsund áhorfendur
sem sáu þann leik og voru flestir
á bandi ÁC Mílanó. Það var svo
Austurríkismaðurinn Walter
Schachner sem gerði eina mark-
ið í leiknum og kom þar með
1 NBA-karfan
■ Philadelplúa 76ers
1 steinlá á fustudag fyrir
Milwaukee Bucks í
bandarísku atvinnu-
mannadeildinni kurfu-
bultanum, en Boston
Celtics ug L.A. Lakers
héldu sínu striki. Úrslit í
NBA á fustudag urðu
annars þessi.
Milwaukee-76ers 131-112
Dallas-San Antonio 123-114
L.A. Lakers-Houston 130-107
Utah-Seattle 110- 85
N.Y. Knicks-Indiana 118-113
Denver-New Jersey 123-111
Boston-Cleveland 129-117
Kansas City-Atlanta 121-102
Úrslit á laugardag
Boston-Washington 104- 98
Atlanta-Cleveland 91- 86
Kansas C.-N.Y. Knicks 113-105
Chicago-Dallas 107- 97
Milwaukee-Indiana 140-129
Portland-L.A. Clippers 126-123
Golden State-Phoenix 123-109
Þá leika KR og ÍR, en ÍR leikur
nú í fyrsta sinn með í meistara-
flokki karla í Reykjavíkurmóti.
ÍR bættist við þar sem liðið
sigraði í 1. flokki í fyrra, og þar
með eru liðin í Reykjavíkur-
mótinu orðin átta. Um lcið var
keppnisfyrirkomulaginu breytt,
og er nú leikið í tveimur riðlum.
Að lokinni riðlakeppninni eru
undanúrslit, og síðan úrslit.
„Með þessari nýjung viljum
við reyna að fá stígandi í mótið,
og vonum að það falli áhorfend-
um vel í geð,“ segja forkólfar
Reykjavíkurmótsins.
I Á-riðli keppa KR, Fram,
Þróttur og ÍR. í B-riðli eru
Fylkir, Valur, Ármann og Vík-
ingur. Úrslitaleikur keppninnar
verður 7. maí á gervigrasinu í
Laugardal, en þar er áætlað að
allir leikir keppninnar fari fram.
Á undan mörgum leikjanna í
karlaflokki verða leikir í meist-
araflokki kvenna.
Tórínó í annað sætið á Ítalíu
Daniel Passarella fyrrum
fyrirliði argentínska landsliðsins
í knattspyrnu var í sviðsljósinu
í lcik Fiorentina og Áscoli.
Hann gerði fyrst mark fyrir
Fiorentina og kom því yfir.
Ascoli-menn jöfnuðu og síðan
skoraði Passarella sjálfsmark og
Ascoli vann.
Sigur Udinese varð staðreynd
er um 30 sekúndur voru eftir af
leiknum. Þá skoraði Brassinn
Edinho beint úr aukaspyrnu af
um 30 m færi.
URSLIT:
Ascoli-Fiorentina....
Atalanta-Udinese.....
Aveilino-Napoli......
Como-Sampdoria.......
Lazio-Roma...........
Juventus-Inter Mílanó
Milan-Torino ........
Verona-Cremonese . ..
STAÐA EFSTU LIÐA:
Verona......
Tórínó .....
Inter Mílanó .
Sampdoria ...
Juventus ....
AC. Milanó ..
Portúgal:
Lið landsins: Markverðir: Þor-
steinn Bjarnason ÍBK og Birkir
Kristinsson ÍA. Aðrir leik-
menn: Benedikt Guðmundsson
UBK, Erlingur Kristjánsson
KA, Sigurður Lárusson ÍA,
Valþór Sigþórsson ÍBK, Jónas
Róbertsson Þór, Árni Sveinsson
ÍA, Einar Ásbjörn Ólafsson
Víði, Njáll Eiðsson KA, Karl
Þórðarson ÍA, Sveinbjörn
Hákonarson ÍA, Mark Duffield
KS, Jón Erling Ragnarsson FH,
Ragnar Margeirsson tBK og
Halldór Áskelsson Þór.
Heitthjá
Hibernian
■ Það var full heitt í
kolunum hjá áhangend-
um Hibernian í skosku
deildarkeppninni er liðið
lék við Aberdeen síðasta
laugardag.
Ahangcndur köstuðu
rakettum inná völlinn og
hittu tvær þeirra leik-
mann Aberdeen og línu-
vörð á leiknum. Þá fékk
dómari leiksins, Fergu-
son, golf-bolta í hausinn
og miðvörður Aberdeen,
McLeish, fékk pening í
skallann.
Hibernian á nú yfír
höfði sér sektir og bönn á
heimavöll félagsins.
Óheppnir Skotar
■ Gordon Strachan,
skoski miðvallarleikmað-
urinn hjá Man. Utd. er
nú meiddur og verður
ekki með i landsleiknum
milli Skota og Waies-búa
sem verður á morgun.
Skoska landsliðið hefur
ekki misst mann i meiðsl
í síðustu fjórum leikjurn.
Ekki er talið líklegt að
Strachan verði frá lengi.
Thailand vann
■ Thailand sigraði
Bangladesh 3-0 í undan-
keppni HM í knattspyrnu
á laugardag, en þessi lið
leika í riðli 3 i Asíu.
Staðan í hálfleik var 1-0.
Chile vann
■ Chile sigraði Uru-
guay í hálfgerðum slags-
málaleik í Santiago með
tveimur mörkum gegn
engu. Dómarinn í leikn-
um varð fyrir rakettu í
leiknum og er Chile skor-
aði sitt annað mark þá
urðu lætin í áhorfendum
svo mikil að kalla varð
alla blaðaljósmyndara frá
mörkunum svo þeir yrðu
ekki fyrir rakettum og
aðskotahlutum.
Enn skorar Gomes
■ Hans Peter-Briegel gætir hér Maradona. Briegel er á góðri leið
með að verða ítalskur meistari.
■ Markaskorarinn mikli Fern-
ando Gomes hjá Portó í Portú-
gal heldur áfram að skora mörk.
Hann kom Portó á bragðið gegn
Farense með góðu marki á 12.
mínútu. Gomes hefur nú gert
30 mörk í deildinni.
Urslit:
Farense-Porto................. 1-2
Setubal-Benfica .................. 2-2
Guimaraes-Boavista ............... 1-2
Academica-Rio Ave................. 2-1
Salgueiros-Braga.................. 1-1
Penafiel-Belenenses............... 0-0
Varzim-Vizela .................... 1-1
STAÐA EFSTU LIÐA:
Porto ........... 22 20 1 1 61 9 41
Sporting ........ 22 15 6 1 56 20 36
Benfica ......... 22 12 6 4 43 22 30
Portimonense .... 22 11 5 6 40 30 27
Boavista ........ 22 8 9 5 28 22 25