NT - 14.04.1985, Side 2
IU'
Sunnudagur 14. apríl 1985
■ Fyrir þá lukkunnar pam-
fíla, sem hafa tækifæri til vera
utandyra á daginn, eiu það
sjálfsagt engar fréttir að þessa
dagana iða bæði skrúðgarðar
og heimagarðar fólks af fjöri.
Garðyrkjumenn og skrúð-
garðameistarar eru víða að
undirbúa komu sumarsins og
gera gróðurinn klárann undir
grósku sumarsins. í Hlíða-
hverfi í Reykjavík var Steinn
Kárason skrúðgarðameistari
að dytta að flórunni í húsagarði
nokkrum. Steinnereinnþeirra
manna sem hefur þann starfa
að „vaka yfir trjánum“, og því
gráupplagt að spyrja hann um
nokkur atriði varðandi vor-
verkin í garðinum.
Fyrst spurðum við Stein
hvort það væri ekki orðið of
seint að klippa tré og runna.
- „Það er það nú ekki, nema
helst birkiö sem er farið að
„blæða“, það verður í því
vökvatap, en flestar aðrar teg-
undir er allt í lagi að klippa.
Það fer vitanlega nokkuð eftir
tíðarfari hversu lengi er hægt
að klippa, en tegundir eins og
til dæmis víði má klippa alveg
fram í mai og jafnvel lengur.“
Það er greinilegt á handtök-
um Steins að hann klippir ekki
af handahófi og því spyrjum
við hvað það sé, sem hann
klippi fyrst.
- „Það er nú ýmislegt, en
það þarf að taka alla kalkvisti
og krosslægju eða þar sem
greinar liggja saman þannig að
særir. Þá þarf yfirleitt önnurað
víkja eða jafnvel báðar. Svo
fer þetta nú talsvert eftir því
hversu mikiðog vel hefur verið
klippt áður. -
Já, það er dálítið nostur í
kringum þetta. Yfirleitt þarf
að klippa á hverju ári og þá
aðallega limgerðin en þegar
garðurinn er kominn í sæmi-
legt horf er oftast nóg að
klippa stærri tréin annað hvert
ár. Það er fyrst og fremst
vetrarklippingin sem er mikil-
væg, og svo kemur aftur snyrt-
inf og þess háttar yfir sumarið.
Ef ekki cr klippt þá er alltaf
meiri hætta á óþrifum, bæði
lús og maðki og skaðvaldurinn
þrífst betur eftir því sem minna
er hirt um tréin
Á jörðinni skammt frá Steini
liggur cinhverskonar úðunar-
brúsi og því næsta rökrétt (og
vonandi gáfulegt líka), að
spyrja hvort nú sé ekki einmitt
rétti tíminn til þess að eitra
fyrir ormum og lús.
- „Jú vetrarúðun hefur farið
vaxandi nú á siðustu árum og
■ Vetrarúðun er í auknum
mæli að ryðja sér til rúms, en
hún drepur eggin áður en þau
ná að Idekjast út.
■ „Nú hlýtur að fara að falla
sprek.“
með og það kemur alveg að
sama gagni. í vetrarúðun eru
eggin drepin áður en þau klekj-
ast út, sem sagt fyrirbyggjandi
aðgerð, en sumarúðun beinist
hins vegar að því að drepa
skaðvaldinn þegar hann er far-
inn að gera usla.“
Flestir þeir sem hafa ein-
hverntíma komist í návígi við
„skaðvaldinn“ hljóta að taka
undir það með Steini að betra
sé að eyða honum áður en
hann fer að skríða um og
iðandi ormakösin og óþreyt-
andi Iýsnar skemma gróður-
inn. En hvað með grasblett-
inn?
- „Jú, nú er náttúrulega
mosavandamálið að komast í
algleyming. Blettirnir eru líka
viðkvæmir um þessar mundir
svo það þarf að hlífa þeim.
Hvað mosann varðar, þá kem-
■ „Þarna lenti það.“
frost er enn í jörðu. En það má
nota annan lífrænan áburð og
fiskimjöl eða þangmjöl er
mjög gott því það eykur örver-
ugróður í jarðveginum. Um
aðra áburðargjöf er það að
segja að gott er að bera til-
búinn áburð á blettinn svona
þrisvar sinnum yfir sumarið og
það þótt húsdýraáburður hafi
verið notaður. Það má miða
við, að yfir sumarið fari á
hverja 1002 um það bil 10 kg.
af blönduðum áburði. Þessum
10 kílóum ætti að dreifa í
þrennu lagi og hafa fyrsta
skammtinn svolítið stærri en
hina, en hann kæmi þá í maí,
annar í júní og loks sá síðasti í
júlí.“
Hvað með blóm og nytja-
jurtir, þarf ekki að fara að
huga að þeim?
- „Ja það er nú kannski
fullsnemmt fyrir flestar nytja-
jurtir, en þar sem jarðvegur er
farinn að hlýna má fara að
hugsa sér til hreyfings. Gulrót-
um til dæmis má fara að sá.
Svo er það orðið tímabært að
huga að forræktun innan húss,
þannig að þeir sem eru með
káltegundir ættu að fara að sá
þeim svona upp úr miðjum
apríl. Síðan þarf að herða
plönturnar og venja þær við
áður en hægt er að planta þeim
út, sem yrði þá í lok maí.
Sama gildir með þá sem vilja
rækta sumarblómin frá byrjun,
það fer hver að verða síðastur
að sá. En forræktunin verður
eins og ég segi að gerast inni
þó reyndar séu til einstaka
tegundir sem sá má beint í
beðin.“
Þegar hér er komið sögu
hefur Steinn lokið við klipp-
ingarnar. Kettinum Brandi,
sem hefur verið að eltast við
„Á ég að nenna ða elta það? Þetta hreyfist ekki lengur.“
Vetrarúðun og vorverkin
Bröndóttur köttur og blaðaraenn fylgjast með garðvinnu
það verður að segja að hún er
mun skynsamlegri heldur en
sumarúðunin. Þetta er nánast
hættulaust efni sem við erum
ur ýmislegt til greina. Trjá-
klippingin til dæmis getur
hjálpað til við að útrýma
honum, því rætur trjánna
ganga langt undir blettinn og
taka næringu frá grasinu. Lauf-
ið á trjánum skýlir líka grasinu
frá birtu þannig að ef grisjað er
hefur ljósið greiðari leið niður
og það hjálpar grasinu. Nú
framræsla þarf að vera í lagi
sem og áburðargjöff. Það er
ágætt að setja á bíettinn svart-
an sand því hann hjálpar til við
að brenna mosann og það
loftar betur um og eykur súr-
efnisstreymi í jarðveginum.
það getur líka verið ágætt að
kalka blettinn, eða bera á hann
áburðarkalk, því það eykur
PH stigið (sýrustigið) í jarð-
veginum, sem mosinn þolir
illa.
- Ég myndi nú segja að það
væri að verða nokkuð seint að
bera á húsdýraáburð núna, en
best er að gera það meðan
sprekin sem féllu á jörðina,
finnst slæmt að fjörið sé búið.
Hann snýr sér þó fljótlega að
einhverju öðru, og við sjáum
að það er kominn tími til að
gera slíkt hið sama því nú er
Steinn að græja sprautuna til
að úða tréin. Við þökkum því
fyrir upplýsingarnar og kveðj-
um skrúðgarðameistarann, þar
sem hann stendur í ströngu við
vetrarúðunina.
IIKIÁÍAR-
BLAD
Umsjónarmenn Helgar-
blaðs:
Atli Magnússon,
Birgir Guðmundsson
og
Jón Arsæll Þórðarson
■Forsíðumynd: „Skuggi" eftir
Þór Vigfússon 1985. Frá sýn-
ingu myndhöggvara á Kjar-
valsstöðum.
■ Við litum inn á Kjarvalsstaði þar sem verið var að undirbúa
mikla sýningu 20 íslenskra myndhöggvara sem opnuð verður nú
um helgina. Auk höggmyndanna verður einnig opnuð sýning á
vegum SÍM á sama stað.
■ Fæst okkar gista oft á
hótelum, en þegar það gerist
er það vegna þess að eitthvað
óvenjulegt eða ævintýralegt er
að gerast hjá okkur. Við losn-
um út úr hversdagsleikanum
og hverfum yfir í annan heim.
En eru hótelin í raun og veru
heill heimur út af fyrir sig?
Helgarblaðið leitar svara við
þessari spurningu á bls. 4-5.
■ Bjórlíki svipar til bjórs;
smjörlíki til smjörs; en hversu
lík eru mannlíki mönnum?
Fjallað er um það hvað vél-
menni geta og hvaða áhrif þau
koma til með að hafa, á bls.
10-11.
■ Allir hafa heyrt talað um
gömlu strandferðaskipin, sem
afi og amma fóru með, -
Botníu, Sterling, Vestra
o s.frv. Við segjum frá lífinu
um borð á bls. 8-9.