NT - 14.04.1985, Side 4
■ Hótel Loftleiðir. Það þótti afrek á sínum tíma hve skamman tíma tók að byggja hótelið.
■ Kaffiterían opnar klukkan fimm á morgnaná.
NT heimsækir stærsta hótel
■ Helgarblað NT gerði út
leiðangur nú í vikunni á Hótel
Loftleiðir til að kanna hvað
hæft væri í því, sem segir í
sjónvarpsauglýsingu þeirra, að
hótelið væri heill heimur út af
fyrir sig.
Til að gera langa sögu stutta
þá gerðum við ýmsar stikk-
prufur eins og það er kallað.
Hótclstjórinn sjálfur, Emil
Guðmundsson, gaf okkur
frjálsar hendur og við þrædd-
um hótelið allt frá risi og niður
í kjallara, tókum fólk tali og
reyndum ýmsa þá þjónustu
sem boðið er upp á.
Það verður að segjast eins
og er, að er við stóðum fyrir
framan hótelið eftir að hafa
lokið yfirreiðinni vorum við
hjartanlega sammála um það
að þetta stærsta hótel þjóðar-
innar stæði fyllilega undir nafni
og væri heill heimur út af fyrir
sig.
Vissuð þið til dæmis, lesend-
ur góðir, að í bakaríi hótelsins
eru bökuð brauð og kökur á
hverjum sólarhring sem duga
mundu fyrir 7 til 10 þúsund
manna byggð. Eða þá það að
kokkar hótelsins útbúa um
fimm til sjöhundruð máltíðir á
dag og það ekki af verri endan-
um.?
„Þetta er eins og gríðarstórt
heimili með allri þeirri gleði og
sorg sem því fylgir," sagði
Emil hótelstjóri þegar við sett-
umst niður rneð honum og
lögðum fyrir hann bæði þægi-
legar og óþægilegar spurning-
ar.
„Að vetrinum vinna hér á
hótelinu um 110 manns og sú
tala tvöfaldast að sumrinu til.
Eins og á öðrum stórum hótel-
um er eitthvað hér í gangi allan
sólarhringinn og við reynum
að gera okkar besta til þess að
koma til móts við hvern og
einn, hvort sem um er að ræða
hótelgest eða starfsmann. Við
höfum einnig átt því láni að
fagna að margir gestanna
koma hingað aftur og aftur og
hvað starfsfólkið snertir þá eru
margir búnir að vera hjá okkur
allt frá byrjun."
Það þótti á sínum tíma
nokkurt afrek að hótelið var
fullbyggt á tæpu ári og í þau 19
ár sem síðan eru liðin, hefur
Emil verið starfandi á hótel-
inu.
Það svífur óhjákvæmilega
nokkur alþjóðlegur blær yfir
vötnunum á Hótel Loftleiðum
enda eru flestir gestirnir af
erlendu bergi brotnir. Stærstu
hóparnir koma frá Skandin-
avíu en síðan eru Bandaríkja-
menn númer tvö í röðinni.
íslendingar koma í þriðja sæti
og þá Þjóðverjar. Emil sagði
að hótelið hefði nokkra sér-
stöðu hvað staðsetningu
snertir. Um Reykjavíkurflug-
völl fara árlega þúsundir flug-
véla, sem koma víða að úr
hciminum. Þannig dvöldust
um þrjú þúsund gestir á hótel-
inu í fyrra, sem komið höfðu
með einkaflugvélum.
„Mikið af þessari umferð er
vegna ferjuflugs yfir Atlants-
hafið og mönnum þykir þægi-
legt að geta lagt vélunum beint
fyrir framan hótelið og fengið
þær tollafgreiddar þar.
Frá Bandaríkjunum koma
líka árlega auðjöfrar, sem
skreppa hingað í laxveiði og
a
■ Hársnyrtistofan nýtur mikilla vinsælda.
■ „Jassbrunch“ í Blómasal alla sunnudaga með hljómsveit Fríðriks Theodórssonar.
■ Óskar Guðjónsson yfirmatsveinn ásamt gesti í Blómasal.