NT - 07.05.1985, Síða 1
„Ummæli dagskrár-
stjóra blekkjandi“
hefðbundin vinnubrögð ráðsins
■ Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri tekur afstöðu með
útvarpsráði í þeim deilum sem
risið hafa milli ráðsins og dag-
skrárdeildar útvarpsins vegna
sumardagskrárinnar. Hann tel-
ur að þau vinnubrögð sem ráðið
hefur viðhaft séu eðlileg, a.m.k.
gangi þau ekki lengra í neinu
tilliti en áður hefur verið tíðkað.
Hann neitar því að í þeim felist
vantraust á dagskrárstjóra og
varadagskrárstjóra. Aðspurður
um það hvort það tíðkist að
ræða pólitískar skoðanir
starfsmanna útvarpsins á út-
varpsráðsfundum, segir hann að
það fari væntanlega eftir þeim
tilefnum sem starfsmenn hafi
gefið, hversu þeir hafi flaggað
skoðunum sínuni pólitískum
sem öðrum.
Markús Á. Einarsson,
veðurfræðingur, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í útvarpsráði
hafði samband við blaðið í gær
vegna fréttarinnar um þessar
deilur í laugardagsblaðinu, og
kveður hana byggða á rakalaus-
um dylgjum tveggja útvarps-
ráðsfulltrúa, Gerðar Óskars-
dóttur og Ingibjargar Hafstað.
Markús segir að útvarpsráð
hafi í einu og öllu farið eftir
þeim lögum sem það starfi eftir,
og raunar aðeins verið að sinna
skyldum sínum. Hann segir um-
mæli Gunnars Stefánssonar
dagskrárstjóra, sem vitnað var
til í laugardagsblaðinu blekkj-
„andi og lýsir yfir furðu sinni á
því að hann skuli láta þau sér
um munn fara, það sem gerst
hafi á fundinum á laugardaginn
sé ekki „óheppilegt inngrip" í
vinnu dagskrárdeildarinnar,
heldur sé um venjubundin
vinnubrögð að ræða. Sjá bls. 4
Hvað gera þingmenn í bjórmálinu?
Bjórneysfa 15-20 lítrar
á hvern íslending í fyrra
- samt er bannað að selja
áfengt öl í landinu
■ Bjórneysla á hvern íslend-
ing var á síðasta ári milli 15-20
lítrar þótt ekki sé enn að finna í
íslenskum lögum heimild til sölu
áfengs öls í landinu.
Um 600 þúsund lítrar af öli
bárust inn í landið í gegnum
Fríhöfnina á síðasta ári og sam-
svarar það 2 milljónum
flaskna.
Á síðasta ári var selt sama
magn af óáfengu öli til veitinga-
staðanna til gerðar bjórlíkis og
það er álit sérfræðinga að smygi
á öli inn í landið á síðasta ári
hafi numið um 10 lítrum að
meðaltali á hvern landsmann.
Þetta kom fram í máli Gunn-
ars G. Schram í 2. umræðu um
bjórmálið í neðri deild Alþingis
í gær, en spurningin sem alþing-
ismenn velta fyrir sér þessa
dagana er hvort búa eigi við
óbreytt ástand í bjórmálum
þjóðarinnar eða leyfa sölu
áfengs öls í verslunum ÁTVR.
í breytingartillögu frá Karvel
Pálmasyni, er lagt til að bjórlög-
in komi ekki til framkvæmda
nema þau hafi hlotið samþykki
meirihluta atkvæða í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, sem fram fari
eigi síðar en 15. sept. á þessu
ári, og Kristín Halldórsdóttir
vill hækka upphæðina af skatt-
tekjum ríkisins af sölu áfengs
öls, sem fara á til fræðslu um
áfengismál, úr0,5% í 1%.
Pálmi Jónsson gerði grein fyr-
ir áliti meirihluta allsherjar-
nefndar sem vill samþykkja
frumvarpið og sagði m.a. að
tími væri kominn til að breyta til
í þessum málum og taka upp
nýja siði sem ekki þurfi að bera
kinnroða fyrir en Ólafur Þ.
Þórðarson mælti fyrir áliti
minnihlutans og lagði til að
frumvarpið yrði fellt. Taldi
hann m.a. að með samþykkt
þess væri verið að taka ákvörð-
un um nýja skattheimtu sem
yrði dýr útgjaldaliður fyrir ís-
lenska þjóð þegar fram í sækti.
Umræðu var ekki lokið þegar
fundi var frestað.
Banaslys
á Þingeyri
■ Tvítugur piltur, Leifur
Dagur Ingimarsson frá
Stykkishólmi beið bana
sunnudagsmorguninn 5.
maí er vélhjól sem hann
stýrði lenti út af vegi
skammt innan við Þingeyri
og hafnaði niðri í fjöru.
Farþegi sem með honum
var lærbrotnaði, en náði að
skríða upp 5 metra háan
bakka upp á veginn og
síðan 300 metra í átt að
þorpinu til að gera viðvart.
Leifur Dagur var látinn,
þegar að var komið . Hann
hafði verið í vinnu á Þing-
eyri um skamman tíma.
Leifur lætur eftir sig eitt
barn..
Farþeginn á vélhjólinu
var fluttur til Reykjavíkur
þar sem gert var að meiðsl-
um hans.
Hommar fá
ekkí að
auglýsa
-sjábls.2
Brídge:
Sigtryggur
og Páll unnu
-sjábls.3
„Ekki
afgreiða
útvarps-
lögin“
- bað Páll Pétursson
og forseti deildar-
innar samþykkti
■ Þrátt fyrir að þinglok
nálgist óðum og að fjöldi
þingmála bíði afgreiðslu,
hafa tveir þingmenn
Framsóknarflokksins
valdið því að afgreiðslu
tveggja mála, sem al-
menningur bíður með
óþreyju, hefur seinkað.
í gær bar Stefán Val-
geirsson þingheimi þau
skilaboð frá Páli Péturs-
syni að afgreiðslu útvarps-
lagafrumvarpsins yrði
frestað meðan hann er er-
lendis, og samþykkti Ingv-
ar Gíslason, forseti neðri
deildar, að verða við til-
mælum Páls.
Ingvar var sjálfur er-
lendis fyrir skömmu og
gaf þá fyrirmæli þess efni$
að bjórfrumvarpið yrði
ekki tekið fyrir meðan
hann væri fjarstaddur.
Ingvar var mættur til
starfa í gær, og var bjórinn
til umræðu í neðri deild,
eins og sjá má annars stað-
ar á síðunni. Þá var út-
varpslagafrumvarpið tek-
ið fyrir, en afgreiðslu þess
ekki lokið, en búist er við
að Páll Pétursson mæti á
deildarfund á miðvikudag.
Halldór Blöndal, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að hinn
mikli dráttur sem verið
hefur á afgreiðslu útvarps-
lagafrumvarpsins, væri
vegna ósamkomulags
stjórnarflokkanna varð-
andi auglýsingaákvæði
laganna. Þá mælti Halldór
fyrir breytingatillögum
sem hann leggur fram
ásamt Ólafi Þórðarsyni,
Framsóknarflokki, þar
sem fallið er frá hug-
myndum um nefskatt á
hvern skattborgara til að
fjármagna rekstur Ríkis-
útvarpsins og lagt til að
hefðbundnar innheimtu-
aðferðir verði notaðar.
Þá lögðu þeir Halldór
og Ólafur til að ákvæði um
Menningarsjóð Ríkisút-
varpsins verði samþykkt
óbreytt, en mikil óánægja
er vegna þess ákvæðis,
innan Sjálfstæðisflokks-
ins.
Hjörleifur Guttorms-
son, Alþýðubandalagi,
gerði grein fyrir breyting-
artillögum þriggja stjórn-
arandstöðuflokka, og
spurði síðan hver afstaða
framsóknarmanna væri, nú
er „frelsissól auglýsing-
anna rynni yfir landslýð".
Eftir að Kristín Kvaran,
Bandalagi jafnaðar-
manna, hvatti þingmenn
til að láta hendur standa
fram úr ermum og sam-
þykkja lögin, snerist um-
ræðan upp í málþóf um
hverjir væru að tefja
málið.
Sinueldar við
sumarbústað
, ■ Sinueldar á Skálaheiði í
Kópavoginum ógnuðu sumar-
húsi sem þar stendur, síðdegis í
gær og var slökkviliðið kvatt á
staðinn. Var eldurinn slökktur
og hlaust ekki tjón af. Þá var
slökkviliðið einnig kvatt að
sinubruna við Vesturberg í
Breiðholti en á báðum þessum
stöðum gekk greiðlega að ráða
niðurlögum eldsins.