NT - 07.05.1985, Side 2
M
Eru f ramin mannrétt-
indabrot á íslandi?
- samtökin ‘78 fá ekki að auglýsa í Útvarpinu
■ Samtökunum '78 hefur ver-
ið meinað að auglýsa í Ríkisút-
varpinu sl. fjögur ár.
Auglýsing sú er allt snýst um
hljóðar svo „Lesbíur
Hommar. Símatími félagsins er
í kvöld. Samtökin ’78“.
Guðni Baldursson, sagði í
Viðtali við NT í gær að það hlyti
að teljast mannrétlindabrot að
Ríkisútvarpið meinaði sam-
tökunum frjálsan aðgang að
upplýsingum með því að leyfa
ekki tilkynningar sem beint er
til lesbía og homma.
„Okkur hefur nú verið bann-
að að auglýsa í fjögur ár og
höfum við margsinnis rætt við
útvarpsráð um þetta mál, auk
þess að við höfunt talað við
ráðherra og sent alþingismönn-
um bréf.
Fátt hefur verið um svör og
við veltum því fyrir okkur hvort
að við séum annars flokks borg-
arar í þessu þjóðfélagi" sagði
Guðni Baldursson.
Atli Gíslason, lögfræðingur,
sagði NT í gær að Ríkisútvarpið
hafi rétt á því að neita að taka
við auglýsingum eins og aðrir
fjölmiðlar, en málið væri alvar-
legra vegna þess að þessi tiltekni
fjölmiðill væri ríkisrekinn.
„Þetta er skýlaus mismunun
en þó ekki brot á stjórnar-
skránni þar sem hún inniheldur
ekki ákvæði um slík rnál.
Ég sé ekki hvað er að þessari
auglýsingu og á erfitt með að sjá
annað en að hér sé um mann-
réttindabrot að ræða, sam-
kvæmt þeim sáttmála sem við
byggjum á“ sagði Atli Gíslason.
„Ríkisútvarpið meinar íslensk
um lesbíum og hommum frjáls-
an aðgang að upplýsingum með
því að leyfa ekki tilkynningar
sem beint er til lesbía og
homma.
Ég mótmæli þessu og krefst
fullra mannréttinda til handa
íslenskum lesbíum og
homrnum". Þetta er texti bréf-
spjalda sem Samtökin 78 hafa
dreyft.
Hommum
bannað
að aug-
lýsa í DV
■ „Það eiga allir að hafa
jafnan rétt til að auglýsa og
það er alltaf erfitt fyrir okk-
ur homma þegar sá réttur
sem við höfum er tekinn af
okkur,“ sagði Egill Jónsson
sem fyrir skemmstu var
meinað að setja smáauglýs-
ingu í einkamáladálk DV,
þar sem hann undir heitinu
ungur hommi, auglýsti eftir
kynnum við „blíðan
karlmann".
Ingólfur P. Steinsson
auglýsingastjóri hjá DV
sagði í samtali við NT að
kvartanir hefðu borist vegna
auglýsinga frá hommum og
sömuleiðis hefðu hommar
misnotað einkamáladálkinn
til að koma að fundarboðum
og öðru þvíumlíku. „Það er
kvartað undan þessu á öllum
vígstöðvum, þetta þykir
abnormalt, ennþá að
minnsta kosti," sagði Ingólf-
ur ennfremur.
Aðspurður sagði Ingólfur
að einnig væri kvartað undan
ýmsu öðru í þcssum dálki,
svo sem þar sem greinilega
er leitað eftir svokölluðu
„hópsexi" er verið væri að
hreinsa þennan dálk. Fleir-
um hefði verið bannað að
auglýsa en kynhverfum og
fleiri ættu eftir að fylgja í
kjölfarið.
Egill Jónsson sem er ung-
ur Vestur-íslendingur og hef-
ur dvalið hér í 8 mánuði við
íslensku-nám sagði að sú
leið að auglýsa teldi hann þá
bestu fyrir sig hér á landi.
Engir skipulaðir homma-
klúbbar væru í landinu og
víða væri hommum bannað
að dansa í samkomuhúsum.
Þá neytti hann ekki áfengis
og hefði því takmarkaðan
áhuga á að sækja
vínveitingahús í þeirri von
að kynnast þar öðrum
hommum. Eftir að hafa far-
ið bónleiðar tilbúðar einu
sinni hjá DV, reyndi hann
aftur og nú án þess að nota
orðið hommi í auglýsing-
unni en einnig án árangurs
og sama varð uppi á teningn-
um í þriðju atrennu. Sjúlfur
kvaðst hann efast stórlega
um að það væri einhver
meirihluti lesenda blaðsins
sem ekki vildi að þarna sæist
orðið hommi og svona regl-
ur minntu helst á Suður-
Afríku þar sem réttindi
manna fara eftir litarhætti,
en hér eftir ástleitni.
■ Það sem okkur kynni að bjóða í hug að ætti skylt við vændi er leyfilegt
en þeir sem leita eftir ást einhvers af gagnstæðu kyni eru „abnormal"
og skulu út.
Alþýðublaðið
í blátt og gult?
■ Það eru ritstjóravanda-
mál víðar en á NT. Nýverið
sagði Guðmundur Árni Stef-
ánsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins, upp starfi sínu.
Jón Baldvin hefur margoft
lýst yfir þeirri skoðun sinni
að leggja beri Aiþýðublaðið
niður, en hingað til hefur
hann ekki fengið stuðning
framkvæmdastj órnar
flokksins.
Nú mun hins vegar standa
yfir endurskoðun á útgáfu-
málurn Alþýðuflokksins, og
aldrei að vita nema Alþýðu-
blaðið verði næst á eftir NT
til að taka þátt í stríðinu við
„risana“ tvo.
Til að ritstýra þeirri
stórsókn, hefur heyrst að
Helgi Már Arthúrsson,
fræðslufulltrúi BSRB sé út-
nefndur, en hann ritstýrði
BSRB tíðindum í verkfall-
inu, ásamt ögmundi Jónas-
syni. Enn mun Helgi ekki
hafa gefið ákveðið svar.
Tíðindalaust hjáNT
■ I gær, mánudaginn 6.
ntaí, sagði enginn starfsmað-
ur NT upp störfum, né var
nokkrum sagt upp.
Við fylgjumst spennt með
áframhaldinu.
Ingi Tryggvason, forma&ur Stóttarsambands bændai
Landbúnadarframleiðslan hefur minnkað
tekjurnar lækkað og vextirnir hækkað
Otan á annan vanda bsnda bætast ótíð og lækkandi niðurgreiðslur
Þriðjudagur 7. maí 1985 2
■ Þau undur og stórmerki gerðust í heita læknum í Nauthólsvík í
gær að hann fylltist af froðu eða sápulöðri. Viðstaddir létu það ekki
á sig fá heldur héldu áfram að baða sig eins og ekkert hefði í skorist.
Nl-mynd: Ari
Þekktur þjófur
áferð
■ Líkur á að takist að hafa
upp á fálkaeggjunum sem hurfu
úr hreiðri í Aðaldal í Þingeyjar-
sýslu síðastliðna helgi eru nú
taldar hverfandi. Þekkturfálka-
eggjaþjófur, Christan Krey frá
Þýskalandi slapp úr landi á
sunnudag og eru taldar sterkar
líkur á að hann sé viðriðinn
þjófnaðinn þó ekkert hafi fund-
ist-f föggum hans við brottför af
Iandinu.
Talið er að aðstoðarmaður
hafi verið með Krey en ekki
vitað hvenær eða hvort sá er
farinn af landi brott. Eigi hann
enn eftir að láta sjá sig á Kefla-
víkurflugvelli er veik von til
þess að eggin finnist. Að sögn
Ævars Petersen fuglafræðings
er þessi maður þekktur sem
fálkaeggjaþjófur um allar lend-
ur og var meðal annars hér á
landi í fyrra og þá að líkindum
komist af landi brott með ein-
hver egg. Þá var leitað á honupi
norður í Þingeyjarsýslu en ekki
á aðstoðarkonu hans, enda eng-
inn kvenlögregluþjónn á svæðinu
og rétt síðar var sama dama
komin af landi brott.
Krey var norður í Þingeyjar-
sýslu þegar eggin sent voru fjög-
ur talsins hurfu úr hreiðrinu.
■ Þessi flugvél franska hersins lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær
og dvaldi áhöfn hennar hér í nótt. Vélin mun vera af tegundinni
Transail 160, eða C-160, og vera frönsk-þýsk smíði. NT-mynd: Ámí ujama