NT - 07.05.1985, Side 4
Laugardagsfrétt NT um framgöngu útvarpsráðs:
Eingöngu byggt á
dylgjum tveggja
útvarpsráðsmanna
- segir Markús Á. Einarsson útvarpsráðs-
fulltrúi Framsóknarflokksins
■ „í fyrirsögn og upphafsoröum fréttarinnar í NT á laugardag-
inn er aö mínu mati beinlínis farið með rangt mál aö sumu leyti,
og það sem meira er aö allt er eingöngu byggt á dylgjum tveggja
útvarpsráösmanna, Geröar Óskarsdöttur og Ingibjargar
Hafstað, en á hinn böginn hefur ckki veriö reynt að liafa
samband við einn þeirra (imm útvarpsráösmanna sem stóöu aö
ákvörðun um ákvcðinn dagskrárlið á laugardagsmorgna í
sumar,“ sagði Vlarkús Á. Einarsson útvarpsráösfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í gær, en hann haföi samhand viö blaöið vegna
fréttar NT á laugardaginn um ákvaröanir útvarpsráðs um
sumardagskrá hljóövarpsins.,
„l’annig er mál með vexti aö
eftir að fulltrúar Kvennalista og
Alþýðubandalagsins lögðu fram
bókun, þar sem minnst er á þær
pólitísku ofsóknir innan gæsa-
lappa, sem NT tekur upp þá
bókuðum við fimmmenningarn-
ir og okkar bókun hljóðar svo:
„Vegna bókunar Ingibjargar
Hafstað og Gerðar Óskarsdótt-
ur viljum við taka eftirfarandi
fram, Ástæða þess að við óskum
annarrar tilhögunar dagskrár-
þáttar á laugardagsmorgnum í
sumar, en dagskrárstjóri lagði
til er einfaldlega að þáttur af því
tagi hefur verið á dagskrá í allan
vetur og því tímabært að breyta
til. Dylgjur Ingibjargar og
Gerðar um lítilsvirðingu, van-
traust og ofsóknir eru því út í
hött svo og álit það á varadag-
skrárstjóra, sem þær leggja okk-
ur ranglega í munn. Það er
hlutverk útvarpsráðs að taka
ákvarðanir um dagskrárgerð og
nýtt af nálinni cf það starf telst
afskiptasemi.*" Þetta var svar
okkar við bókun þeirra og ég
vona það komi fram að spurn-
ingin er ekki um vanhæfni, eins
og segir í fyrirsögn NT, heldur
er þetta spurning um dagskrár-
íiðr
Mótmælir þú því að ummæli
hafi verið viöhöfð á útvarps-
ráðsfundi, um varadagskrár-
stjórann sem vitnað er til í
fréttinni?
„Ég kannast ekki við það.
Pólitískar ofsóknir og því
umlíkt, það cru ummæli sem
koma frá fulltrúum Kvennalista
og Alþýðubandalagsins. Orðið
vanhæfni kannast ég ekki við.“
Vanhæfni er orðalag NT, en
féllu aldrei þessi tilvitnuðu um-
mæli?
„Ekki svo ég geti munað. Ég
staðfesti það alls ekki, sem sagt
var þarna í upphafi fréttarinn-
ar.“
Voru þau ummæli ekki við-
höfð á útvarpsráðsfundi, föstu-
daginn 26. apríl að Ævar Kjart-
ansson hefði brotið af sér gagn-
vart útvarpsráði?
„Það þori ég ekki að fara
með, því ég var ekki staddur á
þeim fundi öllunr. En það er
bara hlutur sem kemur ekki
málinu beint við. En þar sem ég
er búinn að svara þessu, þá verð
ég að segja að það er eitt sem
mér finnst undarlegast við frétt-
ina og það er það sem haft er
eftir Gunnari Stefánssyni dag-
skrárstjóra. Hann segir það
óheppilegt að útvarpsráð grípi
fram í undirbúningsvinnu dag-
skrárdeildarinnar og gera hana
þannig að engu. í þessum um-
mælurn felst að mínu mati nán-
ast blekking. Það er svo að í 6.
grein útvarpslaga segir: „Út-
varpsráð tekur ákvarðanir um
hversu útvarpsefni skuli haga í
höfuðdráttum og leggur fullnað-
arsamþykkt á dagskrá áður en
hún kemur til framkvæmda'.’
Það er að mínu mati dálítið
alvarlegur hlutur, þegar reynt
er að bera það á borð að
óeðlilegt sé að útvarpsráð segi
álit sitt á útvarpsefni, - í raun-
inni er það aðeins skylda ráðsins
að gera það, - og Gunnar Stef-
ánsson veit að það hefur alla tíö
verið algengt að ráðið breyti
frumtilhögun dagskrárdeildar
og komi jafnvel með nýjar til-
lögur sem dagskrárdeild er falið
að koma í framkvæmd. Aug-
sýnilega telur hann að hann eigi
sjálfur að fá að ráðskast með
■ Markús Á. Einarsson.
þetta, ég get ekki skilið hann
öðruvísi. Hann telur það
óheppilegt sem er regla!“
Þú telur það eðlilegan hlut að
útvarpsráð ráði menn til þátta-
stjórnunar án samráðs við dag-
skrárdeild. Eða eins og nú gerð-
ist að deildin hafði undirbúið
síðdegisútvarp og hverjir skyldu
stjórna því, en síðan ræður
útvarpsráð mann til starfa
framhjá dagskrárdeild?
„Sko, það er alveg augljóst
aö þú hefur mjög einhliða upp-
lýsingar um þessi mál yfirhöfuð.
Nú er það svo að ég hef ekkert
hugsað mér að fara að rekja
umræður sem eiga sér stað á
útvarpsráðsfundum. En þaö er
mjög algengt að það koma til-
boð um dagskrárefni. Og það er
alrangt að dagskrárdeild hafi
ekki tækifæri til að segja álit sitt
á þeim, því að dagskrárstjóri
situr á útvarpsráðsfundum.”
Það veit ég vel en dagskrár-
deild...
„Dagskrárdeild hafði undirbú
ið síðdegisútvarpið, en það sem
hún gerði var að stytta síðdegis-
útvarpið, þegar við óskuðum
eftir því að það yrði lengt.
Dagskrárstjóri vissi það fyrir
fundinn að ráðið var ekki ánægt
með þær tillögur."
Hjólbarða-
þjónusta
fyrir allar stærðir og gerðir
af bílum, fólksbíla,
vörubíla og sendiferðabíla.
Höfum mikið magn af
kaldsóluðum, heilsóluðum
og radíaldekkjum á lager.
Öll hjólbarðaþjónusta
innanhúss. Komið og
reynið viðskiptin í nýju
húsnæði okkar.
Ath. Gegn framvísun
þessarar auglýsingar
veitum við 5%
kynningarafslátt.
Kaldsólunhf.
Dugguvogi 2. Sími: 84111
Sama húsi og Ökuskólinn.
Áhugamannafélag um Laxeldistilraunir á Sauðárkróki:
„Byrjum smátt því óvissuþætt-
irnir í laxeldinu eru margir“
- segir Jóhann Svavarsson, stjórnarform. Hafrúnar hf.
■ Undanfarna daga hefur verið unnið af krafti víð byggingu
cldiskers Hafrúnar hf. sem stendur skammt frá sjónum. Kerið
er 170 rúmmetrar að stærð. NT-mynd: öm
Frá fréttarítam NT í Skagafiröi, Ö.Þ.:
■ Sex áhugamenn um fisk-
eldi - þar af tveir fiskifræð-
ingar - sem allir eru búsettir
í Skagafirði stofnuðu fyrir
skömmu á Sauðárkróki nýtt
félag, Hafrúnu hf. Markmið
félagsins er eldi á laxi upp í
slátrunarstærð og mun það
verða rannsóknarverkcfni
næstu tvö árin.
í samtali við Jóhann Svav-
arsson, stjórnarformann í
Hafrúnu lif. kom fram að hér
væri ekki um neitt stórfyrir-
tæki að ræða, heldur félags-
skap nokkurra áhugamanna
sem vilji gera tilraunir nieð
fiskeldi í smáum stíl til að
byrja með, meðan verið væri
að kanna hvort eldi á laxfiski
upp í slátrunarstærð gengi af
líffræðilegum og hagfræði-
legum ástæðum við þær að-
stæður sem eru á Sauðár-
króki.
„Við leggjum áherslu á að
byrja í smáum stíl, einfald-
lega vegna þess hvað óvissu-
þættirnir í laxeldinu eru
margir. Mistakist þessi til-
raun viljum við ekký^tanda
uppi me& margra milljóna
króna tap á bakinu,“ sagði
Jóhann.
Hafrún hf. hefur fengið
lóð fyrir starfsemi sína
skammt frá affalli Göngu-
skarðsárvirkjunar og er
þessa dágana verið að byggja
eldisker úr stáli, um 170
rúmmetra að stærð. Gengið
hefur verið frá samningum
við Hitaveitu Sauðárkróks
um kaup á heitu vatni til
tilraunareksturs næstu tvö
árin.
„Við getum væntanlega
flutt gönguseiði í kerið um
miðjan maí,“ sagði Jóhann.
í kerjunum verður sjór
blandaður heitu vatni.
Þriðjudagur 7. maí 1985 4
Ræðir útvarpsráð pólitískar
skoðanir starfsmanna á fundum sínum?:
í hlutfalli
við þau til-
efni sem þeir
hafa gefið
-segir Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri
■ Gekk útvarpsráð of langt á
fundi sínum á föstudaginn í því
að grípa fram fyrir hendurnar á
dagskrárdeildinni? Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri svaraði
þcirri spurningu á þann veg að
svo lengi sem hann hefði komið
nálægt Ríkisútvarpinu, hefði ali-
ur gangur verið á því hvernig
ákvarðanir hefðu verið teknar
um einstaka dagskrárliði. Út-
varpsráð hefði oft haft önnur
sjónarmið en dagskrárdcildin
og lagt fram aðrar hugmyndir
en hún.
Hann taldi ekki að útvarpsráð
hefði nú gengið neitt lengra en
venjulegt væri. Oft kæmi fyrir
að tilboð kæmu frá einstökum
mönnum um gerð þátta og dag-
skrárdeildin lagt það til að slík-
um tilboðum væri tekið, en
útvarpsráð síðan samþykkt það
eða synjað. „Þá hafa það gjarna
verið einangraðri tilfelli en þeg-
ar um hefur verið að ræða alla
beinagrindina eða rammann að
sumardagskránni, þannig að í
því tilfelli verða dæmin um
þetta mismunandi mat á nöfn-
um og þáttaheitum meira áber-
andi,“ sagði útvarpsstjóri.
Nú hefur dagskrárdeild gert
ramma að síðdegisútvarpi og
maður skrifar útvarpsráði beint
og býðst til að hafa umsjón með
því. Er það venjuleg málsmeð-
ferð, eða er allur gangur á því?
„Ja, það er allur gangur á því
hvernig bréf berast til útvarps-
ráðs, og tilboð um þætti. Það
var t.d. á þessum fundi lagt
fram bréf frá einum fréttamanni
sjónvarpsins með tilboði um
þáttagerð sem hann hefði áhuga
á og það upplýstist á fundinum
að fréttastjórin.n og dagskrár-
stjóri frétta og fræðsludeildar
höfðu ekki haft hugmynd um
það. Og það hefur oft gerst að
fréttamenn hafa t.d. lagt fram
hugmyndir um fréttatengda
þætti, umræðuþætti og annað,
sem hefur bara borist beint til
útvarpsráðs."
í tilviki Ævars Kjartanssonar,
þá hefur dagskrárstjóri beðið
hann að annast þátt og Ævar
skipulagt hann. Síðan er öðrum
starfsmanni sömu deildar falið
að annast þátt á þessum um-
rædda tíma. Er þetta ekki van-
traust á Ævar? Er hann þá hæfur
til starfa yfirhöfuð?
„Þetta er náttúrlega mál sem
snertir hér uppskiptingu á verk-
efnum milli manna innan deild-
ar. Það verða náttúrlega þeir
fulltrúar í útvarpsráði sem að
þessum samþykktum stóðu að
gera grein fyrir hvernig þeir
hafa hugsað þetta. Það er ljóst
að Páli Heiðar Jónsson, sem var
sérstaklega nefndur í sambandi
við umsjón með þessum laugar-
dagsþætti, er hér fastráðinn
dagskrárgerðarmaður og það
má vel vera að útvarpsráðs-
mönnum hafi þótt sem svo að
það lægi ekki nógu skýrar línur
fyrir um það hvaða verkefni
honum væru ætluð og það hafi
verið talið eðlilegt að nýta hans
starfskrafta til þessa. Hann hef-
■ur nú ekki verið áberandi í
■ Markús Örn Antonsson.
dagskránni að undanförnu,
hann hefur að vísu verið með
tiltekið verkefni, sem er tónlist-
arþáttur og þetta er þá kannske
hugsað í framhaldi af því.“
Þú lítur þá ekki á þessa af-
greiðslu, sem vantraust á þína
undirmenn, dagskrárstjóra og
varadagskrárstj óra?
„Nei, ég get ekki metið það
þannig. Ævar Kjartansson
gegnir auðvitað veigamiklu
hlutverki, sem varadagskrár-
stjóri með því að hafa um-
sjón með dagskrármálum hér
almennt, sjá til þess að hér sé
nóg framboð af dagskrárefni og
þá náttúrlega með þátttöku
utanaðkomandi umsjónar-
manna þátta og sem fjölbreytt-
ustu úrvali í þessu og ég tel
náttúrlega að það sé fyrst og
fremst hans verkefni sem starfs-
manns dagskrárdeildarinnar að
sjá svo um að það gangi eftir og
það kom fram á þessum fundi
eins og þú veist væmanlega um
af hálfu þeirra útvarpsráðs -
mannasemtjáðusig um þennan
þátt sérstaklega að það væri
matsatriði hvað eðlilegt væri að
fastir starfsmenn hér væru mikið
í umsjón fastra þátta í dag-
skránni.“
En nú er löng hefð fyrir því.
„Já, það er spurning hvort
það sé eðlileg hefð, það má
kannske spyrja að því líka, og
um það eru mjög skiptar
skoðanir, eins og maður þekkir
af umræðunni almennt hér inn-
an stofnunarinnar og eins líka
utan hennar.“
Ein spurning að lokum. Er
það algengt að útvarvjiráðs-
menn sitji og ræði um pólWwitair
skoðanir starfsmanna útvarps-
ins á fundum sínum?
„Bíddu nú við, hvað áttu við
með því?“
Ég á við ýmis ummæli, sem
mér er sagt að hafi fallið á
útvarpsráðsfundum um Ævar
Kjartansson.
„Nú, það fer nú eftir því
hvaða tilefni menn hafa gefið til
slíkra umræðna geri ég ráð fyrir,
hvað þeir hafa flaggað opinber-
lega sínum skoðunum, pólitísk-
um sem öðrum. Ég held það
hafi þá bara verið í hlutfalli við
það.“