NT - 07.05.1985, Page 9
Þriðjudagur 7. maí 1985 9
fa orðid
■ Það getur sem best kostað nokkurt fé að fá að sveifla veiðstönginni.
Randýr veiðileyfi
í Vífilsstaðavatni
■ Ég vil lýsa óánægju minni
með hversu dýr veiðileyfi eru
orðin í Vífilsstaðavatni. Ég
spyr hver tekur ákvörðun urp
verð á þessum veiðileyfum?
Nú kosta krónur 220 að
renna í vatnið og ekki er hægt
að kaupa hálfan dag. í fyrra
var verðið í kringum 80 krónur
ef ég man rétt. Mér þykir það
undarleg stefna á ári æskunnar
að ungt fólk sé fælt frá jafn
heilsusamlegu sporti og stang-
veiði er, með dýrum veiðileyf-
um. Hafnarfjarðarbær ætti að
sjá sóma sinn í því að hafa
veiðileyfi ókeypis fyrir yngra
fólk sem gæti þá unað sér við
vatnið og jafnframt notið hollr-
ar útiveru. Þetta er rándýrt
veiðileyfi, ef lítum til dæmis til
Úlfljótsvatns, sem verður að
teljast mun betra veiðivatn, en
þar kostar dagurinn rúmar
hundrað krónur.
Þetta er hlutur sem þarf að
breyta hið fyrsta, og mun það
stuðla að heilbrigðari og
hraustari ungum Hafnfirðing-
um.
Skopast að grandalausu fólki
■ „Ekki er öll vitleysan
eins,“ hafa sumir að orðtaki
þegar fyrir augu eða eyru ber
einhverja fásinnu, sem aðeins
er hægt að hrista höfuðið yfir
en hvorki hægt að reiðast né
hlægja að.
Fásinna af svona tagi var
viðtal kokkað saman á Þjóð-
viljanum við indverska stelpu,
sem stendur í basli með hús-
næði, eins og svo margir á
höfuðborgarsvæðinu. Hún er
eins og gefur að skilja þreytt á
flutningunum og okrinu og Iá
menn henni það varla. Hrekk-
ur upp úr stelpunni að meira
að segja í Indlandi sé ástandið
skárra.
Nú er það þannig í spjalli
yfir kaffibolla að fólk grípur til
ýkinna líkinga, svona til þess
að lita samræðurnar. En þar
með er ekki sagt að þannig
orða flúr eigi erindi í fimmdálk
á forsíðu dagblaðs. Blaðamað-
ur ætti að vita að sanngirnis
skylda hans við viðmælandann
er að gera hann ekki að fífli
opinberlega.
í>að er sagt urn Indverja að
þeir séu heimsmeistarar í list-
inni að lifa af andstreymi, sem
öllum öðrum reyndist um
megn að þola. Þótt frú Leoncie
Martin kunni að sanna þessa
visku með því að lifa af hið
vitlausa Þj óðvi 1 j a viðtal, þá
sýnist það ííldungis út í bláinn
hjá blaðii.„ ao magna vand-
kvæði hennar með þessum
hætti. Húsnæðisbasl er nægur
kross á hverri manneskju.
Leigjandi
Sjónvarpið:
Fleiri góða þætti
Númi skrifar:
■ Mikið var það nú gott hjá
sjónvarpinu að fá lögguþættina
aftur, „Verði laganna“. Þar
fara góðir þættir, sem gaman
verður að sjá meira af. En
þrátt fyrir þessa góðu viðleitni
ætla ég nú að deila aðeins á
sjónvarpið, nefnilega fyrir það
hvað það eru nú alltaf fáir
svona „góðir þættir“ í gangi,
og nýlegustu asnastrik í sam-
setningu dagskrár.
Hvenær fáum við meira af
Dallas, eða þá Löðri? Hvers
■ Verðir laganna.
vegna eru ekki sýndar fleiri
bíómyndir? Er það verjandi,
eins og var s.l. föstudagskvöld,
að eftir Skonrokk sé sýndur
þrautfúll amerískur áróðurs-
þáttur um einhverja flótta-
stelpu frá Sovét sem leikur á
fiðlu. Og svo enn fúlli svissn-
eska leiðindamynd á eftir. Það
vantaði nú ekki annað en
heimildamynd um útför Brésn-
evs til að botna harmagrátinn.
Og hvenær lýkur þeim mol-
búahætti að hafa ekkert sjón-
varp á fimmtudögum? Það
mætti að minnsta kosti láta
eins og tvær bíómyndir rúlla
þá í staðinn fyrir stillimynd.
/