NT - 07.05.1985, Síða 11
Þriðjudagur 7. maí 1985 11
afhjúpa styttu af Hriflu-Jónasi,
mikilhæfum leiðtoga bænda og
verkalýðs sem var borinn í
þennan heim fyrir réttum
hundrað árum. I morgunsól-
inni, var mér sagt, komu ungir
og gamlir Framsóknarflokks-
menn saman á Arnarhóli,
brostu fallega hvorir framan í
aðra og þó mest framan í
foringja sinn, löngu búnir að
fyrirgefa Jónasi gamlar yfir-
sjónir. Að sögn hafði Jónas
þessi alla tíð sérstakt lag á því
að vekja heitar tilfinningar
með fólki og oftar en ekki
andúð. Þetta var fyrir mína
tíð, en síðar um daginn fékk ég
staðfestingu á því að fyrir
þessu var og er vissulega flugu-
fótur. Þá sat ég í matarboði og
útmálaði fávíslega stórafrek
Jónasar Jónssonar í mennta-,
menningar- og framfaramál-
um. Sé ég þá ekki betur en að
kominn sé ógurlegur fýlusvip-
ur, næstum blár á andlit vand-
aðs sjálfstæðismanns við
borðið, sem tengdur er mér
lauslega í fjölskyldu. Það eru
sumsé ekki allir búnir að fyrir-
gefa Jónasi öll umsvifin og
dugnaðinn. Ég er líka viss um
að honum þykir það ekkert
verra, hvar sem hann er nú
niðurkominn.
Sumir hlutir eru fastir punkt-
ar í tilverunni á fyrsta maí og
örugglega sjónarsviptir ef þeir
væru ekki meir. Það er tildæm-
is hann Atli Magnússon kollegi
minn, sem blæs í trombón hjá
Lúðrasveit verkalýðsstéttar-
innar þannig að undir tekur í
auðvaldsköstulunum við
Laugaveginn. Og svo eru það
Samtök herstöðvaandstæð-
inga, hópur sem verður æ fá-
mennari og sultarlegri með
hverju árinu sem líður, sem
kyrjar í göngunni sinn tilbreyt-
ingasnauða baráttumars gegn
hernum og Nató við slitið ástr-
alskt dægurlag. Og það eru
gömlu kreppukommarnir sem
hafa gengið undir merkjum
síns félags í margra manns-
aldra, klæddir í sitt besta púss,
teinótt jakkaföt frá því í stríð-
inu, því það eru ekki nema
stofukommar sem mæta í
slorgallanum á fyrsta maí.
En þetta voru samt ekki
stjörnurnar í fyrsta maígöng-
unni þetta árið. Og ekki voru
það heldur ræðumennirnir
snjöllu sem með tuldri sínu um
verðbólgu, vísitölu og vanefni
sáu til þess að útifundurinn á
Lækjartorgi gufaði upp svona
hérumbil í þá mund sem hann
átti að hefjast. Nei, stjörnurn-
ar voru hópur póstburðar-
manna sem kalla sig bréfbera-
leikhúsið Dúfan. Þar má sann-
arlega segja að leiklistin hafi
verið tekin í þágu verkalýðs-
baráttunnar með áhrifamikl-
um hætti. Að minnsta kosti fór
ekki á milli mála við hvílík
hörmungarkjör bréfberar búa
á leiksýningunni í Austurstræti
að lokinni göngu; gott ef þeir
hafa það nokkuð skárra en
landpóstarnir gömlu sem grófu
sig gjarnan í fönn og börðust
yfir heiðar og beljandi jökul-
fljót í öllum veðrum. Ég sá
heldur ekki betur en þarna
væri kjörum bréfbera líkt við
hlutskipti ólæsra og varnar-
lausra bréfdúfa; í hita leiksins
var einn bréfberinn lokaður
inni í þröngu búri á meðan
félagar hans slógu um hann
hring og höfðu uppi torkenni-
leg hróp og köll. Það er ljóst
að póstmeistarinn í Reykjavík
verður að fara að hugsa sinn
gang ef hans á ekki að verða
minnst sem eins mesta þræla-
haldara sögunnar.
Það voru tveir útifundir í
Reykjavík þetta árið. Lang-
þreytt fulltrúaráð verkalýðsfé-
laganna hélt sína árlegu sam-
komu á Lækjartorgi og mátti
þar heyra yfirvegaðar og sann-
girnislegar tölur um að ástand-
ið hefði sjaldan verið verra,
það þyrfti að rétta hag þeirra
lægstlaunuðu, en enga óþarfa
æsimennsku eða baráttuhug,
enda á slíkt varla við í sið-
menntuðu samfélagi einsog
okkar þar sem verkföll eru
orðin gamaldax. Róttækar
konur héldu svo annan útifund
á Hallærisplaninu framan við
Kvennahúsið og voru öllu óbil-
gjarnari. Á þeim fundi varð á
vegi mínum nær öll ritstjórn
Þjóðviljans, kollega mína úr
blaðamannastétt, hangandi á
vörum ræðukvennanna sem
eggjuðu kynsystur sínar til bar-
áttu. „Eruð þið ekki á vitlaus-
um fundi, strákar?" spurði ég.
„Eru ykkar menn ekki á Lækj-
artorgi, allirsaman allaballarn-
ir?“ Þeir tóku fálega í það.
„Hérna er okkar fólk!“ kvað
einn þeirra upp með næstum
útkulnaðan róttæknisglampa í
augum. Þeir hinir tóku undir,
sögðust sko ekki láta flokkinn
kúga sig lengur, allur Þjóðvilj-
inn væri á kvennafundinum
utan tveir stjórar. Fram-
kvæmdastjóri blaðsins væri
giftur formanni Alþýðusam-
bandsins og yrði því að standa
á Lækjartorgi hvort sem henni
líkaði betur eða verr. Eldri og
reyndari ritstjórinn væri á báð-
um áttum, vissi ekki í hvorn
fótinn hann ætti að stíga og
kysi því að standa á milli
funda, á horni Austurstrætis
og Pósthússtrætis. Þar hefur
hann sennilega orðið fyrir ein-
hvers konar hugljómun, því
skömmu síðar slóst hann líka í
hóp blaðamannanna baráttu-
fúsu á Hallærisplaninu.
Ja svona geta menn stundum
verið óþekkir við flokkana
sína...,
Texti: Egill Helgason
li^
ÓST3P
Lanap
liíinn
Pí
■ Er tími landpóstanna liðinn? Spyrjið póstmeistara!
NT-mynd: Árai Bjama
Akureyri Halldór Ásgeirsson, Hjarðarlundi 4, s. 22594.
Akranes Aðalheiður Malmqvist, Dalbraut 55, s. 93-1261
Borgarnes Guðný Þorgeirsdóttir, Kveldúlfsgötu 12, s. 93-7226.
Hellissandur Víglundur Höskuldsson, Snæfellsási 15, s. 93-6737.
Rif Snædís Kristinsdóttir, Háarifi 49, s. 93-6629.
Ólafsvík Guðný H. Árnadóttir, Grundarbraut 24, s. 93-6131.
Grundarfjörður Þórunn Kristinsdóttir, Grundargötu 43, s. 93-8733
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir, Silfurgötu 25, s. 93-84010.
Búðardalur Sólveig Ingvadóttir, Gunnarsbraut 7, s. 93-4142.
Patreksfjörður Ingibjörg Haraldsdóttir, Túngötu 6, s. 94-1353,
Tálknafjörður Níels Ársælsson, Hamraborg, s. 94-2656 (2514).
Bíldudalur Jóna M. Jónsdóttir, Tjarnarbraut 5, s. 94-2206.
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir, Brimnesvegi 2, s. 94-7673.
Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir, Sætúni 2, s. 94-6170.
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 115, s. 94-7366.
(safjörður Svanfríður G. Bjarnadóttir, Pólsgötu 5, s. 94-3527.
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54, sími 94-8131
Súðavík Heiðar Guöbrandsson, Neðri Grund, s. 94-4954.
Hólmavík Guðbjörg Stefánsdóttir, Bröttugötu 4, s. 95-3149.
Hvammstangi Baldur Jessen, Kirkjuvegi, s. 95-1368.
Hofsós Björn Nielsson, Kirkjugötu 21, s. 95-6389
Blönduós Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, s. 95-4581.
Skagaströnd Ingibjörg Skúladóttir, s. 95-4885.
Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson, Skaf.braut 25, s. 95-5200.
Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir, Aðalgötu 21, s. 96-71208.
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, s. 96-62308.
Dalvík Brynjar Friðleifsson, Ásvegi 9, s. 96-61214.
Grenivík Jóhann Axel Pétursson, Túngata 15, s. 96-33188.
Húsavík Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, s. 96-41765.
Kópasker Þórhalla Baldvinsdóttir, Akurgerði 7, s. 96-52151.
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason, Sólvöllum, s. 96-51258.
Reynihlíð Þuríður Snæbjarnardóttir, Skútahrauni 13, s. 96-44173.
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson, Austurvegi 1, s. 96-81157.
Breiðdalsvík Jóhanna Guðmundsdóttir, Selnesi 36, s. 96-5688.
Borgarfjörður eystri Hallgrímur Vigfússon, Vinaminni.
Vopnafjörður Jóhanna Aðalsteinsdóttir, s. 97-3251.
Egilsstaðir Páll Pétursson, Árskógum 13, s. 97-1350.
Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson, Oddagötu 4, s. 97-2360.
Neskaupstaður Marín Árnadóttir, Víðimýri 18, s. 97-7523.
Eskifjörður Jónas Bjarnason, Strandgötu 73, s. 6262.
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson, Heiðavegi 12, s. 97-4119.
Fáskrúðsfjörður Sonja Andrésdóttir, Þingholti, s. 97-5148.
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon, Undralandi, s. 97-5839.
Djúpivogur Rúnar Sigurðsson, Garði, s. 97-8820.
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir, Smárabraut 13, s. 97-8255
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir, Sólheimum, s. 99-8172.
Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Geitasandi 3, s. 99-5904
Selfoss Helga Snorradóttir, Tryggvavegi 5, s. 99-1658.
Stokkseyri Sturla G. Pálsson, s. 99-3274.
Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsd, Hvammi, s. 99-3402.
Þorlákshöfn Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4, s. 99-3924.
Hveragerði Sigríður Ósk Einarsdóttir, Heiðabrún 46, s. 99-4665
Vík Guðrún Árnadóttir, Mánabraut 14, s. 99-7233.
Vestmannaeyjar Ingveldur Gísladóttir, Bröttugötu 26, s. 98-2270.
Grindavík Stefanía Guðjónsdóttir, Staðarhrauni 10, s.92-8504
Garður Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6, s. 92-7058.
Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir, Suðurgötu 18, s. 92-7455.
Keflavík Guðríður Waage, Austurbraut 1, s. 2883.
Ingibjörg Einarsdóttir, Suðurgjötu 37, s. 4390.
Ytri Njarðvík Kristinn Ingimundarson, Hafnargata 72, s. 3826.
Innri Njarðvík Guðríður Árnadóttir, Kópabraut 16, s. 92-6074.
Hafnarfjörður Rósa Helgadóttir, Laufás 4, s. 53758.
Garðabær Rósa Helgadóttir, Laufás 4, s. 53758.
Mosfellssveit Jónína Ármannsdóttir, Arnartanga 57, 666481
GERIST
ÁSKRIFENDUR
HJÁ NÆSTA
UMBOÐSMANNI