NT - 07.05.1985, Page 14
■ Mitterrand er ekki alltaf sveigjanlegur og eftirgefanlegur eins
og hann sýndi á fundi stórveldanna í Bonn. I’ar sýndi hann hitt
andlitið, var harður í horn að taka og ósveigjanlegur. Líkja menn
honum nú við fyrrverandi leiðtoga Frakka, De Gaulle heitinn, sem
var óhræddur við að sýna bandamönnum sínum fyrir vestan haf
andstöðu ef hann taldi slíkt í þágu franskra hagsmuna.
(^BLAÐBURÐARFOLK ''n
VANTAR í EFTIRTAL-
IN HVERFI:
Austurbrún, Dyngjuvegur, Dragavegur,
Þriðjudagur 7. maí 1985 14
Utlönd
Sviss:
Osamkomulag á leið- |SK
togafundi sjöveldanna
- Mitterrand jafn ósveigjanlegur og De Gaulle
Bonn-Reuter.
■ Þriggja daga leiðtogafundi
sjö mestu iðnvelda auðvalds-
heimsins lauk um helgina eftir
miklar deilur milli Mitterrands
Frakklandsforseta og annarra
þjóðarleiðtoga. Mitterrand
neitaði að fallast á tillögur Re-
agans Bandaríkjaforseta um að
setja ákveðna dagsetningu á
upphaf viðræðna um nýja al-
þjóðlega viðskipta og tolla-
samninga á næsta ári.
Markmiðið með viðskipta-
viðræðunum átti að vera að
gera heimsverslun frjálsari og
fella niður verndartolla. Mitter-
rand heldur því fram að niður-
felling verndartollanna myndi
fyrst og fremst bitna á frönskum
bændum og vera til bölvunar.
Ósveigjanleg afstaða Mitter-
rand og andstaða við tillögur
Bandaríkjaforseta þykir minna
mjög á Charles De Gaulle heit-
inn sem kvikaði aldrei frá því
sem hann taldi hagsmuni
Frakka. Meira að segja Jacques
Chirac leiðtogi Gaullistaflokks-
ins í Frakklandi sá ástæðu til að
hrósa Mitterrand fyrir að neita
að fallast á ákveðna dagsetningu
fyrir nýja alþjóðlega viðskipta
og tollasamninga þótt hann
gagnrýndi forsetann fyrir of ein-
strengislega höfnun á boði
Bandaríkjamanna um að vera
með í geimvopnaáætluninni.
Mitterrand segist ekki aðeins
hafa verndað hagsmuni franskra
bænda með ósveigjanleika sín-
um heldur hafi afstaða hans
þjónað hagsmunum allra
evrópskra bænda.
Ákveðin og ósveigjanleg af-
staða Mitterrands varð til þess
að ýmis mál, sem ríkisleið-
togarnir höfðu ætlað að ræða,
komust ekki á dagskrá. Þannig
slapp Nakasone forsætisráð-
herra Japana að mestu leyti við
að hlusta á gagnrýni á innflutn-
ingshömlur og innflutningstolla
Japana og þann mikla vöru-
skiptahagnað sem þeir hafa af
viðskiptum sínum við önnur
iðnaðarríki.
Glarus, Sviss-Reuter.
■ Kjósendur í fjallafylk-
inu Glarus í austurhluta
Sviss hafa ákveðið að
aflétta banni við óvígðri
sambúð.
Um 7.500 karlar og kon-
ur söfnuðust saman á
„Landsgemeinde", kosn-
ingafundi að hefðbundn-
um sið sem sjaldgæft er að
halda nú til dags, og lýstu
vilja sínum varðandi
stjórn fylkisins með því að
rétta upp hendur til marks
um samþykki sitt.
Óvígð sambúð er enn
bönnuð í nokkrum fylkj-
um í Sviss.
Rajiv Gandhi:
Indverjar halda fast
við sósíalisma sinn
Aukin vinátta við Sovétmenn
Nýja Delhi-Moskva-Reuter:
Fundur
fyrrverandi
SS-manna
gleymist
Nesselwang-Reuter:
■ Fundi fyrrverandi SS-
manna í Nesselwang í Bæjara-
landi lauk án þess að vekja
mikla athygli enda allm'sem
vettlingi gátu valdið að mót-
mæla heimsókn Reagans
Bandaríkjaforseta í kirkjugarð-
inn þar sem 49 félagar SS-
manna úr stríðinu liggja undir
grænni torfu.
Lögreglan skýrði frá því að
engir óþægilegir atburðir hefðu
gerst á meðan á tveggja daga
endurfundum um 250 fyrrver-
andi hermanna úr dauðasveit-
um SS stóð á hótelinu í
Nesselwang.
Stj órnarandstöðuflokk ur
sósíaldemókrata (SPD), verka-
lýðsfélög og vinstri hópar mót-
mæltu þessum endurfundum við
ríkisstjórnina í Bæjaralandi en
hún sagði að fundurinn væri
löglegur vegna þess að hann
væri ekki opinber heldur hald-
inn „í einrúmi".
■ Á þingi Kongressflokksins
nú um helgina lagði forsætisráð-
herra Indverja, Rajiv Gandhi,
áherslu á að Indverjar myndu
halda fast við sósíalisma við
uppbyggingu lands síns.
Hann sagði m.a. að stjórn-
völd myndu leggja áherslu á
opinberar framkvæmdir og efl-
ingu ríkisfyrirtækja til að bæta
lífskjör milljóna fátæklinga.
Gandhi sagði að Kongressflokk-
urinn ætti sér eitt markmið sem
væri að útrýma fátækt á Ind-
landi.
Forsætisráðherrann lofaði því
að stjórnvöld myndu verja meiri
fjármunum til áætlana og efna-
hagsframkvæmda sem beint
væri gegn fátæktinni. Hann
sagði mikilvægt að tryggja betri
nýtingu á þeim fjármunum sem
varið væri í þessum tilgangi.
Fyrrverandi fjármálaráð-
herra Indverja, Pranab Muk-
herjee, sagði á þinginu að 93%
af öllum tjármunum, sem Ind-
verjar verðu til efnahagþróun-
ar, kæmu frá Indverjum
sjálfum. Engin önnur þjóð gæti
státað af því að kosta jafn mikið
af þróun sinni með eigin auð-
lindum.
Gandhi fer í opinbera heim-
sókn til Moskvu síðar í þessum
mánuði. í sjónvarpsviðtali, sem
sovéska sjónvarpið hafði við
hann í tilefni af fyrirhugaðri
Sovétheimsókn, sagði Gandhi
m.a. að samskipti Indverja og
Sovétmanna væru mjög góð og
vinátta þéirra ykist stöðugt.
Hann sagðist telja að viðskipti
Indverja við Sovétmenn myndu
aukast á komandi tímum.
Gandhi tók undir fordæm-
ingu Sovétmanna á geirhvopna-
áætlunum Bandaríkjamanna og
hvatti til þess að Bandaríkja-
menn hættu fjandskap sínum
við Nicaraguamenn.
Góð vináttutengsl Sovét-
manna og Indverja sjást best á
því að Sovétmenn veittu fyrr-
verandi forsætisráðhera Ind-
verja Indiru Gandhi friðarverð-
laun Leníns í seinustu viku
háflu ári eftir að hún var myrt.
Bretar hóta skoðun
diplómatafarangurs
London-Rcuter:
■ Bresk stjórnvöld hafa til-
kynnt að erlendir sendimenn
geti átt von á því að farangur
þeirra verði gegnumlýstur
við komu þeirra til landsins.
Bretar segja að þetta brjóti
ekki gegn alþjóðasamþykkt-
um diplómatafarangur
þar sem í þeim sé ekki minnst
á bann við gegnumlýsingu
farangursins. Þeir segja að
gegnumlýsingin verði aðeins
notuð þegar sérstakar ástæð-
ur séu til grunsemda.
Bretar hafa sérstaklega
áhyggjur af því að
diplómatafarangur kunni ða
vera notaður til smygls á
eiturlyfjum eða vopnum.
Mikil reiði greip um sig í
Bretlandi vegna forréttinda
erlendra sendimanna á sein-
asta ári eftir að bresk lög-
reglukona var skotin til bana
fyrir utan líbýska sendiráðið.
VEROTRYGGÐUR
/rn vaxtareikningu
T _ /^ ávaxtar fé þitt
LrLJ á arðbæran hátt
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn