NT - 12.05.1985, Blaðsíða 2
Sunnudagur 12.maí 1985 2
Kvikmyndahátíð Listahátíðar
■ Kvikmyndahátíð Lista-
hátíðar fer fram dagana 18-28
maí. Og að þessu sinni verða
myndirnar sýndar í Austur-
bæjarbíói. Sýndar verða 29
myndir frá 16 þjóðlöndum og
því kennir margra grasa í vali
undirbúnings nefndarinnar.
Samkvæmt upplýsingum
Hrafns Gunnlaugssonar, var
leitast við að hafa sem mesta
breidd í myndavalinu, en ekki
endilega að þær væru allar
spánnýjar. Hrafn taldi að kvik-
myndahátíðin hefði þegar
sannað gildi sitt, þó ekki væri
nema í því að hún hefði haft
áhrif á val kvikmyndahúsanna
á myndum enda væri úrvaliö,
sem nú er boðið upp á, allt
annað en það var fyrir tíu
árum. Þrátt fyrir aukið úrval
og framboð á kvikmyndum á
íslandi bæði í kvikmyndahús-
unum og á videoleigunum,
væri þaðfjöldinn alluraf meist-
arastykkjum sem aldrei hafi
komið fyrir augu íslenskra
áhorfanda. Pað væru fyrst og
fremst þessar myndir, sem
reynt hafi veriö að ná á kvik-
myndahátíðina.
Frá því að fyrsta kvikmynda-
hátíðin var haldin árið 1978,
hefur aðsóknin verið nokkuð
breytileg eða frá 15-22 þúsund
manns. Til þess að endar nái
saman í ár þurfa um 16 þúsund
áhorfendur að sækja hátíðina,
en áætlað er að kostnaðurinn
af hcnni muni nema um 1,6
milljón króna. Rétt er að taka
fram að kvikmyndahátíðin
nýtur sérstakra hlunninda
varðandi ýmis gjöld, og mun
t.d. Norræna húsið og Menn-
ingarstofnum Bandaríkjanna
standa straum af ýmsum kostn-
aði sem tengist þeim löndum
sem þessar stofnanir eru fulltrú
ar fyrir.
Fjórir merkir gestir munu
koma hingað í boði hátíðarinn-
ar. Við opnun hátíðarinnar á
laugardaginn kemur, verður
sænski rithöfundurinn Astrid
Lindgren, en þá verður sýnd
barnamynd „Ronja Rövars-
dotter" eða „Ronja ræningja-
dóttir" sem gerð er eftir sögu
hennar. Astrid Lindgren er
íslendingum að góðu kunn af
sögunum af Línu Langsokk,
Emil í Kattholti og fleiri.
Einnig mun á föstudaginn
koma hingað þýski leikstjór-
inn Hark Bohm, en hann
þekkja margir betur sem
leikara, enda munu þær vera
fáar Fassbinder myndirnar þar
sem honum bregður ekki fyrir.
Mynd Bohm, sem hér verður
sýnd, fjallar um atburð sem
gerðist í þýskum dómsal árið
1982, en þá skaut kona nokkur
morðingja dóttur sinnar. Mesti
hluti myndarinnar fjallar um
aðdragandann að þessum at-
burði og þær tilfinningar og
ástríður sem til hans leiddu og
■ Úr mynd Hark Bohm,
„Keine Zeit fúr Tránen“ eða
Eigi skal gráta.
þykir Bohm hafa tekist vel til
með þetta erfiða verkefni.
Þriðji gestur hátíðarinnar
verður bandaríski kvikmynda-
gagnrýnandinn og prófessor-
inn Gerald Perry. Hann mun
flytja tvo fyrirlesta hér, annan
á vegum Listahátíðar og hinn
á vegum Menningarstofnunar
Bandaríkjanna. Listahátíðar
fyrirlesturinn mun fjalla um.
„the independent cinema" eða
kvikmyndagerð utan stóru
fyrirtækjanna, kvikmyndaris-
anna. Hinn fyrirlesturinn verð-
ur um „vestrann", og verða
nokkrir þekktir vestrar, sem
hann velur, sýndir af því
tilefni.
Fjórði og síðasti gesturinn
er enginn annar en leikstjórinn
og gagnrýnandinn Jean-Luc
Godard, en hann mun koma
um hvítasunnuhelgina. Mynd
hans „Je vous salue María“
eða Ég heilsa þér María, hefur
vakið miklar deilur í hinum
kaþólska heimi. Flestum eru í
fersku rninni vangavcltur ka-
þólska biskupsins hér á landi,
um hvaða afstöðu ætti að taka
til sýninga myndarinnar. Go-
dard mun koma hingað beint
frá hinni frægu kvikmynda-
hátíð í Cannes, þar seni liann
B „La
notte di San
Lorenzo“,
eða nóttin í
San Lor-
enzo.