NT - 12.05.1985, Blaðsíða 19

NT - 12.05.1985, Blaðsíða 19
og fjórum skrúfum þess. Þann- ig getur þetta 100 metra langa skip jafnan verið nákvæmlega yfir vinnustaðnum neðansjáv- ar. Þegar köfunarhylkið er komið niður á botn Norðursjáv- arins opna þeir Erich Arndt og félagi hans frá Bretlandi, Peter Alexander, botnlúguna. Þeir starfa báðir á vegum köf- unarfyrirtækisins Comex í Marseille. Vegna þrýstingsins í hylkinu streymir sjór ekki inn þegar opnað er. Hver á eftir öðrum skríða mennirnir út í ískaldan og kolmyrkan sjóinn. En þeir verða þess ekki varir, þar sem heitt vatn rennur stöðugt frá skipinu milli laga í neopren-búningnum sem þeir eru klæddir. Flóðljós lýsa upp umhverfið. Stirðlega hreyfa þeir félagar sig í átt til samskeytanna á leiðslunni, sem á að tengja við pípuna er liggur upp í pallinn Statfjord C. Mennirnir leggja endana hvorn að öðrum með tilstyrk lyftitækja. Þá er svo- nefnt vinnuhylki látið síga nið- ur til þeirra. Pað er lagt yfir pípuendana og sjónum er dælt úr því. Þá geta kafararnir hafið vinnuna með rafsuðutækjum sínum. Á 150 metra dýpi er aðeins hægt að rafsjóða sé flöturinn þurr. í tíu stundir vinna þeir á sjávarbotninum. Peir geta skotist smástund inn í köfunarkúluna til þess að fá sér matarbita. Þegar þeir að nýju eru komnir inn í íbúðar- hylkið á þilfari skipsins eru þeir alveg uppgefnir. Fimm mánuðir munu líða þar til lokið verður við leiðslurnar í Statfjord C. Þá verður hægt að dæla hér upp tíu milljón tonn- um af olíu á ári. V Kafararnir bíða þess í íbúðarhyíkinu að fara á ný um borð í köfunarhylkið. í þrjár vikur eru þeir undir margföldum loftþrýstingi. Beri eitthvað út af er dauðinn vís. Það er vegna hinna háu launa sem mennirnir leggja allt þetta harðræði á sig. Hver kafari þénar allt að 42 þúsund krónum ísl. á dag. Þeir fara í þrjár eða fjórar köfunarferðir á ári, sem hver stendur þrjár eða fjórar vikur. Árslaun geta verið 3-4 milljónir. Skilyrðin fyrir því að vera tækur í þetta starf eru þau að byrjandi verður að vera minnst 19 ára og hafa próf í einhverri iðn eða sjómennsku. Hann verður að vera flugsyndur. Miklu auðveldara er þó að komast að hjá köfunarfyrir- tæki en að halda sér á starfslista meðal þeirra sem vinna á út- sævi, en þar eru menn ráðnir og reknirán afláts. Á hafsbotni verða handtökin að vera rétt, því það er dýrt að framkvæma þessi verk. Hver andardráttur þeirra á hafsbotni kostar 6-700 krónur. Leigan fyrir skipið er 800 þúsund til milljón á dag. Það hefur sín áhrif á menn að vera svo lengi neðansj ávar. Margir þjást af eyrna- og liðaverkjum og Erich Arndt, sem hefur verið í þessu í átta ár, veit að hann verður brátt að hætta. Menn duga alls ekki lengur en til fertugs í þessu. „Þá verðum við að hafa safnað nógu fé til þess að kaupa sjoppu eða matvöruverslun," segirhann. (Úr Stern - stytt). 10.40 Landeigendur smáir og stórir GIRÐING ER VÖRN FYRIR VIÐKVÆMAN GRÓÐUR Þú færð allar tegundir af GIRÐINGAEFNI í BYKO Járnstaurar, tréstaurar, gaddavír og girðinganet af öllu tagi. BYG GIN G AV0 RU VERZLU N BYKO KÓPAV0GS jO SKEMMUVEGI 2 SÍMI:41000

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.