NT - 12.05.1985, Síða 4
m
Ámi Baldursson:
Sunnudagur12jnaí1985
Laxveiðis
sumarið 198
■ Norðurá
ár dalað svona óskaplega og
mega veiðimenn eiga von á því
að þessar ár eigi eftir að kom-
ast á toppinn aftur?
Svar:
Ár á Norð-austur horninu,
sérstaklega Vopnafjarðarárn-
ar, sem mest hafa verið rann-
sakaðar, fara væntanlega upp
á við í laxveiði næstu 2-3 ár,
svo framarlega sem ekkert
óvænt kemur upp á. Hvort þær
ná toppi eins og 1977 og 1978
er ógjörningur að spá um.
Ástæður fyrir lélegum laxa-
göngum í ám á Norður- og
Austurlandi eru sjálfsagt
samspil margra þátta. Slæmt
árferði undanfarin ár, t.d. 1979
og 1981-1983 á hér eflaust
stærstan þátt. Klakárgangar
eru mjög misstórir, t.d. eru
klakárgangar frá 1979 og 1983
litlir í samanburði við t.d. 1980
árganginn. Inn í þetta dæmi
kemur einnig til flókið samspil
fæðuskilyrða og seiðaástands
eins og áður hefur verið bent
á. Svo virðist sem óhagstætt
tíðarfar einkum að vori geti
skapað slíka flöskuhálsa í
seiðaþroska í kaldari ánum að
stærð hrygningarstofna skipti
óverulegu máli, a.m.k. niður í
ákveðið lágmark. Pannig gaf
tiltölulega lítill hrygningar-
stofn haustið 1979 af sér meira
af seiðum í hagstæðu árferði
sumarið 1980 heldur en stór
hrygningarstofn 1978 í óhag-
stæðu árferði sumarið 1979.
Velgengni 1980 árgangsins í
kaldari ánum kemur einnig til
vegna minni samkeppni frá
öðrum árgöngum.
Sp.: 6. Nú hafa margar af
okkar bestu laxveiðiám verið í
lægð undanfarin 4 ár. Er það
ekki oft þannig að eftir slíkar
lægðir koma toppár í ánum?
Gætum við hugsanlega átt von
á sliku toppári í sumar eða
næsta sumar?
Svar:
Sveiflur í laxagengd hafa
alltaf verið og eru óhjákvæmi-
legar og eðlilegar. Slíkar stofn-
stærðarsveiflur koma fyrir hjá
flestum villtum dýrastofnum.
Það er því ljóst að það kemur
■ Hvað mun komandi sumar bera í skauti sér
fyrir laxveiðimenn? Mun laxagengd taka stökk og
allar ár fyllast af laxi, eða er laxagengd á íslandi
yfirleitt á undanhaldi? Verður þetta stórlaxasumar
eða mun uppistaðan í laxinum verða smálax?
Hvað er að gerast í austfirskum laxveiði ám, eru
þær liðnar undir lok sem laxveiðiár?
Þessar spurningar og margar aðrar hafa
vafalaust brunnið á vörum margra laxveiðimanna
í vetur.
Það lá beint við að fá fræðilegar upplýsingar hjá
hæfum mönnum á Veiðimálastofnun. Svöruðu
þeir spurningum NT góðfúslega. Einnig voru
nokkrir af okkar vöskustu veiðimönnum beðnir
um að spá í sumarið ’85. Gaman verður síðan að
sjá í haust hverjir hafa komist næst því að spá rétt.
Þá gefum við fiskifræðingunum á
Veiðimálastofnuninni orðið, þar sem þeir svara
nokkrum spurningum NT.
Inngangur
Á íslandi hafa miklar sveifl-
ur verið í laxveiði á undanförn-
um árum. Síðast var toppur í
laxveiði 1978, sem raunar var
metlaxaveiðiár í flestum ám
landsins. Síðan þá hefur veru-
lega dregið úr laxveiði
almennt. Niðursveiflan hefur
verið sérstaklega áberandi á
Norður- og Norð-Austurlandi.
Orsakir þessarar niðursveiflu
eru flóknar og margþættar.
Sveiflur í stærð laxaganganna
eru enn stærri en aflatölur gefa
til kynna.
Þeir þættir sem valda sveifl-
um í stærð laxagangna eru
eftirfarandi:
1. Veðurfarssveiflur hafa
veruleg áhrif á lífsafkomu
laxsins beint og óbeint,
bæði á seiðastiginu í ánum
og í hafinu. A þetta ekki
síður við lax en t.d. gras- og
kartöfluuppskeru.
2. Sveiflur í stærð laxagangna
endurspegla flókið samspil
á fæðuframboði í ánum og
seiðaþéttleika, bæði heild-
arseiðaþéttleika og inn-
byrðis þéttleika, einstakra
árganga. Hérlendis ná laxa-
seiði göngustærð á 2-5
áruni. Almennt ná þau
gönguþroska fyrr í hlýrri
árum sunnan og suðvestan-
lands en í kaldari ám á
Norður- og Austurlandi.
Dvalartíminn í hafinu er
oftast 1-2 ár. Þannig eru í
veiðinni á hverjum tíma
margir árgangar.
Laxaganga hvers árs er í
fyrsta lagi háð fjölda göngu-
seiða, sem yfirgaf árnar
einu og tveimur árum áður
og í öðru lagi dánartölu
þeirra í hafinu. Þannig
verður laxagangan sumarið
1985 háð gönguseiðafjölda
áranna 1983 (skilar sér sem
stórlax 1985) og 1984 (skilar
sér sem smálax 1985).
Gódar smá-
laxagöngur í
sumar
Sp.:l. Hvernig verður veiði í
íslenskuin laxveiðiám sumarið
1985?
2. Verða miklar eða litlar smá -
laxagöngur?
3. Verða miklar eða litlar stór-
laxagöngur?
Svar:
Almennt má búast við frem-
ur litlum stórlaxagöngum.
Þetta verður líklega meira
áberandi á Norður- og Norð-
austurlandi, þar sem mun
hærra hlutfall laxagöngunnar
er stórlax miðað við það sem
gerist á suðvesturhorninu. Það
hefur sýnt sig að sterk fylgni er
milli stórlaxagöngu og smá-
laxagöngu árið á undan.
Sumarið 1984 voru smálaxa-
göngur áberandi litlar. Ýmis-
legt bendir til að tiltölulega
lítið hafi gengið út af göngu-
seiðum vorið 1983, má þar
nefna gönguseiðaathuganir í
Bugðu í Kjós. Sömuleiðis
benda seiðarannsóknir víða
um land til að seiðaárgangar
sem mynduðu gönguseiðahóp-
inn, sem fór út vorið 1983, hafi
verið hlutfallslega litlir. Ekki
nóg með það, heldur gengu
seiðin seint til sjávar vegna
þess hve seint voraði 1983.
Erlendar rannsóknir benda til
að þegar laxaseiði ganga seint
til sjávar verði afföll í sjó mun
meiri. Tímasetning göngubún-
ingsmyndunar virðist því mjög
mikilvæg í þessu sambandi.
Svipuð atburðarás átti sér stað
kalda vorið 1979, þegar mjög
lítið skilaði sér af smálaxi
sumarið 1980. Þá gerðu menn
því skóna að kynþroska laxins
hefði seinkað um eitt ár vegna
stutts vaxtatímabils og hægari
vaxtar og því mundi laxinn
skila sér sem stórlax sumarið
1981. Það gerðist ekki þá og
reiknum við því ekki með að
slíkt gerist í ár.
Ástæða er til að ætla að
smálaxagöngur verði almennt
stórar sumarið 1985 og að
smálax verði aðal uppistaða
laxagangnanna í flestum ám
landsins.
Mjög vel voraði til lands og
sjávar í síðasta ári. Síðan þá
hefur ástand sjávar verið gott
og jafnvel enn farið batnandi
sbr. rannsóknir Hafrannsókn-
arstofnunar.
Rannsóknir í ám á Norður-
og Norðausturlandi benda til
að mikið hafi gengið út af
gönguseiðum vorið 1984, m.a.
mestur hluti 1980 árgangsins,
sem hefur verið áberandi
stærsti seiðaárgangurinn í
þeim ám, sem rannsakaðar
hafa verið á síðustu árum.
í betri laxveiðiánum á suð-
vesturhorninu er seiðaástandið
■ Laxfoss í Noröurá.
toppur eftir lægð, en engin föst
regla er á því hvenær slíkir
toppar koma. Miklar líkur eru
á uppsveiflu næsta sumar, en
meiri líkur eru á að toppurinn
verði frekar 1986 eða jafnvel
1987. Þetta veltur þó á ytri
skilyrðum næstu ár. Þetta á
e.t.v. frekar við um ár á Norð-
ur og Austurlandi þar sem
sveiflur í umhverfisþáttum eru
miklar.
Veóurfar og
vatnsmagn
ráða miklu
Sp.: 7. Hverjar má ætla að
verði fimm bestu laxveiðiárnar
sumarið 1985? (mesti laxa-
fjöldi, miðast ekki við stanga-
fjölda).
Svar:
Þessari spurningu er ekki
unnt að svara. Líklegt er að
þær ár, sem hafa verið með
mestan afla áður, verði það
Spjallað
við fiski-
fræðinga
á Veiði-
málastofnu
tiltölulega stöðugt, þ.e. litlar
sveiflur í styrkleika einstakra
seiðaárganga (sbr. rannsóknir
í Grímsá, Elliðaám og Bugðu).
Því má búast við að litlar
sveiflur séu í gönguseiðafram-
leiðslunni.
í afburðagóðu vori eins og
var í fyrra gengu seiðin út í
tiltölulega hlýjan og áturíkan
sjó og því ættu afföll að vera
með minnsta móti. Jafnframt
má búast við að hluti seiða sem
þegar hafði náð göngustærð
vorið 1983 hafi ekki gengið út
þá vegna seinnar vorkomu og
dvalið árinu lengur og því bæst
við gönguseiðahópinn vorið
1984. Allir ofangreindir þættir
eiga því að stuðla að góðum
smálaxagöngum sumarið 1985
og ennfremur á sami göngu-
seiðahópur að gefa af sér góðar
stórlaxagöngur sumarið 1986.
Rétt er að geta þess að veiði
þarf ekki endilega að endur-
spegla stærð laxagöngu, þó oft-
ast megi segja að fleiri laxar
veiðist í stórum göngum. Hitt
er annað mál að hlutfallsiega
veiðist minna af stórum göng-
um en litlum (í% talið). Þannig
er æskilegt að auka veiðiálag,
þegar göngur eru augljóslega
stórar, t.d. með því að fella
niður kvóta á stöng.
Betri veiði fyrir
norðan og
austan
Sp.: 4. Má búast við því að
laxinn gangi mjög snemma í
árnar?
Svar:
Það hefur sýnt sig gegnum
tíðina, að það er fylgni milli
vorkomu og tímasetningar
fyrstu laxagangna. Þegar
snemma vorar kemur laxinn
snemma. Stórlaxinn kemur
jafnan á undan smálaxinum.
Of snemmt er að segja fyrir um
vorkomu í ár, en ef snemma
vorar kemur laxinn lika
snemma.
Sp.: 5. Er von á því að aust-
firsku árnar eigi eftir á næstu
árum að ná þeim laxafjölda
sem fyrir fáum árum veiddist í
þeim, t.d. Selá 19771463 laxar,
niður í 229 laxa 1983, Hofsá
19781336 laxar niður í 258 laxa
1983, Sandá 1977 474 laxar
niður í 47 laxa 1983, Breiðdalsá
1978 412 laxar niður í 21 lax
1983. Hvers vegna hafa þessar
■ Gljúfurá í Borgarfirði