NT


NT - 12.05.1985, Page 5

NT - 12.05.1985, Page 5
Jakkaföt með vesti Venjulegt verð Okkar verð 5.990,- Nú ber vel í veiði. Atli. Enginn kvóti á jakkafötum. 7111)0910 gildir til 15. maí. SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SIMI 3 43 50 AUSTURSTRÆTIÍO SIMI 27211 Sunnudagur 12.maí 1985 áfram. Hver röð þeirra verður er út í hött að spá um. (Fer eftir dugnaði veiðimanna). Sp.: 8. Má ætla að laxveiði í íslenskum laxveiðiám sé yflr- Ieitt á undanhaldi samanber hrakandi veiði í mörgum okkar bestu laxveiðiám undanfarin 4-5 ár? Svar: Sveiflan i laxveiði sem hefur verið niður á við undanfarin ár er ekki ný bóla. Ekkert bendir til annars en hér sé um skamm- tímasveiflu að ræða. Sp.: 9. Nú er búið að snjóa lítið í vetur og mjög lítill snjór í fjöllum. Er ekki von á því að mjög lítið vatn verði í ánum þegar fer að líða á sumarið sem geti háð laxagöngum til muna? Svar: Um þetta er ekki hægt að fullyrða, þar sem rigningar- sumur eru vel þekkt, einkum á suðvesturhluta landsins. í þurrkatíð geta vissulega skap- ast vandamál, þar sem lítið vatn getur seinkað því að lax gangi og getur því leitt til minni veiði vegna þess að lax- inn verður þá skemur undir veiðiálagi. Bæði veðurfar og vatnsmagn geta haft áhrif á veiðina. ■ Óneitanlega verður spenn- andi að fylgjast með hvernig laxveiðin verður í sumar. Veiðihornið mun koma svo til daglega í NT í sumar og koma splunkunýjum veiði- fréttum til íslenskra stang- veiðimanna. Hér liggur í valnum 14 punda lax sem veiddur er á Bergsnös.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.