NT - 12.05.1985, Side 6
■ Laxveiðin verður betri en
áður, sérstaklega á Norður- og
Vesturlandi.
Ég hef þá trú að eins og
tveggja ára lax í sjó skili sér
vel. Éins árs fiskurinn skilaði
sér illa í fyrra og mun hann
hafa dvalið einu ári lengur í sjó
og mun skila sér í sumar sem
ábót á stórlaxinn.
Vegna hlýinda mun eins árs
fiskurinn einnig skila sér vel í
sumar, sem sagt, bæði sterkar
stórlaxa- og smálaxagöngur.
í svona góðæri eins og búið
er að vera mun laxinn ganga
snemma í árnar.
í sambandi við laxveiðiár á
Austurlandi hef ég ekki mikla
trú að þær nái sér að fullu, en
ég á von á hægfara aukningu.
Árnar á Norðurlandi vestra
gætu komið með gott skot og
þó nokkur aukning á veiði
verður í Borgarfirði og jafnvel
á Ölfusársvæðinu, þó aðallega
í Soginu.
Laxveiði mun aukast þegar
á heildina er litið og jafnaðar
eru út sveiflur á milli ára. Sú
hætta er fyrir hendi að vatns-
skortur geti hamlað laxagöng-
um í sumar, tímabundið,
vegna snjóleysis í fjöllum, en
laxinn mun ganga fyrr eða
síðar. Einnig gæti veiðin orðið
misskiptari á milli tímabila
tengt rigningunni.
■ Gulli með nýveidda 18
punda hrygnu úr Víðidalsá.
Ef þetta sumar bregst þá er
eitthvað stórkostlegt að.
Laxinn gcngur snemma ef
vorar sem horfir. Eina sem ég
er hræddur við er snjóleysið
sem fer að hafa veruleg áhrif á
árnar um miðjan júlí, en laxinn
kemur, það er bara spurning
hvort hann veiðist. Allar ár á
landinu eiga eftir að bæta veru-
lega við sig í sumar, nema ef
vera skyldi austfjarðarárnar.
Ég á enga skýringu á hrakandi
veiði þar. Þar er eitthvað mikið
að, Færeyingar hljóta að eiga
sinn þátt í því. Og þó er
möguleiki að minna æti og
minni hiti bæði í ám og sjó hafi
sitt að segja.
Ég hef ekki trú á því að
laxveiði hér á landi sé á undan-
haldi. Sumarið 1985 skerþó úr
um það.
Kristján Kristjánsson
■ Ásgeir með vænan
lax úr Soginu.
Ásgeir Erlendsson:
„Sterkar stórlaxa-
og smálaxagöngur“
■ K.K. við eftirlætisiðju sína; fluguhnýtingar.
Sunnudagur 12,maí 1985
■ Eins og nú horfír við þessa
dagana eru ennþá fleiri sem
taka sér flugustöng í hönd,
einhendu eða tvíhendu, og
veiða eingöngu með flugu. Svo
eru aðrir sem bæta fluguveið-
inni við aðrar veiðiaðferðir,
sem þeir hafa tileinkað sér, og
er það vel.
Áð veiðimenn hnýti sínar
eigin flugur hefur aukist alveg
ótrúlega og er það ekki aðeins
hér á landi, heldur á Norður-
löndunum, og Evrópu allri og
Ameríku.
Fyrir nokkru tóku Ameríku-
menn sig til og settu af stað
könnun um fluguhnýtingarþar
í landi. Út úr þeirri könnum
kom, hvorki meira né rninna
en sú staðreynd, að aukning í
flugunhýtingum hafði þá orðið
tvö síðustu árin 300%, - þrjú
hundruð prósent!
Að fá'ann á flugu, sem veiði-
maðurinn hefur sjálfur hnýtt,
gefur veiðimanninum betri til-
finningu fyrir veiðinni og aukið
sjálfstraust.
Vatn í ánum hér sunnan-
■ K.K. með góðan feng úr
Selá.
Guðlaugur Bergmann:
„Laxveiðin ekki
á undanhaldi“
■ Ég spái mikilli laxveiði í
sumar, bæði af stórlaxi og
smálaxi. Fyrravor var mjög
gott og þá hafa sjógönguseiði
skilað sér vel niður til sjávar og
koma nú í sumar sem öflugar
smálaxagöngur. Smálaxinn
skilaði sér mjög illa í fyrrasum-
ar, og það litla sem veiddist af
honurn voru óttalegir rindlar,
þetta 11/2-3 pund. Mín skoðun
er sú að smálaxinn sem ekki
skilaði sér í fyrra sé enn í
sjónum, hann hefur bara alls
ekki náð þeim þroska sem
skyldi til að ganga upp í árnar
vegna sjávarkulda. Þessa skoð-
un staðfesta þessir örsmáu lax-
ar sem fengust í fyrra, þeir
hafa verið svo harðsvíraðir að
láta sig vaða í árnar þótt þeir
hafi ekki verið kornnir í stærð.
Megnið af laxinum varð eftir í
sjónum og hann mun skila sér í
sumar sem extra bónus á stór-
laxinn. Allar aðstæður eru fyrir
hendi að lax skili sér í sumar.
lands verður trúlega í minna
lagi í sumar, þar sem lítið var
um snjókomu í vetur, en það
útaffyrirsig ætti ekki að hafa
mikil áhrif fyrr en næsta sumar.
Hitastigið í sjónum er okkur
í hag, svo það verður, að öllum
líkindum, mikil smálaxagen
í árnar í sumar.
Árnar á Norðausturlai
eiga eftir að taka við sér,
fara batnandi næsta sumar.
Ég spái metveiði á flu
þetta árið.