NT - 12.05.1985, Qupperneq 7
IIX
Þórarinn Sigþórsson:
„Ekki búast við
stökkbreytingu“
■ Pað er vissulega vanda-
verk, að ætla sér að spá fyrir
um laxagengd og laxveiði al-
mennt í næstu framtíð. Ekki
má heldur gera of miklar kröf-
ur til spádóma okkar óbreyttra,
þegar haft er í huga, að
fiskifræðingar hafa átt fullt í
fangi með að láta spádóma
sína í þessum efnum rætast
undanfarin ár. Hafa þeir raun-
ar oftar brugðist'en liitt.
En svo við snúum okkur að
efninu, þá má fastlega gera ráð
fyrir, að laxveiði giæðist eitt-
hvað þegar næsta sumar. Hún
hefur verið í mikilli lægð
undanfarin ár, svo sem allir
vita, einkum þó í fyrra og
hitteðfyrra. Ef litið er fyrst til
stórlaxins, vaknar sú spurning
hvort hann muni yfirleitt skila
sér í sumar. í fyrrasumar gekk
því sem næst enginn smálax.
Síðari hluta veiðitímans veidd-
ust þó örfáir smátittir, þetta
1-2 pund. Það vekur aftur
vonir um að umræddur árgang-
ur hafi ekki farist, þótt hans
yrði vart í svo litlum mæli
síðastliðið sumar. Skýringin
kann að vera sú, að þessi fiskur
hafi ekki náð því að verða
kynþroska vegna óhagstæðra
skilyrða í hafi 1984 og skili sér
því ekki fyrr en í sumar. Gangi
þetta eftir, veltur allt á því
hvernig þessum fiski reiðir af í
sjónum í vetur og hvort hann
skilar sér að einhverju marki,
og þá sem stórlax. Má ætla, að
það verði einhver reytingur af
stórlaxi í sumar, og þá helst í
ánum hér sunnanlands.
Varðandi smálaxinn má
vænta þess, a honum fjölgi
eitthvað miðað við það sem
var síðastliðið sumar. Skilyrð-
in í sjónum hafa vCrið honum
hagstæð í vetur. Þó má ekki
vænta of mikils, því ég tel að
aðstæður í ánum hafi ekki
verið að sama skapi hagstæðar.
Að mínu mati má helst búast
við þokkalegri smálaxagengd í
ánum á Suður- og Suðvestur-
landi og jafnvel á Norðvest-
urlandi. Má gera ráð fyrir, að
veiði glæðist í þessum ám, þótt
ekki komi hún til með að
jafnast neitt á við metárin
1976-1978.
Fyrr á
ferðinni?
Auk þess sem fram hefur
komið hér að ofan, má með
hæfilegri bjartsýni ætla, að lax-
inn gangi fyrr í árnar nú, en
hann hefur gert undanfarin
vor (í fyrra gekk laxinn að vísu
snemma). Þessu til stuðnings
má enn vísa til sjávarskilyrða í
vetur, sem verið hafa afar
hagstæð, bæði hvað snertir æti
og sjávarhita.
Sunnudagur 12.maí 1985
■ Sá stærsti úr Laxá í Dölum
síðastliðið sumar. Þórarinn
hampar 22 punda laxi.
Einkum ntá vænta þess, að
stórlaxinn sýni sig fyrr nú en
oft áður, þá af ofangreindum
ástæðum.
Það er alkunna, að árnar á
Austurlandi hafa verið í mikilli
lægð undanfarin ár. Eðlilega
velta menn því nú fyrir sér,
hvort þeim eigi enn eftir að
hraka á komandi sumri. Trú
mín er sú, að árnar taki að
rétta við á ný þegar næsta
suntar. Ekki megi þó búat við
stökkbreytingu til liins betra,
heldur aukist fiskgengd í þær
hægtogsígandi. Þaðereinkum
tvennt, sem orsakað hefur
þessa ördeyðu í ánum austan-
lands. Hið fyrra er að þær hafa
verið mjög kaldar undanfarið.
Síðara atriðið, sem vegur
kannski ekki rninna, er lax-
veiði í sjó. Það liggur Ijóst fyrir
að árnar gefa aldrei svo sem
Þórarinn landar laxi í Elliðaánum.
þær gerðu á metárunum áður,
meðan Færeyingar stunda
þessar veiðar að því marki sem
þeir nú tíðka. Við skulum þó
hafa í huga að þeir eiga ekki
einir alla sök, þótt djarftækir
séu. Afkastamikil togskip ann-
arra þjóða taka einnig sinn
toll. Því má alltaf búast við
meiri afföllum á laxi nú, heldur
en voru á gullaldarárunum.
Áhrlf
veduífars
Ekki þarf að fjölyrða um
þær þrjár ár, sem verið hafa
efstar á blaði hvað aflamagn
snertir hin síðari ár. Laxá á
Ásum hafði vinninginn síðast-
liðið sumar, sé miðað við
veidda laxa pr. stöng. Síðan
komu Elliðaárnar og Laxá í
Kjós, en þar veiddust flestir
laxar, miðað við heildarveiði.
Veiðin í Þverá brást hins
vegar. Ekki ætti að koma á
óvart þótt þessi röð verði
óbreytt næsta sumar. Þá er
ekki ólíklegt að Laxá á Ásum
bæti sig, og að búast megi við
aukinni smálaxagengd í hana
næsta sumar.
Veðurfar er vitaskuld stór
þáttur, þegar reynt er að
skyggnast inn í framtíð lax-
veiðinnar. Þannig gerði hæfi-
leg úrkoma síðastliðið sumar
það að verkum að meira veidd-
ist í ánum en efni stóðu til,
þegarlaxamagnerhaft íhuga.
Veturinn sem nú er að
kveðja hefur verið með ein-
dæmum snjóléttur. Korni lang-
varandi þurrkar að honum
liðnum, þarfekki að hafa mörg
orð um veiðispár í þeim ís-
lensku ám, sem vatnslitlar eru
og viðkvæmar fyrir þurrkum.
w
FAÐU ÞER LJUFFENGA MALTIÐ
Við einir seljurn Kentucky Fried Chicken
Pú kemur á bílnum að lúgunni ogfœrð kjúklinginn með þér í hentugum
umbúðum. - Eða þú kemur inn og annaðhvort borðar hann á staðnum í
notalegu umhverfi, eða tekur hann með þér heim.
v
VERIÐ VELKOMIN
Kentucky Fried Chicken
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði - Sími 50828
(lnnakstur frá Keflavíkurvegi) Opið kl. 11.00-23.30