NT - 12.05.1985, Page 11
rn r Sunnudagur 12.maí 1985 11
lu L
skapi og þeir hætta að sjá sig sem
eðlilegan hluta þess. Lausnarinnar
beri því að leita í aðgerðum, sem
miða að því að unglingarnir blandist
á eðlilegan hátt almennri starfsemi
samfélagsins, en verði ekki og finnist
þeir ekki vera, fimmta hjólið undir
þjóðfélagsvagninum.
Ein 02 hálf millión
hjá SVR
í fyrrgreindri skýrslu frá sálfræði-
deild skóla er meðal annars varað við
því hversu viðkvæm umfjöllun á opin-
berum vettvangi getur verið um mál
af þessu tagi, því vel er hugsanlegt að
slikt gæti virkað hvetjandi til frekari
afbrota. Pó er bent á það, að ekki sé
til einhlít lausn á slíku og fræðimenn
greini á um þetta atriði. Þó er ekki úr
vegi að víkja lítillega að kostnaðar-
legu hlið veggjakrotsins. Eitt er það
fyrirtæki í Reykjavík sem öðrum
fremur verður fyrir barðinu á veggja-
kroturum, en það er SVR. Það má
heita undantekning að sjá biðskýli í
Reykjavík, sem ekki hefur verið
meira eða minna krotað á. Sama má
segja um vagnana sjálfa. Til þess að
grennslast fyrir um viðhorf og við-
brögð fyrirtækisins var haft samband
við Jan Jansen hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur. Hann tjáði okkur að í
viðhald vegna veggjakrots og skemm-
darverka í vögnunum sjálfum færi um
það bil 1.085.000 kr. í viðgerðir á
biðskýlum færi hins vegar í kringum
500.000 kr.
„Þannig að þetta er um ein og hálf
milljón króna sem fer bara vegna
skemmdarstarfsemi," sagði Jan. „Það
þarf til dæmis að mála öll biðskýlin
einu sinni á ári til þess að fela krotið
því yfirleitt náum við þessu ekki af
öðruvísi. Við erum með tvo menn í
þessu allt sumarið," sagði hann enn-
fremur.
Aðspurður sagði Jan að mest væri
um, að notað væri túss við krotið en
á nýrri skýlin sem væru úr steini væru
mikið notaðir spreybrúsar. „Annars
virðist þetta koma dálítið í öldum og
virðist aukast talsvert á vorin þegar
prófin standa yfir og í jólafríum. Eins
byrjaði alda í verkfallinu hjá kennur-
um sem stendur eiginlega enn. Þetta
virðist vera eitíhvað eirðarleysi í
krökkunum því krotið minnkar svo
aftur þegar þau hafa eitthvað. fyrir
stafni og dettur mikið niður á
sumrin.“
Þegar við spurðum Jan hvort al-
gengt væri að unglingar væru gómaðir
við þessa iðju sagði hann það ekki
vera. Þó kæmi það vitanlega alltaf
fyrir annað slagið og venjulega væri
þeim þá veitt tiltaí, en í sumum
tilfellum hefði lögreglan komist í
málið, einkum þegar verið væri að
skemma inni í vögnunum sjálfum.
í stórborgaleik?
Þegar menn heyra tölur sem þessar,
um hvað það kostar að lagfæra hluti
sem verða fyrir barðinu á eins sak-
leysislegri iðju og veggjakrot virðist
vera við fyrstu sýn, er eins víst að
mönnum bregði íbrún. Þóerþað sem
hér hefur verið talið ekki nema örlítið
brot af þeim fjármunum sem fara í
súginn vegna skemmdarverka ungl-
inga almennt. Kostnaðarhliðin er hér
tíunduð vegna þess að oft vill það
verða, að peningagildið er sá mæli-
kvarði sem hvað best hristir upp í
okkur. efnishyggjufólkinu. Þá fyrst
er um vandamál að ræða ef það
kostar peninga. Hitt vill miklu oftar
gleymast að ýmis vandamál eru fyrir
hendi sem kosta enga peninga og ef
sálfræðingarnir hafa rétt fyrir sér í því
að unglingar séu upp til hópa firrtir,
þá er vissulega um vandamál að ræða.
I þessu tilfelli er það vandamál sem
kostar mikla peninga. Vissulega er
það að mörgu leyti eftirsóknarvert að
Reykjavík taki á sig stórborgarbrag,
en hreinn óþarfi að hún taki allt of
mikið mið af „slum“-hverfum er-
lendra stórborga.
B.G.
SAMAVERÐ
UM LAND ALLT!
Ef þú býrð utan Reykjavíkur og pantar I
póstkröfu einhvern af eftirtöldum vara-
hlutum, greiðum við pökkunarkostnað,
akstur í Reykjavík og póstburðargjald
hvert á land sem er.
Þannig færð þú varahlutina ásama verði
og viðskiptavinir í varahlutaverslun okkar
í Reykjavík.
Hringdu og pantaðu og við sendum
varahlutina samdægurs.
Varahlutir án f lutningskostnaðar
Kerti
Platínur
Kveikjulok
Bremsuklossar
Ðremsuborðar
Bremsuslöngur
Þurrkublöð
Viftureimar
Tímareimar
• Loftsíur
• Olíusíur
• Bensínsíur
Stýrisendar
Spindilkúlur
Stýrishöggdeyfar
• Flautur
• Bensíndælur
• Vatnsdælur
Kúplingsdiskar
Kúplingslegur
Kúplingspressur
Aurhlífar
Höggdeyf ar - aftan
Höggdeyf ar - f raman
VIÐURKENND VARA MEÐ ÁBYRGÐ
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240