NT - 12.05.1985, Side 17
Utvarpið vill
kynhvarfa
■ Fyrr í vikunni birtist frétt í NT þar
sem greint var frá því að samkyn-
hneigðir íslendingar fengju ekki eðli-
legan aðgang að auglýsingum í fjöl-
miðlum. Meðal annars kom þar fram
að Samtökunum ‘78 hefði hvað eftir
annað verið neitað um að auglýsa
samkomur á þeirra vegum hjá útvarp-
inu. I sömu frétt var greint frá niður-
lægjandi lífsreynslu vestur-íslensks
pilts sem margítrekað reyndi að fá
birta smáauglýsingu í einkamáladálki
DV. Satt best að segja verður þetta
að teljast fornaldarlegt viðhorf hjá
forráðamönnum fjölmiðlanna sem
hér um ræðir.
Samkynhneigð, eða homofólía er
staðreynd og merkir ofur einfaldlega
að tveir einstaklingar af sama kyni
hneigjast kynferðislega hvor til
annars. Við því er akkúrat ekkert að
gera. Hins vegar fer slíkt mjög fyrir
hjartað á sjálfskipuðum siðferðispost-
ulum, sem af vandlætingu og í krafti
valdaaðstöðu hafa dæmt þetta fólk til
Ijósfælni og laumulífs. Á undanförn-
um árum og áratugum hefur þessi
siðferðishroki þó verið á undanhaldi,
samfara vaxandi menntun almenn-
ings og auknum samtakamætti sam-
kynhneigðra sjálfra. Þeir eru nú að
koma „úr felum", eins og það hefur
verið orðað. Óneitanlega kemur slíkt
við kaunin á mörgum, en þess eru
mýmörg dæmi að menn hafa orðið
furðu lostnir þegar í ljós hefur komið
hverjir það eru, sem hikandi hafa
tekið skrefið inn í dagsljósið. Oftar
en ekki er þetta fólk sem menn hafa
umgengist í lengri eða skemmri tíma
- jafnvel kunningjar - án þess
að hafa haft minnstu hugmynd um að
hér væri eitthvað „athugavert“ á
seyði. Steríótýpurnar sem flestir
ganga með í kollinum um kynhverfa
eru því síður en svo viðeigandi.
„Ansans vandræði, hann Siggi er
bara alls ekkert hommalegur, hvernig
gat maður vitað þetta.“ Atriði lík
þessu sem virðast lítilfjörleg við fyrstu
sýn, hafa ekki hvað síst gert það að
verkum að dregið hefur úr fordómum
gagnvart samkynhneigðum. Það á
ekki síður við hér en annars staðar að
þekking á hlutunum er versti óvinur
fordóma.
Það ber víst enginn á móti þvf að
ástin og ýmsar hvatir sem henni fylgja
eru samofnar mannlegu eðli. Hjá
en
ekki homma
og
lesbíur
samkynhneigðum beinist þessi hvöt
að einstaklingum af sama kyni, en hjá
okkur sem erum „eðlileg" beinist hún
að gagnstæðu kyni. Það er því ekkert
annað en dæmalaus hroki og tvöfalt
siðgæði að banna samkynhneigðum
samneyti á sama tíma og aðrir eru í
bullandi samlífi. Hjá okkur er það
spurning um mannréttindi að fá að
njóta þess sem hugur okkar stendur
til - svo framarlega sem slíkt er
gagnkvæmt - og hvers vegna skyldi
það ekki líka vera spurning um mann-
réttindi hjá samkynhneigðum. Hafa
þeir fyrirgert samfélagslegum rétti
sínum til mannréttinda? Vitanlega
ekki, og þeir hljóta að eiga heimtingu
á því að manngildi þeirra sé virt á
sama hátt og annarra „minnihluta-
hópa“, s.s. fatlaðra, kvenna, þel-
dökkra o.fl.
Erlendis þar sem jafnréttislög hafa
verið sett, gilda þessi lög ekki einung-
is um konur eins og hér á landi,
heldur líka þeldökka, fatlaða, trúar-
hópa o.fl. Þar hefur jafnframt verið
mikil umræða um að bæta við þessa
upptalningu samkynhneigðum, sem
sýnir glöggt að réttindi þeirra eru
talin til mannréttinda. Ástæðan fyrir
því að lög sem þessi eru sett er sú að
stjórnarskrár tryggja ekki á fullnægj-
andi hátt rétt þessara hópa.
En víkjum aftur að ofangreindu
auglýsingamáli. Það er ljóst að skiln-
ingur manna á vandamálum samkyn-
hneigðra fer vaxandi en þó virðast
fordómarenn vera útbreiddir. Spurn-
ingin hlýtur því að vera hvort forráða-
menn útvarpsins eru svona fordóma-
fullir eða hvort um er að ræða ein-
hverja aðra skýringu. Vandamálið í
öllum sínum „mikilfengleik", snýst
um notkun tveggja sakleysislegra
orða: hommi og lesbía. Að því er
virðist eru þetta svo Ijót orð og
útlensk, að það má ekki lesa þau í
útvarpinu. Hins vegar er það og hefur
verið „prinsipp“-mál hjá samkyn-
hneigðum að nota þessi orð, vegna
þess að önnur orð sem vinsæl hafa
orðið fela í sér ákveðinn gildisdóm.
Kynvillingur og kynhverfur eru orð af
þessu tagi, þeim fylgir neikvæð
merking. Útvarpið hins vegar sér
ekkert athugavert við þessi orð og
segist vera tilbúið til að nota þau í
auglýsingum. Hin upplýsta og hlut-
læga stofnun, er með öðrum orðum
ekki að amast við hommum og let.bí-
um sem slíkum, heldur aðeins því að
nota orð sem ekki eru íslenska -
orðin hommi og lesbía. Ekki virðist
það skipta höfuðmáli þó bæði orðin
falli vel að íslensku beygingakerfi og
séu notuð í daglegu tali og hafi verið
notuð í áratugi. Ekki virðist það
heldur vera ströng stefna að afneita
íslenskum orðum af erlendum rótum
þegar um er að ræða önnur málefni.
Eða ættum við ekki að banna orð eins
og „popp“ sem vissulega er útlent
orðskrípi sem komið hefur í stað hins
góða og gegna orðs dægurlagatónlist.
Það virðist ekki nokkur vafi á að
málhreinsunarstefnan hjá ríkisút-
varpinu fer í nokkuð manngreining-
arálit. Ætli eimi eftir af fordómunum
hjá stofnuninni og skilyrði af þessu
tagi sett, gagngert til þess að draga úr
ásókn samkynhneigðra í útvarpsaug-
lýsingar? Sannarlega virðist það eina
raunhæfa skýringin.
DV málið er nokkuð annars eðlis
þar sem ekki er um ríkisfjölmiðil að
ræða, enda reyna þeir ekki að leyna
því að þar sé farið í manngreiningará-
lit. Tvöfalda siðgæðið opinberast þó
sérstaklega vel í einkamáladálkun-
um, því ekki er amast við því að
karlmenn auglýsi eftir konum og
bjóði þeim það sem oft er kallað
„fjárhagslegt öryggi“. Margir myndu
kalla þetta vændi undir rós. Vestur-ís-
lendingurinn ungi, fékk hins vegar
ekki sínar auglýsingar birtar, því þar
var ungur maður að auglýsa eftir
kynnum við annan ungan mann. Það
má kannski upplýsa það í lokin að
þessi piltur hefur síðan náð sambandi
við mann sem hefur áhuga á nánari
kynnum og bréfaskiptin fóru í gegn-
um ritstjórn NT.
B.G.
Sunnudagur 12 maí 1985 1 7
Áburðardreifarar
Allir VICON dreifararnir eru búnir sem hér segir:
Stillanleg dreifibreidd, frá 6-12 m. (Dreifir fræi).
Öflugur hrærari í botni.
Hverjum dreifara fylgir reiknistokkur til nákvæmra
utreikninga á áburöarmagni pr. ha.
’Hleðsluhæð er ótrúlega lág, aðeins 90-100 cm.
Allir hlutir dreifarans, sem koma í snertingu við
áburðinn eru úr ryðfríu efni.
Verð:
PS 302 300 lítra kr. 19.000,-
PS 602 600 lítra kr. 32.650.-
PS 802 800 lítra kr. 35.650.-
Hafíð samband við sölumenn okkar og
tryggið ykkur VICON kastdreifara fyrir
vorið.
G/obusf
LAGMÚLI 5, SIMI 81555
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og
dísillyftara, ennfremur snúninga og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara.
Flytjum lyftara, varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð
Tökum lyftara í umboðssölu
LYFTARASALAN HF.,
Vitastíg 3, símar 26455 og 12452
Þessi bíll er til sölu
og TOYOTA HIGHLUX diesel ’83 yfirbyggður bíll í
mjög góðu standi.
Ekinn 75 þús. km. Verð 620-640 þús.
Upplýsingar hjáToyota umboðinu eða í síma 44847.