NT - 12.05.1985, Síða 21
Laugardagur 11. maí 1985 21
■ Danir heilsa framvarðarsveitum Montgomerys í Kaupmannahöfn.
Ólafur krónprins kem•
ur heim 01 Noregs
■ Norsk börn fagna á sigurdaginn.
■ Þann 5. maí fyrir 40 árum
vinnur þýskur kafbátur síðasta
sigur sinn við austurströnd
Bandaríkjanna. Það er þegar
U-853 sökkvir gufuskipinu
Blackpoint. Kafbátnum sjálf-
um er svo sökkt af USS Ather-
on. Suður í Tékkóslóvakíu
gera andspyrnumenn áhlaup á
útvarpsstöð, sem verður upp-
hafið að almannauppþotum
gegn hernámsliði Þjóðverja.
Patton hershöfðingi tekur
hinar miklu vopnaverksmiðjur
í Skoda hinn 6. maí. í Prag er
þremur SS-deildum skipað að
bælaniðuruppþotin. Portúgal-
ir rjúfa stjórnmálasamband við
stjórn Dönitz.
Hinn stóri dagur rennur upp
hinn 7. maí. Þá gefast Þjóð-
verjar upp án skilyrða á öllum
vígstöðvum. Það er Jodl hers-
höfðingi sem uppgjöfina undir-
ritar í skólastofu í Rheims
klukkan 2.41. Bandamenn
hernema Emden og Wilhelms-
hafen og sækja inn í A-Holland
og Danmörku. Þjóðverjar gef-
ast upp fyrir Rússum í Breslau
og 40 þúsund manns eru hand-
teknir. Kafbáturinn U-2336
sökkvir strandferðaskipunum
Avondale Park og Sneland í
Firth of Forth. U-320 er sökkt
af katalínuflugbáti utan við
Bergen. Þettaersíðasti kafbát-
urinn sem sökkt er í styrjöld-
inni.
Alls hafði þá verið sökkt 153
bátum. 217 höfðu laskast og
187 gáfust upp.
Sigurdagurinn rennur upp
hinn 8. maí. Almenningur um
alla Evrópu fagnar. Rússar
taka Dresden.
Libertyskipið Horace Binn-
ey rekst á tundurdufl utan við
Flushing og brotnar næstum í
tvennt. Fyrir einslags krafta-
verk tekst að bjarga áhöfn og
farmi. Lokið er tlutningi Þjóð-
verjafráLettlandi. 1,4 milljón-
ir manna hafa verið þaðan
fluttar frá 25. janúar.
Ólafur, krónprins Norð-
manna, kemur heim til Noregs
með bresku herskipi. Hann
lýsir yfir uppgjöf alls þýska
herliðsins. Þýska herliðið í
Prag gefst upp.
Þýska herdeildin „Kúrland"
tekur að gefast upp fyrir Rúss-
um 9. maí. Það eru 133 þúsund
manns sem gefast upp hinn
9.-11. maí.
Þeir Göring og Kesselring
eru teknir höndum af Banda-
ríkjamönnum í Austurríki.
Terboven, ríkiskommissar
Þjóðverja í Noregi, fremur
sjálfsmorð. Quisling er hand-
tekinn. í Grikklandi gefast 20
þúsund þýskir hermenn upp á
Krít, Rhodosog öðrumeyjum.
í Moskvu eru haldin stórkost-
leg hátíðarhöld, þar sem 2
milljónir í Moskvu fylgjast
með flugeldasýningum og her-
sýningu.
Hér látum við lokið þessari
upprifjun á síðustu þáttum
styrjaldarinnar fyrir 40 árum,
sem við höfum fylgst með frá
einni viku til annarrar hér í
blaðinu frá því í janúar sl.
Lesendum þessara pistla er
þökkuð samfylgdin.
*
' / /
Lausn á síðustu krossgátu
fl K 0 E> M ú
r’ O L í K u K
r I M ■ K U M u
u ■ M Ó P R fl N
■R ■E M ■ rr R r-)
F V E M u K
e c Jj ■ S H (\ K
áburðardreifarar
á frábæru verði
★ Sterkir og
einfaldir
★ Nýtísku hönnun
★ Lág hleðsluhæð
(92 cm)
★ Litur: Grænir
500 I kr. 15.500.-
650 I kr. 16.500.-
Hafið samband við
sölumenn okkar
sem veita allar
nánari upplýsingar
Vinsamlega gerið pantanir strax
Þaðgræreftir
þann græna
G/obusr
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555