NT - 02.08.1985, Page 2
Föstudagur 2. ágúst 1985
ASÍ telur fráleitt að senda fulltrúa í verðlagsnefndir búvara:
ASÍ hótar að knýja fram
nýskipan landbúnaðarmála
- í samvinnu við önnur samtök launþega og neytenda
■ Miðstjórn ASÍ telur fráleitt
að tilnefna fulltrúa í þær verð-
lagsnefndir búvara sem kveðið
er á um í nýju Framleiðsluráðs-
lögunum, þar sem aðild neyt-
enda að verðlagningarkerfinu
sé greinilega sviðsett með það
fyrir augum að þeir verði nánast
áhrifalausir.
það áíit ASÍ á frumvarpinu í
vor, að það tryggði á engan hátt
hag neytenda og heldur ekki
hagsmuni framleiðenda. í um-
boði ríkisstjórnarinnar hafi
landbúnaðarráðherra ákveðið
að hækka verð á búvörum með
skattlagningu kjarnfóðurs.
Lausnin á framleiðsluvandan-
um eigi að vera að gera afurðirn-
ar svo dýrar að neytendur geti
ekki keypt þær og skerða þar
með stórlega framleiðslumögu-
leika bænda. Pá þyki ástæða til
að vega sérstaklega að fram-
leiðendum svína og alifugla,
sem fram að þessu hafi þó leyst
sín framleiðsluvandamál sjálfir.
Pykir miðstjórn ASÍ vítavert
hvernig að þessari skattlagningu
er staðið og skorar á ríkisstjórn-
ina og landbúnaðarráðherra að
taka til endurskoðunar fyrri
ákvarðanir í þessu efni.
Láxá á Ásum: 93 á
tveimur dögum
■ 93 laxar veiddust á tveim-
ur dögum í Laxá á Asum.
Þegar veiðimenn tóku saman
dótið sitt á hádegi í gær,
höfðu þeir fengið 53 laxa frá
því á hádegi í fyrradag. Ein-
ungis er veitt á tvær stangir í
ánni. Sautján fiskar fengust í
Langhyl og allir tóku þeir
flugu. Nokkurn veginn virtist
sem sama væri hvaða gerð af
flugu var fleygt í hylinn,
laxinn tók allt. Þá er ekki
hægt að kvarta undan stærð-
inni. Allur fiskurinn var á
stærðarbilinu fimm til sautj-
án pund. Þann þrítugasta
fengust fjörutíu laxar og alls
hafa því veiðst 93 fiskar á
tveimur dögum. Heildartal-
an er nú 865 fiskar, og er það
meira en veiddist allt árið í
fyrra.
Dræmt í Svartá
Nú er Iiðinn mánuður síð-
an veiði hófst í Svartá, og
veiðst hafa 33 laxar. Veiði-
tíminn er nú svo til hálfnað-
ur, og þykir þessi veiði með
eindæmum léleg í ánni. Þess
ber Þó að gæta að besti
timinn er eftir og kraftaverk-
ingerast enn. Veitt eráþrjár
stangir í Svartá, og geta
menn farið að vild upp á
urriðasvæðin fyrir ofan bæ-
inn Hvamm.
Snæfoksstaðir
íHvítá
Þar hefur veiðst ágætlega,
og vilja menn þakka það
vatnsleysi í ánni, en þá geng-
ur laxinn frekar Snæfoks-
staðameginj>egar meira er í
ánni er veiði oft betri austan
megin við ána. Leyfi við
Snæfoksstaði fást hjá SVFR
og kosta 2400 krónur.
Sauðfjárbændasamtök
stofnuð á Suðurlandi
■ Sunnlenskir sauðfjárbænd-
ur hyggja á stofnun samtaka á
næstunni eins og þegar hafa verið
stofnuð víða um land. Stofn-
fundur félags sauðfjárbænda í
Rangárvallasýslu hefur verið
ákveðinn að Hvoli sunnudags-
kvöldið 11. ágúst o'gstofnfundur
félags sauðfjárbænda í Árnes-
sýslu að Borg í Grímsnesi
mánudagskvöldið 12. ágúst.
Þeir sem staðið hafa að undir-
búningi samtakanna hvetja
sauðfjárbændur mjög eindregið
til að koma á fundina og sýna
með því þá samstöðu sem nú
virðist ekki vanþörf á, þar sem
hart sé vegið að þessari starfstétt
úr ýmsum áttum.
Áformað er að stofna lands-
samtök sauðfjarbænda á
Hvanneyri í Borgarfirði dagana
17. og 18. ágúst næst komandi.
Gert er ráð fyrir að landssam-
tökin verði fuíltrúi félagsmanna
sinna gagnvart stjórnvöldum,
heildarsamtökum bænda og
öðrum, jafnframt því sem þeim er
ætlað að beita sér fyrir umbót-
um í sölu- og markaðsmálum.
SsT
Hins vegar sé Alþýðusam-
bandið nú sem fyrr reiðubúið til
að standa að stefnumótun sem
tryggi jafnvægi í búvörufram-
leiðslu, framleiðendum nauð-
synlegt svigrúm til framleiðni-
og framleiðsluaukningar og
neytendum lægsta mögulega
vöruverð. Ljóst sé að nú reyni á
hvort ríkisvaldið er reiðubúið
að koma til móts við þessa
stefnu. „Ef ekki verður stefnu-
breyting í þeim herbúðum, hlýt-
ur Álþýðusambandið að taka til
athugunar möguleika á því að
knýja fram aðra skipan þessara
mála í samvinnu við önnur
helstu samtök launþega og neyt-
enda,“ segir í samþykkt mið-
stjórnar ASÍ í gær.
Miðstjórnin segir samnings-
ramma neytenda stórlega
þrengdan með margvíslegum
ákvæðum laganna. Fulltrúa
neytenda séu engir möguleikar
skapaðir til þess að hafa áhrif á
heildarstefnumótun í málefnum
landbúnaðarins, heldur verði
hún ákveóin af samningum
landbúnaðarráðherra og full-
trúa framleiðenda. Allt endur-
spegli þetta það viðhorf einok-
unar- og skrifræðisherranna í
landbúnaðarráðuneyti og
bændahöll, að hlutverk neyt-
enda sé að éta það sem að þeim
er rétt á því eina verði sem í
reynd er ákveðið af þessum
sömu herrum.
Miðstjórn ASÍ segir nú hafa
ræst fyrr en nokkurn grunaði
Ríkisútvarpið:
Kynningin greidd
með af notagjöldum
■ „Því get ég ekki svarað að
svo stöddu, en það hlýtur að
skýrast innan fárra daga, því ég
þarf að fá eitthvað niður á blað
um þetta mál,“ sagði Dóra Inga-
dóttir formaður kynningamála-
nefndar Ríkisútvarpsins, þegar
NT spurðist fyrir um kostnaðinn
vegna kynningastarfsins á
Heimilissýningunni.
Eins og fram kom í NT í gær,
hyggst Ríkisútvarpið efla kynn-
ingarstarf sitt svo það standi
sterkari fótum þegar nýju út-
varpslögin taka gildi nú um
áramótin. Meðal þess sem gera
á, er stór sýning á Heimilssýn-
ingunni ’85.
Dóra Ingadóttir sagði að
Ríkisútvarpið væri rekið af eigin
tekjum og allur kynningar-
kostnaðurinn er því geiddur
með afnotagjöldum og auglýs-
ingatekjum. Hún sagði erfitt að
áætla heildarkostnað vegna sýn-
ingarinnar, því öll vinna við
hana reiknast sem yfirvinna hjá
útvarpinu og erfitt er að meta
hlutfall launakostnaðar vegna
sýningarinnar.
Tæknimenn útvarps og sjón-
varps munu starfa á sýningunni,
en eins og komið hefur fram er
mikill skortur á tæknimönnum
hjá ríkisútvarpinu. Dóra taldi
að tæknimannaskorturinn ætti
ekki að há sýningunni, þar sem
þeir yrðu flestir komnir úr
sumarleyfum þegar sýningin
hefst.
Starfsmenn Ríkisútvarpsins
munu hanna sýningarsvæðið og
setja sýninguna upp.
Jafnréttis-
baráttan
hafin á
Suðurlandi
■ Félagsdeild í samtökum sem
berjast fyrir jafnrétti milli
landshluta var stofnuð í
Tryggvaskála á Selfossi nýlega.
Þetta er fyrsta deildin í þessum
samtökum sem stofnuð er á
Suðurlandi. En mikið starf hef-
ur verið unnið á þessu sviði á
Norður- og Austurlandi, sem
kunnugt er.
Að sögn stjórnarmanna í
samtökunum, sem eru þverpóli-
tísk, er auðsýnt að áhugi er
mikill meðal almennings á þessu
máli, sem m.a. kom fram í þeim
miklu og almennu umræðum
sem fram fóru á stofnfundinum.
Guðni Ágústsson var kosinn
formaður samtakanna og aðrir
í stjóm þau: Sjöfn Halldórsdótt-
ir, Haukur Gíslason, Sighvatur
Eiríksson og Óli Þ. Guðbjörns-
son. Mun stjórnin á næstunni
hefja kynningar- og útbreiðslu-
starf á Suðurlandi.
Samtaka nú strákar áður en helv. bikkjan fer yfir rauða strikið!
Sölumenn á ferð
■ Fyrir skömmu voru á ferð
hér á landi sölumenn frá kan-
adísku flugvélaverksmiðjunum
De Havilland. Þeir voru að
kynna Flugleiðum nýja flugvél,
sem kölluð er DASH 8.
Þessi vél var fyrst kynnt á
flugvélasýningunni í París fyrr í
sumar. 1 framhaldi af þeirri
sýningu hafa sölumenn frá fyrir-
tækinu kynnt hana í Evrópu og
höfðu þeir viðdvöl hér á leiðinni
til Kanada.
Flugleiðamenn reyndu vélina
og flugu henni til ísafjarðar,
auk þess skoðaði tæknideild
Flugleiða vélina.
Erling Aspelund hjá Flugleið-
um sagði vélina nokkuð sniðuga
og henta vel til flugs á styttri vega-
lengdum. Hins vegar taldi hann
ósennilegt að keyptar yrðu flug-
vélar af þessari gerð, þar sem
hún hentar illa til þess flugs sem
Flugleiðir stunda hér innan-
lands. Helsti ókostur vélarinnar
er sá að hún ber mun færri
farþega en Flugleiðamenn
æskja.
Níels Árni
Lund rit-
stjórnarfull-
trúi á NT
■ N íels Árni Lund hefur verið
ráðinn ritstjómarfulltrúi á NT
og hann hefur jafnframt sagt
lausri stöðu sinni sem æskulýðs-
fulltrúi ríkisins.
Níels Árni mun hefja störf á
NT innan skamms.