NT - 02.08.1985, Blaðsíða 9

NT - 02.08.1985, Blaðsíða 9
Föstudagur 2. ágúst 1985 9 Aðalsteinn Jónasson byggingameistari Fæddur 2. ágúst 1946. Dáinn 21. september 1984. Hinsta kveðja frá tengdamóður Því húmar svo fljótt, eftir heið- ríkan dag? því hljóðnar hinn fegursti ómur? Því endar svo skjótt þetta ljóm- andi lag? Mig lamar sá örlaga dómur. Ég fæ ekki í huganum ráðið þá rún, né rök þau sem Iiggja að baki. Mér finnst vera myrkur við fjall- háa brún, mér finnst eins og kröftunum hraki. smiður að mennt og starfaði sem slíkur í eigin fyrirtæki sem hann ásamt félögum sínum byggði upp hér á Húsavík. Einnig var Steini virkur í félags- málum. Árið 1978 var hann kjörinn í Bæjarstjórn Húsavík- ur og aftur í bæjarstjórnarkosn- ingunum 1982. Sinnti hann þar fjölmörgum trúnaðarstörfum af mikilli kostgæfni. Steini lést á sjúkrahúsi Húsa- víkur 21. september 1984 eftir þunga sjúkdómslegu aðeins 38 ára gamall. Elsku Solla, bið ég þess að Guð veiti þér og börnunum styrk í framtíðinni ásamt minningunni um elskulegan eig- inmann og föður. Blessuð sé minning Aðalsteins Jónassonar Lilja Ég kveið því að óðfluga nálgað- ist nótt, af neyð þinni fölnaði bráin. Þó kom mér á óvart, þú féllir svo fljótt. Mín framtíðar vonin er dáin. Og því er að endingu kveðja mín klökk, sem kveddi ég son minn og bróður, með fátækum orðum og ástríkis þökk. Guð annist þig vinur minn hljóður. Dalrós t Mig langar með nokkrum orðum að minnast þín kæri frændi á þessum degi og þakka þér góð kynni. Aðalsteinn Jónasson var fæddur 2. ágúst 1946 að Brúar- landi í Þistilfirði, sonur hjón- anna Önnu Guðrúnar Jóhann- esdóttur og Jónasar Aðalsteins- sonar. Steini eins og hann var alltáf kallaður ólst upp á Brúarlandi ásamt systkinum sínum fimm, Aðalbjörgu, Arnþrúði, Eðvarð, Jóhannesi og Sigrúnu Lilju, við mikið ástríki foreldra sinna. Þegar hann var aðeins 1 1/2 árs varð hann að fara utan til Bandaríkjanna til að leita lækn- inga sem ekki var hægt að veita honum hér heima. Atti hann í þessum veikindum í mörg ár og var ekki laus við óþægindi sem þeim fylgdu fyrr en um eða eftir fermingu. Þrátt fyrir þessi miklu veikindi og langar dvalir frá heimili sínu bæði á sjúkrahúsum erlendis og hér heima, var Steini alltaf sami ánægjulegi strákur- inn. ErSteini dvaldi f Reykjavík til eftirlits hjá læknum eftir að hann kom að utan, var hann til heimilis hjá hjónunum Hólm- fríði Jónsdóttur og Hannesi Jónssyni voru þau honum sem bestu foreldrar og mat hann þau mikils. Er mér mjög minnisstætt þegar hann stoltur sagði mér á skírnardegi dóttur sinnar Hólm- fríðar Önnu að hún bæri nöfn þeirra beggja sem mest þurftu að bjástra við sig í bernsku. Steini fluttist til Húsavíkur sumarið 1967 til unnustu sinnar Sólveigar Þórðardóttur. Þau giftu sig 28. september 1968. Eignuðust þau fjögur börn, Jón- as fæddan 7. janúar 1968, Þórð fæddan 29. mars 1969, Skarp- héðin fæddan 8. desember 1976, og Hólmfríði Önnu fædda 27. apríl 1983. Steini og Solla byggðu sér og börnum sínum fallegt heimili að Baldursbrekku 8 Húsavík. Þar var og er gott að koma og vinum ávallt vel tekið. Steini var húsa- Júlíus Jónsson Mig langar, með fáeinum orðum, að minnast tengdaföður míns, sem lést þann 14. júlí síðastliðinn eftir stutta sjúkra- legu. Við fráfall Júlíusar höfum við misst mikið, og erfitt verður að fylla það mikla skarð, sem hann skilur eftir. Júlíus var sérstakur maður, með sínu hæga og þægilega viðmóti. Rólyndismaður og geðprúður, en þó ákveðinn og fastur fyrir, ef á þurfti að halda. Höfðingsskapur einkenndi Júlíus öðru fremur og var gjaf- mildi hans og konu hans Ingi- bjargar einstök, og nutum við fjölskylda þeirra hennar fylli- lega. Ávallt voru þau tilbúin að rétta hjálparhönd þegar á reyndi. Indælt var, að sækja þau hjón heim og tekið var á móti öllum opnum örmum. Fjölskyldan var ætíð efst í huga Júlíusar og fylgdist hann með henni í leik og starfi. Barnabörnin voru honum sér- staklega kær og hjartfólgin, þau sjá nú á eftir góðum og elskuleg- um afa. Júlíus var mikið veikur og máttfarinn síðustu daga ævi sinnar, var það honum þung raun, manni sem ætíð hafði verið heilsuhraustur og atorku- samur. Við fjölskyldan þökkum Júl- íusi samveruna og kveðjum hann með söknuði, en minning- in um góðan dreng mun lifa áfram meðal okkar. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjálfr et sama. En orðstírr deyr aldrigi, hveims sérgóðan getr. (Úr Hávamálum). Þann 14. þ.m. andaðist á Landakotsspítala Júlíus Jónsson, verkstjóri hjá Iðnaðar- deild Á.T.V.R. Hann fæddist 6. september 1911 að Miðbæ í Norðfirði, sonur Jóns Björns- sonar, bónda þar og Sigríðar konu hans Björnsdóttur frá Þverfelli í Lundareykjadal. Urðu þau Miðbæjarsystkinin átta og er nú aðeins eitt þeirra á lífi, Astrún gift Agli Þorfinns- syni og búa þau í Keflavík. Á yngri árum sínum stundaði Júlíus jarðyrkjustörf og sjó- mennsku, en eftir að hann flutti til Reykjavíkur lagði hann fyrir sig leigubílaakstur, en lengst af hefur hann unnið hjá Iðnaðar- deild Á.T. V.R. í um eða yfir 40 ár af mikilli trúmennsku, enda maðurinn öruggur og áreiðan- legur í alla staði. Árið 1941 kvæntist Júlíus Ingibjörgu Ein- arsdóttur Hróbjartssonar póst- fulltrúa í Reykjavík, hinni ágæt- ustu konu. Hafa þau búið í farsælu hjónabandi og verið samhent um þroska og velferð barna sinna. Óft var gestkvæmt á heimili þeirra enda tekið alúð- lega og giaölega á rnótí gestum og gangandi. Ekki síst áttu ferðalangar að austan oft og tíðum gott athvarf á Kvisthaga 1. Þau Ingibjörg og Júlíus eign- uðust fimm börn, sem öll eru dugnaðar og myndarfólk. Þau eru Dr. Einar, eðlisfræðingur, kvæntur Valfríði Gísladóttur garðyrkjufræðingi og eiga þau þrjú börn. Sigríður, gift Dr. Rögnvaldi Ólafssyni eðlisfræð- ingi, eiga þrjú börn. Jón, tækni- fræðingur og bóndi, kvæntur Jónínu Zophoníasdóttur, þau eiga þrjú börn, en eitt barn eignaðist Jón áður en hann kvæntist. Áslaug, kennari, gift Jóhanni Stefánssyni, kennara. Björn, búfræðingur, kvæntur Rannveigu Einarsdóttur, sjúkraþjálfara og eiga þau þrjú börn. Júlíus var frábær heimilisfað- ir, sem vildi í hvívetna sjá heim- ili sínu borgið og láta það í engu skorta. Hann vakti yfir velferð barna sinna. Góðviljaður var hann öllum, bæði skyldum og óskyldum. Greiðamaður var hann mikill svo að iðulega var bónin ekki aðeins fúslega veitt, heldur meira í té látið en um var beðið. Nú þegar lífsgöngunni er lok- ið og móðan mikla skilur lifend- ur og dáinn verður bert hve mikils er misst og þakka ber margt, góðviljann allan sem veittur var, alúðina og áhugann á samferðamönnunum, gleðina yfir velgengni annarra, sem ekki duldist. Þakkirnar vilja máske koma full seint. Við gleymum oft þakkarefninu „meðan við erum enn á veginum" og sjáum ekki hvað átt höfum fyrr en misst höfum. Með Júlíusi er góður þegn genginn. Blessuð sé minning hans. Sveinbjörn Einarsson. Tengdadóttir. t Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar. Ámað heilla ■ Sextugur er í dag 2. ágúst Kristinn Björnsson rafverktaki, Ásgarði 3, Keflavík. Kristinn hefur tekið virkan þátt í félags- málum s.s. innan samtaka raf- verktaka. Þá hefur hann um áratugaskeið setið í stjórn Kaupfélags Suðurnesja og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn í Keflavík. Kristinn verður að heiman í dag. Þorvaldur Þorvalds- son kennari Árið 1950 kom til Akraness ungur kennari sem hugði til skammrar dvalar, rétt til að reyna sig við kennslu áður en haldið yrði til frekara náms. Viðdvölin varð þó lengri og stóð með litlum hléum allt til æviloka. Þorvaldur Þorvaldsson átti starfsævi sína í framhaldsskól- um á Akranesi. Fyrst í Gagn- fræðaskólanum, þá í Iðnskólan- urn og loks í Fjölbrautaskólan- um á Akranesi. Eitt skólaár kenndi hann í fæðingarbæ sín- um Hafnarfirði og hlé varð á starfsferlinum er hann sótti til náms í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn. Auk skyldu- starfa sinnti hann félagsmálum af miklum áhuga og var hvar- vetna stórvirkur. Tók hann þátt í störfum fleiri félaga og sam- taka en ég kann að greina og lét alls staðar til sín taka. Hann tók virkan þátt í stjórnmálabaráttu, störfum frímúrara, skátahreyf- ingunni, Norræna félaginu og leiklistarmálum svo nokkuð sé nefnt. Sýndist mér á ýmsu sem leiklistin hafi verið honum hug- stæðust. í menntamálum á Akranesi var Þorvaldur áhrifamaður um langa hríð. Hann átti sæti í skólanefnd Akraness um árabil og skólanefnd Fjölbrautaskól- ans á Akranesi frá stofnun hans til dauðadags. Þorvaldur barðist nrjög fyrir gengi og velferð skól- anna og átti einna ríkastan þátt í því að Fjölbrautaskóli var stofnaður á Akranesi 1977. Hafði hann vandað til almenns undirbúnings skólastofnunar með vönduðum áætlunum og ráðstefnuhaldi, en lokaákvörð- un kom seint og því tími til faglegs undirbúnings skammur. Kynni okkar Þorvalds hófust hautið 1977 er Fjölbrautaskól- inn tók til starfa. Átti skólinn starfskrafta hans óskipta og naut fjölhæfni hans til hins ýtr- asta. Hann var óþreytandi starfsmaður, laginn kennari og úrræðagóður. Naut reynsla hans sín vel í samstarfi hans við nemendur en hann hafði á hendi um nokkurra ára skeið eftirlit nteð félagslífi í skólanum. Þá lagði hann leiklistarklúbbi nem- enda lið og yfirleitt allri menn- ingarstarfsemi. Þorvaldur var einlægur hugsjónamaður, sem barðist fyrir málstað sínum án þess að skeyta um eigin hag. Hann var óhræddur við að setja fram skoðanir sínar og tók oft röggsamlegar .ákvarðanir. en hlaut fyrir bragðið oft óvægna gagnrýni sem þeir hljóta sem einhverju koma til leiðar. Þor- valdur Þorvaldsson var traustur maður, hann átti viðkvæma listamannslund og skarpar gáfur. Hann var vinafastur og vinsæll samstarfsmaður sem við samferðarmenn fengum að njóta of skamma hríð. Ég votta eftirlifandi eigin- konu Ólínu Jónsdóttur og börn- um þeirra einlæga samúð. Ólafur Ásgeirsson t Kveðjuorð. Við erum enn minnt á smæð okkar frammi fyrir hinum hinstu rökum. Þorvaldur Þorvaldsson félagi okkar og samstarfsmaður við Fjölbrautaskólann á Akra- nesi er látinn. Við eigum honum margt að þakka. Þorvaldur var í forystusveit þeirri er á sínuni tíma vann að stofnun Fjöl- brautaskólans. Hann var kenn- ari við skólann frá upphafi og átti sæti í skólanefnd þar sem hann barðist ötullega fyrir upp- byggingu skólans og jákvæðri þróun ltans. Áhugi Þorvaldar og reynsla í starfi varð mörgum kennaran- um til uppörvunar er úr vöndu var að ráða. Þegar á reyndi var styrkurinn mestúr. Þorvaldur var annálaður kennari meðal þeirra ntörgu nemenda sem nutu kennslu hans. Þegar starf- inu sleppti var gott að leita athvarfs hjá Þorvaldi og njóta kímni lians og ánægju af því að vera í hópi fólks. Síðastliðið haust hóf Þorvald- ur framhaldsnám erlendis. Var ætlan hans að sérhæfa sig í kennslugrein sinni, trúr þeim eldmóði er einkenndi störf hans. En mein sem mannlegum mætti reyndist yfirsterkara gaf honum ekki þau grið-er við þúrfum til að lifa. Því er Þor- valdur nú einungis með okkur í minningunum. Þær minningar eru bjartar og munu lifa lengi meðal samstarfsfólks hans. í niðurlagi þessara kveðju- orða sendi ég Ólínu og börnum samúðarkveðjur og hugreyst- ingaróskir frá öllu starfsfólki Fjölbrautaskólans á Akranesi. Þórir Ólafsson, skólameistari Ferðafélagsferðir um verslunarmannahelgi: 2.-5. ágúst 1) Álftavatn - Hólmsárbotn- ar - Strútslaug. (Fjallabaks- leið syðri). Gist í húsi. 2) Hveravellir - Þjófadalir - Blöndugljúfur. Gist í húsi. 3) Landmannalaugar Eldgjá - Hrafntinnusker. Gist í húsi. 4) Skaftafell - Kjós - Mið- fellstindur. Gönguútbúnað- ur. Gist í tjöldum. 5) Skaftafell og nágrenni / stuttar-langar/ gönguferðir. Gist í tjöldum. 6) Öræfajökull - Sandfells- leið. Gist í tjöldum. 7) Sprengisandur - Mývatns- sveit - Jökulsárgljúfur - Tjörnes - Sprengisandur. Gist í svefnpokaplássi. 8) Þórsmörk - Fimmvörðu- háls - Skógar. Gist í Þórsntörk. Þórsmörk, langar/stuttar gönguferðir. Gist í húsi. Brottför í allar ferðirnar er kl. 20 föstudag 2. ágúst. 3.-5. ágúst: Þórsmörk. Brottför kl. 13. Gist í Skagfjörðsskála. Ferðist um óbyggðir með Ferðafétaginu um verslun- armannahelgina. Pantið tímanlega. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.L Öidugötu 3. Ferðafélag íslands

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.