NT - 02.08.1985, Blaðsíða 20

NT - 02.08.1985, Blaðsíða 20
 Föstudagur 2. ágúst 1985 20 Utlönd Kína: Sjónvarpsmyndir frá Hongkong tæma bíóin Iskotbardaga Manílik.Ojtlllnr tll cl' AtllAflíl O tll O A l/ÍJflQ ■ Kínversk kvikmyndahús hafa gefist upp á að skipuleggja sýningar þegar sjónvarpið sýnir vinsælar framhaldsmyndir frá Hongkong. Kvikmyndahús í Kína, sem til skamms tíma voru alltaf troðfull, eru nú oft hálftóm eða alveg tóm þótt verið sé að sýna nýjar myndir. Fyrir skömmu mættu t.d. aðeins átta manns á sýningu nýrrar kínverskrar kvikmyndar í Shanghai vegna þess að sýning myndarinnar rakst á við framhaldsmynda- þáttinn „Shanghai“ sem gerður var í Hongkong. Framkvæmdastjórar margra kínverskra kvikmyndahúsa eru nú farnir að lesa sjónvarps- dagskrána áður en þeir þora að skipuleggja sýningar á kín- verskum myndum. Aðsókn að erlendum kvikmyndum, sem oft eru rnikið klipptar af kvik- myndaeftirlitinu, hefur líka dalað mikið að undanförnu. Minnkandi aðsókn að kvik- myndahúsum hcfur einnig bitn- að á kvikmyndaframleiðendum sem tala um kreppu í kínversk- um kvikmyndaiðnaði. Á fyrsta ársfjóðungi þessa árs minnkaði heildarfjöldi kvikmyndahús- gesta í Kína um 20-30% frá því á sama tíma í fyrra og tekjur kvikmyndaframleiðenda minnkuðu um 35%. Helsta ástæðan fyrir minnk- andi aðsókn á kvikmyndir er sú að á örfáum árum hafa flest borgarheimili í Kína fengið sjónvarpstæki. Samkvæmt opin- berurn tölum höfðu um 33% heimila í borgum svart-hvítt sjónvarpstæki í árslok 1980 en í arslok í fyrra voru þau komin inn á 80% heimila og 5,4% heimila höfðu litasjónvörp sem áður voru óþekkt í Kína. Meira að segja til sveita er sjónvarpseign ekki lengur neitt tiltökumál. í árslok árið 1984 áttu 7,24% bændaheimila sjón- varp samanborið við 0,39% árið 1980. Kínverskar sjónvarpsstöðvar hafa fengið sýningarrétt á mörg- um vinsælum sjónvarpsþáttum erlendum og þáttagerð fyrir sjónvarp hefur fleygt fram að undanförnu. Kínverskur almenningur er því orðinn miklu vandlátari á kvikmyndir en hann var til skamms tíma. Kvikmyndafram- leiðendur verða nú að taka mun meira tillit til áhorfenda en nokkurn tímann áður. Æskulýðstímaritið „Zhong- guo Qingnan-bao (Kínversk æska) heldur því fram að bæti kvikmyndaframleiðenduf ekki gæði kvikmynda sinna verði að breyta mörgum kvikmyndahús- um í kaffihús og hressingarskála því að mikil eftirspurn sé eftir þeim. Manila-Reuter ■ Sítt hár lögregiuforingja í Manila höfuðborg Filipps- eyja leiddi til skotbardaga í fyrrakvöld þar sem einn Iög- regluforingi beið bana og annar særðist. Lögregluforinginn sem lést hafði gagnrýnt starfs- bróður sinn fyrir sítt hár. Sá brást hinn versti við og greip til skotvopna til að verja hárgreiðslu sína. Fyrr en varði höfðu hárdeilurnar breyst í harðan skotbardaga sem lyktaði með því að gagn- rýnandi síða hársins féll í valinn og síðhærði foringinn særðist. Þetta er fimmtánda lög- regludrápið í Manila á þessu ári. Vestur-Þýskaland: Varist gegn köldu stríði Bonn-Rcuter ■ Vestur-þýska varnarmála- ráðuneytið tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að verja millj- ónum marka til að stoppa upp í „kalt“ gat í vörnum landsins. Peningarnir verða notaðir til að kaupa ullarsokka, skinnklædda hanska, hlý nærföt og hjálma handa þýskum hermönnum. í yfirlýsingu varnarmálaráðu- neytisins segir að við heræfingar síðastliðinn vetur hafi komið í ljós alvarleg gloppa í vörnum landsins. Næstum þúsund her- menn hafi fengið kalsár þar sem þeir hafi ekki verið nægjanlega vel búnir enda fór hitinn allt að þrjátíu stigum undir frostmark. Manfred Woerner segir að alls verði 485 milljón mörkum varið til þessarar uppfötunar- áætlunar. Auk vetrarklæðnaðar felur áætlunin í sér kaup á æfingagöllum og baðfötum handa hermönnunum. Nú er um 485.000 menn undir vopnum í vestur-þýska hernum. ■ Frá vetraræfingum NATO í Norður-Noregi síðastliðinn vetur. Það var ekkert kalt gat í þeirri æfingu. FERÐAFÓLK! SUNDLAUG ÓLAFSVÍKUR er opin alla virka daga frá 8 til 9,15 til 19 og 20 til 21. Laugardaga frá 13 til 17. Sunnudaga frá 13 til 17. í sundlauginni er einnig heitur pottur með vatns- og loftnuddi. Tilvalið fyrír fólk á ferðalagi um Snæfellsnes að slappa af í sundlaug Ólafsvíkur. Sundlaug Ólafsvíkur Höfum opnað nýtt, fullkomið tjaldstæði með snyrtingu og þvottaaðstöðu með vöskum. Skýli með eldunar- aðstöðu og vösk- um fyrir uppþvott. Kungfu-stríð á Madagascar Ántananarivo-Rcuter ■ Stjómin í afríska eyríkinu Madag- áscar hefur kallað út her til að berjast við kungfu-bardagamenn í höfuðborginni Antananarivo. Að sögn yfirvalda varð nokkurt mann- fall í átökum hers og kungfu-manna í fyrrakvöld og heldur nú herinn uppi lögum og reglu í borginni. Asíska bardagalistin kungfu var bönnuð á Madagascar í september í fyrra þar sem kungfu-bardagamenn voru sagðir standa á bak við glæpa- öldu í höfuðborginni. En kungfu- meistararnir héldu samt áfram að þróa vopnfimi sína. Kungfu-bardagamenn eru sagðir hafa ráðist á æskulýðsbúðir í desem- ber en þá létust um sextíu ungmenni. Stjórnin segir að kungfu-bardaga- menn séu nánast búnir að stofna ríki í ríkinu. Þeir skipuleggi mannrán, taki gísla og skipuleggi morð. Stjórnin ákvað að láta til skara skríða gegn kungfu-liðinu í fyrrinótt. Þá óku brynvarðir bílar inn í Behorir- ikahverfi í Antananarivo þar sem kungfu-bardagamennn höfðu búið um sig og þungvopnaðir hermenn stormuðu inn í hverfið. Fjöldi manns var handtekinn og nokkrir særðust. Ekki hefur samt enn tekist að hafa hendur í hári „stórmeistara" og aðal- leiðtoga kungfu-bardagamannanna, Pierrc Michael Andrianarijonoa.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.