NT - 02.08.1985, Blaðsíða 3

NT - 02.08.1985, Blaðsíða 3
Starfsmannaflóttinn á dagvistarheimilum: „Auglýsum eftir ann- ars konarstarfskrafti“ segir Davíð Oddsson borgarstjóri ■ „Við munum horfast í augu við vandann ef hann kemur upp en sjálfur sé ég enga aðra lausn á þessu máli en að auglýsa eftir annars konar starfskrafti en vinnur þarna núna“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri þegar NT innti hann álits á starfsmannaflóttanum á dag- vistarheimilum borgarinnar. Þegar NT spurði Davíð hvað hann ætti við með „annars kon- ar starfskrafti“ sagði hann að of snemmt væri að segja til um það á þessu stigi málsins. „Það hafa alltaf verið erfið- leikar með starfsfólkið á dag- Akranes: Stúlka á hjóli varð fyrir bíl ■ Sex ára stúlkubarn varð fyr- ir bifreið um fjögurleytið í gær- dag á Akranesi. Stúlkan var á reiðhjóli í götunni Stillholti, og hjólaði í veg fyrir fólksbifreið sem kom akandi. Ökumaður náði ekki að stöðva bifreiðina í tæka tíð, og lenti á stúlkunni. Hún var flutt í sjúkrahús, en meiðsli voru ekki fullkönnuð í gær. vistarheimilunum og það hefur verið nefnt að launin eigi þarna einhvern hlut að máli en það á síst við núna því laun fóstra og reyndar aðstoðarfólks líka voru hækkuð meira en laun annarra stétta í síðustu samningum." Borgarstjóri vildi ekki viður- kenna að 500-800 króna launa- hækkun væri lítil því fóstrur og aðstoðarmenn hefðu fengið sömu hækkun og aðrar stéttir að auki. “Það er alveg ljóst að við getum ekki hækkað laun fóstra og aðstoðarmanna umfram laun annarra starfsmanna sem vinna hjá borginni, slíkt vindur bara upp á sig og skilur ekkert eftir þegar til lengri tíma er litið. Viðkomandi stéttarfélög verða að hafa forgöngu um kröfugerð fyrir þessa hópa og þótt kröfu- gerð þeirra í síðustu samningum hafi ekki gengið út á að hækka fóstrur umfram aðra hækkuðum við þær um einn flokk.“ ■ Nýi hluti Sætúnsins hefur tekið á sig endanlega mynd og keppast borgarstarfsmenn nú við að Ijúka framkvæmdum fyrir veturinn. NT-mynd: Ami Bjama Föstudagur 2. ágúst 1985 3 5.-10. ágúst: Kertum fleytt - til að minnast Hiroshima og Nagasaki sprenginganna ■ Samtök herstöðvaand- stæðinga hyggjast minnast þess, að í ár eru 40 ár liðin frá því er bandaríski herinn varp- aði kjarnorkusprcngjum á jap- önsku borginnar Hiroshima og Nagasaki, með friðarbúðum í Njarðvíkum dagana 6.-10. ágúst. Reyndar byrjar þetta á því að japönskum og íslenskum kertum verður fleytt 5. ágúst á Reykjavíkurtjörn eins og gert verður á ám og vötnum um allan heim nákvæmlega klukk- an 23.15 en þá var sprengjun- um varpað árið 1945. Friðartjaldbúðunum sjálfum verður svo slegið upp 6. ágúst og þá verður útifundur haldinn og kvcikt á minningareldi, sem er ætlað að loga samfellt til 9. ágúst en þá er Nagasakidagur- inn. Fram til þess tíunda verður farið í ýmsar könnunarferðir um nágrennið og staðið fyrir ýmiss konar friðaraðgerðum. Athafnasvæði fyrir börn verður á svæðinu. Fjöldaganga verður farin að síðustu 10. ágúst frá Hafnar- firði sem leið liggur niður á Lækjartorg í Reykjavík, þar sem friðarfundur verður haldinn. Þess má geta að í friðarbúð- unum verða japanskir gestir, sem lifðu sprengjurnar á sínum tíma, en þeir munu m.a. hitta forseta Islands og forsætisráð- herra að máli auk þess að flytja ávörp. Gatnagerð: Af Skúla- götu á Sætún ■ Sætúniö verður lengt og breikkað frá Frakkastíg og nið- ur í bæ. Allur umferðarþunginn færist þá af Skúlagötunni, sem fyrir löngu hætti að anna, svo vel sé, allri umferð sem um hana fer. Þetta kom fram í samtali við Inga Ú. Magnússon gatnamála- stjóra. Ingi sagði að borgar- starfsmenn hefðu byrjað strax í vor að aka uppfyílingarefni í sjóinn og byggja þannig nýju götunaupp. Núnaeruhinsvegar hatnar framkvæmdir við sjálfa gatnagerðina og hefur Sætúnið tekið á sig endanlega mynd. Reiknaði Ingi Ú. Magnússon með því að hið nýja Sætún yrði tilbúið til umferðar nú í haust. Við þessar framkvæmdir myndast eyja milli Sætúnsins og Skúlagötunnar. Á þessari eyju stendur núna gamla smurstöðin Klöpp. Hún verður áfram þarna á eyjunni, en verður flutt austur þegar fram líða stundir. VELKOMIN A SELFOSS Stórmarkaður KÁ, í hjarta bæjarins býður upp á glæsilegt úrval allskonar vöru. — Ferska matvöru/nýlenduvöru — Ferðavöru — Bækur og tímarit — og fleira, og fleira Veitingabúðin Ársel er opin daglega frá kl. 9.00 til kl. 23.00. VÖRUHÚSKÁ Miöstöö viöskiptanna á Suöurlandi

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.