NT - 02.08.1985, Blaðsíða 4

NT - 02.08.1985, Blaðsíða 4
Föstudagur 2. ágúst 1985 4 Stór-Reykvíkingar iðnir við búferlaflutninga: Um tólfta hver íbúð í Reykjavík seld í fyrra ■ Ætla má aö um hálft þriðja júní hafði Fasteignamatinu bor- markaði, en þaö er um 12. hver þúsund íbúðir í Reykjavík hafi ist um 2.250 kaupsamningar „frjáls" íbúð í borginni. í skipt um eigendur í fyrra. í lok vegna sölu íbúða á frjálsum Reykjavík voru í fyrra um Sænskur harmoníkuleikur ■ Væntanlegur er til landsins sænski harmoníkusnillingurinn Lars Ek. Það er Landssamband harmoníkuunnenda sem býður Lars Ek til landsins og mun tríó hans leika víðsvegar um landið. Fyrstu tónleikarnir verða á Varmalandi í Borgarfirði, laug- ardaginn 3. ágúst kl. 8.30. Spil- að verður í Sjallanum á Akur- eyri 6. ágúst og í félagsheimili Húsavíkur 7. ágúst. Þá verður haldið til Reykjavíkur og spilar Lars Ek á tónleikum í veitinga- húsinu Ártúni, föstudagskvöld- ið 9. ágúst. Tónleikaferðinni lýkur svo í Gunnarshólma í Landeyjum 10. ágúst. Á eftir flestum tónleikunum verður efnt til dansleikja og munu sveitir heimamanna spila undir dansi, auk gestanna. Lars Ek er tæplega fertugur. Hann byrjaði að spila á hamon- íku 5 ára og kom fyrst fram á tónleikum 11 ára gamall. Síðustu árin hefur hann ferðast um Norðurlöndin og komið fram á hundruðum hljómleika og hlotnast meiri frægð en dæmi er um harmoníkuleikara síðan á gullaldarárum harmoníkunnar á fyrri hluta aldarinnar. Með Lars Ek munu leika tveir íslenskir hljóðfæraleikar- ar, þeir Þorsteinn R. Jónsson gítarleikari og Þórður H. Högnason bassaleikari. 33.400 íbúðir alls, þar af nær 3.400 verkamannabústaðir og leiguíbúðir borgarinnar, þ.e. um 10% allra íbúða. Að sögn FR eiga samningar vegna 1984 enn eftir að berast. Ekki er ólíklegt að á 7. þús. borgarbúa hafi staðið í flutning- um í fyrra vegna þessara við- skipta auk allra þeirra sem flytja' milli verkamannabústaða og leiguíbúða í borginni, að við- bættum þeim er fluttu í ný- byggð hús á árinu. Alls höfðu Fasteignamatinu borist rúmlega 4 þús. sölusamn- ingar vegna íbúðarhúsnæðis. Af þeim sölum voru um 58% í Reykjavík einni og samtals 75% á Reykjavíkursvæðinu, en tæp- ur fjórðungur utan þess. Mikill meirihluti nýrra íbúða á s.l. ári voru einnig á Reykjavíkursvæð- inu. Sýnist því ljóst að Stór- Reykvíkingar séu öðrum iðnari við búferlaflutninga. Að gefnu 1,5 millj. króna meðalverði á þessum rösklega 4 þús. íbúðum hefur heildarsölu- verð þeirra numið um 6 mill- jörðum króna (6.000.000.000 kr.) Hafi sölulaun að meðaltali verið 1,5% næmu þau samtals um 90 milljónum króna á árinu. Umferðarráð og lögregla: Starfrækja upp- lýsingamiðstöð r ■ Umferðarráð og lögregla um land allt munu starfrækja upplýsingamiðstöð um verslun- armannahelgina. Þar verður safnað saman upplýsingum um Leiðsögu- maður á kassettu ■ Aki ferðamaður hringveginn á löglegum hraða, gefst honum kostur á leiðsögn um landið. Nýverið var stofnað í Reykjavík félagið Leið- sögn um landið og hyggst það virma að gerð leið- sögusnælda fyrir fólk sem ferðast um landið á einka- bílum. Hver snælda verð- ur miðuð við tiltekinn áfanga, til dæmis leiðina milli Reykjavíkur og Selfoss. Leiðinni er lýst og fléttað er fróðleik, sögum og kveðskap inn í lýsing- una. Fyrsta snældan er þegar komin út, en það er leiðin Reykjavík - Selfoss. í undirbúningi eru snæld- urnar Selfoss - Markar- fljót og Markarfljót — Vík. Fyrst um sinn verður hringvegurinn farinn rang- sælis en til greina kemur að gera snældur ef hring- urinn verður farinn rétt- sælis. Lengd snældanna mið- ast við að ekið sé á lögleg- um hraða og er þá lýst öllu því helsta sem fyrir ber. helstu þætti umferðarinnar, s.s. ástand vega, verður, hvar vega- þjónustubílar FÍB eru staddir og einnig verður fylgst með umferð víðsvegar um landið. Upplýsingamiðstöðin verður opin föstudag 13-22, laugardag 9-22, sunnudag 13-17 og mánu- dag 10-22. Fólk getur nálgast upplýsingar í síma 27666, en búast má við talsverðu álagi. Þá verður útvarpað frá upp- lýsingamiðstöðinni ’ á báðum rásum útvarps eftir því sem tök verða á. m Harpa hf: Lakk til Rússlands fyrir 26 milljónir ■ Fyrir nokkrum dögum lauk Harpa hf. afgreiðslu á hvítu lakki til Rússlands. Utflutnings- verðmæti lakksins nemur 26 Þingvellir á ís- lensku og ensku ■ Út er komin bókin Þingvellir og goðaveldið, eftir Þorstein Guðjónsson. Bókin er 80 síður, en ensk útgáfa hennar er 96 síður. Á ensku heitir bókin Thingvellir: The Parliament Plains and Ice- land. í bókinni eru í fáum dráttum sögð deili á Þingvöllum, sögu þeirra og sambandi við þjóðlífið. Upphaf alþingishaldsins er rakið til sameiginlegrar þingskipunar Norðurlandabúa á víkingaöld, og til eldri þróunar þinganna meðal germana. Lýst er sérkennum hins forníslenska þjóðfélags, sem þró- aðist í tengslum við Þingvelli og rakin er síðari þróun staðarins allt til þess að lýðveldið var endurreist þar árið 1944 og 1100 ára land- námshátíðin var haldin þar 1974. Bókin er skreytt ljósmyndum, uppdráttum og skýringamyndum. milljónum króna. Lakkið er framleitt úr inn- fluttu hráefni, en tæpur helm- ingur útflutningsverðmætisins verður eftir á íslandi sem hrein- ar gjaldeyristekjur. Þetta er 18. árið sem Harpa hf. selur málningu til Sovétríkj- anna. Viðskiptin hófust árið 1966 og hafa verið árviss síðan, að tveimur árum undanskildum. Útflutningur Hörpu hf. til Sovétríkjanna nemur 11.947 tonnum frá upphafi. Á núver- andi verðlagi er verðmæti þessa útflutnings um 700 milljónir króna og þar af hafa ríflega 300 milljónir orðið eftir hér heima, sem hreinar gjaldeyristekjur. Hvar fæst Ijúf- fengt grillmeti? ■ Grill, viðarkol og áhöld eru til lítils ef matinn vantar. Eins og kunnugt er, þá er nánast allt matarkyns vel fallið til matreiðslu á útigrilli, en þó eru einstaka vörutegundir vinsælli en aðrar. Hér á eftir fer lýsing á því hvað þrjár matvöruverslanir hafa á boð- stólum af þessu tagi. Þær voru valdar af handahófi, enda af nægu að taka. ekki kryddlegið kjöt, þá er auðvitað rétt að leggja áherslu á það að hér fæst mikið úrval af kjöti sem er skorið og geymt á hefðbundinn hátt,“ sagði Ómarennfremur. „Þarað auki get ég talið til lambakjöt sem er sérstaklega hangið og 6 tegundir af grillpylsum." í Kjötbæ starfa tveir matreiðslu- menn sem veita fúslega ráð og upplýsingar um grillmeti. Kryddlegið kjöt „Við höfum hér mikið úrval af kryddlegnu lamba- og svína- kjöti, þá ýmist sérinnpakkað eða úr kjötborði,“ sagði Árni Níelsson, kjötiðnaðarmaður í Glæsibæ. Þar fyrir utan benti Árni á gott úrval stórsteika af nauti. Að hans sögn býður Glæsibær viðskiptavinum sín- um tilbúna grillpinna með nautakjöti, papriku, tómötum, sveppum og lauk. Hver pinni kostar kr. 66. Hægt að sérpanta „Fólk getur ýmist komið og keypt það sem við bjóðum hér daglega, eða sérpantað ef þess er þörf,“ sagði Ómar Gunnars- son, kjötiðnaðarmaður hjá Kjötbæ. Hann sagði að versl- unin státi af úrvali kryddleg- inna kjöthluta t.d. 4-5 tegundir af kjúklingi, 4 tegundir af svínakjöti og 6 tegundir af lambakjöti. „En ef einhver vill Hamborgarar vinsælir „Um þessar mundir leggjum við áherslu á að bjóða við- skiptavinum gott lambakjöt, enda eru góðir bitar hlutfalls- lega ódýrir á grillið,“ sagði Hlynur Vigfússon, kjötiðnað- armaður hjá Víði. „Þá á ég við hvort tveggja vel hangið og kryddlegið kjöt.“ En Víðir býður ekki einungis upp á kryddlegið kjöt, heldur einnig sítrónu-, lauk- og paprikulegið kjöt. í versluninni fást grill- pylsur af ýmsum tegundum og grillpinnar með bæði svína- og nautakjöti, hver þeirra kostar kr. 98. „Ef hugsað er til versl- unarmannahelgarinnar, þá er það alveg ljóst að hamborgar- arnir eru langvinsælasta kjöt- varan sem við seljum,“ sagði Hlynur. Hann bætti því við að eins og jafnan áður fæst í Víði gott úrval af nautasteikum, sem eru fjarri því að vera dýr kostur. i Ómar Gunnarsson, kjötiðnaðarmaður í Kjötbæ, lagði áherslu á að verslunin býður viðskiptavinum sínum mikið úrval af ýmiss konar grillpylsum. ■ Árni Níelsson, kjötiðnaðarmaður í Glæsibæ, sýndi blaða- manni m.a. krvddlegið lambakjöt sem var sérinnpakkað. ■ Hlynur Vigfússon, kjötiðnaðarmaður í Víði Austurstræti, sagði að lambakjötið væri tilvalið á grillið. Myndir - Róbert

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.