NT - 02.08.1985, Blaðsíða 11

NT - 02.08.1985, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. ágúst 1985 11 Útvarp — sjónvarp María Sigurðardóttir og Hjalti Rögnvaldsson í hlutverkum sínum. Utvarp sunnudag kl. 15.10: Enn er boðið upp í morð ■ Á sunnudaginn kl. 15.10 framhaldsleikritsins Boðið verður fluttur fjórði þáttur upp í morð og nefnist þáttur- Elsku mamma ■ Á morgun kl. 19.35 hefst ný þáttaröð í útvarpi sem nefn- ist einu nafni „Elsku mamma“. Umsjónarmenn þessara þátta eru þær Saga Jónsdóttir og Guðrún Þórðardóttir en þeir fjalla um mömmuna í ýmsum myndum eins og nafnið bendir til. Víða verður leitað fanga, rætt við fólk sem segir frá skemmtilegum atvikum, lesið úr bókum, leikritum og fleira í léttum dúr verður í þáttunum. í fyrsta þætti veitir Þórhallur Sigurðsson þeim stöllum lið- sinni sitt. inn „Samningur unr líf og dauða“. Karl Ágúst Úlfsson samdi leikritið upp úr skáld- sögu eftir John Dickson Carr og er einnig leikstjóri. í þriðja þætti gerðist þetta helst: Bill og Marjorie, sem tekið hafa að sér hlutverk Larry Hurst og Joy Tennent, halda á fund hins dularfulla Gaylord Hurst. í fyrstu virð- ist sem þeim muni takast að blekkja hann, en síðar kemur í ljós að Gaylord hefur vitn- eskju um svikin og hyggst ganga af Bill dauðum. Leikendur í fjórða þætti eru Hjalti Rögnvaldsson, Helgi Skúlason, Erlingur Gíslason, María Sigurðar- dóttir, Guðmundur Pálsson, Erla B. Skúladóttir, Þor- steinn Gunnarsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Rúrik Har- aldsson, Karl Guðmundsson, Edda V. Guðmundsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Kristján Franklín Magnúss, Helga Þ. Stephensen og Ey- þór Árnason. Sögumaður er Arnar Jónsson. Tæknimenn eru Óskar H. Ingvarsson og Ástvaldur Kristinsson. Þátturinn verður svo endurtekinn þriðjudag- inn 6. ágúst kl. 22.35. Sjónvarp laugardag kl. 20.35: Klassískatónlistin ræður ríkjum á laugardögum Allt er í hers höndum! ■ Unnendur klassískrar tón- listar geta hugsað sér gott til glóðarinnar á laugardaginn. Sigurður Einarsson sér um þáttinn „Fagurt galaði fuglinn sá“ þar sem leikin eru þekkt klassísk verk, auk þess að vera kynnt af Sigurði. Á síðdegistónleikum er margt þekktra verka, a. „Sverðdansinn" eftir Aram Katsatúrían, þar sem félagar í Fílharmoníusveit Berlínar og í Karajan-akademíunni leika. b. „Rúmenskir dansar“ eftir Bela Bartók sem Deszö Ránki leikur á pianó. c. Slavneskir dansar op. 46 eftir Antonín Dvorak, en þá leikur Cleve- land-hljómsveitin undir stjórn Georg Szell. d. Vals nr. I í Es-dúr op. 18 eftir Frédéric Chopin, þar sem Augustin Anievas leikur á pí- anó. e. „Andante Spinato" og „Grande polnaise brillante“ op. 22 eftir Fréderic Chopin, sem Martha Argerich leikur á píanó og f. Spánskur dans nr. 5 eftir Enrique Granado sem John Williams leikur á gítar. í kvöldtónleikum kl. 21.00 verða fluttir þættir úr sígildum tónverkum. Síðast en ekki síst verða Miðnæturtónleikar kl. 24.05- 00.55 í umsjón Jóns Arnar Marinóssonar. Þar verður fluttur fantasíu-forleikurinn eftir Tsjaíkovskí „Rómeo og Júlía“. Halléhljómsveitin leik- ur undir stjórn Okko Kamu. Einnig verður flutt „Rapsódía um stef eftir Paganini" fyrir píanó og hljómsveit op. 43 eftir Rakhmaninoff. Vladimir Ashkenazy leikur með Sinfón- íuhljómsveit Lundúna undir stjórn André Prévin. Því liggur beinast við fyrir unnendur klassískrar tónlistar að leggja nú vel við hlustir og þeir sem vilja kynna sér hana fá nú upplagt tækifæri til þess. ■ Fjórði þáttur breska gam- anmyndaflokksins „Allt í hers höndum“ er á dagskrá á morg- un kl. 20.35. Leikstjóri er Da- vid Croft og með aðalhlutverk fer Gordon Kaye. í síðasta þætti sneru bresku flugmennirnir aftur til kaffl- hússins við illan leik. Von Strolim og Geering neyddust til þess að dulbúa sig sem lauksala, þar sem þeir höfðu lánað flugmönnunum einkenn- isbúninga sína. Þýðandi er Guðni Kolbeins- son. ■ John Williams. 19.35 Tylftarþraut. Spurningaþáttur Stjórnandi: Hjörtur Pálsson. Dóm- ari: Helgi Skúli Kjartansson. 20.00 Sumarútvarp unga fólksins Blandaður þáttur i umsjón Jóns Gústafssonarog Ernu Arnardóttur. 21.00 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja 21.30 Útvarpssagan „Theresa“ eft- ir Francois Mauriac Kristján Árnason þýddi. Kristín Anna Þórar- insdóttir les. (6). 22.00 „Döggin á grasinu er glitr- andi tær“ Höskuldur Skagfjörð les Ijóö eftir Helga Sæmundsson úr bókinni „Sunnan í móti“. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 iþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur Hannesson. 22.50 Djassþáttur - Tómas R. Ein- arsson. 23.35 Á sunnudagskvoldi (24.00 Fréttir) Þáttur Stefáns Jökulsson- ar. 00.50 Dagskrárlok. 2. ágúst 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Ásgeir Tómasson og Páll Þorsteinsson 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir 16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn- andi: Jón Ólafsson Þriggja minútna fréttir sagðar klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00 Hlé 20.00-21.00 Lög og lausnir Stjórn- andi: Adolf H. Emilsson 21.00-22.00 Bergmál Stjórnandi: Sigurður Gröndal 22.00-23.00 Á svörtu nótunum Stjórnandi: Pétur Steinn Guð- mundsson 23.00-03.00 Næturvakt Stjórnendur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ást- valdsson Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar1 Laugardagur 3. ágúst 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- andi: Einar Gunnar Einarsson 14.00-16.00 Við rásmarkið Stjórn- andi: Jón Ólafsson ásamf Ingólfi Hannessyni og Samúel Erni Erlingssyni.iþróttafréttamönnum 16.00-17.00 Listapopp Stjórnandi: Sigurður Þór Salvarsson. 17.00-18.00 Afram veginn Umferð- arþáttur. Stjórnandi: Ragnheiður Davíðsdóttir Hlé 20.00-21.00 Línur Stjórnendur: Heið- björt Jóhannsdóttir og Sigríður Gunnarsdóttir 21.00-22.00 Stund milli stríða Stjórnandi: Jón Gröndal 22.00-23.00 Bárujárn Stjórnandi: Sigurður Sverrisson 23.00-00.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigurjónsson 00.00-03.00 Næturvaktin Stjórnend- ur: Kristín Björg Þorsteinsdóttir og Margrét Blöndal Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar 1 Sunnudagur 4. ágúst 13.30-15.00 Krydd í tilveruna Stjórnandi: Helgi Már Barðason 15.00-16.00 Dæmalaus veröld Þátt- ur um dæmalausa viðburði liðinnar viku. Stjórnendur: Þórir Guð- mundsson og Eirikur Jónsson 16.00-18.00 Vinsældalisti hlust- enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Gunnlaugur Helgason Föstudagur 2. ágúst 19.25 Ævintýri Berta (Huberts sagor) 3. þáttur. Sænskur teikni- myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Svona gerum við (Sá gör man - badkar) Hvernig baðker verður til (Nordvision - Sænska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Skonrokk Umsjónarmenn Har- aldur Þorstemsson og lómas Bjarnason. 21.05 Heldri manna líf (Aristocrats) Breskur heimildamyndaflokkur um aðalsmenn í Evrópu, hlutverk þeirra í nútímasamfélagi, lifnaðar- hætti þeirra og siði. I fyrsta þætti er ferðinni heitið til Frakklands og De Ganay markgreifi sóttur heim. Einnig veröa sýndar svipmyndir frá brúðkaupsveislu á ættarsetri markgreifans. Þýðandi Þorsteinn Helgason. 22.05 Marlowe einkaspæjari (Mar- lowe) Bandarísk bíómynd frá árinu 1969, byggð á sögu eftir Raymond Chandler. Leikstjóri Paul Bogart. Aðalhlutverk: James Garner, Ga- yle Hunnicutt, Carrol O'Connor, Rita Moreno og Sharon Farrell. Marlowe einkaspæjara er falið að leita ungs manns. Það verður til þess að hann dregst inn í marg- slungin og dularfull glæpamál. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 23.35 Fréttir í dagskrárlok Laugardagur 3. ágúst 17.30 (þróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 19.25 Kalli og sælgætisgerðin. Lokaþáttur Sænsk teiknimynda- saga í tíu þáttum. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Karl Ágúst Úlfsson. (Nordvision - Sænska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Allt í hers höndum (Allo, Allo!) Fjórði þáttur Breskur gaman- myndaflokkur i átta þáttum. Leik- stjóri David Croft. Aðalhlutverk: Gorden Kaye. I síðasta þætti sneru bresku flugmennirnir aftur til kaffihússins við illan leik. Von Strohm og Geering neyddust til þess að dulbúa sig sem lauksala, þar sem þeir höfðu lánað flug- mönnunum einkennisbúninga sína. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.05 Carrie (Carrie) Bandarísk bió- mynd frá árinu 1952, byggð á skáldsögu eftir Theodore Dreiser. Leikstjóri William Wyler. Aðalhlut- verk Laurence Olivier og Jennifer Jones. Carrie er ung sveitastúlka sem flyturtil borgarinnar. Þar kynn- ist hún miðaldra manni og takast með þeim ástir, en hann er kvænt- ur fyrir og eiginkonan vill ekki veita honum skilnað. Þýðandi Ragna Ragnars. 23.05 Dauðinn ríður hrossi (Death Rides A Horse) Italskur vestri frá árinu 1969. Leikstjóri Giulio Petr- oni. Aðalhlutverk: John Philip Lew, Lee Van Cleef og Anthony Dawson. Bill vill hefna fjölskyldu sinnar sem bófaflokkur drap á hrottalegan hátt þegar hann var barn. Einn bófanna, Ryan, hefur afplánað fangelsisdóm vegna svika samherja sinna. Bill og Ryan eiga því sameiginlega óvini og hyggja báðir á hefndir. Þýðandi Baldur Sigurðsson. Myndin er alls ekki við hæfi barna. 00.55 Dagskrárlok Sunnudagur 4. ágúst 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Sigurður Sigurðarson, Selfossi flytur 18.10 Róbinson fjölskyldan (Swiss Family Robinson) Bandarisk teiknimynd, byggð á samnefndri sögu eftir Johann Wyss. Þýðandi Hallmar Sigurðsson 19.00 Hlé 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku 20.45 Demantstorg (La Plaza del Diamante) Lokaþáttur. Leikstjóri Francisco Betriu. Aðalhlutverk: Sil- via Munt, Lluis Homar, Lluis Julia og Jose Munguell. Þýðandi Sonja Diego. 21.40 Samti'maskáldkonur. Þriðji þáttur Að þessu sinni verður fjall- að um bresku skáldkonuna Marg- aret Drabble, sem hefur m.a. skrif- að skáldsögurnar Nálaraugað og Fossinn. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir (Nordvision - Norska sjón- varpið) 22.20 Balletsyrpa (Ballet Gala) Frægir dansarar sýna listir sínar við tónlist af ýmsu tagi, m.a. eftir Adolphe Adam, Stravinski, Bette Midler og Dvorak. Dansarar: Alex- ander Goudonov, Yoko lchino, Ann Marie de Angelo, Terry Brown og fleiri 23.10 Dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.