NT - 02.08.1985, Blaðsíða 13
Igin framundan
Föstudagur 2. ágúst 1985 1 3
Frá Norræna heilunar*
skólanum
■ Norræni heilunarskólinn
tekur til starfa eftir sumar-
leyfið í byrjun ágúst. Innritun-
ar- og kynningarkvöld mið-
vikudaginn 7. ágúst kl. 20 í
félagsheimili Knattspyrnufé-
lagsins Vals. Sagt verður frá
starfsemi skólans síðastliðinn
vetur og námsefni kynnt.
„Skólinn veitir innsýn í hinar
ýmsu aðferðir og leiðir, sem
stefna að heilbrigðu lífi, hærra
meðvitundarsviði og andlegu
jafnvægi. Eina skilyrðið fyrir
uppptöku í skólann er einlæg
ósk nemandans um að öðlast
þekkingu og þörf fyrir að starfa
að útbreiðslu friðar og jafn-
vægis manna á milli,“ segir í
frétt frá skólanum.
Gallerí Kirkjumunir
Kirkjustræti 10
■ Listsýning Sigrúnar Jóns-
dóttur opin daglega frá kl. 9
f.h.
Ferðir á vegum
Ferðamálasamtaka
Suðurnesja
sunnudaginn
4. ágúst kl. 10.00:
Vatnsleysustrónd
-Njarðvíkur-
Keflavík - Rosm-
hvalanes (söguferð)
■ Fyrsti viðkomustaður er
við Straum, kapella heilagrar
Barböru. Ekið um Vatnsleysu-
strönd. Viðkoma gerð að
Kálfatjörn og kirkjan skoðuð.
Á leið til Njarðvíkna er gerður
stuttur stans við Snorrastaða-
tjarnir og á Grímshól og ýmsar
þjóðsögur rifjaðar upp sem
tengjast nánasta umhverfi.
Ekið um Njarðvíkur og Kefla-
vík og saga staðanna rifjuð
upp. Haldið út í Garð um
Leiru og þaðan sem leið liggur
út á Hvalsnes á slóðir sr.
Hallgríms Péturssonar. Pví
næst er ekið um Stafnes og
komið við að Básendum, hinni
fornu verslunarhöfn frá tíma
einokunarinnar, sern er síðasti
viðkomustaður áður en haldið
er til baka til Reykjavíkur. En
þangað er áætlað að verði
komið um kl. 17.30.
Léttur hádegisverður á
Glóðinni í Keflavík 250 kr. pr.
mann.
Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni. Verð kr. 500 fyrir
fullorðna, 250 kr. fyrir 12-15
ára. Frítt fyrir börn í fylgd með
fullorðnum. Leiðsögn.
Laugardaginn 10. ágúst
frá Reykjavík kl. 07.00
frá Keflavík kl. 08.00:
Eldeyjarsigling -
ævintýraferð
■ Siglt frá Sandgerðishöfn.
Siglingin að eynni tekur rúmar
tvær klukkustundir. Siglt um-
hverfis eyna. Gott tækifæri til
myndatöku og eða til að fylgj-
ast með fjölskrúðugu fuglalíf-
inu. Veitingar um borð. Kom-
ið til Sandgerðis um kl. 16.00.
Farþegum úr Reykjavík og
Keilavík ekið til og frá borði.
Leiðsögn.
Ath. Nauðsynlegt er að til-
kynna þátttöku í ferðina með
minnst þriggja daga fyrirvara.
Þetta verður eina ferðin í
sumar.
Nánari upplýsingar í síma
92-4099.
*
Kolbeinn Bjarnason og
Páll Eyjólfsson spila
i Árbæjarkirkju
■ Sunnudaginn 4. ágúst
verður fitjað upp á þeirri ný-
breytni í Árbæjarsafni að
bjóða safngestum upp á tón-
leika. Þeir Kolbeinn Bjarna-
son, flautuleikari, og Páll
Eyjólfsson, gítarleikari, munu
halda stutta tónleika í Ár-
bæjarkirkju.
Á efnisskránni verða tón-
verk frá 18. öld.
Kolbeinn og Páll hafa haldið
nokkra sameiginlega tónleika
á undanförnum árum, núna
síðast á Sigurjónsvöku, þann
30. júní s.l.
Er það von safnsins að gestir
þess noti þetta tækifæri til að
njóta fagurrar tónlistar í sér-
stæðu umhverfi.
Tónleikarnir hefjast kl.
15.00. Þeir verða endurteknir
kl. 16.15.
Full keyrsla í Húnaveri ’85
■ Það verður mikið um
að vera í Húnaveri um
verslunarmannahelgina.
Þetta árið er það stór-
rokksveitin DRÝSILL sem
heldur uppi stuðinu.
Margt annað verður til
skemmtunar. Söngkonan
Leoncie Martin kemur
fram, en hún hefur vakið
mikla athygli fyrir góðan
söng og sérkennilega
sviðsframkomu. Hljóm-
sveitin START með Pétur
Kristjánsson í fararbroddi
verður vakin til lífs á ný,
aðeins þessu einu helgi
(Lola mætir að sjálf-
sögðu). Diskótek verður í
gangi með bæði gömlu og
nýju dansana og snyrting
og veitingasala verður
opin allan tímann. Dansað
verður föstudags-, laug-
ardags- og sunnudags-
kvöld, auk þess sem
DRÝSILL heldur óskeyp-
is tónleika á laugardegin-
um. Næg tjaldstæði eru
við Húnaver og aðgangur
að svæðinu er ókeypis.
■ Úr Landmannalaugum
Ferðafélag íslands:
Dagsferðir um verslunar-
mannahelgi:
4. ágúst (sunnudag) ki. 13.
Höskuldarvellir - Keilir. Verð
kr. 400.00.
5. ágúst (mánudag) kl. 13.
Reynivallaháls - Þórufoss -
Kjósarskarð. Verð kr. 400.00.
5. ágúst (mánudag) kl. 08.
Þórsmörk - dagsferð og fyrir
sumarleyfisgesti. Verð kr.
650.00.
Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Útivist
Gengið um gamla kaup*
staðarieið í tilefni
verslunarmannafrídags
■ Fjölmargar ferðir verða á
vegum Ferðafélagsins Útivist-
ar um verslunarmannahelgina.
Farnar verða helgarferðir í
Núpsstaðarskóg , Þórsmörk,
Eldgjá - Landmannalaugar -
Langasjó, Dali - Breiöafjarð-
areyjar og Hornvík. Daglegar
ferðir verða í Þórsmörk frá
föstudagskvöldi til mánudags.
Gist er í skála Útivisar í
Básum, en þar hefur félagið
byggt upp góða ferðamanna-
aðtöðu í rólegu og hlýlegu
umhverfi.
Fyrir þá sem ekki fara í
lengri ferð um versjunar-
mannahelgina býður Útivist
upp á sérstaka ferð á verslun-
armannafrídaginn. Þetta er
svoköiluð kaupstaðarferð sem
orðin er árviss hjá félaginu.
Brottför er kl. 13 frá BSÍ og
ekið verður ti! Keflavíkur að
gömlu Duusbúðinni. Þaðan
verður ekið sem næst gömlu
þjóðleiðinni yfir á Njarðvík-
urfitjar. Þaðan er gengið inn
Skipsstíg (Járngerðarstaða-
veg) að Hópi í Grindavík.
Þetta er ganga við allra hæfi.
Fararstjóri er Einar Egilsson.
Helgarferðir 9.-11. ágúst:
Arnarfell hið mikla - Þjórsár-
ver. Gist í Nýjadal.
Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi í Laugum.
Þórsmörk. Gönguferðir um
Mörkina. Gist í Skagfjörðs-
skála.
Hveravellir - Þjófadalir.
UPPSELT.
Áiftavatn - Torfahlaup. Gist í
sæluhúsi F.I. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofu F.Í.,
Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands