NT


NT - 02.08.1985, Síða 19

NT - 02.08.1985, Síða 19
húsnæði óskast íbúð óskast 2 stúlkur í háskólanámi óska eftir 3ja her- bergja íbúð, nú þegar eða í haust. Algjör reglusemi. Upplýsingar í síma 686396 (Steingrímur) eða í 41224 á kvöldin og um helgar. tilkynningar Auglýsing um stofnaðild að Verðbréfaþingi íslands Starfsemi Verðbréfaþings íslands mun hefjast á hausti komanda. Stjóm þingsins auglýsir hér meö eftir umsóknum þeirra verðbréfamiölara, sem vilja eiga aöild aö þinginu frá upphafi, í samræmi við ákvæði reglna um Veröbréfaþing íslands nr. 268 frá 28. júní 1985. Umsækjendur eöa starfsmenn þeirra skulu fuilnægja eftirfarandi skilyröum: a) Vera fjárráöa og hafa forræöi á búi sínu; b) hafa til aö bera næga menntun og reynslu í veröbréfa- viöskiptum aö mati stjórnar og c) setja verðtryggða bankaábyrgð, eigi lægri en 1 milljón króna í upphafi. Auk þess verður krafist aö þingaðilar undirriti drengskapar yfirlýsingu um að rækja störf sín eftir bestu samvisku og að hlíta reglum þingsins sem og reglum, sem stjórnin setur. Væntanlegir umsækjendur skulu vera viö því búnir aö tengjast sameiginlegu tölvukerfi. Umsóknir berist stjórn Verðbréfaþings íslands, Hafnar- stræti 10, R. fyrir 20. ágúst 1985. Reykjavík, 1. ágúst 1985. Verðbréfaþing íslands. Hjartans þakklæti til ykkar allra sem glöddu mig með gjöfum, heimsóknum og á annan hátt á 70 ára afmæli mínu 29. júlí síðastliðinn. Valgerður Vigfúsdóttir Klukkufelli t Vinkona mín, Ingveldur Eyjólfsdóttir sem andaðist 26. júlí, verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi miövikudaginn 7. þessa mánaðar kl. 10:30. Þuríður Sigurjónsdóttir Þökkum innilega samúö og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður Sigtryggs Eiríkssonar Eskihlíð 5, Reykjavík Sérstakar þakkir skulu hér færðar til starfsfólks lyfjadeildar Borgarspítalans Vilhelmína Þórdís Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Sigtryggson Herdís Guðmundsdóttir Halla Sigtryggsdóttir Baldur Bjarnasen ÞórdísSigtryggsdóttir HörðurHalldórsson barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna Þökkum innilega samúð og vinarhug við útför föður okkar Gunnar Njálssonar Suður-Bár. Sérstaklega þökkum við læknum, systrum og öðru starfsfólki Sankti Fransisku spítalans í Stykkishólmi góða hjúkrun í veikindum hans. Margrét Gunnarsdóttir Sesselja Gunnarsdóttir Njáll Gunnarsson Kjartan Gunnarsson Þórdís Gunnarsdóttir Tryggvi Gunnarsson Ólafur Jónsson Magnús Gestsson Helga Gunnarsdóttir Árdís Sveinsdóttir Ragnar Kristjánsson Kristin Nóadóttir fílí Föstudagur 2. ágúst 1985 19 U mr Útlönd ■ Fjöldi blökkumanna og kynblendinga í Suður-Afríku hefur fundið leið til að berjast gegn yfirráðum hvítra án þess að beita ofbeldi. Svertingjarnir hætta einfaldlega að versla við „hvítar" verslanir. Þetta er sú baráttuaðferð sem hvíti minnihlutinn þolir hvað verst. Bandaríkin sökkva dýpra í skuldafen Washington-Reuter Þjóðarskuldir í Bandaríkjun- um eru nú um 1.799 milljarðar og er ekkert útlit fyrir að þær muni minnka neitt á næst- unni. Þvert á móti telur Bandaríkjastjórn sig þurfa að taka 55 til 60 milljarða dollara lán til viðbótar á seinasta árs- fjórðungi þessa árs. Aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna John Ni- ehenke sagði á blaðamanna- fundi nú í vikunni að stjórnin myndi taka 43,3 milljarða doll- ara lán frá almenningi í formi ríkisskuldabréfa á tímabilinu júlí til september. En eftir það verður fjármálaráðuneytið að biðja öldungadeildina um leyfi til aukinnar lántöku. Mengun færir Pólverja í kaf Varsjá-Reuter: ■ Um þriðjungur Pól- verja getur vart dregið andann vegna ótrú- legrar mengunar í land- inu, að því er málgagn pólska kommúnista- flokksins, Trybuna Ludu, skýrði frá í gær. Vatns- mengun eykst stöðugt og um helmingur af skógum landsins er í hættu vegna súrs regns. Á hverju ári er um tveimur milljörðum rúm- metra af úrgangi dælt út í vötn og ár landsins. Álíka mikið magn af illa hreins- uðum úrgangi fer einnig út í náttúruna. Tjónið af völdum meng- unarinnar nemur um 3,2 milljörðum dollara á ári. Kornuppskerur skemmast oft, vélar tærast og hús eyðileggjast. Trybuna Ludu áætlar að það muni taka um 25 ár að hreinsa landið og ná aftur fram eðlilegu jafnvægi í náttúrunni. Suður-Afríka: Lögregla rekur börn í skólann Port Elizabeth-Reuter. ■ Suður-afrískir lögreglu- menn gengu hús úr húsi í blökkumannahverfum í borg- inni Graaff-Reinet í gær og skipuðu börnum og unglingum að hætta skólaverkfalli og mæta þegar í stað í skólann. Að sögn lögreglunnar tókst bærilega að koma nemendum í skólann með þessari aðferð þannig að kennslufært varð í fyrsta skipti frá því í apríl síðast- liðinn. Samkvæmt neyðarlögunum, sem nú eru í gildi á blökku- mannasvæðum í Suður-Afríku, hefur ferðafrelsi mjög verið skert. Enginn má nú fara inn í hverfi biökkumanna eða kyn- blendinga í Graaff-Reinet nema hann búi þar og öll börn eru skylduð til að mæta í skóla. íbúum þar er líka bannað að eiga bensín nema það sé í bensíntönkum bíla. Lögreglan hefur líka fengið leyfi til að loka búðum sem blökkumenn reka þar sem starf- semi þeirra ýti undir verslunar- bann blökkumanna á hvítar verslanir. Verslunarbannið hef- ur þegar bitnað illa á mörgum verslunum og hafa sumar þeirra lokað. Lögregluyfirvöld halda því fram að svartir kaupmenn reyni að hagnast á verslunarbanninu á „hvítar“ verslanir með því að hækka vöruverð. Hvítir menn hafa miklar áhyggjur af verslunarbanninu því að margir hvítir kaupmenn eru háðir viðskiptum blökku- manna til að geta rekið verslanir sínar. Stjórnvöld í Suður-Afríku íhuga nú að taka reglurnar, sem settar hafa verið í Graaff-Rei- net, einnig upp á öðrum svæð- um þar sem blökkumenn búa. Vegna neyðarlaganna er slíkt nú mögulegt. Hátt á annað þúsund manns hafa nú verið handteknir í skjóli neyðarlaganna að undanförnu sem voru sett til að bæla niður óeirðir andstæðinga aðskilnað- arstefnunnar. Síðan lögin voru sett hafa óeirðir samt aukist og breiðst út til fleiri svæða. Hunda- drápá mynd- bandi Chcshunt-Rcutcr llmvötn lífga upp á anda Sovétmanna - á tímum vínandahallæris Moskva-Rcutcr: ■ Samkvæmt sovéska verka- lýðsblaðinu Trud segir að hert eftirlit með áfengissölu hafi leitt til þess að stöðugt fleiri leiti huggunar í ilmandi veigum snyrtivöruverslana. Blaðið hefur eftir áfengis- áhugamönnum að hörð sam- keppni sé milli hins göfuga víns Agdams og blómailmvatnsins Starts. Kunni menn ekki að meta Start megi alltaf taka slurk úr flösku af eðalilmvatninu Kara-Novo sem kosti aðeins 66 kópeka (35 kr.) Annað sovéskt dagblað, Moskovskaya Pravda, segir að ólögleg áfengissala hafi aukist mikið eftir að áfengislöggjöfin var hert 1. júní síðastliðinn og opnunartími áfengissölustaða styttur. Blaðið segir að margir sprúttsalar selji vodka úr bílum eða á götum úti. Dagana 6. og 7. júlí gerði lögreglan skyndileit að sprútt- sölum í Moskvu og handtók þá 273 menn. Svipuð hreinsun í lok mánaðarins leiddi til þess að 364 voru handteknir sem bendir til mikillar fjölgunar leynivín- sala. Ólöglegt brugg í heimahúsum hefur einnig aukist mikið á síð- ustu tveim mánuðum. ■ Við réttarhöld í Bretlandi vegna ólöglegs hundaats nú í vikunni varm.a. sýnt myndband af nýlegu hundaati þar sem blendingstíkur af bolabíta- og rottuhundakyni rifu hvor aðra á hol. Blóðbaðið var svo hroðalegt að dómarinn treysti sér ekki til að horfa á öll atriðin. Réttar- höldunum lauk með því að þrír menn voru dæmdir í tveggja mánaða fangelsi fyrir að skipu- leggja hundaatið og sex voru sektaðir. Hundaat var bannað á Bret- landi árið 1835 og þetta er í fyrsta skipti á þessari öld að breskur dómstóll fær til með- ferðar brot á þessu banni. Hundaatið var haldið í hlöðu fyrir norðan London. Skipu- leggjendur tóku við veðmálum á tíkurnar og áhorfendur hvöttu þær áfram með ópum og köllum. Önnur tíkin lést en hin lifði illa sködduð. Breskur þingmaður hefur nú lagt til að innflutningur á bola- bítarottuhundum frá Banda- ríkjunum verði bannaður én það eru aðallega slíkir hundar sem eru notaðir við hundaatið.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.