NT - 02.08.1985, Page 24

NT - 02.08.1985, Page 24
HRINGDU Við tökum við ábendingum um fréttir alian sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrarnafnleyndar er gætt NT, Síðuvnúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar; áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Banaslys við Vík í Mýrdal: Ók framhjá brúnni og lést samstundis Grunur leikur á ölvun ■ Banaslys varð á þj óðveg- inum rétt fyrir utan Vík í Mýrdal, aðfaranótt þriðju- dags. Mjólkurbílstjóri sem var á leið til vinnu sinnar klukkan sjö um morguninn varð var við fólksbifreið, sem farið hafði út af veginum við Uxafótarlæk, 2-3 kíló- metra frá Vík. Þegar farið var að grennslast fyrir um afdrif ökumanns, kom í ljós að hann var látinn. Reynir Ragnarsson lög- regluþjónn í Vík í Mýrdal sagði í samtali við NT í gær að grunur léki á að ökumað- urinn hefði verið undir áhrif- um áfengis. Hann sagði að greinilegt væri að ökumaður- inn hefði verið á miklum hraða og hefði bíllinn farið hægra megin við hægra brú- arhandriðið og kastast yfir árfarveginn og hafnað á brú- aruppistöðum hinum megin við brúna. Maðurinn var einn í bílnum og mun hafa látist samstundis. Síbrotamaður: Á eftir að afplána fjórafangelsisdóma - verður í gæsluvarðhaldi þar til Hæstiréttur hefur fjallað um málið ■ Síbrotamaður var úr- skurðaður í gæsluvarðhald í gær, allt fram til 2. október. Maðurinn var tekinn í íbúð við Nýlendugötu fyrr í vikunni, grunaður um tkveikju og inn- brot í nokkur hús í götunni. Maðurinn hefur verið dæmd- ur fjórunt sinnum frá því í desember síðastliðnum, en öll- um dómunum hefur verið áfrýj- að. Þórir Oddsson hjá RLR sagði í samtali við NT í gær, að um síbrotagæslu væri að ræða, þar sem ætlað væri að Hæstirétt- ur tæki til meðferðar áfrýjanir mannsins í september, og með gæslunni væri hægt að koma í veg fyrir að hann myndi fremja afbrot áður en Hæstirétturhefði fjallað um áfrýjanirnar. Samtals eru dómarnir sem maðurinn á yfir höfði sér um tvö ár. Hann hefur 11 sinnum verið úrskurðaður í óskilorðsbundið fangelsi. ■ Halldór var skipaður í stöðuna af sjávarútvegsráð- herra. ■ íslensku listakonuraar Anna Þóra Karlsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Áslaug Sverrisdóttir og Ása Ólafsdóttir, á bak við verk norska tcxtíllist amannsins Lars Jörgen Falkenberg. NT-,n.'nd: Sverrir- Silla bar hrosshár í pokum heim til mín Haiidór Árnason Samnorræn sýning textíllistafólks á Kjarvalsstöðum ■ í Egyptalandi til forna var sagt að það væri svo erfitt að vera vefari að það væri jafnvel erfiðara en að vera kona. Konurnar - vefararnir - á Kjarvals- stöðum kíma og líta hver á aðra. Þær eru að kynna samnorræna sýningu á textílverkum sem opnar um helgina á Kjarvalsstöðum, og þær eru nýbúnar að segja frá því að aðeins örfáir karlmenn séu í sýningarhópnum. fiskmatsstjóri ■ Halldór Árnason, efna- og hagfræðingur, hefur verið skipaður fiskmatsstjóri. Um- sækjendur um stöðuna voru tveir, Halldór og Guðrún Hall- grímsdóttir, matvælaverk- fræðingur. Halldór var iðnráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Aust- urlandi 1980 til 1982. Hann starfaði hjá iðntæknistofnun við samræmingu á störfum iðnráð- gjafa um allt landið á árunum 1982 til 1984. Þá sat hann í stjórn Kísilmálmverksmiðjunn- ar hf. og var formaður stjórna 1982 til 1983. Nú síðast var Halldór verkefnastjóri mark- aðsverkefnis sjávarútvegsráðu- neytisins. Áð þeirra mati eru einkenn- andi fyrir sýninguna hin dökku form, sem er að finna í mörgum verkanna - svört, sterk hrynjandi. Og það séu engin ellimörk á henni að finna þó svo þetta sé í fjórða skiptið sem sýningin er haldin. Að vísu hafi sýningin ef til vill fengið á sig alþjóðlegan blæ. Þannig sé nú að efni og efnismeðferð textíllistafólks hafi breyst mikið frá því fyrir ellefu árum, er sýningin var fyrst haldin, en það komi henni ótvírætt til góða að það eru listamennirnir sjálfir, sem standa á bak við hana og velja verkin á sýn- inguna. Þeim finnst að sýning, sem þessi, hljóti að stuðla að því að vekja virðingu manna fyr- ir gömlum hannyrðum og leiða listamenn yfir í nútím- ann þó svo þeir styðjist við gömul verkfæri. Þær hafi til dæmis í auknum mæli á síð- ustu árum notað snældu og rokk, litun og svo vinni þær sjálfar pappír og lím til að nota við iðju sína. Þá hefur hrosshár orðið æ vinsælla. „Ég gleymi því ekki þegar hún Silla hljóp út í fjárhús og bar hrosshár í pokum heim til mín.“ Það er Hildur Há- konardóttir, sem skyndilega rifjar upp minningar. „Eg varð svo undrandi að ég gapti." Sýningin á Kjarvalsstöð- um stendur frá 3. til 25. ágúst og á henni eru 80 verk norrænna textíllistamanna. Þetta er í fjórða skiptið, sent sýningin er haldin, en Nor- ræni menningarmálasjóður- inn, Mennta- og Menning- armálaráðuneyti Norðurland- anna kosta hana, auk þess sem sýningarstaðirnir fella niður leigu á húsnæði. Golfleikari á Akureyri: „Drap“ tvo tittlinga ■ Hann uggði ekki að sér, auðnutittlingurinn, sem söng í tré sínu, er Sigurbjörn Sigfús- son, GK, sló upphafshögg sitt á fjórðu braut á landsmótinu í golfi á Akureyri. Það var ekki fyrr en kúla Sigurbjörns small í eggjunum sex í hreiðri hans, að auðnutittlingurinn gerði sér ljósa hættuna sem fylgir því að búa rétt við golfvöll. Hvíti bolt- inn braut tvö eggjanna og tók fuglinn því illa, réðst að Sigur- birni og fylgissveinum hans er þeir hófu leit að kúlunni. Hún fannst svo í hreiðrinu og Sigur- björn tók víti fyrir þetta ein- staka upphafshögg. Loðnu land- að á Eski- firði í dag ■ Þrjú íslensk loðnuskip eru nú við veiðar á miðunum við Jan Mayen. Guðrún Þorkelsdóttir var í þann mund að fylla sig síðdegis í gær, og búist var við að úr henni yrði landað 600 tonn- um af loðnu á Eskifirði í dag. Á miðunum voru einnig Gísli Árni og Svanur, en hvorugur hafði kastað nót- inni í gærdag. Að auki voru á þriðja tug norskra og danskra báta á miðunum. Japanar skoða Þjóðarbók- hlöðuna ■ Japanska fyrirtækið sem seldi Innkaupastofn- un ríkisins álklæðninguna sem sett var á Þjóðarbók- hlöðuna, hafa sent fuiltrúa sinn hingað til að fram- kvæma frumrannsókn á gallanum sem fram hefur komið á klæðningunni. Klæðningin er enn í ábyrgð og var fyrsta rann- sóknin framkvæmd í gærmorgun. Ásgeir Jó- hannesson forstjóri Inn- kaupastofnunar sagði NT að ekkert nýtt hefði komið fram við þessa rannsókn. Einungis var sendur einn maður til landsins, vegna þessarar frumrann- sóknar og á hann að kom- ast að því, hvers eðlis þessi galli er. Um miðjan mánuðinn koma síðan flciri sérfræðingar frá Japan, til að meta skemmdirnar út frá niður- stöðum þessarar frum- rannsóknar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.