NT - 10.08.1985, Síða 1
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP.21
Barnaef ni í NT
■ NT er það sérstök ánægja að vekja athygli á
BARNATÍMANUM sem fylgir Helgarblaði
NT í dag.
Alltof lítið er hugsað um efni fyrir börn og
unglinga í dagblöðum, en NT vill með þessu
bæta úr. Sérstak blað, átta síður, í handhægu
broti mun fylgja Helgarblaði NT og er allt efni
þess miðað við þarfir barna. í BARNATÍMAN-
UM verður að finna sögur, gátur, leiki alls
konar, viðtöl og þroskandi viðfangsefni sem
börnin geta glímt við. Þá verður þar sérstök
verðlaunaþraut.
Munið, að BARNATÍMINN er í handhægu
broti fyrir börnin og því auðvelt að halda honum
til haga. NT vonast til þess á næstunni að geta
boðið sérstakar möppur fyrir BARNATÍM-
ANN og verður það kynnt síðar.
Með bestu kveðju. Ritstj.
**$íminn
Hallókrakkar!
Lappi og allar lappirnar
\HJr
zrx
SXXS.7S
aarfiffsrs
Stjórn Flugleiða fékk hlut ríkisins í félaginu:
Raunvirði samningsins
ræðst á næstu
- eftirstöðvar óverðtryggðar og vaxtalausar
arum
Læknastéttin:
Bjargi sér
hver sem
beturgetur
■ f>að er eins gott fyrir íbúa
höfuðborgarsvæðisins að verða
ekki alvarlega veikir heima hjá
sér um helgina. Frá og með
miðnætti í kvöld munu heilsu-
gæslulæknar ganga af vöktum
sínum. Neyðarbíll og neyðar-
vakt verða þó til staðar.
„Þetta er fullkomlega lögleg
aðgerð hjá læknunun,,” sagði
Heimir Bjarnason, a tsioðar-
borgarlæknir, í samtali við NT í
gær. Hann sagði að læknarnir
hefðu sagt upp störfum vegna
óánægju með kjör sín fyrir hálfu
ári. Uppsagnarfresturinn hefði
verið þrír mánuðir en ráðherra
hefði skipað þeim að vinna þrjá
mánuði til viðbótar, eins og
honum er heimilt.
„Að sjálfsögðu verður
ástandið erfitt en læknar verða
að fara að lögurn og sinna þeim
sjúklingum sem til þeirra ná.
Það ætti að vera hægt að ná í
heimilisiækna, en þeir vinna
samkvæmt sérkjarasamningi til
1. september," sagði Heimir.
Geir H'aarde, aöstoðarmaður
fjármálaráðherra, sagði í sant-
tali við NT, að næsti fundur í
kjaradeilu læknanna yrði hald-
inn á þriðjudag.
„Nú bjargi sér hversem betur
getur,“ sagöi Heimir Bjarna-
son.
■ Raunvirði tilboðs stjórnar Flugleiða í hlutabréf ríkisins í
Flugleiðum, sem fjármálaráðherra gekk að í gærkvöldi, fer eftir
þróun verðlags á íslandi næstu átta árín. Ómögulegt er því að segja
til um hvert það verður, en aldrei verður það nífalt nafnverð eins
og heildarupphæð tilboðsins nemur.
Nafnverð hlutabréfanna er
sjö milljónir króna en heildartil-
boðið er 66 milljónir, útborgun
tæpar 15 milljónir og eftirstöðv-
arnar, rúmlega 51 milljón, sem
greiðist með óverðtryggðum og
vaxtalausum afborgunum á átta
árum.
Tilboð stjórnarinnar barst
Fjárfestingafélagi íslands í
gærdag. „Fjárfestingafélagið
mat þetta tilboð betra en tilboð
Birkis Baldvinssonar. Heildar-
upphæðin er þrem milljónum
hærri og að auki er útborgunin
nokkru hærri,“ sagði Albert
Guðmundsson eftir undirskrift-
ina í gær.
„Menn verða að hafa það í
huga þegar litið er á þetta dæmi,
að nafnverð hlutabréfanna rýrn-
ar ekki síður en eftirstöðvarnar.
Þannig að segja má að um
rúmlega nífalt nafnverð sé að
ræða,“ sagði Albert.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, var spurður hvað
hefði valdið stefnubreytingu
stjórnarinnar, en hann og nafni
hans, Sigurður Helgason,
stjórnarformaður, höfðu báðir
lýst því yfir að nífalt nafnverð
væri allt of hátt verð fyrir
bréfin.“ Þegar farið var að
skoða hlutina nánar var þetta
mun hagstæðara en reiknað var
með,“ sagði Sigurður.
í lögum um hlutafélög segir
meðal annars: „Hlutafélag má
aldrei sjálft eiga meira en 10%
af eigin hlutafé. Eignist félagið
meira af hlutafénu, skal það
hafa selt hlutabréf þannig, að
lögmætu marki sé náð innan
þriggja mánaða." Hlutabréfin
sem stjórn Flugleiða keypti í
gær eru 20% af hlutafé fyrir-
tækisins.
„Við höfum áætlun um
að selja bréfin til starfsmanna
og hluthafa og erum bjartsýnir
á að það takist innan tiltekins
tíma,“ sagði Sigurður Helga-
son, forstjóri. Hann sagði enn-
fremur, að starfsmenn hefðu
tekið vel í að kaupa bréfin. ;
Nú er draumur Birkis Bald-
vinssonar, flugvélasala í Lux-
emborg, um að eignast fimmt-
ung í Flugleiðum úti. Albert
Guðmundsson var spurður að
því hvort eftirstöðvar í hans'
tilboði hefðu ekki verið í dollur- ‘
um. Hann svaraði því ekki
beint, en sagði að í raun skipti
það ekki máli því þegar dollara-1
greiðslur bærust yrði þeim
skipt í krónur.
Ekki tókst að ná til Birkis
Baldvinssonar í gærkvöldi.
■ Vígður var í gær nýr björgunarbátur Slysavarnafélagsins í Grindavík. NT óskar slysavarnafélagsmönnum til hamingju með bátinn
með ósk um að þetta verði sannkölluð happafleyta NT-mynd: Ámi Bjama
Iðnaðarmenn í Áburðarverksmiðjunni:
Verkfall skollið á
■ Verkfall trésmiða,
málmiðnaðarmanna og
rafvirkja sem annast
viðhald á vélum Áburðar-
verksmiðju ríkisins skall
á á miðnætti í nótt. í
fyrradag var haldinn árang-
urslaus sáttafundur milli
deiluaðila og að sögn
Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara hefur
annar sáttafundur ekki
verið boðaður en hann
kvaðst þó reikna með að
fundur yrði haldinn fljót-
lega.
Að sögn Hákons Bjöms-
sonar framkvæmdastjóra
Áburðarverksmiðjunnar
eru verkfallsmennirnir
innan við 20 og þeir ann-
ast viðhald á vélum í verk-
smiðjunni.
Hákon sagði að ekki
væri gott að gera sér grein
fyrir hve miklu tapi verk-
fallið myndi valda starf-
seminni. Vélarnar gætu
bilað hvenær sem væri en
þó væri bilanatíðni þeirra
ekki mikil. Áburðarverk-
smiðjan hefði nokkra
framleiðslugetu umfram
markaðsþörfina og því
myndi stutt verkfall ekki
valda þeim miklum skaða.
Lengra verkfall myndi
hins vegar leiða til tekju-
taps. En líklega kæmi að
því fyrr eða síðar að starf-
semi verksmiðjunnar
stöðvaðist vegna verk-
fallsins.
3000 dollara
sóðaskapur!
Reuter/Hong Kong:
■ Það er eins gott fyrir
íslenska sóða að hér gilda
ekki sömu lög og í Hong
Kong. Þar var Chan Kai
Zing nýlega sektaður um
3000 dollara fyrir að fleygja
sígarettustubb á almanna-
færi.
Chan mætti fyrir „sóða-
dómstól" borgarinnar í átt-
unda sinn í gær, og þá var
langlundargeð dómarans
þrotið og dæmdi hann Chan
til að greiða hæstu sekt sem
dómurinn hefur dæmt frá
upphafi, eða 3000 Hong
Kong dollara, sem er um
385 Bandaríkjadollarar.
„Sóðadómstóllinn“ var
settur á stofn 1972 til að
vinna bug á þeim ósið íbúa
borgarinnar að fleygja
drasli frá sér á götuna.