NT - 10.08.1985, Qupperneq 2
Vatnsleysi í Dölum
■ íslendingar hófu veiði í Laxá
í Dölum um síðustu helgi.
Fyrsta þriggja daga hollið tók
120 laxa á sjö stangir, og voru
menn að vonum ánægðir. Þegar
leið á vikuna fór þó heldur að
draga úr ánægjunni og síðustu
tvo daga hefur veiði verið með
eindæmum léleg. Vatnsleysi
mun vera um að kenna. Nóg er
af fiski í ánni, en sökum skorts
á súrefni og endurnýjuðu vatni
tekur hann ekki. Tæpir 700
fiskar hafa veiðst í sumar.
Leiðarinn er
aðkeypt efni
■ Það er ekkert nýtt að dag-
blöðin hér á landi hnýti hvert í
annað og í gær sá Alþýðublað-
ið ástæðu til að fjalla um
hvort eitthvert skilti NT væri
að fullu greitt eða ekki. Það
má til sanns vegar færa að
umhyggja þeirra krataskrí-
benta er aðeins af hinu góða -
hlutverk blaðamanna er jú að
vera „varðhundar“ og þannig
að sýna hæfilegt aðhald og er
ekki að efa að nú muni skiltið
borgað í topp.
En við viljum gjarna launa
kratanum líku líkt og benda
þeim á það sem betur má fara
hjá þeim. Til að mynda þótti
okkur forvitninlegt að leiðari
þeirra í gær var ómerktur og
varð það til þess að dropatelj-
ari las hann með sérstakri at-
hygli. Mikiðfannst okkurhann
minna á eldri leiðara þess
blaðs, sem í þá tíð voru merktir
„GÁS“ - eða Guðmundi Árna
Stefánssyni, fyrrverandi rit-
stjóra, sem nú rekur auglýs-
ingastofu og almannatengsla-
stofu auk þess að koma fram í
morgunútvarpi.
Það skyldi þó aldrei lukka til
að leiðarar Alþýðublaðsins
núna flokkist undir aðkeypt
efni, og eru skrifaðir á auglýs-
ingastofu. Húrra fyrir fram-
gangi jafnaðarstefnunnar!
Heima er best
■ DV safnar fyrir Malaga-
fangann. Malagafanginn laus-
Malagafanginn kominn heim.
Malagafanginn í gæsluvarð-
hald.
Svo fór um sjóferð þá. Fyrr
á árinu gékkst DV fyrir fjár-
söfnun svo hægt væri að leysa
„Malagafangann“ svokallaða
úr fangelsi á Spáni en þar sat
hann vegna afbrota á spænskri
grund - og nú skyldi hinn
íslenski almúgamaður opna
launaumslagið sitt og leggja
fram fé til að bjarga þessu
ólánsama ungmenni sem taldi
spænsk yfirvöld ofsækja sig.
Nú er ekki nema góðra
gjalda vert að aðstoða ung-
menni sem misstíga sig til
manns aftur - en samkvæmt
heimildum dropa þá hafði
Malagafanginn misstigið sig
ansi oft og ku eiga sakaskrá
sem mælist frekar í bindum en
blaðsíðum - það vakti því
furðu okkar á NT hvers vegna
DV vildi manninn heim? En
nú er maðurinn semsagt kom-
inn heim og dvelur nú í gæslu-
varðhaldi í íslensku fangelsi -
því hann tók semsé til hendinni
strax við heimkomuna og er nú
flæktur í innbrot, fíkniefnamál
og eitthvað fleira.
Þeim hlýtur að hlýna um
hjartaræturnar, þeim íslensku
alþýðupíkum, sem létu fé af
hendi rakna til að maðurinn
kæmist heim.
Lögreglustjórinn
í Reykjavík
■ Slagur stjórnarflokkanna
um embættin heldur áfram.
Nú stendur baráttan um em-
bætti lögreglustjóra í Reykja-
vík, en Sigurjón mun vera
veikur og lítt geta sinnt störf-
um sínum.
Eins og kunnugt er bjuggust
menn við, í fyrrasumar, að
framsóknarmenn fengju emb-
ætti útvarpsstjóra í sinn hlut,
en menntamálaráðherra,
Ragnhildur Helgadóttir, skip-
aði í staðinn sjálfstæðismann-
inn Markús Örn Antonsson.
Sjálfstæðismönnum er hins
vegar mikið í mun að halda
embætti lögreglustjóra innan
flokksins, og hafa helst hugsað
sér Kjartan Gunnarsson í em-
bættið. Framsóknarráðherr-
ann Jón Helgason mun hins
vegar hafa annað í hyggju,
enda gengu samningar um út-
varpsstjórann ekki fram á sín-
um tíma.
Það gæti því orðið Böðvar
Bragason sýslumaður á Hellu
sem verður næsti lögreglustjóri
eða þá Friðjón Guðröðarson
sýslumaður á Hornafirði, sem
yngri framsóknarmenn hampa
frekar.
Albert í ham
■ Tíðindamaður dropatelj-
ara, úr röðum sjálfstæðis-
manna, segir nú ganga orðróm
meðal sjálfstæðismanna á þá
leið að Álbert Guðmundsson,
hinn ókrýndi konungur stjórn-
málamannanna þetta sumarið,
hyggi jafnvel á sérframboð við
næstu borgarstjórnarkosning-
ar.
Ef satt er þá er full ástæða
fyrir flokkinn að fara að huga
að sínu, því ekki er að efa að
sérframboð Alberts mundi fá
verulegt fylgi, enda er persónu-
fylgi Alberts í Reykjavík
mikið.
Sami maður vakti einnig at-
hygli á því að í sumar er Albert
búinn að taka samráðherra
sína fyrir hvern af öðrum og
var Matthías Bjarnason síð-
asta fórnarlambið. Hver verð-
ur næstur?
Laugardagur 10. ágúst 1985
Lélegt í Stóru-Láxá
Litlar sem engar fregnir hafa
borist af veiði í Stóru-Laxá í
Hreppum. Eftirmjöggóðabyrj-
un datt áin niður í mikla eymd
og er ekki enn séð fyrir það
tímabil. Friðrik Stefánsson
framkvæmdastjóri SVFR sagði
í samtali við Veiðihornið að
hann teldi að ekki myndu veið-
ast yfir 150 laxar í ár. „Ég er
sannfærður um að sú spá stenst,
nema þess kröftugari göngur
komi undir lok,“ sagði Friðrik.
Veiði hefur almennt verið
léleg á Ölfusa'r-Hvítársvæðinu
nema h vað vel hefur veiðst í net.
Svartá sein í ár
Veiði er nú loksins að glæðast
í Svartá og er það óvenju seint
sem laxinn gengur í ána. Nálægt
hundrað fiskar hafa veiðst í
ánni, og hefur megnið af aflan-
um verið tekið síðastliðna tíu
daga. Vanalega er fiskur kom-
inn í ána eftir tíunda júlí. Nú
bar svo við að ekki varð vart við
fisk í ánni fyrr en við síðustu
mánaðamót. Laxinn hefur því
verið tuttugu dögum á eftir
eðlilegum tíma. Nú er áin orðin
full af fiski, og öll veiðileyfi
uppseld. Tveir sextán punda
fiskar hafa veiðst, og eru það
þeir stærstu sem af er. Þá hefur
veiði verið góð á silungssvæðinu
efst í ánni.
„Hann er góður þessi „Hi-C“.Þórir Steingrímsson sölustjóri og Lýður Friðjónsson skrifstofustjóri hjá Vífilfelli á lager fyrirtækisins.
Svaladrykkjastríðið:
NT-mynd: Árni Kjarna
Arðbær aukabúgrein
_■ ■ * M pi ■ / ■ ■ / t|/ffa|# ■■■
- segir Lýður Friðjónsson hjá Víf ilfelli
■ Svaladrykkjamarkaðurinn
hefur verið vettvangur mikilla
stríða undanfarið. Auglýsingar
hafa glumið í eyrum lands-
manna en enginn hefur játað
ósigur enn sem komið er.
Ljóst er að mikil barátta verð-
ur um þennan markað hér á
landi, enda eru miklir peningar
í húfi. Keypt liafa verið dýr
framleiðslutæki og mikið fé hef-
ur verið lagt í auglýsingakostn-
að. En allt þetta á að borga sig
og vel það, þegar markaðnum
er náð.
Nýjasti aðilinn á markaðnum
er Vífilfell sem framleiðir
drykkinn Hi-C, samkvæmt
samningi við Coca Cola sam-
steypuna. Svaladrykkjastríðið
hófst fyrir alvöru þegar Hi-C
kom á markaðinn fyrr í sumar.
Athuganir hófust ’82
„Fyrstu athuganir á þessari
framíeiðslu hófust í árslok 1982,
en alvöruvinna við undirbúning
framleiðslunnar hófst um mitt
ár ’83,“ sagði Lýður Friðjónsson
skrifstofustjóri hjá Vífilfelli,
þegar NT var sýnd framleiðslu-
keðja Hi-C drykksins.
„Tækjakostur framleiðslunn-
ar kostaði ríflega 20 milljónir,"
segir Lýður, „og við göngum að
því gefnu að allur okkar kostn-
aður vegna Hi-C borgi sig betur
í þessari framleiðslu heldur en á
almennum fjárfestingamarkaði.
Þessi tæki eru mjög fullkomin
og hafa sérfræðingar frá Coca
Cola samþykkt þau fyrir þessa
framleiðslu. Sem dæmi um full-
komleika tækjanna má nefna að
fernan er brotin saman utan um
ávaxtadrykkinn, þannig að ekk-
ert loft kemst í umbúðirnar.
Þetta er mjög fullkomið og ekki
þarf nema 2 menn við fram-
leiðsluna og framleiðslugetan
er allt að 70 þúsund fernur á
dag.“
Lítill auglýsingakostnaður
„Þetta fyrirtæki hefur aldrei
gefið upp auglýsingakostnað
sinn, en ég get fullyrt að hann
er ekki mikill. Við leggjum
áherslu á að vera frekar með
fáar en góðar auglýsingar og
peningarnir sem við leggjum í
auglýsingar skila sér vel til baka.
Davíð Scheving hjá Sól hf.
fer ótroðnar slóðir í auglýsinga-
gerð og sumar auglýsingar hans
eru stórgóðar, eins og þessi með
hása Gosann.
Því er ekki að neita að sala á
Hi-C dalaði örlítið eftir að
niðurstaða þessarar óréttmætu
rannsóknar Iðntæknistofnunar
var birt, en hún hefur náð sér að
fullu. Appelsínudrykkurinn
selst meira en fullorðið fólk
virðist hins vegar taka sítrónu-
drykkinn framyfir. En það er
ekkert nema gaman að eiga við
verðugan andstæðing eins og
Svalinn er.
Það er ómögulegt að segja til
um markaðshlutdeild okkar, en
það má segja að önnur hver seld
gosdrykkjaflaska í landinu sé
Coke og í lítrum talið er Hi-C
framleiðslan fyllilega 20% af
gosdrykkjaframleiðslu okkar.
Þetta er því prýðisgóð aukabú-
grein og við megum vel við
una.“
1400 úr Kjarrá og Þverá
Tæplega 1400 Iaxar hafa
veiðst í Kjarrá og Þverá í Borg-
arfirði. I fyrrakvöld höfðu
veiðst 795 laxar úr Kjarrá og
568 úr Þverá. Megnið af fiskin-
um var smálax, sem veiddist
síðustu daga. Eins og víðar
setur vatnsleysið svip sinn á
veiðimennskuna. Það er helst
tii tíðinda að nú fyrir skömmu
veiddist fimm punda urriði í
Þverá, og mun silungur af þeirri
stærð vera sjaldséður í ánni.
Enn um vatnsleysi
Gljúfurá þjáist af vatnsleysi,
eins og allar ár í Borgarfirði.
Þrátt fyrir það hafa nú veiðst
fleiri fiskar, en allt tímabilið í
fyrra. Nú eru liðlega 130 laxar
komnir á land en í fyrra urðu
þeir 110. Það er óhætt að segja
að vatnið sé ýmist í ökla eða
eyra. Síðastliðin sumur, hefur
rignt þessi líka reiðinnar
kynstur í Borgarfirði, þannig að
helst hefur þurft að beita vatna-
farartækjum við heyskap, en nú
ber svo við að laxinn hefur rétt
nægilegt vatn til þess að fljóti
yfir bakuggana á leið á hrygn-
ingarstöðvarnar.
r