NT - 10.08.1985, Síða 4
fli LAUSAR STÖÐUR HJA 111
f|F REYKJAVÍKURBORG !|!
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Forstöðumaðurviödagh./leiksk. Iðuborg, Iðufelli 16.
• Forstöðumaður við Barónsborg, Njálsgötu 70
• Matráðskona við skóladagh. Hálsakot, v/Hálsasel
• Matráðskona við dagh. Sunnuborg, Sólheimum 19,
1/2 starf
• Starfsmenn og fóstrur við eftirtalin heimili:
Bakkaborg, v/Blöndubakka
Laufásborg, Laufásvegi 53-55
Múlaborg, v/Ármúla
Stakkaborg, Bólstaðarhlíð 38
Sunnuborg, Sólheimum 19
Hraunborg, v/Hraunberg
Iðuborg, Iðufelli 16
Álftaborg, Safamýri 32
Kvistaborg, v/Kvistaland
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur
á skrifstofu dagvistar í síma 27277 og forstöðumenn
viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þarfást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 19. ágúst 1985.
Borgarminjavörður
Reykjavíkurborg auglýsir stöðu borgarminjavarðar í
Reykjavík lausa til umsóknar.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um fyrri störf, skal skila
til borgarstjóra í Reykjavík eigi síðar en 1. september
n.k.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Reykjavíkur-
borgar í síma 18800.
f f LAUSAR STÖEXJR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna starfa1
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Starfsmenn, við áfangastað Amtmannsstíg 5a, ósk-
ast í 2 50% stöður frá 1. október n.k. Um er að ræða
heimili fyrir konur sem hafa átt við ofnotkun vímuefna
að stríða og því sóst eftir starfsfólki er hefur menntun
og starfsreynslu sem nýtist í því sambandi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 26945 eða
37070 frá kl. 9.00-12.00 alla virka daga vikunnar.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð á sérstökum umsókn-
areyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 19. ágúst 1985.
fSl LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Starfsmenn, í eldhús hjá þjónustuíbúðum aldraðra,
um er að ræða 75% stöður. Vinnutími frá 8.00-2.00
og aðra hvora helgi.
• Starfsmaður, á vakt, hjá þjónustuíbúðum aldraðra,
um er að ræða 100% starf, aðstoð við íbúa. Unnið er
á vöktum og aðra hvora helgi.
Upplýsingar um stöður þessar fást í síma 685377, frá
kl. 13.00-15.00 daglega.
Umsóknum ber að skila til starfr nannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00, mánu-
daginn 19. ágúst n.k.
ÍWt Laugardagur 10. ágúst 1985 4
La Fréttir
■ Prógrammið í Rietodd Academie í Amsterdam, þar sem Elin er við nam, er strangt en gott. Hún er nú búin að vera
þar í eitt ár en var áður við nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík. NT-m.vnd: Sveuir.
Klaufi í teikningu
en þó málað mikið alla tíð
■ „Já, ert þú blaðamaður frá NT?“
Hún brosir dálítið spyrjandi um leið
og hún lítur upp frá silkimyndinni
sem hún er að festa upp með teikni-
bólum. „Pað hefur verið svo mikið að
gera hjá mér við að setja myndirnar
upp undanfarið að ég er orðin alveg
rugluð,“ segir hún og setur síðustu
bóluna í vegginn.
Svo er hún þotin. Ég rölti um og
skoða myndirnar, sem viðmælandi
minn, myndlistamaðurinn Elín
Magnúsdóttir er með á sýningu sinni
að þessu sinni. Þegar við finnum
okkur svo stuttu síðar næði til að
setjast niður segir hún það vera vissan
áfanga að sjá verk sín í heilum sal-og
virðist fá töluvert kikk út úr því.
„Ég vinn myndirnar ýmist á silki
eða pappír en á silkið nota ég sérstaka
silkiliti,“ útskýrir hún. „Á pappírinn
nota ég mjög mismunandi tæki og liti,
til dæmis hef ég notað hreinan mulinn
kopar í einni myndinni," segir hún og
bendir á myndina máli sínu til
sönnunar.
Hún segist alltaf hafa álitið sjálfa
sig klaufa í teikningu en þó alla tíð
málað mikið. Hún hefur verið eitt ár
við Rietodd Academie í Amsterdam
þar sem hún lærir leikbúningagerð og
myndlist til helminga. Það sé strangt
prógramm en gott. Áður nam Elín
við Myndlistarskólann í Reykjavík.
Sýningin, sem haldin er f Salnum
við Vesturgötu 3, stendur yfir frá 8.
til 18. ágúst og er opin frá klukkan eitt
til tíu á kvöldin. Á sýningunni eru 30
verk, þar af 13 unnin á pappír.
Aðgangur er ókeypis.
■ Björn Björnsson póst og símamálastjóri og „heyröu manni“, Garðar Einarsson útibússtjóri, Jóhann Hjartarson
blaðafulltrúi Póst og síma, Sigurður Ingason póstrekstrarstjóri og Þorgeir K. Þorgeirsson framkvæmdastjóri umsýsludeildar
í breytta kjallaranum.
„Heyrðu manni“
ný pósthólf tekin í notkun að Pósthússtræti 5
■ Björn Björnsson forstjóri
Pósts og síma starfaði í kjallara
pósthússins að Pósthússtræti 5 í
mörg ár. Á þeim tíma eignaðist
hann meðal annars slopp með
gylltum hnöppum. Þá kom eitt
sinn til hans lítil stelpa sem sagði:
„Heyrðu manni, mátt þú vera í
svona fínum slopp og vinna bara
hér í kjallaranum?"
Þessa sögu sagði Björn við
opnun nýs endurbætts húsnæðis í
kjallaranum í pósthúsinu - þess-
um sama kjallara og hann eitt sinn
starfaði í. Par hefur nú verið
komið fyrir tæplega tvö þúsund
nýjum pósthólfum í stað þeirra
tæplega 1400 sem voru á hæðinni
fyrir ofan. Þau verða nú rifin og
er þetta allt liður í endurSkipu-
lagningu húsnæðis Póst og síma.
Nýju pósthólfin kosta um sjö
milljónir króna og þar með er
talin endurskipulagning hús-
næðisins í kjallaranum, ný loft-
ræsting o.s.frv. Pósthólfin eru úr
ryðfríu stáli, henta vel fyrir Á4-
stærð bréfa. Samkvæmt áætlunum
verður svo heildarkostnaðurinn
við endurskipulagningu alls hús-
sins um 14 milljónir króna og
þeim lýkur að öllum líkindum í
haust.
Húsnæðið er um 830 fermetra
stórt í heildina en kjallarinn er um
350 fermetrar.