NT - 10.08.1985, Page 5
Viðskiptahallinn
5 milljarðar í ár
Laugardagur 10. ágúst 1085
Atómstöðin:
Sýnd með enskum texta
■ Sýningar á íslensku kvikmynd-
inni Atómstöðin, hefjast að nýju í
dag. Myndin verður sýnd í Regn-
boganum, og verður skýringar-
texti með myndinni á ensku, til
þess að gefa erlendum ferðamönn-
um kost á því að kynnast íslenskri
kvikmyndagerð. Myndin var
frumsýnd í mars 1984, og sáu alls
60 þúsund manns myndina, áður
en sýningum lauk.
Hundurinn farinn
til Frakklands
■ „Miklar og vaxandi skuldir
erlendis eru einn helsti vandinn,
sem við er að glíma í íslenskum
þjóðarbúskap um þessar mund-
ir og virðast ekki horfur á því að
verulegur árangur náist í barátt-
unni við hann á þessu ári.
- Við ríkjandi aðstæður rýra
miklar erlendar vaxtagreiðslur af
erlendum lánum þjóðar-
tekjurnarsvoummunar." Þetta
segir m.a. í nýju „Ágripi úr
þjóðarbúskapnum“ frá Þjóð-
hagsstofnun.
Um 22.500 kr. á hvern
íslending í vexti til útlanda
Þjóðhagsstofnun spáir þar 4,9
milljarða króna viðskiptahalla á
þessu ári og segir áætlað að
fjármagna hann með erlendum
lánum bæði til langs tíma, 2,6
milljarðar, og skammtímalán-
um, sem bætist við núverandi
skuldir. Vaxtagreiðslur af er-
lendum lánum í ár eru áætlaðar
um 5,4 milljarðar króna (um
tvöfalt hærri upphæð en allir
tekju- og eignaskattar íslend-
inga í ár) og afborganir um 4,7
milljarðar og því samtals um
10,1 milljarða króna greiðslu-
byrði sem er um 1,6 milljörðum
króna hærri upphæð en 1984.
Engin aukning
þjóðartekna á mann...
Þjóðarframleiðsla og þjóðar-
tekjur er áætlað að aukist um 1
- 1,5% frá síðasta ári, sem þýðir
enga aukningu miðað við mann-
fjölgun á árinu. Helsta ástæða
þess eru auknar vaxtagreiðslur
til útlanda og einnig nokkur
rýrnun viðskiptakjara. Vakin er
athygli á að spáin miðast m.a.
við það að takist að fiska rúm-
lega upp í alla leyfilega afla-
kvóta, þannig að vart sé að
búast við meiri útflutningi en
þegar er gert ráð fyrir.
„Aukin umsvif umfram það
sem hér er gert ráð fyrir gætu
því aðeins orðið fyrir tilstilli
aukinnar þenslu innanlands, en
því fylgdi aukinn viðskiptahalli
og erlendar lántökur og þar
með enn þyngri vaxta- og
skuldabyrði11, segir í niðurstöðu
þjóðhagsspár.
■ ■■ en 34% aukning
einkaneyslu
Vaxandi umsvif í þjóðarbú-
skapnum á þessu ári segir Þjóð-
hagsstofnun fyrst og fremst
stafa af aukinni einkaneyslu,
sem nú er talin aukast um 4% í
stað 1% í aprílspá. Mikilvæg-
asta forsenda þess sé 3-4% auk-
inn kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna, vegna nýrra kjarasamn-
inga og launaskriðs. Vöruinn-
flutningur er talinn aukast um
5% frá 1984 sem er tvöfalt
meira en í aprílspá, en útflutn-
ingsframleiðsla hins vegar um
2,5-3%, sem er minnkun frá
aprílspá. Loðnuveiðin muni þó
hafa úrslitaáhrif á að hver sjá-
varvöruframleiðslan verður á
árinu.
Meiri halli á ríkissjóði
Varðandi ríkissjóð er gert
ráð fyrir að tekjur verði 1,7
milljarða umfram fjárlög, en
að útgjöld muni þó aukast enn
meira, m.a. vegna launahækk-
ana, þannig að halli á ríkissjóði
verði umfram þær 700 milljónir
sem gert er ráð fyrir. „Þróunin
á fyrri helmingi ársins bendir til
þess að ríkisfjármálahalli valdi
peningaþenslu á árinu umfram
það sem ætlað var.“
Þróun peningamálanna
ræðst af erlendum
viðskiptum bankanna
Hvað snertir gjaldeyrisstöðu
bankanna hefur hún batnað
um 2,6 milljarða á fyrri helmingi
ársins, en hins vegar versnað
um 3,1 milljarð hjá innlánsstofn-
unum. Að afurðalánaviðskipt-
um hefur erlend skammtíma-
staða þeirra versnað um 700 mill-
jónir. „Þróun peningamála á
næstunni mun m.a. ráðast af
erlendum viðskiptum bank-
anna, en vægi þeirra hefur stór-
aukist hin síðari ár“, segir í áliti
Þjóðhagsstofnunar.
■ Hundurinn sem fluttur var
ólöglega til landsins með bílaferj-
unni Norrænu, er farinn úr landi.
Eins og fram kom í NT fyrr í
vikunni var hundurinn í sóttkví
hjá lögreglunni á Kirkjubæjar-
klaustri. Lögreglan á Klaustri segir
að fólkið hafi ekki ætlað sér að
smygla hundinum viljandi, til
landsins og sagði að við yfirheyrsl-
ur hafi komið fram að hundurinn
hafi legið milli framsæta bifreiðar-
innar.
Þorvaidur Jóhannesson sýslu-
maður á Seyðisfirði sagðist ekki
leggja trúnað á mál hjónanna og
benti á að auðvelt væri að svæfa
gæludýr með deyfilyfjum og fela
þau íbílum, rétt einsogbjórkassa.
Þorvaldur sagði alla bíla sem
með Norrænu koma, vera skoðaða
tvisvar, fyrst af útlendingaeftirlit-
inu síðan af tollgæslunni. Þorvald-
ur sagði einnig að um 200 bt'Iar
komi með hverri ferð og ógerning-
ur væri að skoða þá alla sem skyldi.
Eigum til á lager hinar vel þekktu
Heyþyrlur og
Stj örnumú gavélar
HAFIÐ SAMBAND
VID SÖLUMENN OKKAR
BUNAÐARDEILD SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK S. 38900
mNDAÐAR BÚVÉLAR
Yinnslubreidd:
1,35-1,65 og 1,85 m
Auðveld tenging á knosara
vinnslubreidd 1,85.
ar
SLÁTTU-
ÞYRLUR