NT - 17.08.1985, Qupperneq 5
01
„Jafnaðarstefnan
er ekki gamaldags
- segir formaður andófshópsins í BJ
Laugardagur 17. ðgúst 1985 5
■ Fundargestir hlýða á framsöguerindi Jóhanns Sigurjónssonar, um markmið rannsókna á hval við
íslandsstrendur. NT-mynd: Svernr.
Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur:
Hvalveiðar eru
nauðsynlegar
■ „Nei, þessi klofningur veikir
ekki stöðu jafnaðarstefnunnar
á íslandi, því öll pólitísk um-
ræða er af hinu góða. Við erum
að leggja jafnaðarstefnunni lið
og teljum að það sé ekki gam-
aldags,“ sagði Þorlákur Helga-
Nýr viðskipta-
samningur
■ Nýr viðskiptasamningur Is-
lands og Tékkóslóvakíu verður
undirritaður í Reykjavík um
miðja næstu viku. Gildandi
samningur landanna var gerður
árið 1977 og átti hann að gilda
til fimm ára en hefur áriega
verið framlengdur til þessa.
„Ég býst við að nýi samning-
urinn verði í meginatriðum lík-
ur þeim gamla,“ sagði Sveinn
Björnsson, skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, í samtali við
NT.
Sveinn sagði að viðskipti
landanna hefðu ekki verið mikil
að vöxtum undanfarin ár en þó
verið nokkur. Héðan hafa
Tékkar aðallega keypt fiski-
mjöl, fryst karfaflök og nokkuð
af landbúnaðarvörum. Iðnvarn-
ingur, svo sem bílarog landbún-
aðarvélar, hefur verið fyrirferð-
armestur í innflutningi frá
Tékkóslóvakíu.
Tékkneskur ráðherra mun
koma til íslands til að skrifa
undir samninginn.
son formaður andófshópsins
innan Bandalags jafnaðar-
manna, í samtali við NT.
Þorlákur sagði hópinn vilja
ræða alvarlega ástandið innan
Bandalags jafnaðarmanna.
Hann sagði að meiri áhersla
væri lögð á það innan BJ að
úthrópa eitthvað sem banda-
lagsfólk er ekki sátt við, frekar
en hlúa að jafnaðarstefnunni.
„Bandalag jafnaðarmanna
var á sínum tíma stofnað án
sérstakra i\ hagsmuna, sem því
miður eru alít of oft fyrir hendi
í stjórnmálaflokkum, en eins og
er, þá flækist bandalagið fyrir,
ef það ætlar að halda uppi
þessum merkjum sem aðrir
flokkar eru fullfærir um að
gera,“ sagði Þorlákur.
Andófshópurinn lagði mikla
áherslu á að þau tækju pólitík-
ina alvarlega og þau telja að sú
jafnaðarstefna sem þau eru að
ræða um eigi fullkomlega rétt á
sér í þessu þjóðfélagi.
Þorlákur sagði að ekkert hafi
verið rætt um að sameinast
einum né neinum að svo stöddu,
en hann sagði að er BJ hindri að
jafnaðarstefnan næði fram að
ganga þá ætti bandalagið ekki
rétt á sér lengur.
Þorlákur sagði að ekki væri
komið nafn á hópinn, því ekki
náðist samstaða um neina hug-
mynd sem fram kom á fundin-
um.
■ Hafrannsóknarstofnun hélt
fund í gær, þar sem kynntar
voru hvalarannsóknir og fyrir-
hugaðar veiðar í vísindaskyni,
hér við land. Flutt voru átta
erindi, þar sem sérfræðingar
sem unnið hafa að hvalarann-
sóknum tjáðu sig um veiðarnar
og vísindalega þýðingu þeirra.
Fundargestir voru margir, þar á
meðal fulltrúar Greenpeace
samtakanna, sem eru staddir
hér á landi.
Jóhann Sigurjónsson sjávar-
líffræðingur hjá Hafrannsókn-
arstofnun útskýrði tilgang veið-
anna, og að hverju rannsóknir
miðuðu. Hann sagði m.a.:
Aðalatriðið með veiðunum er
að tryggja áframhaldandi upp-
lýsingaflæði um stofnstærð og
lifnaðarhætti hvalanna." Áætl-
un Hafrannsóknarstofnunar
skiptist í tíu svið, sem rannsókrf-
ir beinast að. Líffræði nytja-
hvala, líffræði friðaðra hvala.
Sambandi milli afla og sóknar.
Hvalamerkingar. Radíómæl-
ingar á hvölum, o.fl.
Þá kom skýrt fram í máli
Jóhanns að hann telur að áfram-
haldandi veiðar séu nauðsynleg-
ar, til þess að tryggja að hægt sé
að halda áfram rannsóknum, og
ljúka við ýmis verkefni sem þeg-
ar eru vel á veg komin.
Fleiri erindi voru flutt á fund-
inum, fiest fræðilegs efnis, og
greindu meðal annars frá þeim
árangri sem þegar hefur náðst í
rannsóknum.
Keflavík:
Fyrsta
hótelið
Frá frcttaritara N.T. í Keflavík:
■ 1 gær samþykkti bygg-
ingarnefnd Keflavíkur
teikningar af stærstu bygg-
ingu, sem hingað til hefur
risið í Keflavík, er það hótel-,
verslunar- og skrifstofu-
bygging, sem rísa mun á
svokölfuðu Vatnsnestorgi,
en það er við aðalgötu
bæjarins. Áðúr fyrr stóð við
þessa götu frystihús, sem nú
er búið að rífa. Húsið verður
um 2.500 femietrar að gmnn-
fleti, og í því verða fjöldi
verslana, auk skrifstofa, en
aðalbyggingin verður undir
hótelrekstur. Segja má að
byggingin skiptist í þrennt,
við Vatnsveg verður hptel-
byggingin, en við Hafnar-
götu verslanir og skrifstofur.
Undir húsinu verða svo bíla-
stæði, en keyrt verður út og
inn í þau, frá Vatnsnesvegi.
Það eru Byggingarverktak-
ar Keflavíkur sem reisa
munu þetta stórhýsi, en
eftirlitsmaður meðbyggingu
hússins verður Bragi Páls-
son. Hann tjáði frétta-
manni, að nú þegar munu
hefjast framkvæmdir. og bú-
ið væri að bjóða út uppgröft
að byggingunni. Verður
þetta fyrsta hótel, sem reist
verður hér, og finnst mörg-
um kominn tími til að Kefl-
víkingar eignist hótelað-
stöðu hér við hliðina á eina
millilandaflugvellinum, en
oft hefur verið bagalegt þeg-
ar þurft hefur að aka öllum
farþegum til Reykjavíkur ef
eitthvað hefur verið að
veðri, eða bilanir átt sér stað
í fluginu.
BRIMRÁSA RVIKA 16.8-23.8.
FYRSTA FLOKKS ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Á FRÁBÆRU VERDI
í BYGGINGAVÖRUVERSLUN SAMBANDSINS SUÐURLANDSBRAUT 32,
FER FRAM KYNNING Á ÁLSTIGUM,TRÖPPUM OG
l'.l.ll ? I.IIJJ J
BYGGINGAVÖRUSALA
SAMBANDSINS
Suðurlandsbraut 32 Reykjavik sími 82033