NT - 17.08.1985, Blaðsíða 13

NT - 17.08.1985, Blaðsíða 13
Laugardagur 17. ágúst 1985 12 Laugardagur 17. ágúst 1985 13 Gramma- tíkarspen- arnir ■ Djúpið verður vettvangur mikiliar tónlistarhátíðar fímmtudagskvöldið 22. og föstudagskvöldið 23. þessa mán- aðar. Þar verða Grammatíkarspenarnir mjólkaðir af hinum heimsþekkta tónlistarmanni Jonny Triumph, en hann er tengdur franska rokkaranum Jonny Halliday. Ekki ber skeytum saman um hvernig þeir eru skyldir, en hitt er víst að svipað blóð rennur um æðar þeirra. Þarna kemur einnig fram hin heimsfræga hljómsveit The Froggs, sem er skipuð þeim virtu listamönnum Sperma Gnirk, Konráð, Nitsirk og Nord M. Það er mikill fengur að því að ná þessum listamönnum saman til að leika á þessum tónleikum í djúpinu, en að þeirra sögn er það íslenska miðnætursólin sem hafði þessi áhrif á þá. Þór Eldon mun lesa Ijóð á þessum tónleikum og Frumskógarslagararnir munu lemja léttan takt í mannskap- inn. Frumskógarslagararnir eru þrír, þeir HÖH, Scrotum og Pétur. Undirleikari Jonny Triumph, hann Gud Krist, mun koma fram á tónleikunum og hinn landsfrægi listamaður B. Gíga lætur sig ekki vanta. Djúpið tekur fáa gesti, en fólk þarf þó ekki að óttast hátt miðaverð, því Poppsíða NT hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að inngöngugjaldið verði mjög vægt. ■ Ekki er talið að líklegt að Bítlarnir verði meðal þeirra sem mjólka Grammatíkarspenana, þótt þeir hafi gefíð jákvæð svör fyrir tæpum fímm árum. ■ Boy George gerír sitt til þess að viðhalda hommastimplinum á sér og hljómsveit sinni. Skemmst er að minnast þess er hann var flæmdur með grjótkasti af sviðinu í Alþenu, því Grikkir kunnu ekki að meta mjóróma karlmann, sem klæddur var í kvenmanns kjól. Annars er það nýtt af Culture Club að frétta, aðhljómsveitin mun leiða rokktónleika, sem haldnir verða til styrktar rannsóknum á sjúkdómnum Aids. Það er góðvinur Boy Georges, Philip Sallow að nafni, sem er upphafsmaður að þessari söfnunarher- ferð í Bretlandi. Reiknað er með að tónleikarnir safni um hundrað þúsund pundum, eða sem svarar tæpum sex milljónum íslenskra króna. En það eru fleiri en Boy George og Culture Club sem koma fram á Live-ÁIDS tónleikunum. Nefnd hafa verið nöfn, þar á meðal Diana Ross, Queen, Eurythmics, Helen Terry, Joan Rivers og Jimmy Somerville. Söfnun til styrktar rannsóknum á AIDS er einnig í fullum gangi í Ameríku, undir stjórn leikkonunnar Elísabetar Taylor. Tina Turner ■ Flestir héldu að ferill Tinu Turner væri allur, en annað kom á daginn þegar hún sendi frá sér sína síð- ustu LP plötu. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um vinsældir hennar, það ætti að nægja að nefna lög eins og Private Dancer og What’s Love Got To Do With It. Allir þeir sem sáu Tinu á sviðinu með Mick Jagger á Live-Aid, sáu að enn er mikill kraftur í þeirri gömlu þrátt fyrir alla áratugina sem hún á að baki. Tina Turner virðist hafa endurheimt fyrri vinsældir og vel það með plötu sinni og þeim vinsældum ætlar hún að halda. Tina hefur nefnilega bæst í þann stóra hóp tónlistarmanna sem reynir sig á hvíta tjaldinu. Tina leikur stórt hlutverk í nýjustu myndinni um Mad Max. Titillag myndarinnar er að sjálfsögðu sungið af Tinu Turner og hefur það þegar verið gefið út á hljómplötu, lagið heitir We Don’t Need Another Hero. Tina Turner hefur sýnt góða takta í vídeómyndum, þannig að engin ástæða er að ætla annað en hún geri góða hiuti í bíómyndinni, en við bara bíðum þess að myndin verði sýnd hér á landi. ■ Auglýsingaplakat mynd- arinnar um Mad Max, aðal- hlutverk Tina Turner. ... 1 -1 MEL GIBSON UMSJÓM: Þorsteinn G. Gunnarsson Rokk—Heróín ■ Bob Geldof svndi þaö og sannaöi að hægt er að beisla kraft rokktónlistarinnar og virkja rokkið til góðra hlnta. Ágóöinn af þeim franikvæindiini er ekki inældur í inegawöttum, beldur beinhörðinn pening- iini, seni gjarnan er varið til góðgerðarstarfsemi. Nú líta breskir tónlistarinenn á eigið samfélag og berjast gegn heróínnotkun, sem er oröin niikið vanda- niál þar í landi. Gamli jálkurinn Pete Townshend, ur hljómsveitinni The Who, er einn af'inörgum seni lagt hefur niálstaðn- uni lið. Hann hefur útbúið vídeóniynd, sérstaklega fvrir konsertinn og verður myndin sýnd á stóruni skjá í upphafi tónleikanna. Pete Townshend niun hins vegar ekki troða upp á tónleikunum. Pete hefur í gegnuni tíðina verið mikill baráttu- niaður gegn böli eiturlyfja og þó sukksamt liafi verið í kringuni The Who, þá voru það bara heilbrigö fyllirí, eins og hann sagði einhvern tímann. Pete hefur hjálp- að mörgum vinuin sínum að losna undan eitrinu og frægasta dænii þess er hvernig hann bjargaöi meistar- anuin Eric Clapton og hélt Rainbow tónleikana, eingöngu til að byggja upp sjálfstraust Claptons. Það er því greinilegt að rokkunnendur eiga þessuni manni niikið að þakka. Tina Turner 1. (1) Live Is Líve 2. ( 3) Money For Nothing - Dire Straits 3. ( 5) Into The Groove - Madonna 4. ( 2) There Must Be An Angel - Eurythmics 5. (13) We Don’t Need Another Hero - Tína Turner 6. (-) Tarzan Boy - Balti Mora 7. ( 8) Á rauðu Ijósi - Mannakorn 8. ( 7) Keylight - Marillion 9. ( 4) Head Over Heels - Tears For Fears 10. (15) Hitt lagiö - Fásinna urammió 1. (1) Low Life - New Order 2. (2) Kona - Bubbí Morthens 3. (-) Little Creatures - 4. ‘ “ “ * * * ‘ “ 5. (4) Skemmtun 6. (-) Cult - Dream Time 8. (3) Perfect Kiss - New 9. (6) How Willjhe Wolf 10. (8) Rip, Rap, Rup - Oxzmá 1. We Don’t Need Another Hero • 2.1 Got You Baby-UB 40 3. Money For Nothing - Díre Straíts 4. Slave To Love - Brian Ferry 5. Come To Milton Keynes - 6. There Must Be An Angel - Eurythmics 7. Dear Me - Pointers sisters’ 8. Secret - O.M.D. 9. Act Of War - Elton John & Millie Jackson 10. All Fall Down-Fíve Star ■ Tina Tumer gcrir |»að goil þessa dagana. Nýtt lag og i'rami í kvikniyndaheiminum

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.