NT - 17.08.1985, Page 9
Laugardagur 17. ágúst 1985 9
Skák
ffl
Aukakeppnin eftir millisvæðamótid í Biel:
Nigel Short
í áskorendamótið
■ Þá er millisvæðamótunum
lokið. Því síðasta sem fram fór
í Biel í Sviss ætlaði aldrei að
ljúka. Rafael Vaganian sigraði
örugglega. Seirawan hinn
bandaríski sem mætti til keppni
án stuðnings bandaríska skák-
sambandsins varð í 2. sæti; og
Sokolov í þriðja sæti. Fjórða
sæti deildu hinsvegar Torre,
Van der Wiel og Nigel Short.
Allir fengu þeir 101/: vinning.
Þegar þrjár umferðir voru til
loka mótsins virtist Torre örugg-
ur með sæti í áskorendamótinu.
Hann var þá í efsta sæti ásamt
Vagnian með 10 vinninga en
fékk aðeins Vi vinning úr þrem
síðustu skákunum. Nigel Short
tók hinsvegar mikinn fjörkipp
og fékk 2 ]h vinning úr lokaum-
ferðunum. Hann kqmst upp við
hliðina á Van der Wiel og Torre
og vann síðan lokakeppnina um
lausa sætið eins og vikið verður
að í þættinum.
FIDE hefur nú gerbreytt
keppnisfyrirkomulagi heims-
meistarakeppninnar. Nú tefla
16 skákmenn um þrjú sæti í
bráðabanaeinvígjum. Fjórði
maður verður Kasparov eða
Karpov.
Millisvæðamótin fóru nokkuð
á þann veg sem búast mátti við.
Sovétmenn undirstrikuðu yfir-
burði sína en hlutur V-Evrópu-
manna er óneitanlega mjög
rýr sem er engin furða því
Austurblokkin ræður lögum og
lofum í alþjóðlega skáksam-
bandinu. En lítum á þátttak-
endalistann í næsta áskorenda-
móti: Frá Sovétríkjunum koma:
Beljavskí, Jusupov, Chernin,
Tal, Vaganian, Smyslov og Sok-
olov. Ungversku þátttakend-
urnir eru Portisch og Ribli,
Yasser Seirawan er eini Banda-
ríkjamaðurinn. Hann er í ónáð
hjá bandaríska skáksamband-
inu eftir að hann neitaði að tefla
á 2. borði bandarísku sveitar-
innar á Ólympíumótinu í Salon-
iki. Hollenski stórmeistarinn
Jan Timman er loks kominn í
hóp áskorendanna og er ásamt
Nigel Short eini V-Evrópumað-
urinn. Þá tefla þeir Viktor Kort-
snoj og Boris Spasskí í þessu
móti, Kúbumaðurinn Nogueir-
as og Kanadamaðurinn
Spraggett.
Fjórir þátttakenda þurftu
ekki að tefla á millisvæðamóti.
Smyslov, Kortsnoj og Ribli
komast beint í mótið vegna
þátttöku í a.m.k. tveimur ein-
vígjum í síðustu áskorenda-
keppni en þátttaka Spasskís
kemur til af öðrum forsendum.
Hann fær að tefla þar sem hann
er sá skákmaður í hópi fyrrver-
andi heimsmeistara sem síðast
tapaði titlinum. Eitthvað á þá
leið var röksemdarfærslan fyrir
þátttöku hans.
Furðuleg úrslit í auka-
keppni Shorts, Van der
Wiel og Torre
Strax að loknu millisvæða-
mótinu í Biel hófu þremenn-
ingamir í fjórða sæti aukakeppni
sína. Samkvæmt reglum FIDE
á aukakeppni að fara fram þegar
í stað en engu að síður kom á
óvart að þessi skyldi ekki vera
brotin eins og fordæmi eru fyrir.
Chernin og Gawrikov deildu
fjórða sætinu á millisvæðamót-
inu í Túnis en tefldu ekki fyrr en
heim var komið. Fyrir auka-
keppnina stóð Nigel Short best
að vígi. Honum dugði að vera
jafn í efsta sæti til að komast
áfram vegna hagstæðustu
Sonneborg - Berger stiga. Ég
vonaðist til að Torre félli út
enda tilheyrir hann sovéska
„skáksvæðinu“ og erfitt gæti því
reynst fyrir Timman eina V-
Evrópumanninn að komast
áfram í hópi níu Rússa og tveggja
Ungverja . Því er nú einu sinni
þannig farið að slík breiðfylk-
ing samlanda í einu skákmóti
gefur möguleika á ýmiss konar
hagræðingu úrslita.
Baráttan um efsta sætið stóð
milli Van der Wiel og Sliort
en undarleg urðu úrslitin.
Van der Wiel sigraði Short 2
!/::'/: en tapaði fyrir Torre, 1:2.
Hinsvegar malaði Short Torre,
3:0. Hann hlaut því 3 ]h vinning
ásarnt Van der Wiel og farseðil
á áskorendamótið.
Alþjóðlega skákmótið í Vest-
mannaeyjum var lokaæfing
Shorts fyrir millisvæðamótið og
virtist mér honum ekki veita af
æfingunni því taflmennska hans
þar var æði misjöfn, hafnaði að
lokum í 4. sæti. Byrjunar-
taflmennska hans er oft slök og
í miðtöflum á hann það til að
gera strategískar kórvillur.
Hann hefur einn stóran kost
fram yfir fremstu skákmenn
Breta: seiglu. í erfiðum stöðum
berst hann eins og Ijón og
endataflstæknin hans er góð
þrátt fyrir ungan aldur. Eg spái
honum ekki háu sæti í áskor-
endamótinu en í tímans rás gæti
hann slegið í gegn.
í aukakeppninni var barist til
þrautar í hverri einustu skák,
einkum var Short þaulsetinn
við skákborðið. Hann hafði
heppnina með sér í skákum
sínum við Torre en átti erfitt
með Van der Wiel sem vann
einn fallegasta sigurinn í eftir-
farandi viðureign:
Hvítt: Van der Wiel (Holland)
Svart: Nigel Short (England)
Petroffs vörn
1. e4 e5
2. RO Rf6
3. Rxe5 d6
4. Rf3 Rxe4
5. (14 d5
6. Bd3 Be7
7. 0-0 Rc6
8. c4 Rb4
9. cxd5
(Karpov lék 9. Be2 í einni
einvígisskákanna við Kasparov
en það er talinn heldur betri
leikur.)
9... Rxd3
10. Dxd3 Dxd5
11. Hel Bf5
12. Rc3
(Athyglisverður er möguleikinn
12. Re5 sem DeFirmian reyndi
nteð góðum árangri gegn Pla-
skett á Brönshoj-skákmótinu í
Kaupmannahöfn í mars sl.)
12. .. Rxc3
13. Dxc3 Be6!
(Endurbót sem fyrst kont fram
í einvígi Húbners og Smyslovs
fyrir tveimur árum. Áður var
leikið 13. - c6 scm hvítur svarar
best með 14. He5 Dd715. Bhc!)
14. He5 Dc6
15. Del 0-0-0
16. Bg5 Bxg5
17. Hxg5 Bd5
18. Re5 Db6
19. Hxg7 Hhg8
20. Hg3! Dxb2
21. Hdl Hxg3
22. hxg3 Bxa2
23. Da5 Kb8
24. Rd3 Db3
25. Hcl b6
26. De5 Hc8
27. Rf4 Db2
28. Hc6 Kb7
29. Kh2!
(Van der Wicl hefur á undra-
verðan hátt tekist að skapa sér
góða sóknarmöguleika enda
sérlega útsjónarsamur í flóknum
stöðum. Með kóngsleiknum
valdar hann hrókinn óbeint, 29.
-Kxc6? 30. d5+! og drottningin
fellur.)
29.. . Dxf2
30. Rd3 Dd2
31. De4 Kb8
32. Re5!
(Riddarinn er kúnstugur í meira
lagi. Nú undirbýr hann að taka
sér bólfestu á hinum mikilvæga
c6 - reit.)
32.. . Hd8
s inr
■I B 1 111A111111
ti ni 1
|yf[
Qf| 1111
111 H
Íilll ■ III m
11 11
(Hvítur leikur og vinnur!)
33. Rd7+!f Kc8
(Eða 33. - Hxd7 34. De8+ Kb7
35. Dxd7 og hvítur vinnur.)
34. Hd6!!
- Stórglæsilegur leikur. Hvítur
hótar 35. Da8mát og 34. - cxd6
svarar hann með 35. Dc6 mát.
Short er algerlega varnarlaus og
gafst upp.
Helgi Ólafsson stórmeistari
skrifarumskák
Afmæliskveðja:
Ingibjörg Sigurðardóttir
skáldkona 60 ára
Hún Ingibjörg Sigurðardóttir,
Suðurgötu 15 í Sandgerði, er 60 ára í
dag.
Alllangt er nú orðið síðan við
Aðalheiður Tómasdóttir, kona mín,
sáum fyrst Ingibjörgu Sigurðardóttur
í Sandgerði og mann hennar Óskar
Júlíusson. Síðan hafa fundir okkar
oft legið saman og erum við forsjón-
inni sannarlega þakklát fyrir að hafa
átt þess kost að kynnast þessum góðu
hjónum.
Alltaf finnst manni það nokkur
viðburður þegar gamlir og góðir vinir
eiga merkisafmæli. Og ósjálfrátt
verður manni þá, að rifja upp liðin
kynni og jafnvel sumt það helsta sem
maður veit að drifið hefur á daga
viðkomandi einstaklings.
Foreldrar Ingibjargar voru þau
Guðrún Oddsdóttir (F. 18/10 1903;
D. 2/5 1976) og Sigurður Óli Sigurðs-
son (F. 2/1 1874; D. 8/5 1946). Bæði
voru þau ættuð af Vestfjörðum.
Faðir Ingibjargar var áður giftur
Helgu Þórðardóttur frá Kletti í Kolla-
firði í Barðastrandasýslu og áttu þau
saman 4 börn.
Ingibjörg er fædd í Króki í Skaga-
hreppi þann 17. ágúst 1925, en á
fyrsta ári flytur hún með foreldrum
sínum að Klöpp á Kálfshamarsnesi
og áttu þau þar heima um sinn, en
slitu samvistum að nokkrum árum
liðnunt. Ingibjörg á eina alsystur,
Jenný að nafni, og á hún heima í
Sandgerði.
Hátún hét næsti bær við Klöpp. Þar
áttu heima sæmdarhjónin Margrét
Ferdínandsdóttir og Jóhann Helga-
son og voru þá orðin öldruð nokkuð.
Ingibjörg hændist mjög að þessum
góðu hjónum og sótti til þeirra, enda
fór svo að er hún var innan við
tveggja ára aldur tóku þau hana í
fóstur og ólst hún upp hjá þeim eftir
það. En fóstra síns naut hún ekki
lengi að, því hann lést þegar hún var
6 ára. En hjá fóstru sinni var hún
áfram og skildu þær ekki fyrr en hún
dó á heimili Ingibjargar, þá í Sand-
gerði.
II.
Á Kálfshamarsnesi er fögur útsýn
til allra átta. í vestri blasa við Stranda-
fjöllin og blána í fjarskanum bak við
Húnaflóann en í suðri Vatnsnesfjöllin
og í austri og suðaustri hið svipmikla
Spákonufell og önnur fjöll utar á
Skaganum. Og fjölmargt var það
annað á bernskuslóðum Ingibjargar
sem seiddi og heillaði hrifnæmt barn:
sjórinn síbreytilegur, ýmist lognkyrr
og ljúfur eða úfinn og ógnvænlegur;
sjófuglar syntu við ströndina og gerðu
sér hreiður á vorin í nálægum hólmum
en kríur, lóur og ótal aðrir fuglar
sungu gleðisöngva sína um bjarta
daga. Og á ljósum sumarnóttum
sýndist sólin svífa léttilega við sævar-
brún og rétt aðeins snerta hafflötinn,
uns hún aftur lyfti sér til flugs og hóf
á ný sína daglegu för um himins hallir.
Öll þessi fegurð og allt yndi náttúr-
unnar mun hafa orkað sterkt og' ljúft
á viðkvæma barnssál, vakið hrifningu
og unaðstilfinningu, en þeir sem slíkt
reyna í bernsku, munu njóta þeirra
áhrifa um langa æfi, þau verða þeim
styrkur í stríði lífsins, og hjálp til að
líta jákvæðum augum á tilveruna,
eins og hún birtist hverjum einum.
Það fór þá líka svo, að sterk
ljóðræn hneigð mun snemma hafa
vaknað í brjósti hinnar verðandi
skáldkonu, og margar voru þær vísur
sem til urðu á þeim árum. En öll þau
bernskuljóð munu nú vera að fullu
týnd.
Ingibjörg átti ekki langt að sækja
skáldgáfu sína, því faðir hennar var
gott skáld, orti bæði tækifærisvísur,
sálma og raunar um hverskonar efni
andleg og veraldleg, en lítt mun ljóðum
hans hafa verið haldið til haga.
III.
Eins og fyrr sagði undi Ingibjörg
sér vel hjá hinum góðu fósturforeldr-
um sínum meðan þeirrabeggja naut
við,en fóstru sinnar einnar eftir að
hann féll frá.
Á unglingsárum fór hún að vinna
fyrir sér og var þá á sumrum í
kaupavinnu á nokkrum bæjum á
Skaganum. En er hún var nítjan ára
varð hún fyrir því rnikia áfalli að
missa heilsuna um sinn og mun f raun
hafa goldið þess æ síðan. Fluttist hún
þá suður ásamt fóstru sinni, sem þá
var orðin gömul og lasburða.
Árið 1946 giftist Ingibjörg Óskari
Júlíussyni frá Bursthúsum í Hvalsnes-
hverfi, hinum ágætasta manni, en
hann hafði þá verið ekkjumaður um
skeið eftir lát fyrri konu sinnar,
Magneu Magnúsdóttur.
Óskar er fæddur árið 1909 og er því
allmiklu eldri en hún, en hann er enn
léttur á fæti og sístarfandi. Hann er
hagur vel á tré og járn, og fleira er
honum til lista lagt, lcikur m.a. á sög
og harmóniku, sjálfum sér og öðrum
til ánægju.
Ingibjörg fluttist nú til hans ásamt
Margréti, fóstru sinni og annaðist
hana uns hún lést árið 1955, þá orðin
háöldruð, 95 ára.
Þau Ingibjörg og Óskar eignuðust
tvö börn, Jóhann Grétar og Magneu
Ósk. En síðar hafa þau alið upp tvö
barnabörn.
IV.
Eftir að Ingibjörg flutti til Sand-
gerðis fór hún að semja sögur og kom
fyrsta bókin út árið 1958. Þetta var
skáldsagan Sigrún í Nesi. Vakti hún
undireins mikla athvgli og náði til
fjölmargra lesenda víða um land.
Næstu sögur hennar voru Sýslu-
mannssonurinn og Bylgjur, sem báð-
ar urðu einnig mjög vinsælar og
eignuðust stóran lesendahóp.
Bækur Ingibjargar urðu fleiri, eftir
því sem árin liðu og munu nú alls hafa
komið út um 24 bækur eftir hana, þar
af ein ljóðabók. En mjög miklu meira
hefur hún ort í bundnu máli, þótt
ekki hafi komið út í bókaformi.
Sögur Ingibjargar hafa orðið mjög
kunnar og vinsælar, enda má með
sanni segja að þær eru hollur lestur
hverjum manni.
Þessi listiðkun og listsköpun Ingi-
bjargar, Ijóða- og sögugerð, hefur
jafnan farið fram við erfiðar ytri
aðstæður, því dagleg önn á löngum
starfsdögum veitti ekki mörg tækifæri
til skrifta eða annarra bóklegra iðk-
ana. Hafa það þá oft verið næturnar
sem drýgstar hafa orðið til þessara
andlegu starfa.
V.
Eins og sagði í upphafi þessa grein-
arkorns, átti ég og kona mín því láni
að fagna, fyrir mörgum árum að
kynnast þeim góðu hjónum, Ingi-
björgu í Sandgerði og Óskari, manni
hennar. Verða heimsóknir okkar á
heimili þeirra ekki taldar, og ávallt
hefur þar verið að mæta sömu hjarta-
hlýjunni og gcstrisninni. Eru þær
samverustundir okkar ómetanlegar,
og skilja eftir minningar sem aldrei
gleymast, og sama er að segja þegar
við höfum fengið að njóta heimsókna
þeirra. Ávallt hafa þau borið með sér
birtu og yl, sem yljar um hjartarætur.
Stundum hefur komið fyrir að Ingi-
björg hefur skroppið með okkur í
smáferðir um nágrenni Sandgerðis,
t.d. út á Garðskagann okkur til
hinnar mestu ánægju. Hefur þá ávallt
komið í Ijós, hversu vel hún kann að
meta óspillta náttúruna og hversu
hún heillast af samhljómum hennar,
fuglasöng og sjávarniö, fjarlægum
fjöllum og blikandi bárum, en þessi
fyrirbæri eru einmitt það, sem hún
ólst upp við á æskudögunum norður
við hið ysta haf.
Um leið og við þökkum Ingibjörgu
öll hin góðu kynni, óskum við henni
til hamingju með þetta merkisafmæli
og árnum henni allra heilla og guðs
blessunar á komandi árum. Megi
henni auðnast, enn um langa hríð að
iðka listsköpun sína í sögum og
Ijóðum sjálfri sér til lífsfyllingar og
öðrum til ánægju og sálarbótar.
Ingvar Agnarsson
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUeV®UBLÖÐ ^ -
® ftwWÍwVHh-’ , ••ÚJM ;tmi.
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN
£*ddci h f.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000