NT - 18.08.1985, Side 10

NT - 18.08.1985, Side 10
NT Sunnudagur 18. ágúst 1985 12 Svart ■ Norska rannsóknarskipið Melene Östervold lónar suður af Jan Mayen. Um borð er hópur verkfræðinga að störfum ásamt tækniliði og áhöfn. Rannsóknarstofa skipsins er full af mjög sérhæfðum tækjum sem minna á innbú í geimrannsóknarstöð. Það eru þó ekki himinhvolfin sem verið er að rannsaka. Hér eru menn að reyna að átta sig á því hvort fjársjóðir séu faldir í iðrUm jarðar. Það er verið að leita að olíu. Eins og kunnugt er gerðu íslend- ingar og Norðmenn með sér sam- komulag árið 1981 eftir að deilur höfðu risið milli þjóðanna um haf- svæðið í kringum Jan Mayen. Þá var meðal annars ákveðið að gera rann- sóknir á hinum svokallaða Jan Mayen-hrygg sem teygir sig í suður og vestur frá eyjunni. Tilgangurinn með rannsóknum þessum átti að vera sá að ganga úr skugga um það hvort þarna væri að finna olíu. Norðmenn skuldbundu sig til að kosta þessar rannsóknir en íslendingar fengu í sinn hlut fjórðung þess hlutar sem upp kæmi. Og nú fjórum árum seinna er leitin að svarta gullinu hafin. M, L elene Östervold er í eigu norska einkafyrirtækisins Geoteam-Com- putas eða GECO eins og það er skammstafað. Fyrirtækið hefur sér- hæft sig í olíuleit og rekur nú 17 rannsóknarskip sem eru að störfum um öll heimsins höf. Hin mikla út- þensla Norðmanna í sambandi við olíuvinnslu hefur komið sér vel fyrir GECO, sem hefur á ótrúlega skömm- um tíma orðið leiðandi á sínu sviði. Samskipti íslenskra stjórnvalda og GECO eiga sér orðið nokkuð langa sögu því þegar á árinu 1973 áttu sér stað samningaumleitanir um að fyrir- tækið stæði fyrir olíuleit hér við land. M eðal vísindamanna um borð í Melene Östervold að þessu sinni er Karl Gunnarsson jarðeðlisfræðingur, starfsmaður Orkustofnunar. Karí hefur reyndar skipulagt þessar rann- sóknir í samvinu við norsku olíustofn- unina í Stavanger. Það er eins gott að haldið sé vel á málum því slíkar rannsóknir eru dýrar. Kostnaður þeirra rannsókna sem nú er verið að framkvæma er á milli 50 og 60 mill- jónir króna. Skipinu er ætlað að sigla eftir ákveðnum línum sem liggja þvers og kruss um svæðið og eru samtals rúmlega fjögur þúsund kílómetrar. Fyrirferðamesta mælitækið er hlust- unarkapall, sem er þrír og hálfur kílómetri á lengd og dregur skipið kapalinn eftir fyrrgreindum línum. Oflugar loftbyssur eru jafnframt dregnar á eftir skipinu og gefa þær frá sér loftskot með 10 sekúndna millibili Hljóðið frá þessum skotum bergmál- ar í jarðlögunum undir hafsbotni og kapallinn nemur síðan hljóðin er þau berst aftur upp úr undirdjúpun- um. Með þessu móti er hægt að afla mikilvægra upplýsinga um jarðfræði hafsbotnsins og jarðskorpunnar. Hljóðmerkin eru tekin upp á segul- band þegar þau berast til kapalsins og síðar með hjálp tölvu eru teiknuð snið af jarðlögunum samkvæmt þess- ari hljóðspeglun. Samhliða þessu eru gerðar mælingar á þyngdarsviði jarð- arinnar um leið og siglt er. Þær mælingar geta gefið vísbendingar um þéttleika berglaganna undir hafsbotni og á þann hátt má hugsanlega sjá hvort hafsbotninn í kringum Jan Mayen er hluti af gömlu meginlandi eða ekki. Einnig eru gerðar mælingar á segulsviði jarðar og til þess notaður sérstakur segulnemi, sem einnig er dreginn á eftir skipinu. Auk alls þessa er svokölluðum sónarbaujum skotið fyrir borð en þær nema hljóðmerki sem gefin eru frá skipinu. Þessi merki berast niður í jarðlögin undir hafs- botni og ferðast lárétt eftir jarðlaga- staflanum og upp í baujurnar. ✓ "Y" mislegt bendir til þess að Jan Mayen-hryggurinn sé hluti af gömlu meginlandi. Skilningur manna á þessu svæði hefur aukist jafnt og þétt V, eðrið er leitarmönnum hagstætt. Austan og norðaustan átt er ríkjandi á svæðinu og þó að þeir séu að störfum langt fyrir norðan heim- skautsbaug hafa litlar tafir orðið vegna veðurs. Skipið öslar áfram nótt sem nýtan dag og mælitækin senda stöðugt upplýsingar neðan úr myrku hafdjúpinu. C- L. ----- — ■>* lálr»«NA« O U«lt pA cu averjai ciu ínvuiuai a p»» hér sé að finna olíu? Um borð í Melene Östervold eru menn ekki að velta þessari spurningu fyrir sér. Hér er aðeins verið að safna upplýsingum. Síðan tekur við löng úrvinnsla í landi með hjálp afkasta- mikillar tölvu og síðan verður að leggja í mikla vinnu við að túlka niðurstöðumar. Það verður því ekki fyrr en næsta vor sem endanleg skýrsla liggur fyrir og þá er ætlunin að selja upplýsingarnar á frjálsum mark- aði. Það eru stóru olíufélögin sem kaupa slíka upplýsingapakka og greiða vel fyrir. Meðalverð á upplýs- ingum af þessu tagi er hundrað til tvö hundruð þúsund dollarar og þá taka sérfræðingar olíufélaganna sig til og meta hversu miklar líkur séu á því að þarna sé um olíu að ræða Vísindamenn eru sammála um að ýmislegt bendi til þess að svo 5é. Rannsóknirnar sem nú er verið að gera koma þó til með að færa okkur nær sannleikanum í þeim efnum. Endanlega verður þó ekki hægt að svara spurningunni fyrr en borað yerður niður í hafsbotninn

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.