NT - 18.08.1985, Blaðsíða 12

NT - 18.08.1985, Blaðsíða 12
NT Sunnudagur 18. ágúst 1985 14 Helgarblaðið hitti þá fimm- menningana að máli þar sem þeir voru við æfingar í vikunni. Úti var hið' mesta blíðskaparveður og því greini- legt að heyönnum var lokið hjá þess- Vilja ekki láta bendla sig við grænfriðunga ■ I Tónlistarskóla FÍH í Braut- arholtinu í Reykjavík, hafa að undanförnu verið fimm músí- kantar við æfingar. Tilefnið er að þeir hyggjast halda jazztón- leika í Norræna húsinu mánu- daginn 19. ágúst næstkomandi. Þarna er á ferðinni jazzkvintett sem hóað hefur verið saman að undirlagi Sigurðar Flosasonar saxófónleikara, en hann er hér heima í sumarleyfi frá námi í Bandaríkjunum. Þeir sem Sig- urður hefur fengið til liðs við sig eru kunnar jazzkempur; Tómas R. Einarsson á kontrabassa, og Mezzofortemeðlimirnir Eyþór Gunnarsson á píanó, Friðrik Karlsson á gítar, og Gunnlaugur Briem á trommur. ■itetwii NÝJASTA VOGIN FRA ISHIDO i ■ 1 ■ I Mascot tölvuvogin er sú nýjasta frá Ishida, og með henni sameinast tæknileg fullkomnun og ótrúlega lágt verö. Aldrei áður hefur vog með þessa möguleika fengist á jafn lágu verði- Vogin hefur digital skjá, álagsselli, og nákvæmni upp á 1/3000. PLASTOS HF Bíldshöfða 10, sími 82655 Við að vikta uppskeruna Við viktun í bílinn Við að vikta það sem fer frá verksmiðj' unni Við viktun fisks á bryggjunni vogarpoi er 66 eða 155 kg. Vogin er mjög auðveld í meðförum og hana má nota við flestar að- stæður. um stæðiíegu piltum, annars væru þeir varla að spila jazz svona í þurrkinum. Þegar við spurðum hvernig stæði á þessu framtaki þeirra, einmitt nú, sögðu þeir að þeir væru allir miklir jazzunnendur og það væri nauðsyn- legt að finna sér verkefni til að halda sér við efnið og hafa eitthvað að gera. Það væri svo vitanlega ekki til óþurft- ar ef eitthvað væri hægt að hafa upp úr þessu. En umfram allt sögðust þeir þó vera að skemmta sér og spila tónlist sem þeir hafa verulega gaman af, það gæfust hreinlega ekki svo mörg tækifæri til að spila jazz af alvöru. Þrátt fyrir tónlistarmenn sem gam- an hafi af jazzi spili mikið á kránum, jafnvel mörg kvöld í viku, þá hafi það minnkað að jazzinn sé spilaður af alvöru og að fólk komi gagngert til þess að hlusta á jazztónlist. Því sé það, að þrátt fyrir fleiri tækifæri til þess að spila jazzblandaða tónlist þá hefur það í rauninni minnkað að hægt sé að spila jazz í trausti þess að verið sé að hlusta. Allir virðast hljóðfæra- leikararnir sammála um þetta sjón- armið og það er ekki laust við nostal- gfu þegar þeir minnast jazzkonsert- anna í Djúpinu og Stúdentakjallaran- um. Við slíkar aðstæður er hægt að spila miklu framsæknari músík heldur en unnt er áð gerá a krárium, segja þeir. „Ef menn ætla að leika erfitt efni sem þarf að æfa og ætlast jafnfram til þess að það sé hlustað á það, þá er eiginlega ekki um annað að ræða en halda formlega tónleika. Það má líka segja að þetta sé einskonar „reunion“ hjá okkur því við höfum allir spilað meira eða minna saman áður.“ Verkefnin sem þeir félagar hyggj- ast flytja í Norræna húsinu eru einmitt af þessu tagi og lögin hafa fæst heyrst hér á landi áður, enda ný af nálinni. Höfundar tónlistarinnar eru meðal annara Wayne Shorter, Mike Brecker, og David Libeman. Þetta er „spennandi tónlist", eins og þeir orð- uðu það, sem er erfitt að spila og því hefur drjúgur tími farið í æfingar. Miðað við allan undirbúninginn kann það að virðast skrýtið að aðeins einir hljómleikar verða haldnir, en það stafar af því að fjórir af fimm meðlim- um hljómsveitarinnar eru að fara til útlanda strax að þeim loknum. Sigurður heldur til Bandaríkjanna til náms þar sem hann mun dveljast meira eða minna næstu árin - af því hann á svo margt ólært segja sniðugir meðleikarar hans í hljómsveitinni. Þeir Eyþór, Friðrik, og Gunnlaugur eru hins vegar að fara til Færeyja, (ekki þó til náms,) heldur munu þeir ■ Frá vinstri: Gunnlaugur, Friðrik, Sigurður, Eyþór og Tómas. Haft hefur verið eftir atferlisfræðingi frá Kalifomíu að algengt sé að fjórir af hverjum fimm jazzleikurum sitji með krosslagðar lappir. NT-mynd: Ámi Bjama spila þar nokkur kvöld með annarri hljómsveit sem þeir vildu þó ekki segja hvað héti. Heimildarmenn Heígarblaðsins hafa upplýst okkur um það að sú hljómsveit muni heita Mezzoforte. í Færeyjum spila þeir í Norræna húsinu, þannig að þeir munu fara úr einu Norræna húsinu í annað. Þeir neituðu að kannast við að Færeyja- ferð þeirra stæði í einhverju sambandi við för Paul Watsons og Sea Sheperd þangað og vildu síður vera bendlaðir við grænfriðunga. Tómas ætlar hins vegar að vera eftir í Reykjavík og segja kunnugir að hann sé líklegur til að nota tímann til að lesa ljóð og æfa sig á nikkuna. Greinilegt var á þeim félögum að þeir höfðu talsverðan áhuga á að halda áfram tónleikahaldi í svipuðum dúr þegar kæmi fram á vgtur. Þó fram- holdið .yíoí -kaunskr Bktó ' eiris og tónleikarnir sem haldnir verða í Norr- æna húsinu á mánudag, þá væri sama grundvallarhugmyndin sem lægi að baki: að spila góðan og erfiðan jazz á tónleikum þar sem fólk kæmi gagngert til að hlusta á tónlistina. I lokin spurðum við, eins og prestar gera svo oft, „hvað á bandið að heita?“ en það hafði greinilega ekki gefist mikill tími til að velta slíku fyrir sér. Fimmmenningarnir litu hver á annan og sögðu. „Já hvað á bandið að heita?“ Ymsar hugmyndir komu strax fram og sú sem var einna mest áberandi, var að kenna það við Sigurð Flosason því hann hefði verið aðal- hvatamaðurinn að þessu öllu saman. Einhver stakk upp á „Hljómsveit Sigurðar Flosasonar,“ annar „Stór- sveit Sigurðar Flosasonar" en þeim þriðja fannst „Smásveit Sigurðar Flosasonar" meira viðeigandi. „Sveit Sigurðar Flosasonar“ kom þá fram sem málamiðlum, en öðrum fannst það hálf sveitó fyrir utan að það væri ólógískt að hafa sveit í Reykjavík. Sem sagt það fékkst ekki á hreint hvað flokkurinn myndi kalla sig, en það verður ábyggilega búið að leysa þetta smámál áður en kemur að tónleikunum, sem verða eins og áður segir þann 19. ágúst í Norræna húsinu og hefjast stundvíslega kl. 20.30. B.G.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.