NT - 10.09.1985, Qupperneq 5
Þriðjudagur 10. september 1985 5
(97
Nýtt bónuskerfi
reynt á Akureyri
HIH Akureyri:
Riddarinnfærekki
vínveitingaleyfi
■ í frystihúsi ÚA á Akureyri stend-
ur nú yfir tilraun með nýtt bónuskerfi,
sem hugsanlega gæti þýtt hærri laun
fyrir starfsfólk í frystihúsum.
„Petta er fyrsti dagurinn sem við
prófum þetta,“ sagði Gunnar Lór-
entsson verkstjóri í samtali við NT.
„Það verður unnið eftir þessu kerfi á
sjö borðum í hálfan mánuð, og svo
sjáum við til.“
Kerfið sem nú er stuðst við -
marknýtingin svokallaða byggist á
því að meðaltal er tekið af einum
þriðja þeirra sem afkastamestir eru
og notað til viðmiðunar. Fastanýting-
in hefur aftur á móti ákveðna lág-
marksnýtingu til grundvailar og betri
nýting getur þýtt meiri laun.
„Það er alltof snemmt að segja
nokkuð um þetta kerfi á fyrsta degi,“
sagði Erna Magnúsdóttir bónustrún-
aðarkona. „Við höfum engar tölur í
höndunum. Fólkið hefur tekið þessari
tilraun vel. Það var auglýst eftir
sjálfboðaliðum, og margir vildu taka
þátt í þessu handtaki því það er
ekkert öruggt að þetta leiði til hærri
launa. Aðalbreytingin er sú að nú fær
hver greitt fyrir sín afköst. Það skiptir
ekki máli með næsta borð, en við
vitum ekkert nánar fyrr en í endaða
vikuna,“ sagði Erna að lokum.
■ Kona á áttræðisaldri liggur þungt
haldin á Borgarspítalanum, eftir að
ekið var á hana í gærdag. Slysið varð
á Snorrabraut, laust eftir hádegi.
Lada bifreið kom akandi suður Snorra-
braut og lenti á konunni sem var á
leið yfir götuna í Vesturátt. Þegar NT
fór í prentun í nótt var ekki vitað
hversu alvarleg meiðsli konunnar
VOrU. NT-mynd: Sverrír.
■ Veitingahúsið Riddarinn í Hafn-
arfirði fær ekki vínveitingaleyfi, ef
áfengisvarnarnefnd í Firðinum fær
einhverju ráðið. Ástæðan fyrir því að
öll nefndin lagðist gegn því að veita
veitingastaðnum vínveitingaleyfi er
einhver samþykkt frá Heilbrigðis-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, um að
æskilegt sé að hafa sem fæsta útsölu-
staði áfengis á hverjum stað,en ekki það
að nefndarmenn gætu fundið neitt að
hjá staðnum sjálfum, sem orsakaði
synjunina.
Riddarinn er nýtt veitingahús í
miðbæ Hafnarfjarðar og hvorki í
íbúðar- né iðnaðarhverfi, auk þess
sem staðurinn uppfyllir öll skilyrði,
sem sett eru fyrir vínveitingaleyfi.
Steingrímur Atlason, lögreglu-
varðstjóri í Hafnarfirði og einn af
nefndarmönnunum vildi ekki svara
neinu um þetta mál, vísaði bara á
formann nefndarinnar, Pál V. Dan-
íelsson, en ekki náðist í hann í gær.
Umsókn Riddarans fer nú fyrir
bæjarstjórn Hafnarfjarðar og þaðan
til Dómsmálaráðuneytisins. Þó
bæjarstjórn mæli með því að staður-
inn fái leyfið mun ráðherra ef að
líkum lætur, fara eftir áliti áfeng-
isvarnarnefndar. Hafnarfjörður verð-
ur því áfram þurr bær.
Jón L. vann
helgarmótið
■ Jón L Árnason, alþjóðlegur
meistari í skák sigraði á 30. helgar-
skákmótinu, sem haldið var á Hólma-
vík um helgina. Jón hlaut 6 vinninga
úr 7 umferðum. í 2.-3. sæti urðu
Halldór G. Einarsson og Sævar
Bjarnason með 5xk vinning, Ásgeir
Þór Árnason og Pálmi Pétursson
urðu í 4.-5. sæti með 5 vinninga og í
6.-7. sæti urðu Margeir Pétursson og
Karl Þorsteins með 4V4 vinning.
Ennfremur voru veitt 40 þúsund
króna verðlaun fyrir flest stig í síðustu
5 helgarmótum og hlaut þau Haukur
Angantýsson. Öldungaverðlaun að
þessu sinni hlaut Benóný Benedikts-
son.
Bíllí
Elliðaánum
■ Bíll fór útaf veginum við stífluna
við Elliðavatn, þar sem Elliðaár falla
úr vatninu, á sunnudagskvöld. Öku-
maðurinn slapp ómeiddur og var
hann í öryggisbelti. Mjög kröpp
beygja er við brú yfir ána, þar sem
slysið varð. Að sögn lögreglu í Kópa-
vogi virðist sem maðurinn hafi hrein-
lega ekki áttað sig á að þarna var
beygja á veginum og því misst stjórn
á bílnum með fyrrgreindum afleiðing-
um. Bíllinn var fiskaður úr ánni með
kranabifreið.
Bílslys við
Eyjafjarð-
arbrú
■ Ungkonaslasaðistalvarlegalaust
fyrir hádegi í gær þegar bifreið hennar
lenti á brúarstóipa við austustu
Eyjafjarðarbrúna. Konan sem var
ein í bílnum, virðist hafa misst stjórn
á bílnum áður en hún kom að brúnni,
þannig að hann fór á stólpann á miklum
hraða. Bifreiðin er gjörónýt.
„Ekki veru-
legt tjón“
- segir framkvæmdastjóri ístaks
■ „Mér þykir afar ósennilegt að
einhver hafi viljandi kveikt í skemm-
unni,“ sagði Páll Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri ístaks, í samtali við NT
í gær. Páll sagði tjónið ekki verulegt
og myndi á engan hátt tefja fram-
kvæmd verksins á Keflavíkurflug-
velli.
Eldur kom upp í skemmunni á
laugardagsmorgni, og voru það
slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli
sem fyrstir urðu varir við eldinn um
klukkan sex á laugardagsmorgun.
Niðurlögum eldsins var ráðið á tveim-
ur tímum. Ekki tókst að bjarga neinu
af því sem í skemmunni var og mun
tjónið nema nokkrum milljónum
króna.
Siunir litlir
leiðaþá stóru
ð
Þegar þú velur IBM PC (hvort heldur
venjulega PC, PC XT, PC ferðavél
eða PC AT) getur þú alltaf stækkað
við þig að vild.
Soluumboð:
Gísli J. Johnsen Skrifstofuvélar hf. Örtölvutækni hf., Ármúla 38,
Skrifstofubúnaður sf., Nýbýlavegi 16, Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33, Reykjavík, sími 687220
Kópavogi, sími 641222 Reykjavík, sími 20560