NT - 10.09.1985, Blaðsíða 13

NT - 10.09.1985, Blaðsíða 13
Landlæknir auglýsir: Vöntun á fólki með psoriasis ■ Landlæknisembættið hefur í sum- ar staðið fyrir rannsóknum á lækn- ingamætti jarðsjávarvatns við Svarts- engi, betur þekkt sem Bláa lónið. I rannsókninni taka þátt einstaklingar með sjúkdóminn psoriasis, en rann- sóknirnar miða aðallega að því að kanna lækningamátt Bláa lónsins. Þátttakendur í rannsókninni eru sjálfboðaliðar. Þeim er gert að baða sig í lóninu minnst þrisvar í viku í 4-6 vikur. Fyrir þátttöku er hver sjúkling- ur skoðaður af húðsjúkdómalækni og hann látinn svara spurningum um sjúkdóm sinn. Sami háttur er hafður á eftir meðferð. Nú auglýsir land- læknisembættið eftir fleirum til þátt- töku í rannsókninni. Eina skilyrðið er að viðkomandi sé haldinn psoriasis. fcÍ? ■ Landlæknir vill fleiri sjúklinga til þess að taka þátt í rannsókninni. Rannsóknarlögregla ríkisins: Leitar aðstoðar hjá almenningi ■ Rannsóknarlögregla ríkisins hefur sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem leitað er eftir aðstoð almennings við upplýsingu tveggja mála sem lögregl- an hefur til rannsóknar. f fyrra málinu er um að ræða atburð sem átti sér stað í veitingahúsinu Sigtúni við Suðurlandsbraut, aðfaranótt sunnu- dagsins 18. ágúst síðastliðinn um klukk- an 2. Þá fékk ungur piltur glas í augað þar sem hann var staddur í veitingahús- inu, með þeim afleiðingum að hann mun hljóta varanlega örorku. Svo virðist sem glasinu hafi verið kastað úr salnum innanverðum, frá stað þar sem sófi er, og við hann tvö hringlaga borð. Talið er að nokkur fjöldi gesta hafi verið í veitingahúsinu þegar þetta gerðist. Seinna máliö varðar stuld á jeppa- kerru frá sumarbústað að Vatnsenda- bletti 267. Kerran er úr rauðbrúnum krossviði með „handvirkum sturtubún- aði" og nokkuð löngu beisli. Tvö göt eru á afturgafli, niður við botninn og cinnig er gat á botninum. Varadekki var stolið á sama stað. Þjófnaðir hafa verið tíðir úr bústaðnum, og varm.a. stolið búslóðinni úr honum í fyrra. Þeir sem geta gefið upplýsingar í þessum málum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Rannsóknarlögreglu ríkisins í síma 44000. 14 um helgina við Iðu ■ Veiði hefur verið treg í Hvítá í Arnessýslu í sumar, eins og flestum ám suðvestanlands. Menn segja vatnsleysi há veiði- skapnum. Þorgeir Jónsson lax- veiðimaður og prentari er ekki á sama máli. Hann fór til að veiða í Hvítá um helgina, og fékk þar átta laxa, alla á bilinu 10-15 pund. Þorgeir sagði í samtali við Veiðihornið i gær að aðstæður hefðu verið mjög góðar, þrátt fyrir vatnsleysið. Hann veiddi laxana á flugu. Alls er veitt á þrjár stangir á svæðinu og veiddust fjórtán lax- ar í allt á laugardag og sunnu- dag. Þorgeir er alvanur veiði á þessu svæði, og má væntanlega rekja velgengni hans þangað að hluta. Eins og sést á myndunum er áin óhemju vatnslítil, og þekktir veiðistaðir eru á þurru. Nefið, sem svo er kallað er nú á þurru, en þar veiddist stærsti fiskur sem hefur veiðst á stöng á ís- landi, svo vitað sé. Þorgeir með Fyrir framan Áttundi iaxinn fyrir klukkan níu. síðan rétt ■ Áin er mjög vatnslítil. Við eðlilegar aðstæður væri myndin einn vatnsflaumur. Nefið er ofarlega til hægri á myndinni, en þar er nú vatnslaust. Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurbætur sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu. Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum. Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar bílsins sem mest mæðir á. Með því að... ... taka upp símtólið og pantatíma í síma 21246, eða renna við á smurstöð Heklu hf. Laugavegi 172. Þar sem... ... þú slappar af í nýrri vistlegri móttöku, færð þér kaffi oq lítur í blöðin. A meðan... ... við framkvæmum öll atriði hefðbundinnar smumingar, auk ýmissa smáatriða t.d. smumingar á hurðalömum og læsingum. Auk þess... ^MURvSTÖÐ ... athugum við ástand viftu- reima, bremsuvökva, ryðvamar og pústkerfis og látum þig vita ef eitthvert þessara atriða þarfnast lagfæringa. Allt... ... þetta tekur aðeins 15-20 mínútur og þú ekur á brott með góða samvisku á vel smurðum bíl. Lúrír þú á frétt? Nýtt símanúmer 68-65-62

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.