NT - 10.09.1985, Síða 6
auglýsingar
varahlutir
Hedd hf.
Skemmuvegi M-20 Kópavogi
Varahlutir - ábyrgð - viöskipti
Höfum 'fyrirliggjandi varahluti í flestar
tegundir bifreiöa, m.a.
Galant 1600 árg 79 ■ Volvo 343 árg 79
Subaru 1600 árg 79
Honda Civic árg 79
Datsun 120 A árg 79
Mazda 929 árg 77
Mazda 323 árg 79
Mazda 626 árg 79
Mazda616árg75
Mazda818árg 76
Toyota M II árg 77
Toyota Cressida 79.
Range Rover árg 75
Bronco árg 74
Wagoner árg 75
Scout II árg 74
Cherokee árg 75
Land. Rover árg 74
Villis árg ‘66
Ford Fiesta árg '80
Wartburg árg '80
Lada Safir árg '82
Toyota Corolla árg 79 _ Lada Combi árg '82
Toyota Carina árg 74” Lada Spoit árg '80
Toyota Celica árg 74 Lada 1600 árg ’81
Datsun Diesel árg 79 Volvo 142 árg 74
Datsun 120 árg 77 Saab 99 árg 76
Datsun 180 B árg 76 Saab 96 árg 75
Datsun 200 árg 75 Cortina 2000 árg 79
Datsun 140 J. árg 75 Scout árg 75
Datsun 100 A árg 75 V-Chevelle árg 79
Daihatsu A-Alegro árg '80
Carmant árg 79 Transit árg 75
Audi 100 LS árg 76 Skodi 120 árg '82
Passat árg 75 Fiat 132 árg 79
Opel Record árg 74 Fiat 125 P árg '82
VW 1303árg'75 F-Fermont árg'79
C Vega árg 75 F-Granada árg 78
Miniárg '78
Ábyrgð á öllu, alit inni þjöppumælt
og gufuþvegiö. Vélaryfirfarnareða
uppteknar með allt að 6 mánaða
ábyrgð. ísetning ef óskað er.
Kaupum nýlega bíla til niðurrifs og
jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka
daga frá kl. 9-19 laugardaga kl.
10-16. Sendum um land allt.
Hedd h.f. síma 77551 og 78030
Reynið viðskiptin
ökukennsla
Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur
geta byrjað strax og greiða aðeins
tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst
réttindi. Æfing í borgarakstri. Læriðl
þar sem reynslan er mest. Greiðslu-.
kjör, ennfremur Visa og Eurocard.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ö. Hanssonar.
til sölu
Ullargólfteppi ca. 2x3 m til sölu og
einnig 2ja sæta sófi, má breyta í rúm.
Upplýsingar í sima 10899 eftir kl. 17.
bílaleiga
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
varahlutir
Aðalpartasalan
Sími23560
Autobianci'77 BuickAppalo’74
AMCHornet'75 HondaCivic'76
AustinAllegro'78 Datsun 100 A'76
Austin Mini'74 Simca1306'77
:ChevyVan'77 Simca1100'77
ChevroletMalibu’74 Saab99'73
ChevroletNova'74 Skoda120L'78
DodgeDart'72
DodgeCoronet '72
Ford Mustang '72
FordPinto'76
FordCortina'74
Ford Escort '74
Fiat 131 '77
Fiat 132 '76
Fiat 125 P '78
Lada1600 '82
Lada1500'78
Lada1200 '80
Mazda323’77
Mazda929'74
Volvo 145 74
VW1300-1303 7-
VW Passat 74
Mercury Comet '7
Subaru4WD '77
Trabant'79
Wartburg 79
ToyotaCarina’75
ToyotaCorolla'74
Renault4'77
Renault5'75
Renault12'74
Peugout504 74
Jeppar
Wagoneer'75
RangeRover’72
Scout’74
Ford Bronco 74
Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til
niðurrifs, sendum um land allt.
Opið virka daga frá kl. 9-19,
laugardaga frá kl. 10-16. Aðal-
partasalan Höfðatúni 10, sími
23560.
Barnagæsla
Barngóð 12-14 ára stúlka
óskast til að gæta 3ja ára stelpu,
einstaka kvöld og helgar.
Er í Breiðholti III. Upp. I síma 79371.
Endurskinsmerki l^ggn3
umferðlnni.
||uj«rHCix*r
Dr. Ellen Marie Mageröy listfræðingur frá
Osló flytur fyrirlestur á vegum Minningar-
sjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright um ís-
lensk útskorin drykkjarhorn með miðalda-
skrauti, í Odda, hugvísindahúsi Háskólans,
þriðjudaginn 10. september klukkan 20.30.
Fyrirlesturinn verður haldinn á norsku og er
öllum heimill aðgangur.
Þjóðminjasafn íslands.
Útboð
FLUGMÁLASTJÓRN
Tilboð óskast í lengingu flugbrautarinnar við Blönduós.
Áætlað efnismagn sem flytja þarf er um 15000 rúmmetrar,
útboðsgögn fást afhent hjá umdæmisstjóra flugmálastjórnar-
innar á Akureyri eða flugvallarverðinum á Blönduósi. Skila-
frestur er til 18. september n.k.
Flugmálastjórn.
6
Prinsi komið
til þroska
með uppþvotti
London-Reutcr.
■ Að sögn áreiðanlegra heim-
ildarmanna mun hinn þriggja ára
gamli Vilhjálmur prins, sonur
Karls og Díönu, byrja að sækja
dagheimili í þessum mánuði þar
sem m.a. leirtausþvottur er í
höndum barnanna.
Þó að talsmaður hirðarinnar
beri á móti slíkum getgátum, þá
er talið að krónprinsinn og spúsa
hans hafi ákveðið strax í upphafi
að börn þeirra skyldu sækja dag-
heimili í ætt við það sem Díana
starfaði við. Það var notuð hin
svokallaða Montessori-uppeldis-
aðferð sem felst m.a. í því að
venja börnin við hver konar sjálfs-
bjargarviðleitni. Þar má t.d.
nefna diskaþvott, aö leggja og
bera á borð, að reima skó og
hneppa tölum o.s.frv. Þessi að-
ferð er kennd við dr. Maria
Montessori sem lést árið 1952.
Heimildarmenn segja að Vil-
hjálmur prins verði einn 24 barna
af ólíkum uppruna á nefndu dag-
heimili í Kensington-hverfi. Búist
er við að formleg tilkynning komi
frá Buckingham-höll innan
skamms.
IÉ
■ Fulltrúadeild Bandaríkjaþings vill taka útgjöld til uppbyggingar flotans til
endurskoðunar vegna hernaðarlegra og fjárhagslegra sjónarmiða.
Flotinn fjárfrekur
Daglegur rekstur f lugvélamóðurskips kostar 20 milljónir ísl. kr.
Washington-Reuter
■ Er Ronald Reagan tók við
forsetaembætti árið 1980 var það
yfirlýst ætlun stjórnar hans að bregð-
ast við mikilli flotauppbyggingu
Sovétmanna með því að tefla fram
bandarískum flota er teldi a.m.k. 600
stærri skip. Stefnt hefur verið að því
að þessu markmiði yrði náð árið
1989, og til þessa hafa allar nauðsyn-
legar fjárveitingar fengist frá þinginu.
Nú ber hins vegar á vaxandi efasemd-
um þingmanna um fjárhagslegt og
hernaðarlegt gildi þess að halda fast
við fyrrnefnda áætlun.
Árið 1980 fékk bandaríski flotinn
um 70 milljarða dala á fjárlögum og
þá var skipafjöldinn 479. Nú eru árleg
útgjöld komin upp í 100 milljarða
dala og 600 skipa markið ekki svo
fjarlægt. í bandaríska þinginu hafa
ýmsir aðilar látið í ljós áhyggjur af því
að þegar allt komi til alls verði það
flotanum um megn að reka hin nýju
skip og að auki geti þau e.t.v. alls
ekki gegnt því hlutverki sem þeim er
ætlað. Þeir sem gagnrýna uppbygg-
ingaráædun Reagan-stjórnarinnar
segja að lítil og ódýr skip búin
hátæknivopnum séu mun heppilegri
valkostur heldur en smíði stærri her-
skipa.
Áætlað er að fjölga stórum banda-
rískum flugvélamóðurskipum úr 12 í
15, en það kostar um 20 milljónir
íslenskra kórna daglega að reka hvert
þeirra. Á sama hátt á að bæta 10
kjarnorkuknúnum kafbátum við flot-
ann og daglegur rekstur hvers þeirra
kostar u.þ.b. 3 milljónir íslenskra
króna. Bent hefur verið á að sum
þeirra vopna sem flotinn ræður yfir
eru svo dýr að almennir liðsmenn fá
sjaldan eða aldrei að reyna þau á
æfingum t.d. kostar phoenix-loft-
varnaeldflaug um 40 milljónir ís-
lenskra króna.
En það eru ekki einungis þingmenn
sem hafa látið fjáraustur flotans sig
varða, foringjar í t.d. landher hafa
kvartað undan því hversu stór hluti af
varnarmálaútgjöldum fer til viðbún-
aðar á hafinu.
Sjónarsviptir að
sjónauka Naflajóns
Rennes-Reuter.
■ Fyrir skömmu var brotist inn í
höll í Bretagne og stolið þaðan verð-
mætum sem eru metin á 4,6 milljónir
íslenskra króna. Þar á meðal voru
sjónauki sem var eitt sinn í eigu
Napóleons keisara og hár af hestum
Loðvíks 16.
■ Stjórnvöld í Túnis ákváðu í síð-
ustu viku að kalla heini alla þegna
sína sem vinna í Líbýu og hætta allri
verslun við nágranna sína í austri.
Undanfarnar vikur hafa um 29
þúsund af þeim 92 þúsund Túnis-
mönnum sem vinna í Líbýu verið
reknir heim. Ástæðan er sú að Líbýu-
nienna vilja ekki hafa í landi sínu
er hann stýrði frönskum her í orrust-
unni við Austerlitz, en þar biðu
Rússar og Austurríkismenn niður-
lægjandi ósigur árið 1805.
„Þessir hlutir hafa ómetanlegt til-
finningalegt gildi í okkar augum og
við vonum að þeir finnist sem fyrst,“
sagði hertoginn af Rohan sem er
eigandi Josselin-hallar.
útlendinga sem ncita að taka líbýskt
þjóðerni.
Samskipti nágrannanna hafa farið
hríðversnandi upp á síðkastið. Fyrir
stuttu ráku Túnismenn 283 Líbýu-
menn úr landi fyrir njósnir og í
síðasta mánuði var herTúnis kvaddur
í viðbragðsstöðu eftir að fréttist um
mikla liðsflutninga Líbýuhers við
landamæri ríkjanna.
Sovétríkin:
Ljóðskáld
léstí
vinnu-
búðum
Washington-Keuler.
■ Talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins tilkynnti
fyrir nokkru að sovéska ljóð-
skáldið Vasyl Stus hefði látist úr
næringarskorti í kjölfarið á
maga- og nýrnasjúkleika. Hann
er þar með fjórði sovéski and-
ófsmaðurinn sem lætur lífið í
vinnubúðum á síðastliðnum 18
mánuðum, en hann var dæmdur
til 15 ára vistar í slíkum búðum
vegna þátttöku í eftirliti með
því hvernig sovésk stjórnvöld
fylgja Helsinski-sáttmálanum.
Ukraínumaðurinn Stus náði
47 ára aldri og að sögn tals-
mannsins var hið slæma heilsu-
far bein afleiðing af illri meðferð
sem hann sætti í vinnubúðun-
um. Tilkynningunni unt lát Ijóð-
skáldsins fylgdi áskorun til sov-
éskra stjórnvalda um að láta af
óvirðingu við mannlegt líf og
frelsi.
Sjónaukann notaði keisarinn knái
Túnis:
Þegnar kvaddir
heim frá Líbýu
Túnisborg-Reuter.