NT - 10.09.1985, Page 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
HRINGDU ÞÁ f SÍIX/IA 68-65-62
Vid tökum við abendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Einar Vilhjálmsson spjótkastari:
■ Ivan Lcndl lagði hinn munnkáta McEnroe á Opna ameríska
meistaramótinu í tennis.
Lendl á toppinn
Lagði McEnroe að velli
■ Ivan Lendl frá Tékkó-
slóvakíu og landa hans Hana
Mandlikova sigruðu í einliða-
leikjum á U.S.-Open tennis-
mótinu sem lauk í New York
um helgina. Með þessum sigri
þá er Lendl stigahæsti tennis-
leikari í heiminum í dag en
hann hefur lengi staöið í skugga
McEnroes. Sigur Mandlikovu
á Navratilovu kom nokkuð á
óvart en hún hafði áður sigrað
á U.S. Open
Chris Evert Lloyd í undanúrslit-
um.
Sigur Lendl á McEnroe í
úrslitaleiknum í einliðaleik
karla var sannfærandi en þetta
er í fyrsta sinn í áttá ár sem
U.S.-Open vinnst af öðrum en
Bandaríkjamanni. Leikurinn
endaði 7-6, 6-3 og 6-4.
Mandlikova sigraði Navratil-
ovu í hörkuleik en hún er frá
Tékkóslóvakíu eins og Lendl.
V'þýska knattspyrnan:
„Það er hvíld f ramundan“
Meiðsl Einars settu strik í reikninginn á Grand Prix í Róm
■ Einar Vilhjálmsson varð að
sætta sig við áttunda sætið í
spjótkastkeppninni í loka-
keppni Grand Prix mótanna
eins og íslenskir sjónvarps-
áhorfendur fengu (lítillega) að
sjá á laugardaginn. NT hafði
samband við Einar eftir heim-
komu hans í gær og sagði hann
að meiðsli sín hefðu illilega sett
strik í reikninginn. „Eftirfyrsta
kast reyndi ég að vefja olnbog-
ann og minnka allt hreyfisvið
hans en lítið gekk að kasta af
viti eftir það,“ sagði Einar sem
kastaði lengst 80,48 m. Einar
leitaði til læknis í gær og var tjáð
að bæði taugabólgur og bein-
himnubólga hrjáði olnbogalið
hans. „Þetta eru árcynslu-
meiðsli og með hvíld batnar
mér vonandi fullkomlcga,"
sagði Einar sem sleppir líklega
Heimsmeistaramóti landsliða í
Canberra en það er eina mótið
sem eftir er hjá Einari á þessu
keppnistímabili.
Það var Tom Petranoff sem
sigraði í heildarstigakeppninni í
spjótkastinu en Einar varð
fjórði. Stigahæstur íþrótta-
manna var hinsvegar 5000 m
hlauparinn Doug Padilla sem
sigraði auðveldlega í sinni grein
á laugardaginn. Hann hlaut 63
stig. Hjá konum krækti Mary
Slaney sér í eina milljón en hún
sigraði í skemmtilegu 3000 m
hlaupi.
Búast má við einhverjum
IRmeistari
■ ÍR-ingar tryggðu sér
sigur í 4. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu er
liðiö bar sigurorð af
Reyni, Árskógsströnd á
Akureyrarvelli á laugar-
daginn, 3-1. Þessi sigur
ÍR er ekki síður glæsileg-
ur fyrir þá sök að með
honum hefur ÍR ekki tap-
að leik í 4. deild í sumar.
í leiknum á Akureyri
skoraði Vignir Sigurðs-
son fyrsta markið fyrir ÍR
en Páli Rafnsson bxtti
öðru við í upphafi síðari
hálfleiks. Björn Frið-
þjófsson minnkaði mun-
inn en Guðmundur Ingi
Magnússon gulltryggði
sigurinn. ÍR er íslands-
meistari en bæði liöin
leika í 3. deild að ári.
Atli gerði mark
■ Atla Eðvaldssyni tókst að. félagið sitt, Bayer Uerdingen er
skora sitt fyrsta mark fyrir nýja liðið gerði jafntefli gegn
Sá stóri í kvöld
■ í kvöld verður stórleik-
ur í sjöunda riðli Evrópu í
undankeppni HM. Eins og
flestir vita þá er ísland
einmitt í þessum riðli. En
leikurinn í kvöld er á milli
nágrannanna Wales og
Skotlands. Það lið er sigrar
í þessari viðureign er næsta
víst um sæti í Mexíkó.
Nú haia liðin verid valin og líta
þannig út:
Wales: Southall, Jones, Van den
Hauwe, Ratcliffe, Jackett, James,
Phillips, Nicholas, Thomas, Rush
og Hughos. Skotland: Leighton,
Nicol, Gough, Malpas, McLoish,
Miller, Aitken, Strachan, Bett,
Sharp og Speedie.
Staðan í riðlinum:
Skotland ......... 5 3 0 2 7-3 6
Wales............. 5 3 0 2 6-5 6
Spánn ............ 5 3 0 2 7-7 6
ísland ........... 5 1 0 4 3-8 2
breytingum á fyrirkomulagi
Grand Prix mótanna fyrir næsta
keppnistímabil - jafnvel færri
en stærri mót - en ailar breyting-
ar verða að sjálfsögðu að vera
samþykktar hjá auðhringjum er
útvega fjármagnið. Flestir tóku
sjálfsagt eftir að olíufyrirtækið
Mobil styrkti ævintýrið á laugar-
daginn.
Sigahæstu karlar:
1. Doug Padilla, Bandaríkin
2. Mike Franks, Bandaríkin
3. Sergei Bubka, Sovétríkin
4. Calvin Smith, Bandaríkin
Stigahæstu konur:
1. Mary Slanoy, Bandaríkin
2. Stefka Kostadinova, Búlgariu
3. Judi-Brown King, Bandarikin
4. Jarmila Kratochvilova, Tékkósl.
■ Einar Vilhjálmsson, spjótkastarinn stórsnjalli, verður líklega að temja sér hvfldarstellingar fram
eftir vetri.
íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
Titillinn nálgast
- hjá Valsmönnum eftir sigur í Keflavík
■ Valsmenn tróna nú einir á
toppi 1. deildar eftir sigur á
Keflvíkingum á laugardag og
sigur á gömlu erkifjendunum,
KR-ingum á flmmtudag mun
því tryggja það að bikarinn
lendi í safni Valsmanna að Hlíð-
arenda.
Leikurinn á Suðurnesjum
byrjaði fjörlega og Hilmar Sig-
hvatsson og Ingvar Guðmunds-
son áttu báðir færi snemma í
leiknum. Besta færið í fyrri
hálfleik féll þó í skaut Keflvík-
inga en Sævar Jónsson bjargaði
á línu frá Björgvin Björgvins-
syni.
1 síðari hálfleik skora svo
Valsmenn tvö mörk í röð og var
hinn stórskæði Guðmundur
Þorbjörnsson að verki í bæði
skiptin. Fyrra markið kom á 65.
mínútu og sendi þá Valur Vals-
son góðan bolta á Guðmund
sem kom askvaðandi og skoraði
með góðu skoti frá vítateig.
Seinna markið kom 2 mínútum
síðar - eftir mistök í vörn
heimamanna setti Guðmundur
boltann inn af stuttu færi.
Stuttu fyrir leikslok skoraði
svo Ragnar Margeirsson fyrir
Keflvíkinga en allt kom fyrir
ekki - Valur fór heim með stigin
þrjú. GuðmundurÞorbjörnsson
og Heimir Karlsson léku vel
fyrir Val en Gunnar Oddsson
var bestur heimamanna.
Frankfurt, 1-1. Atli lék með
allan leikinn en Lárus Guð-
mundsson var tekinn útaf í hálf-
leik.
Ásgeir Sigurvinsson og félagar í
Stuttgart áttu ekki í vandræðum
með Saarbrucken á heimavelli
sínum. Ásgeir átti þokkalegan
leik og lagði upp eitt marka
Stuttgart í 3-1 sigri.
Það sem búist var við að yrði
stórleikur á milli Bayern og
Hamborgara varð ekki neitt
neitt. Hartmann og Matthaus
skoruðu fyrir Bæjara í 2-0 sigri.
■ Skagastúlkurnar tryggðu sér sigur í 1. deild íslandsmóts kvenna í kattspyrnu á laugardaginn
er liðið sigraði KA 10-0 og ekki orð meira um þann leik. Á þessari mynd má sjá kampakátar
Skagastúlkur ásamt þjálfara sínum Steini Helgasyni og Haraldi Sturlaugssyni formanni
knattspyrnuráðs Akraness.