NT - 21.09.1985, Síða 14
Kvótinn:
3ja ára áætl-
uninni seinkar
■ Útreikningar Hafrannsóknar-
stofnunar, sem sjávarútvegsráðherra
ætlaði að byggja þriggja ára kvótaá-
ætlun sína á og skila átti í gær seinkar
um nokkra daga.
Að sögn Jakobs Jakobssonar, for-
stjóra Hafrannsóknarstofnunar hefur
verkið dregist á langinn en er þó að
skríða saman núna. Sagði hann að
niðurstöðurnar yrðu kynntar ráð-
herra nk. þriðjudag og fjölmiðlum
svo í kjölfar þess.
Nú hækkar
í strætó
■ Frá og með 23. september hækka
fargjöld Strætisvagna Reykjavíkur.
Einstök fargjöld fyrir'fullorðna kosta
nú 25 krónur, farmiðaspjöld með 4
miðum kosta 100 krónur og farmiða-
spjöld með 26 miðum kosta 500
krónur.
Einstök fargjöld barna kosta 7
krónur og farmiðaspjöld með 20 mið-
um kosta 100 krónur. Farmiðaspjöld
aldraðra og öryrkja með 26 miðurn
kosta nú 100 krónur.
Fegrun umhverfis
að færast í vðxt
■ Talsverð aukning hefur verið í trjá-
og runnasölu það sem af er árs miðað við
árið 1984.
Árið 1984 seldust rúmlega 18 þúsund
plöntur en nú í ár hafa selst yfir 20
þúsund plöntur.
Steingrímur Benediktsson starfsmað-
ur Ræktunarstöðvarinnar í Laugardal
sagði að þeir hjá Ræktunarstöðinm rækt-
uðu eingöngu tré og runna fyrir opinber-
ar stofnanir, mest þó fyrir borgarfyrir-
tæki.
Hann sagði að talsverð breyting væri
í þá átt að stjórnendum fyrirtækja þætti
það nauðsyn að fegra og prýða umhverf-
ið og væri það mjög jákvætt.
Steingrímur sagði einnig að talsverð
aukning hafi verið í sölu sumarblóma í
ár, en í fyrra voru seldar um 133 þúsund
plöntur en salan í ár hefur farið yfir 150
þúsund plöntur.
í Ræktunarstöðinni er sem fyrr segir
mikið uppeldi á trjáplöntum og sagði
Steingrímur að mikið væri farið að rækta
í pokum og pottum sem gerði það
hægará að gróðursetja fram eftir öllu
sumri.
Skólafólk er nú horfið af vettvangi og
sagði Steingrímur að nú vantaði fólk, en
fastir starfsmenn væru þó allt árið við
umönnun plantnanna.
Borgarstjórn:
Skúlagötuskipu'
lagið samþykkt
■ Meirihlutinn í borgarstjórn
samþykkti Skúlagötuskipulagið
svokallaða áfyrsta fundi borgar-
stjórnar í fyrrakvöld. Minni-
hlutinn greiddi hins vegar at-
kvæðí á móti.
Samþykktin felur í sér að
skipulagið verður nú auglýst og
verður sent Skipulagsráði ríkis-
ins til skoðunar. Að því loknu
verður það endanlega lagt fyrir
borgarstjórn til samþykktar.
Minnihlutinn lagði fram bók-
un í málinu og Kvennaframboð-
ið flutti tillögu þar sem meðal
annars var kveðið á um að
borgarstjórn hæfi viðræður við
eigendur Kveldúlfsskála með
kaup á húsinu í huga.
Borgarstjórnarfundurinn
stóð í 1J. klukkustundir og
Skúlagötuskipulagið var síðast
á dagskránni og gagnrýndu full-
trúar minnihlutans að umræða
um þetta umfangsmikla mál ætti
sér stað á þessum tíma þegar
íbúar í hverfinu gætu ekki mætt
á áhorfendapalla og borgarfull-
trúar væru allir orðnir kúgupp-
gefnir.
taugardægur 21. —ptmbr 1985 14
-
■ Það stefnir í að 140-150 manns verði verkefnalausir með áframhaldandi verkfalli viðgerðarmanna.
Áburðarverksmiðjan:
Fjöldi starfsmanna
orðinn verkefnalaus
■ „Með þessu áframhaldi ntunu
140-150 manns verða verkefnalausir
hérna í verksmiðjunni vegna véla-
stöðvana," sagði Hákon Björnsson
framkvæmdastjóri Áburðarverk-
smiðjunnar um verkfal! vélaviðgerða-
manna þar.
Að sögn Guðlaugs Þorvalds’sönar
ríkissáttasemjara, hefurennþáekkert
gerst í samningamálum, og enginn
samningafundur hefur verið boðaður.
„Þegar er fjöldi manns orðinn verk-
efnalaushérna vegnaþessaðáburð-
arframleiðsla liggur niðri,“ sagði
Hákon Björnsson einnig. „Við verð-
um að tína eitthvað til handa þeim að
gera, svo menn sitji ekki aðgerðalaus-
ir. Þegar ammoníaksframleiðsla fer
að stöðvast líka, á ástandið eftir að
versna um helming," sagði Hákon að
lokum.