NT - 21.09.1985, Side 23
Laugardagur 21. september 1985 23
íþróttir
Drengjalandsleikur:
Skotar mæta
■ ísland og Skotland leiká
fyrri leik sinn í Evrópukeppni
drengjalandsliða, mánudaginn
23. sept. n.k. á Laugardalsvelli
og hefst leikurinn kl. 17.00.
Lárus Loftsson þjálfari hefur
valið eftirtalda pilta til að taka
þátt í leiknum.
Markmenn:
Orri Ýrar Smárason,
Karl Jónsson
Aðrirleikmenn:
Þormóður Egilsson,
Gísli Bjömsson
Egill Ö. Einarsson
Bjarni Benidiktsson
Selfoss
Þrótti
K.R.
Selfoss
Þrótti, fyrirliði
Stjörnunni
Rúnar Kristinsson K.R.
Steinar Adolísson Vikingi, Ól.
Haraldur Ingóifsson Í.A.
Tryggvi Tryggvason Í.A.
Páll V. Gislason Þór Ak.
ÓlafurViggósson Þrótti, Nes.
Magnúr, Gunnarsson Þrótti
Valdiraar Kristófersson Stjörnunni
Gunnlaugur Einarsson Val
Gunnar Guðmundsson Í.K.
Síðari leikur iiðanna fer fram
í Skotlandi 7. október n.k.
Dómari á mánudaginn er Kurt
Horsted og er sá danskur. Að-
gangur er ókeypis og er fólk
hvatt til að mæta á völlinn.
...Ken Robertson, íþótta-
skrifari á breska blaðinu
Sunday Express, var hér
á ferð um daginn og hafði
góða sögu að segja. Að
kvöldlagi eftir leik Wales-
búa og Skota um daginn
læddust nokkrir skoskir
kappar inn á leikvöllinn í
Cardiff og skáru ósköp
snyrtilega upp vítapunkt-
inn og höfðu með sér á
brott, en á þeim punkti
réðust líklega örlög Skota
því þeim tókst að jafna úr
vítaspyrnu stuttu fyrir
leikslok og tryggja sér
sem næst sæti í næstu
heimsmeistarakeppni...
■ Ólafur Lárusson er einn þeirra handknattleiksmanna er mikið mun mæða á næstu mánuði þvi
handboltavertíðin er að fara í gang.
íþróttir - stjórnmál
■ Forystumenn Ólympíunefnda
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
skrifuðu undir samkomulag um síð-
ustu helgi þar sem kveðið var á um
aukna samvinnu og styrkingu
Óiympíunefnda þessara tveggja
ríkja.
Juan Antonio Samaranch, forseti
Alþjóða Ólympíunefndarinnar, sagði
í Indianapolis, þar sem skjalið var
undirritað, að þessi atburður væri
mikilvægur yfir frekari samskipti risa-
veldanna á íþróttasviðinu.“
Samningurinn kveður á um aukna
samvinnu í íþróttum milli þessara
tveggja þjóða sem á að felast í
heimsóknum til æfingabúða hvorrar
annarar, skiptum á sérfræðingum á
íþróttasviðinu s.s. íþróttalæknum og
þjálfurum o.fl.
Rovert Helmick, forseti banda-
rísku Ólympíunefndarinnar, sagði
m.a.: „Petta samkomulag verður von-
andi til þess að íþróttamenn og konur
frá öllum heimshornum geti mæst
reglulega í keppni.“
Marat Gramov, forseti sovésku
Ólympíunefndarinnar, sagði að skjal-
ið væri „hvatning til alls fólks að
halda vináttu og frið.“
Sovétmenn voru í lokin spurðir
hvort þeir myndu þá mæta á Olym-
píuleikana í Seoul 1988 en svöruðu
því til að sú ákvörðun yrði tekin
þegar þar að kæmi. Þess má geta að
risaveldin mættust síðast á Ólympíu-
leikjum 1976 í Móntreal. Bandaríkin
mættu ekki til leiks 1980 í Moskvu og
Sovétríkin svöruðu fyrir sig með að
hunsa ólympíuleikana í Los Angeles
á síðasta ári.
Íþróttir helgarinnar
■ Já, handboltinn byrjar formlega
um þessa helgi og framundan er stíf
dagskrá og spennandi keppni. í dag
leika í 2. deild H.K. og Grótta og hefst
leikurinn kl. 14.00 í íþróttahúsinu,
Digranesi. A sama tíma leika í Eyjum
Þór og Haukar.
Á morgun byrjar síðan 1. deildin.
F.H. og Valur eigast við í Hafnarfirði
kl. 14.00 og á sama tíma byrjar í
Seljaskóla leikur Fram og Stjörnunnar.
Eftir þann leik keppa svo Þróttur og
Víkingur. í 2. deild leika U.B.K. og
Í.R. kl. 20.00 í Digranesi og í Seljaskóla
keppa Ármann og Afturelding kl.
16.30.
Karfa:
Reykjavíkurmótinu verður fram
haldið í Hagaskóla í dag og á morgun
og það sama er að segja um Reykjanes-
mótið sem haldið er í íþróttahúsinu
Digranesi, Kópavogi.
Knattspyrna:
Fram mætir Glentoran á Laugar-
dalsvelli í dag kl. 13.00 og verður þar
eflaust um hörkuviðureign að ræða.
Kraftlyftingar:
Nú um helgina fer fram í Soest í
V-Þýskalandi heimsmeistaramót ung-
linga í kraftlyftingum og vert er að geta
að þar gæti landinn átt eftir að standa
sig vel. Mótinu lýkur á morgun.
FYRSTA
FISKfUDIS
AISLANDI
í Laugardalshöll dagana 18.-22. september
Alþjóðleg sýning um íslenskt hagsmunamál
Alþjóðlega fiskeldissýningin í Laugardalshöll er fyrsta
sýning sinnar tegundar hér á landi. Hér er fjallað
markvisst um nýja og ört vaxandi atvinnugrein sem
miklar vonir eru bundnar við. Hér finnur þú á einum
stað allt sem máli skiptir fyrir framtíð fiskeldis á íslandi.
Innlendir og erlendir aðilar kynna framleiðslu sína,
varpað er Ijósi á þá möguleika sem fyrir hendi eru og
gefið er yfirlit yfir þær leiðirsem færareru að settu marki.
Markmiðið með sýningunni er að hjálpa mönnum að
finna bestu leiðina, hvetja athafnamenn til dáða og vekja
sem flesta til umhugsunar um þau miklu tækifæri sem
bíða okkar í fiskeldi hér á landi.
Meðal þess sem kynnt er:
Rafeindabúnaður til mælingar, •
flokkunar og eftirlits
Tölvustýrðir fóðurgjafar •
Tankar, búr og ker •
Lyf og lækningatæki •
Öryggisbúnaður •
Hreinsibúnaður og dælur •
Teljarar, vogir og mælar •
Óryggis- og burðarnet •
Flotbúnaður, þéttibúnaður og skilrúm •
Gæðaeftirlitsbúnaður •
Ráðgjafarþjónusta ■
Myndbandakynningar ■
Svæðakynningar ■
Jarðvarmanýting ■
Landnýting ■
Sýningarsvæðið í Laugardalshöll
Smakkið afurðirnar!
Til að gefa gestum færi á að
kynnast því ágæta hráefni sem
eldisfiskurinn er, munu
matreiðslumeistarar frá Gauki á Stöng
bjóða upp á gómsæta rétti þar sem
eldisfiskurinn er í aðalhlutverki.
Sýningin stendur aðeins í 5 daga
Sýningin stendurfrá 18.-22. september
ogeropinfrákl. 11.00 - 19.00
alla sýningardagana.
JÍe „n
#
Industrial and Tfade Fairs International Limited