NT - 13.11.1985, Qupperneq 3
Miðvikudagur 13.' nóvember 1933' *' 3
't:
■ Hópurinn sem um helgina setti heimsmet í hringtorgsakstri ásamt fararskjót-
anum: í efri röð er Ágúst Ólafsson, Aðalsteinn Þórarinsson og Sigurður S.
Pálsson. í neðri röð eru Sigurður Þorsteinsson, Steingrímur Biarnason og Björn
Ingi Stefánsson.
Heimsmet í
hringakstri
■ Glæsilegt heimsmet í hringtorgs-
akstri var sctt á Hagatorgi í Reykja-
vík um helgina, en á laugardag og
aðfaranótt sunnudags óku sex
nemendur úr MR skódabifreið 1866
hringi um torgið á 15 tímum, 552
km alls.
Ekki er vitað til að keppt hafi verið
áður í þessari grein og því hafa
vottfestar upplýsingar um afrekið ver-
ið afhentar Örlygi Hálfdánarsyni
bókaútgefanda, en hann er fulltrúi
Heimsmetabókar Guinnies hér á
landi.
Þing VMSÍ:
Kjaramálin
efst á baugi
■ Kjaramálin og þá einkum samn-
ingarnir upp úr áramótum verða
aðalmál 12. þings Verkamannasam-
bandsins, sem haldið verður um
næstu helgi á Hótel Loftleiðum. Þá
verða skipulagsmál sambandsins
einnig til umræðu.
Þinghald hefst að morgni föstu-
dagsins 15. nóvember og lýkur síð-
degis sunnudaginn 17. nóvember.
Auk kjaramála og skipulagsmála
verður dagskrárliður um fiskiðnaðinn
og framtíð hans og munu þeir Magnús
Gústafsson, forstjóri Coldwater og
Árni Benediktsson, forstjóri Fram-
leiðni, flytja erindi og svara fyrir-
spurnum.
Þá verða einnig fastir dagskrárliðir
eins og skýrsla stjórnar, fjárhagsáætl-
un og kosning stjórnar sambandsins
fyrir næsta kjörtímabil á dagskrá
þingsins.
Yfirlýsing frá áhugamönnum um úrbætur í húsnæðismálum:
Þingmenn: nú verður
fylgst með ykkur!
■ „Þingmenn: nú verður fylgst með
ykkur. Það er kominn tími til þess að
almenningur komi siðferðilegum
böndum á svikula stjórnmálamenn."
Þetta er yfirlýsing áhugamanna um
úrbætur í húsnæðismálum, sem
kynntu viðhorf sín á fundi með frétta-
mönnum í gær. Húsbyggjendur gera
þá kröfu til stjórnmálamannanna að
þeir efni þegar fjölmörg loforð sín um
úrbætur þeim til handa. M.a. vilja
þeir fara að sjá eitthvað af þeim
peningum sem aflað var með sölu-
skattshækkun s.l. vor-sem ekki kom
síst niður á lántakendum.
Tillögur „húsnæðishópsins" eru
þær að leiðréttingar á greiðslubyrði
húsbyggjenda umfram forsendur þeg-
ar lánin voru tekin, verði með
tvennum hætti. Annarsvegar með
skattafslætti og hins vegar með skuld-
breytingum á almennum bankalán-
um. Varðandi síðari tillöguna erfarið
fram á að ríkisvaldið sjái til þess að
lánum húsbyggjenda og kaupenda í
bönkum verði skuldbreytt til a.nr.k.
15 ára, og /eða að Húsnæðisstofnun
veiti aukin skuldbreytingarlán til
sama tíma.
„Húsnæðishópurinn1- bendir á hve
gífurleg áhrif hækkun raunvaxta hafi
á greiðslubyrði af lánum, sérstaklega
langtímalánum. Sem dæmi er tekin
afborgun af einnar milljón króna
láni til 20 ára, með 50 þús. króna
afborgun á ári. Væru vextir 2,5%
(eins og þeir voru á árunum 1980-
1982) væri afborgun og vextir 75 þús.
krónur á ári. Með 5% vöxtum, eins
og nú tíðkast fer afborgunin upp í 100
þús., þ.e. hækkar um þriðjung. Færu
vextirnir í 10% yrði ársgreiðslan 150
þús. eða tvöfalt hærri en með 2,5%
vöxtunum.
Bent er á að fjölgun nauðungar-
uppboða og nýuppkomin okurglæpa-
mál sýni svart á hvítu að ríkisstjórnin
hafi engan vanda leyst. Þvert á móti
hafi í skjóli hennar dafnað okurlána-
markaður og af fréttum megi ráða að
ríkisstjórnin stefni að enn frekara
vaxtaokri á almenningi. Húsnæðis-
hópurinn tekur því undir framkomna
tillögu á Alþingi um frestun nauðung-
aruppboða og gerir þá kröfu til
þingmanna að þeir hætti ábyrgðar-
lausu orðagjálfri og snúi sér að al-
vörulausn þessa vanda.
Samkomulag um skatt-
greiðslur álversins
Eigið fé ISAL aukið um tæpa tvo milljarða
■ Samkvæmt nýjum samningi serr
Albert Guðmundsson, iðnaðarráð-
herra, og dr. Dietrich Ernst, fram-
kvæmdastjóri Alusuisse undirrituðu
á mánudagskvöldið um endurskoðun
á ákvæðum um framleiðslugjald
ÍSAL, eiga öll deilumál íslensku
ríkisstjórnarinnar og Alusuisse að
vera úr sögunni.
Samkvæmt samningnum á að taka
upp nýjar reglur við útrcikning á
nettóhagnaði ISAL og verða notuð
sérstök viðmiðunarverð til að
ákvarða söluverð á áli frá bræðslunni
og kostnaðarverð á súráli og rafskaut-
um til bræðslunnar í skattalegu tilliti.
Þessar reglur á að endurskoða á fimm
ára fresti.
Þá mun Alusuisse auka eigið fé
fyrirtækisins um 1,8 milljarð króna
og ákvæði um eignamat og afskriftir
af fastafjármunum veröa endurskoð-
uð.
Félagið mun halda áfram að greiða
lágmarksskatt, sem svarar til 20
bandaríkjadollurum á hvert tonn af
áli frá bræðslunni við útskipun og án
tillits til hagnaðar. Skattur umfram
þetta lágmark verður greiddur árlega
með hliðsjón af hagnaöi.
Verndun Mývatns:
Stöðva starfsemina
Hæstiréttur:
stofni hún lífríkinu í hættu
Fékk 10 mánaða
fangelsi fyrir
innbrot og fals
■ Hæstiréttur kvað nýlega upp
dóm yfir konu og sambýlismanni
hennar sem þráfaldlega höfðu
gerst brotleg við hegningarlögin.
Ýmist unnu þau saman, eða sitt í
hvoru lagi með öðum einstakling-
um. Stúlkunni var gefið að sitja í
fangelsi í 10 mánuði og mannin-
um í sex mánuði. Brot þeirra
voru: Innbrot, skjalafals - þar
sem nafn ábekinga var falsað,
ávísanafals úr nokkrum tékkheft-
um. Þá hafði stúlkan slegið eign
sinni á veski sem hún fann á
Austurvelli, en í því voru pening-
ar og skilríki, ásamt ávísunum.
Stórfelldasta brot konunnar var
iinnbrot í Kaupfélag Hafnarfjarð-
ar og í félagi við annan, stolið
þaðan peningaskáp sem innihélt
175 þúsund krónur í peningum og
ávísunum.
Skaðabótakröfur voru gerðar á
hendur ákærðu frá hinum ýmsu
fyrirtækjum. Hæst var krafa
Kaupfélaes Hafnarfjarðar, eða
tæp 160 þúsund.
■ Framhaldsstofnfundur Samtaka
um verndum Mývatns, var haldinn sl.
laugardag og voru lög og stefnuyfir-
lýsing samtakanna samþykkt á
honum.
í stefnuyfirlýsingu samtakanna seg-
ir m.a., að bendi rannsóknir á lífríki
Mývatns til þess að námagröftur úr
botni þess, starfræksla efnaverk-
smiðju á bökkunum, röng stjórnun á
framrennsli, eða önnur starfsemi við
vatnið, stofni lífríki Mývatns eða
umhverfis í hættu, beri þegar í stað
að stöðva starfsemina.
Þá segir að samtökin séu þess
fullviss, að lífríki Mývatns sé svo
ý einstakt og dýrmætt, að óafsakanlegt
sé að setja það í hættu af mannavöld-
um.
Markmiðum sínum hyggjast sam-
tökin ná með því að leita aðstoðar
áhugamanna, stofnana og samtaka
um náttúru- og umhverfisvernd, inn-
lendra sem erlendra, svo og með því
að kynna málstaðinn.
INNKAUPASTJORAR -
KAUPMENN
Nýkomiö mikið úrval af
gjafakössum í Old Spice -
Blue Stratos og Desert Flower -
Silver Plett og aðrar
gjafavörur í miklu úrvali
Heildverslun
PÉTUR PÉTURSSON
Suðurgötu 14,
Símar 21020 oa 2510-«
r