NT - 13.11.1985, Blaðsíða 7
fílíT Miðvikudagur 13. nóvember 1985 7
IlIÍ Útlönd
EBE veitir fé
tilnýrrarorku
Brussd-Keuter:
Orkumálaráðherrar Efnahags-
bandalags Evrópu ákváðu nú í
vikunni að veita sem svarar tólf
milljörðum íslenskra króna á
næstu fjórum árum til þróunar
á orkulindum sem geti komið í
staðinn fyrir olíu, kol og
jarðgas.
Orkuþróunaráætlunin, sem
nær yfir tímabilið 1986 til 1989
hefur það markmið að gera ríki
Efnahagsbandalagsríkj anna
ekki eins háð olíu og nú er. Það
verður meðal annars gert með
því að styðja orkusparnað og
þróun nýrrar tækni til að breyta
föstum efnum í fljótandi elds-
neyti.
Ráðherrarnir samþykktu að
það skyldi leyfilegt að bæta allt
að 5% af vínanda og 3% af
metanóli í bensín til að spara
olíu. Stjórnvöld í ríkjum EBE
vonast til þess að þetta verði til
að minnka sykur- og kornfjallið
í bandalaginu þar sem nú sé
hægt að brugga áfengt eldsneyti
úr þeim.
Júgóslavar vilja
fá kjarnorkuver
Bclgrad-Rcutcr:
■ Júgóslavar stefna að því að
reisa fjögur kjarnorkuver sem
framleiði samtals 4000 mega-
wött af rafmagni fyrir lok þess-
arar aldrar. Þeir hafa þegar
hafið samningaviðræður við er-
lend kjarorkufyrirtæki um smíði
á verunum sem talið er að muni
kosta um tíu milljarða dollara
(420 milljarða ísl. króna.)
Smíði kjarnorkuveranna er
liður í áætlun Júgóslava um
rúmlega tvöföldun raforku-
framleiðslunnar úr 19.000
megawöttum í 41.000 við lok
þessarar aldar.
Stjórnvöld í Júgslavíu segja
þessa miklu aukningu raforku-
framleiðslunnar nauðsynlega til
þess að Júgóslavar geti aukið
framleiðslu sína á öðrum svið-
um nægjanlega mikið til að
greiða eriendar skuldir sínar
sem nú nema 20 milljörðum
dollara (580 milljarðar ísl. kr.).
Milan Pavicevic yfirmaður
kjarnorkuþróunarnefndar
Júgóslava segir að stefnt sé að
því að hefja smíði fyrsta kjarn-
orkuversins árið 1987, vinna við
annað kjarnorkuverið hefjist
1991, hið þriðja árið 1994 og hið
fjórða árið 1996.
Tékkar
óttast
guðsorð
Vín-Reuter
■ Tékkneska lögreglan
handtók fyrir nokkru tvo
slóvakíska nemendur fyrir
að hafa biblíur fyrir börn
og önnur helgirit í bíl
sínum að sögn fréttastofu
austurrískra kaþólika,
Kathpress.
Biblíurnar fundust við
venjulega umferðarskoð-
un í ágúst síðastliðnum.
Annar stúdentinn, sem
heitir Marek Rohacek, var
látinn laus eftir þriggja
daga varðhald en að sögn
Kathpress hefur lögreglan
hinn stúdentinn, Jan
Vecan, enn í haldi.
Tékknesk yfirvöld eru
nú að kanna hvort stúd-
entarnir hafi verið að
dreifa ólöglegum bók-
menntum í Tékkóslóvak-
íu. Auk biblíunnar fann
lögreglan m.a. tékkneskar
þýðingar á ræðum banda-
ríska klerksins Billy
Grahams.
Tékkneska ríkið hefur
einokun á allri útgáfu
trúárrita í Tékkóslóvakíu
og eru þau ritskoðuð ræki-
lega og upplag þeirra veru-
lega takmarkað.
■ Þessi mynd var tekin af halastjörnu Halleys með sjónauka fyrir
skömmu. Nú er að styttast í að við getum séð hana með berum
augum og hafa augnfráir stjörnufræðingar nú þegar komið auga á
hana.
Halastjarna
Halleys sést
án sjónauka
Pasaden-Rculcr:
■ Bandarískir og brcskir
stjörnufræðingar hafa greint
halastjörnu Halleys ntcð ber-
um augum frá stjörnuathugun-
Kaliforníu og á Hawai nú í
vikunni.
Halastjarna Halleys kentur
í námunda við jörðina á 76 ára
fresti. Hún er nú að nálgast
arstöðum á fjallstindum í aftur og hafa stjörnufræðingar
Tækniræktun slæm fyrir
áburðar- og eituriðnað
Genf-Reuter
■ Alþjóðasamtök verkalýsðfé-
laga, ILO, sem hafa höfuðbæki-
stöðvar í Genf, segja að háþró-
uð tækniræktun með aðstoð líf-
tækni geti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir Iönd sem flytji
mikið út af landbúnaðarvörum
og fyrirtæki sem framleiði áburð
og skordýraeitur.
Þetta kemur fram í grein sem
birtist í álgagni samtakanna,
sem heitir Alþjóðavinnutíma-
ritið (International Labour Re-
view). Þar er m.a. bent á að
takist Sovétmönnum að fram-
leiða nægjanlega mikið dýrafóð-
ur fyrir innanlandsmarkað með
líftækniaðferðum muni slíkt
óhjákvæmilega hafa í för með
sér alvarlegar afleiðingar fyrir
kornútflytjendur í Bandaríkj-
unum og fíeiri ríkjum.
ILO bendir á að framleiðsla á
.gervisykri hefur þegar valdið
sykurframleiðendum í ríkjum
þriðja heimsins miklu tjóni þar
sem eftirspurn eftir náttúruleg-
um sykri hafi minnkað ogsykur-
verð lækkað.
Nýjar tegundir korns og
matjurta, sem séu ónæm fyrir
sjúkdómum og árásum skor-
dýra, Ieiða til eflingar landbún-
aðar í þróunarríkjunum en þær
munu valda efnaiðnaðinum í
þróuðum iðnríkjum tjóni þar
sem eftirspurn eftir skordýra-
eitri og áburði minnki.
fylgst með henni í sjónaukum
en þetta er í fyrsta skipti sem
þeir sjá hana með berunt aug-
um.
Halastjarnan verður næst
jörðinni þann 11. apríl á næsta
ári í um 39 milljón ntílna
fjarlægð. Hún sést venjulega
ekki með berum augum nema
í tvo til þrjá mánuði en
stjörnufræðingarnir gátu
greint hana þar sem þeir voru
á tveggja til þriggja kólómetra
háum fjöllum. Þeir segja að
líklega hafi útgeislun frá hala-
stjörnunni líka verið óvenju-
lega mikil af einhverjum
ástæðum svo að hún varð sjá-
anleg.
Líbería:
Herforingjar
í valdaslag
Abidjan-Reutcr
■ Thomas Quiwonkpa hers-
höfðingi gerði í gær tilraun til að
steypa stjórna Samuels Doe í
Líberíu. Svo virðist sem tilraun-
in hafi mistekist og hersveitir,
sem styðja Doe, hafi tekist að
bæla uppreisnina að mestu
niður.
Erlendir fréttamenn í Líberíu
segja að Quiwonkpa sé einn af
örfáum herforingjum sem enn
njóti almennra vinsælda.
Almenningur sé fyrir löngu
búinn að fá nóg af öðrum her-
foringjum sem sói opinberu fé
og lifi í vellystingum þrátt fyrir
efnahagsörðuleika ríkisins.
Stuðningsmenn Quiwonkpa
náðu þremur útvarpsstöðvum í
Líberíu á sitt vald í fyrrinótt og
tilkynntu að þeir hefðu steypt
stjórnini og frelsað íbúa Líber-
íu, sem eru tvær milljónir
undan „ótta og grimmd.“
Margir íbúar höfuðborgar-
innar, Monroviu, fögnuðu til-
kynningunni um stjórnarskiptin
með því að safnast saman fyrir
framan höfuðstöðvar Athafna-
flokksins sem sagt er að hafi
fengið stuðning mcirihluta kjós-
enda í kosnigum í seinasta
mánuði.
Stjórnvöld halda því hins veg-
ar fram að Doe hafi fengið 51%
atkvæða og sé því réttkjörinn
forseti. Erlendir sendiráðs-
starfsmenn og fréttamenn, sem
urðu vitni að stórfelldum kosn-
ingasvikum, eru flestir sammála
um að Doe njóti ekki stuðnings
almennings.
Doe komst fyrst til valda með
vopnaðri hallarbyltingu fyrir
fimm árum sem batt enda á 133
ára samfellda stjórn afkomenda
svartra leysingja sem komu frá
Bandaríkjunum.
Quiwonkpa, sem einnig tók
þátt í byltingu hersins 1980,
nevddist til að flýja land í októ-
Samuel Doe heldur völdum með stuðningi hersins en ekki
margra kjóscnda.
ber 1983 eftir að hann gagnrýndi
spillingu annarra hershöfðingja.
Þá setti Doe 10.0000 dollara
'NEWS IN BRIEF
November 15. - Reuter
ABIDJAN - Troops loyal
to Liberian leader Samuel
Doe were fighting back
after an exiled former
armed forces Chief of
Staff said he had seized
power in the West African
nation. Diplomats in
Monrovia said the situa-
tion was confused and it
was not clear who was in
control.
•
GENEVA - The Uniteds
States and the Soviet Un-
ion have abandoned eff-
orts towards significant
agreement on arms con-
trol issues at their summit
next week, President
Ronald Reagan’s special
adviser on arms said.
WASHINGTON - Presi-
dent Reagan will raise
human rights issues at the
summit with Soviet leader
jj- Mikhail Gorbachev next
g week and express concern
Sr about specific cases, a top
^ U.S. ofiicial said.
WARSAW - Polish
* Prime Minister Zbigniew
^ Messner unveiled a slim-
med-down government
| with new ministers in key
posts which he said would
give priority to the coun-
try’s economic revival.
' OSLO - British secret ag-
ents smuggled KGB def-
ector Oleg Gordievsky out
of the Soviet Union days
aftir he acted as top advis-
er during Soviet leader
Mikhail Gorbachev’s visit
to Britain last year, West-
ern intelligence sources
said.
|j|
S
u
(400.000 ísl. kr.) til höfuðs hon-
um og ásakaði hann um bylting-
artilraun.
PARIS - The develop-
ment of „Star Wars“ we-
aponry will create an int-
ernational security crisis
over the next few decades
and could increase the risk
of war, French Defence
Minister Paul Quiles said.
•
LONDON - Britain’s
conservative government
opted for higher public
spending and a consumer
spending boom to revitalize
the economy before the
next election.
MOSCOW - A Soviet
peace activist said she was
thrown into an insect in-
fested police cell and thre-
atened with psychiatric
treatment unless she gave
up her independent camp-
aigning.
•
BONN - West Germans
marked the 30th annivers-
ary of the creation of their
armed forces with cerem-
onies and protests. Secur-
ity was stepped up after a
bomb exploded earlier at
a regional military he-
adquarters in the southern
town of Neustatt.
•
J OH ANNESBURG - So-
uth Africa’s major non-
mining firms have seen
their frofits plunge as the ‘
worst post-war recession,
almost two years of rioting
| and growing world antag-
onism towards the rep-
1 ublic take their toll.
i' •
DUBLIN - Speculation
I mounted that a meeting
|i between Irish and Brítish
I leaders to announce a new
agreement on Northem
I Ireland could be held
, within days.
NEWSINBRIEFA