NT - 13.11.1985, Page 11

NT - 13.11.1985, Page 11
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 11 Smáfréttír Einn fremsti listsýningaflokkur Kína kemur til íslands: ■ Einn frægasti dans- og tónlistaflokkur Kínverjar er nú staddur hér á landi, Shaanxi- listsýningaflokkurinn. Hann sérhæfir sig í tónlist og dönsum frá tímabili Tang-keisaraættar- innar sem var uppi í Kína fyrir meira en þúsund árum. Dansarar og tónlistarmenn í listsýningaflokknum eru sam- tals á fjórða tug. Þeir munu halda tvær sýningar í Þjóð- leikhúsinu á morgun fimmtu- daginn 14. nóvember og föstu- daginn 15. nóvember. Flokkurinn er nú á miklu sýningarferðalagi um Evrópu. Hingað kemur hann frá Kaup- mannahöfn og hann fer héðan til Oslóar. Shaanxi-listsýningaflokkur- inn var stofnaður árið 1940 í Shaanxi-héraði í Mið-Kína en þar er einmitt borgin Xian (frb. Sían) sem er ein elsta höfuðborg Kínaveldis. Xianborg var helsta miðstöð menningar og lista í Kína á tíma Tang keisaranna sem ríktu á árunum 618 til 907 en þá voru norrænir menn að nema land á íslandi. Xianborg var ein af fjölmenn- ustu borgum heims á tímum Tang-ættarinnar. Þá voru skráð- ir íbúar í borginni nær tvær milljónir og séu úthverfi talin með hafa þeir líklega verið ennþá fleiri. Tang-keisararnir lögðu mikla rækt við listir. Margir telja að valdatími þeirra marki hátind kínverskrar menningar. Skáld og málarar voru hafðir í meiri hávegum en stjórnmálamenn og embættis- menn þeir sem stjórnuðu ríkinu og tónlist og dansar þróuðust mikið. Mörg málverk og ljóð hafa varðveist frá Tang-tímabilinu en tónlist og dansar hafa hins vegar fallið í gleymsku. Lista- menn við Shaanxi-flokkinn ákváðu þess vegna árið 1981 að leggja höfuðáherslu á að endur- reisa tónlist og dansa Tangkeis- aranna. Þeir fengu handritagrúskara, fornleifafræðinga og þjóðhátta- fræðinga til að aðstoða sig og tókst þannig að ráða meira en þúsund ára gamlar nótnabækur með Tang-tónlist og endurgera dansa með því að styðjast við lýsingar í fornum ritum og þjóð- dansahefð í Shaanxi-héraði. Fornleifafræðingar og tónlist- arfræðingar aðstoðuðu við endursmíði gamalla hljóðfæra og búningar voru sniðnir eftir málverkum og fornum lýsingum á hirðlífi Tang-keisaranna. tónlist hafi dofnað nokkuð á undanförnum árum vegna áhrifa vestrænnar menningar hefur fólk þyrpst á sýningar Shaanxi- flokksins og margir hafa orðið frá að hverfa. Flokknum hefur því tekist það ætlunarverk sitt að endurvekja áhuga fyrir kín- verskri dans- og tónlistarhefð í Kína. Sum tónverkanna, sem hóp- urinn flytur eru frá Tang-tíma- bilinu en önnur eru ný verk sem kínversk tónskáld hafa gert í stíl Tang-tónlistar. Shaanxi- flokkurinn reynir að flytja tón- listina þannig að hún verði sem líkust því sem hún hljómaði fyrir þúsund árum en smávægi- legar breytingar á samhljóman hafa samt reynst nauðsynlegar til að gera tónlistina ekki of framandi fyrir eyru nútíma- manna. Dansarnir sem flokkurinn sýnir eru aðallega byggðir á þjóðdönsum og hafa kínverskir fræðimenn og listamenn reynt að endurvekja með þeim and- rúmsloft hirðsýninga viö hirð Tang-keisaranna. Það er ólíklegt að íslending- um gefist á næstu árum aftur tækifæri til að horfa og hlusta á forna dansa og tónlist sem bygg- ir á jafn auðugri menningarhefð og dansarnir og tónlistin sem Shaanxi-flokkurinn býður okk- ur upp á. Miðasala á sýningarnar hefj- ast á morgun. RB Tilraun Shaanxi-Iistsýninga- flokksins til að endurvekja Tang-menninguna í dansi og tónum vakti gífurlega athygli í Kína. Þótt áhugi almennings fyrir hefðbundinni kínverskri Þúsund ára tónlist og dansar í Þjóðleikhúsinu Raungreinaskólinn - nýr einkaskóli ■ Nýr einkaskóli - Raun- greinaskólinn - er tekinn til starfa í Reykjavík. Raungreina- skólinn býður einstaklingum jafnt sem hópum upp á hvers konar námsaðstoð í raungrein- um; stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði. Aðstoð er veitt í hvaða efni sem vera skal innan fyrrnefndra greina á framhalds- og háskólastigi og er hægt að komast í skólann með stuttum fyrirvara. Raungreinaskólinn er til húsa í Hafnarstræti 15. Húsnæðisstofnun: Tölvuvædd ráðgjafarþjónusta ■ Húsnæðisstofnun ríkisins hefur komið á laggirnar ráð- gjafastöð fyrir húsbyggjendur og íbúðakaupendur, þar sem hægt er að leita aðstoðar við áætlanagerð um fjármögnun húskaupa. Við áætlanagerðina er notað tölvuforrit, sem starfs- menn stofnunarinnar hafa þró- að á undanförnum árum og er með því hægt að reikna út greiðslubyrði og gjaldþol kaup- anda jafnt til langs tíma sem og skamms. Forstöðumaður Ráðgjafa- stöðvarinnar er Grétar J. Guðmundsson, verkfræðingur en auk hans starfar viðskipta- fræðingur við stöðina. Ráðgjafastöðin kemur í fram- haldi af þeirri ráðgjafaþjónustu sem Húsnæðisstofnun starfrækti síðastliðið sumar. Þá leituðu aðstoðar hátt í þriðja þúsund manns vegna fjárhagsvanda við húsnæðiskaup. Auk þess að veita ráðgjöf mun Ráðgjafastöðin gefa út fræðslurit, bæði á sviði fjár- mögnunar, húsnæðiskaupa og tæknilegs efnis, einsog um hag- kvæmni í húsbyggingum og leið- ir til sparnaðar, bæði á sviði hönnunar og búnaðar húsa. Samvinnu skólinn þrítugur ■ Samvinnuskólinn varð þrí- tugur 22. okt. sl. Nemendafélag Samvinnuskólans minntist af- mælisins með því að fá Gunnar Grímsson fyrrum yfirkennara til að segja frá fyrstu árum skólans og séra Guðmund Sveinsson fyrrverandi skóla- stjóra. Flestir nemendur skól- ans voru staddir á Bifröst þar með nemendur Framhalds- deildarinnar í Reykjavík, auk fjölda gesta. Ráðstefna um húsmæðraorlof ■ Stjórn Landsnefndar orlofs húsmæðra efnir til ráðstefnu að Hótel Esju sunnudaginn 10. nóvemberog hefst hún kl. 10.00 f.h. Ráðstefnan er haldin sant- kvæmt heimild í lögum um orlof húsmæðra, þar segir að heimilt sé að verja nokkurri fjárhæð þriðja hvert ár til ráðstefnu- halds, er hafi það hlutverk, að samræma fyrirkomulag orlofs- ins og kynna starfshætti á hinum ýnisu orlofssvæðum. Héraðssambönd Kvenfélaga- sambands íslands kjósa orlofs- nefndir hvert í sínu umdærni. Þessar nefndir eru 39 víðsvegar um landið og hefur fjöldi full- trúa nú þegar tilkynnt þátttöku. Starfsemi orlofs húsmæðra samkvæmt lögum þar um hefur verið fastur liður í þjóðlífinu á þriðja áratug. Orlofið er eftir- sótt og mikilsmetið af húsmæðr- um og fjölskyldum þeirra. Nú þegar fram eru að koma áhuga- verðar hugmyndir um að meta til fjár og launa þau mikilvægu störf sem unnin eru á heimilun- um - þá sést að lögin um orlof húsmæðra cru fyrstu spor og viðleítni löggjafans til að koma á móts við húsmæður sem starfs- hóp og viöurkenning á gildi starfa þeirra í þágu þjóðarheild- arinnar. Orlof húsmæðra hefur starfað frá því að fyrstu lögin tóku gildi árið 1960. (Fréttatilkynning) Skora á Al- þingi að fara að lögum ■ Aðalfundur Öryrkjabanda- lags íslands var haldinn í Reykjavík 26. október sl. I skýrslu formannsstjórnar, Vilhjálms Vilhjálmssonar, kom m.a. fram að í fjárlögum næsta árs væri gert ráð fyrir að veitt yrði 80 milljónum króna í framkvæmdasjóð fatlaðra, en samkvæmt lögum um málefni fatlaðra ættu tekjur hans á næsta ári að nema um 200 milljónum. í ályktun fundarins var skorað á Alþingi að fara að lögum um framkvæmdasjóð fatlaðra. Þá kom fram gagnrýni á þann hátt sem hafður hefur verið á uppbyggingu grunnskóla- menntunar fatlaðra, en fé til þess málaflokks hefur verið tek- ið úr framkvæmdasjóðnum. Töldu fundarmenn að fjár- magna ætti nám fatlaðra á sama hátt og almennt grunnskólanám hér á landi. Á fundinum var Landssam- tökum áhugamanna um floga- veiki veitt aðild að Öryrkja- bandalaginu og eru því aðildar- félög þess orðin 14. Vilhjálmur Vilhjálmsson var endurkjörinn formaður stjórnar og Arnþór Helgason var kjörinn varaformaður Öryrkjabanda- lags íslands. Sinfóníuhljómsveitin: Helgartónleikar - ný tónleikaröð ■ Ein af nýjungum í starfi S.í. á þessu starfsári er ný tónleika- röð er nefnist Helgartónleikar. í þessari tónleikaröð verða fern- ir tónleikar á starfsárinu, ávallt á laugardögum, og er leitast við að hafa efnisskrána fjölbreytta og aðgengilega. Fyrsu tónleikarnir í þessari tónleikaröð sem bera yfirskrift- ina „Leikhústónlist", verða n.k. laugardag í Háskólabíói og hefj- ast kl. 17.00. Efnisskrá þessara tónleika verður sem hér segir: F. Mendelssohn - Bartholdy: Draumur á Jónsmessunótt, for- leikur G. Verdi: Pieta, rispetto, am- ore. Aríur úr óperunni Aida G. Verdi: Sigurmars úr óper- unni Aida. G. Verdi: Per me giunto. Aría úr óperunni Don Carlos. HLE _ G. Donizetti: Come paride vezzoso. Aría úr op. Ástar- drykkurinn. U. Giordano: Nemico della patria. Aría úr op. Andrea Chenier. B. Britten: Fjórar sjávarmyndir úr óperunni Peter Grimes. Stjórnandi tónleikanna er Jean-Pierre Jacquillat. Óþarfi er að kynna hann íslenskum tónleikagestum því hann hefur verið aðalstjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar íslands síðan 1980 og unnið með henni mikið og gott starf. (Fréttatilkynning) Akureyri: Konur ánægðar með kvennafríið ■ Samstarfshópur ’85 á Akur- eyri vill færa öllum þakkir sem gerðu kvennafrídaginn 1985 möuglegan, bæði þeim sem lögðu fram fé og þeim sem unnu að undirbúningi hinna ýmsu þátta. í frétt frá hópnum segir að um tvö þúsund konur víðs vegar af Norðurlandi hafi tekið þátt í dagskrá dagsins sem var viða- mikil og tók yfir allan daginn. Þá fagnar hópurinn þeirri samstöðu sem náðist um að vekja athygli á kjörum kvenna og hópurinn skorar á konur að halda vöku sinni og segir að kjarabarátta kvenna sé rétt að byrja. Einkunnarorð Samstarfs- hópsins á Akureyri var: Konur, sýnum - kynnum - krefjumst. Umferðin í brennidepli ■ Á aðalfundi foreldra- og kennarafélags Réttarholtsskóla sem haldinn var nýlega urðu miklar umræöur um umferð- armál í skólahverfinu. Fram kom á fundinum að umferð við Bústaðaveg hefur farið vaxandi undanfarin ár og nú fara um fjórtán þúsund bílar á dag hjá verslunarhúsinu Grímsbæ, en fyrir fimm árum fóru tíu þúsund bílar um á sama stað. Fundurinn tekur undir þá til- lögu Umferðarnefndar Reykja- víkur að banna beri vinstri beygju frá Reykjanesbraut (Breiðholtsbraut) og inn á Bú- staðaveg. Þá taldi fundurinn að lagfæra þurfi aðkontuna að Réttarholtsskóla frá Réttar- holtsvegí og jafnframt að setja upp hraðahindranir á Bústaða- veg þegar nýja Bústaðavegsbrú- in yfir Kringlumýrarbraut verð- ur tekin í gagniö. Fundurinn vill eindregið benda borgaryfirvöldum á að halda skólahúsnæði Réttar- holtsskóla betur við en nú er gert og benti á að þakið væri hriplekt og húsnæðið lægi því undir skemmdum. Ný stjórn var kosin á fundin- um og er formaður hennar Eið- ur Guðnason alþingismaður.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.