NT - 13.11.1985, Page 19

NT - 13.11.1985, Page 19
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 19 Sundmet ■ Fjögur unglingamet voru sett á innanfélags- móti Bolvíkinga í sundi sem haldiö var í sundhöll Hafnarfjaröar í fyrradag. Mótiö var haldið í Hafn- arfirði þar eð ekki er lögleg laug í Bolungarvík. Kolbrún Ylfa Gissurar- dóttir frá Selfossi setti tvö met. Hún bætti met Þórunnar Guðmunds- dóttur frá því árið 1983 í 200 m baksundi telpna. Kolbrún synti á 2:36,2 en metið var 2:38,6. Þá bætti hún met Þórunnar Héð- insdóttur frá 1979 í 50 m baksundi. Kolbrún synti á 33,4 en metið var 33,9. Bryndís Ólafsdóttir úr Þorlákshöfn bætti met Maríu Gunnbjörnsdóttur frá ÍA í 50 m flugi stúlkna. Bryndís synti á 31,4 en María átti 31,56 síðan 1982. Loks bætti Hannes Már Sigurðsson úr Bol- ungarvík sitt eigið met í 50 m flugi drengja. Hann synti nú á 29,50 en átti 30,3 síðan 1984. Snorri til Reynis ■ Sandgeröingar hafa ráðið Snorra Rútsson sem þjálfara fyrir 3. deildarlið sitt í knatt- spyrnunni. Skrifað var undir samninga í gær. Snorri kom Einherja frá Vopnafirði uppí 2. deild síðastliðið sumar og munu Reynismenn ör- ugglega stefna þangað á næsta ári. Snorri, sem var einn af aðalmáttar- stólpum varnar Vest- mannaeyinga um langt árabil, mun leika með Sandgerðingum auk þess að þjálfa liðið. Hinn sterki varnarmaður Júl- íus Jónsson hefur nú lagt skóna á hilluna og mun Snorri sjálfsagt taka stöðu hans í vörninni. Undankeppni HM í knattspyrnu: Nágrannaslagur - Englendingar mæta N-írum á Wembley - N-írum nægir jafntefli til að fylgja enskum til Mexíkó ■ Njí eru að fara í hönd síð- ustu leikirnir í undankeppni HM í knattspyrnu. Nokkrum riðlum er lokið og víðast hvar liggja úrslitin fyrir. Mjög mikilvægir leikir verða þó í dag. Þá spila annarsvegar Englendingar og N-írar á Wem- bley leikvangnum í London og hinsvegar Tyrkir og Rúmenar- í Tyrklandi. Báðir þessir leikir hefjast á svipuðum tíma enda skipta úrslit þeirra öllu máli. N-Irum nægir jafntefli í Lundúnum til að komast til Mexíkó en Rúmenar verða að vinna í Tyrklandi eigi þeir að eiga möguleika á sæti í Mexíkó. Englendingar eru þegar komnir áfram úr þessum spennandi riðli. Bobby Robson, landsliðs- þjálfari Englendinga er í dálitl- um vandræðum með lið sitt þar eð Bryan Robson og Mark Hateley eru meiddir og óvíst hvort John Barnes getur spilað þar sern hann á við smávægileg meiðsl að stríða. írar mæta með sitt sterkasta lið utan að Noel Brotherston er meiddur. í kvöld eru einnig tveir aðrir leikir. Danir fara til írlands og Svissarar fá Norðmenn í heim- sókn. í þessum riðli er nærri öruggt að Danir fara áfram ásamt Sovétmönnum. Sviss- lendingar eiga möguleika á að slá Danina út en þá þurfa þeir stórsigur á Norðmönnum og Danir verða að tapa stórt á írlandi. Allt getur gerst en Dan- ir eru þó með pálmann í hönd- unum. NM fullorðinna í badminton: Fjögur frá íslandi - Keppa í öllum greinum á mótinu í Svíþjóð ■ Mark Hateley fagnar hér marki ásamt félaga sínum hjá AC Mflanó í ítölsku knattspyrnunni. Hateley er mjög vinsæll hjá Itölum vegna þess hve leikstfll hans er skemmtilegur fyrir áhorfendur. Hateley er nú meiddur og verður af landsieik gegn N-írum. Sá sem kemur í hans stað í landsliðinu er ekki ólíkur honum. Það er Kerry Dixon frá Chelsea. 1 1 NBA-karfan I ■ Einn loikur var i NBA-deildinni I I í köríuknattleik í fyrrinótt. San I 1 Antonio Spurs sigrudu New Jersey 1 I Nets 111-104. Staðan í ridlunum er 1 nú þessi: AUSTURDEILD: Atlantshafsriðillinn: U T Boston Celtics . 6 1 New Jersey Nets . 6 3 Philadelphia 76ers . 4 4 Washington Bullets . 2 5 New York Knicks . 0 8 Midríkjariðillinn: Detroit Pistons . 6 3 Milwaukee Bucks . 6 4 Chicago Bulls . 4 4 Atlanta Hawks , 4 5 Cleveland Cavaliers 3 6 Indiana Pacers 2 4 VESTURDEILD: Mid vesturriðillinn: Denver Nuggets 6 1 Houston Rockets 6 2 San Antonio Spurs 4 4 Utah Jazz 4 4 Sacramento Kings 2 5 Dallas Mavericks 2 5 Kyrrahafsriðillin: Los Angeles Lakers 6 1 Portland Trail Blazers 7 2 Los Angoles Clippers 5 2 Golden State Warriors 4 5 Seattle Supersonics 2 6 Phoenix Suns 0 7 ■ Norðurlandamót fullorð- inna í badminton fer fram í Karlskrona í Svíþjóð um helg- ina. fslendingar senda fjóra keppendur á mótið og keppa þeir í öllum greinum þ.e. ein- liðaleik, tvíliðaleik, tvenndar- leik. Þeir keppendur sem fara fyrir íslands hönd eru Guð- mundur Adolfsson, Árni Þór Hallgrímsson, Elísabet Þórðar- dóttir og Þórdís Edwald. í einliðaleik keppa íslensku keppendurnir í þriggja manna riðlum með þátttakendum frá Finnlandi og Noregi. Þetta er gert til að láta þessar þjóðir fá meira út úr mótinu þar en Danir og Svíar eru með þeim bestu \ heiminum í þessari íþrótt. í tvíliða- og tvenndarleikjunum fá íslensku keppendurnir mót- herja frá Svíþjóð og er þar um mjög góða keppendur að ræða. Einn dómari fer með íslenska liðinu en það er Haraldur Kornelíusson. Þá mun Vildís Guðmundsdóttir formaður Badmintonsambands íslands fara með sem fararstjóri og hún mun einnig sitja þing badmintonssambands Norður- landa sem haldið er í tengslum við mótið. Á þessu þingi munu fulltrúar Finnlands, íslands og Noregs ræða um að konta á móti rnilli þessara landa í tengsl- um við NM á ári hverju. ■ Hópurinn sem fer á NM í badminton. Efri röð frá vinstri: Haraldur Kornelíusson, Guð- mundur Adolfsson, Árni Þór Hallgrímsson og Vildís Guð- mundsdóttir. Fyrir framan eru Elísabet Þórðardóttir og Þórdís Edwald. Víkingur úr leik ■ Víkingur Traustason lyftingamaður féll úr keppni á HM í lyftinguin sem fram fer í Finnlandi. Víkingur náði ekki að sveifla upp byrjunar- þyngd. Eins og fyrr er frá greint þá setti Kári Elíasson íslandsmet í keppninni og varð í öðru sæti. HM í handknattleik 1986: Mætum S-Kóreu - í riðlakeppninni í Sviss á næsta ári ■ Um síðustu helgi kom endanlega í Ijós hvaða lið mæta til leiks í Heimsmeistarakeppn- inni í handknattleik sem fram fer í Sviss á næsta ári. Það verða Suður-Kóreumenn sem koma inn í riðil C, en fyrir í honum eru íslendingar, Rúmenar og Tékkar. Handknattleikur í S-Kóreu er mjög vinsæl áhorfendaíþrótt og leikmenn í því landi eru snöggir og hafa nokkuð góða tækni. Það verður því að fara með gát þegar íslendingar tak- ast í fyrsta skipti á við Suður- Kóreumenn í íþróttinni. í A-riðli leika Júgóslavía, A- Þýskaland, Sovétríkin og Kúba, en síðasttalda þjóðin kom á óvart með því að sigra Banda- ríkin og tryggja sér þannig lausa Ameríkusætið. f B-riðli verða síðan V-Þýskaland, Sviss, Pól- land og Spánn og í riðli D eru' vinir okkar Danir og Svíar, auk Ungverja og Alsírbúa, sem eru fulltrúar Afríku í keppn- inni. Milliriðlar verða síðan tveir með sex liðum hvor. Ef Suður- Kóreumenn verða ekki til vánd- ræða ættum við íslendingar að fara í milliriðilinn ásamt Tékk- um og Rúmenum. Þar munu líklegast sameinast okkur Danir, Svíar og Ungverjar. Lið- in fara með stigin úr forkeppn- inni í milliriðlana. Menn hafa nokkuð verið að íhuga möguleika okkar manna í keppninni þ.e. hvað sé raunhæft að búast við af íslensku strákun- um. En einsogsést á væntanleg- um milliriðli getur allt gerst og Rúmenar eru raunar eina þjóð- in sem virkilega er óhugsandi að sigra. TýrsigraðiSelfoss ■ Um helgina voru margir hér segir: leikir á dagskrá í 3. deildinni í handknattleik. Týrar í Vest- íH-vöisungur... 19.26 mannaeyjum tóku á móti Sel- JjrkSeli°,,ss.... fyssingum Og Slgruðu 28-22 1 Ögri-Völsungur.'12-24 hörkuleik. Þeir hafa því tekið íbk-ía....... 27-21 forystuna í deildinni, eru með ögírtór a™.. 17-27 10 stig. Úrslit urðu annars sem Fyikir-skaiiagrímur !!!!!!!!!!! 25-20 Fækkun í ensku 1. deildinni ■ Formenn knattspyrnufélaga úr 1. deild í Engiandi vilja að í framtíðinni verði 20 lið í 1. deild, í stað 22ja sem nú eru, og að fjölgað verði úr 22 í 24 í 2. deild. Þá er gert ráð fyrir að þau 48 lið sem eru í 3. og 4. deild stjórni sínum málum sjálf, sem þýðir líklcga að þau yrðu að leika í nokkurs konar héraðsdeildum. Þessar tillögur verða bornar undir formenn 2. deildarliða í Englandi nú í vikunni að sögn Philip Carter, formanns Everton. Önnur tillaga sem 2. deildar fulltrúarnir fá einnig að hugsa um er keppni um breskan meistaratitil þar sem taka myndu þátt í lið frá Englandi, Skotlandi og N-írlandi. Carter sagði við blaðamenn að þörf á breyt- ingum í skipulagi enskrar knattspyrnu væri nauðsynleg ef íþróttin ætti að lifa af núverandi þrengingar. Bandarískir hefna sín ■ Bandarískum atvinnumönnum í golfi tókst að vinna sigur á Evrópubúum í sveitakeppni sem fram fór á Hawaii um helgina. Bandaríska liðið sigraði það evrópska með 10 stigum gegn 2. Það var Sandy Lyle sem vann sér inn þessi tvö stig fyrir Evrópubúa er hann sigraði Mark O’Meara. Hjá þeim bandarísku voru Corey Pavin, Curtis Strange, Ray Floyd, Calvin Peete og Lanny Wadkins sigurvegarar í viðureignum sínum við menn eins og BernardLanger, Sam Torrance og Ian Woosnam. Kínverjar í heimsókn ■ Nú eru staddir hér á landi 10 manna hópur kínversks badmintonfólks. Hópurinn er hér á vegum TBR, BSÍ og BRR. í hópnum eru margir snjallir badmintonmenn og konur. Hópurinn verður með sýningu í TBR húsinu í kvöld kl. 20:00 og á morgun verður hann á Akranesi. getrSEíha- VINNINGAR! 12. leikvika - leikir 9. nóvember 1985 Vinningsröð: 212 - 1XX - 21X - 221 1. vinningur: 12 réttir-kr. 231.535.- 35148(4/11) 51667(4/11) 105982(6/11) 50414(4/11)+ 101547(6/11) 2. vinningur: 11 réttir-kr. 5.114.- 736 35073+ 46025 62697 93453 103774 36481 (Vu) 1181 + 36774+ 46766 63171 + 94390+ 104100 50183(4+) 3422 37574 47297 66258 94510+ 104621 57000(4+) 5010 39679 53880 85558 96715+ 104933 93173(4+) 9692 40434 54188+ 86224 100155 104966 100876(4+) 17086 40741 54483 87154 100372 106593 101173(4+)+ 17088 41384 54578 87485 101824 1017459 101982(4+) 19872 41392 58228 87912 100857 183407+ 103825(4+) 21173 46020 58845+ 92786 103536 106018(4+) 106779(4+) Kærufrestur er til mánudagsins 2. desember 1985 kl. 12:00 á hádegi. íslenskar Getraunir, íþróttamidstöðinni v/Sigtún, Reykjavík

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.