NT - 13.11.1985, Page 23

NT - 13.11.1985, Page 23
sjónvarp Sjónvarp kl. 22.35: | Utvarp kl. 19.50: Chet Baker í Gamla Bíói ■ Hinn víðkunni trompet- leikari Clret Baker heiðraði ísland með heimsókn og hélt tónleika í Gamla bíói 2. febrú- ar sl. fyrir troðfullu húsi hrif- inna tónleikagcsta í boði Jazz- vakningar. Sjónvarpið ætlar að gefa þessum hrifnu gestum kost á því að rifja upp þessa á- nægjustund og gefa þeim sem ekki komust á tónleikana tæki- færi til að komast að raun um hvað olli þessari rniklu hrifn- ingu. Fyrri hluti tónleikanna verður á dagskrá sjónvarps í kvöld kl. 22.35 og það var Tage Ammendrup sem stjórn- aði upptökunni. ■ Berharður Guðmundsson og fjölskylda komu heim eftir fjögurra ára dvöl í Eþíópíu 1977 og þá var þessi mynd tekin (t.f.v.): Magnús Þorkell, Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Svava og Bernharður með Sigurbjörn í fanginu. Mannréttindamál í Afríku ■ Chet Baker á tónleikum í Gamla bíói 2. febrúar sl. ■ Eftir fréttir nefnist stuttur þáttur sem er á dagskrá útvarps á miðvikudagskvöldum kl. 19.50. Þeir Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross (slands, og Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóðkirkjunnar, flytja þáttinn á víxl og fjalla aðallega um þróunarmál, mannréttindamál og annað þess háttar. Það er Bernharður sem annast þáttinn í kvöld og við spurðum hann hvaða mál hann tæki fyrir í þetta sinn. „Kristniboðsdagurinn var á sunnudaginn var og þess vegna ætla ég að ræða um kristniboð- ið sem þróunarhjálp. Það er svo oft scrn það gleymist, en það fyrsta sem kristniboðarnir gera er að reisa sjúkraskýli og skóla og þeir vinna merkilegt starf úti í buskanum." segir Bernharður. Það er sem sagt starf kristni- boða í Afríku sem hann ætlar aðallega að ræða um í kvöld. Sjálfur starfaði hann í Eþíópíu að kristniboði í 4 ár, á árunum 1973-1977, svo að hann getur þar miðlað af eigin reynslu. Á þessum árum var keisaranum steypt af stóli og við völdum tóku herforingjar með marxiskar skoðanir. Það varð til þess að hvítu mennirnir streymdu úr landinu, þeir einu sem sátu um kyrrt voru kristni- boðarnir. Og ekki bætti á- standið í landinu borgara- styrjöldin vegna aðskilnaðar- stefnu Erítrcumanna. Hungursnevð sagði Bern- harður hafa þej>ar verið í Eþíó- píu á þeim árum sem liann dvaldist þar, en þó ekkert í líkingu við það sem síðar varð. Hann fór til Addis Abeba í janúar sl. og sagði ástandið þá yfirgengilegt. Sjónvarp kl. 19. Stundin okkar endurtekin og annað góðgæti ■ í kvöld kl. 19 verður endursýnd Stundin okkar frá því á sunnudaginn var og síðan hefst Aftanstund kl. 19.25. { Aftanstund kennir ýnrissa grasa. Þar segir Bryndís Víg- lundsdóttir sögu sína Sólu, en myndir við hana teiknaði Nína Dal. Þá hefst sýning á nýjum spánskum teiknimyndaflokki um þjóðsögur indíána í Mið- og Suður-Ameríku, sem kall- ast Sögur snáksins með fjaðra- haminn. Þýðandi er Ölöf Pét- ursdóttir og sögumaður Sig-. urður Jónsson. Síðast í Aftan- stundinni er barnamynd sem norska sjónvarpið hefur gert. Bjarni lærir að hjóla heitir hún og geta trúlega byrjendur í hjólreiðalistinni lært þar sitthvað. ■ Bryndís Víglundsdóttir skólastjóri segir söguna sína Sólu í Aftanstund í kvöld. Miðvikudagur 13. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Litli tréhesturinn" ettir Ursulu Moray Williams. Sigríður Thorlac- ius þýddi. Baldvin Halldórsson les (13). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þátt- urfrá kvöldinu áður í umsjáSigurð- ar. U. Tómassonar. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Lesið úr forustugreinum dag- blaðanna. 10.40 Land og saga. RagnarÁgústs- son sér um þáttinn. Lesari: Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir. 11.10 Úr atvinnulífinu - Sjávarút- vegurog fiskvinnsla. Umsjón: Gisli Jón Kristjánsson. 11.30 Morguntónleikar. Þjóðlög frá ýmsum löndum. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Heimili og skóli. Umsjón: Bogi Arnar Finn- bogason. 14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir skref“ Eftir Gerdu Antti. Guðrún Þórarinsdóttir þýddi. Margrét Helga Jóhannsdóttir les (17). 14.30 Operettutónlist. 15.15 Sveitin mín. Umsjón: Hilda Torfadóttir. (Frá Akureyri) 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Norsk kunstnerkarnival op. 14 eftir Joh- ann Svendsen. Sinfóniuhljóm- sveitin í Björgvin leikur. Karsten Andersen stjórnar. b. Fiðlukonsert nr. 3 í h-moll op. 61 eftir Camille Saint Saéns. Kyung-Wha Chung leikur með Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Lawrence Foster stjórnar. 17.00 Barnaútvarpið. Meðal efnis: Bronssverðið" eftir Johannes Heggland. Knútur R. Magnússon les þýðingu Ingólfs Jónssonar frá Prestbakka (12). Stjórnandi: Krist- ín Helgadóttir. 17.40 Siðdegisútvarp - Sverrir Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Málræktarþáttur. Helgi J. Hall- dórsson flytur. 19.50 Eftir fréttir. Bernharður Guð- mundsson flytur þátt um mannrétt- indamál. 20.00 Hálftíminn. Elin Kristinsdóttir kynnir popptónlist. 20.30 Iþróttir. Umsjón: Samúel Örn Erlingsson. 20.50 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.30 Sögublik - Á ferð um Hvann- dali. Umsjón: Friðrik G. Olgeirs- son. Lesari með honum: Guðrún Þorsteinsdóttir. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags- ins. 22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins. 22.25 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður P. Njarðvik. 23.05 A óperusviðinu. Leifur Þórar- insson kynnir óperutónlist. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Miövikudagur 13. nóvember 10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn- andi: Kristján Sigurjónsson. Hlé. 14:00-15:00 Eftir tvö. Stjórnandi: Jón Axel Ólafsson. 15:00-16:00 Nú er lag. Gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. Stjórn- andi: Gunnar Salvarsson. 16:00-17:00 Dægurflugur. Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leopold Sveinsson. 17:00-18:00 Þræðir. Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir Þriggja minútna fréttir sagðar kl. 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Miðvikudagur 13. nóvember 19.00 Stundin okkar Endursýndur þátturfrá 10. nóvember. 19.25 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Sögu- hornið - Bryndís Viglundsdóttir segir sögu sína Sólu, myndirteikn- að Nina Dal. Sögur snáksins með fjaðrahaminn - Þjóðsögur indíána i Mið- og Suður-Ameríku, nýr spánskur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir, sögu- maður Sigurður Jónsson.. Bjarni lærir að hjóla - Norsk barnamynd. (Nordvision - Norska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Maður og jörð (A Planet for the Taking) Þriðji þáttur. Kana- dískur heimildamyndaflokkur í átta þáttum um tengsl mannsins við uppruna sinn, náttúru og dýralif og firringu hans frá umhverfinu á tækniöld. Umsjónarmaður Davíð Suzuki. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 21.45 Dallas. Arfurinn Bandarískur framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi Björn Baldursson. 22.35 Chet Baker í Óperunni - fyrri hluti Frá tónleikum á vegum Jass- vakningar 2. febrúar 1985. Með Chet Baker, trompetleikara, léku Kristján Magnússon, Sveinn Óli Jónsson og Tómas R. Einarsson. Upptöku fyrir Sjónvarpið stjórnaði Tage Ammendrup. 23.15 Fréttir í dagskrárlok. Miðvikudagur 13. nóvember 1985 23 ■ Julie Walters í hlutverki Fran í Bleiku náttfötunum. Já, en af nverju? Blciku náttl'ötin ★★ (She’ll be Wearing Pink Paja- mas) Aöalhlutverk: Julie Walters, Anthony Higgins, Jane Evars o.fl. Leikstjóri: John Goldsinith Lengd: 90 mínútur Bretland: 1984 Kvikmyndin Bleiku náttfötin fjallar um átta konur er innrita sig í útvistarnámskeið hátt til fjalla. Konurnar eru harla ólík- ar, stunda ólík störf, liat'a ólíkan bakgrunn og eru á misjöfnum aldri. Hrókur alls fagnaðar er Fran, leikin af nýstirninu Julie Walters, sem margir kannast við úr myndinni Educating Rita. Fran er kjaftfor auglýsinga- teiknari á fertugsaldri og er ekki öll þar seni hún er séð. Konugreyunum er þrælað út á námskeiðinu, þær eru látnar synda í ísköldum vötnum, látn- ar klífa fjöll og er misboðið á allan hugsanlegan hátt. Útivisl- arnámskeiðið er sem sagt hin mesta kvöl og því má vart búast við að áhorfandinn hafi mikla skemmtan af. Þessi mynd licfur mátt þola harða og miskunnarlausa gagn- rýni og litlu er við liana að bæta. Hluti þessarar gagnrýni stafar eflaust af vonbrigðum gagnrýn- enda nieð að Julic Walters valdi sér ekki veröugra viðfangsefni í fyrstu niynd sinni eftir Educat- ing Rita. Annars stendur Julie sig vel í hlutverki. Fran og aörir leikarar falla skemmtilega inn í hlutverk sín. Einnig má finna glætur í handriti. En sú mæða sem stafar af þessu námskeiði, sem allt snýst um veldur ósjálf- rátt leiðindum, hver hefur til dæmis gaman af því að horfa á ' tSLENSKtl TEXTI vinalega feita konu hanga grát- andi í klettasnös? Myndin fylgir þeirri vinsælu kvikmyndaflækju að hópur fólks stendur frammi fyrir niikilli prófraun, þcir aumustu eru aðframkonmir, en hinir stappa í þá stálinu og liópnum tekst í sameiningu að sigrast á erfiðleikunum. Þessi skemniti- lega flækja nær þó ekki tilætluð- um árangri í þessri niynd þó ekki sé nema fyrir það að þetta er sjálfskaparvíti og því er kon- unum varla vorkunn. Tæknilegir gallar myndarinn- ar eru áberandi. Klippingar eru víða svo gallaðar að furðu sætir. Óviðeigandi filmubútar skjóta upp kollinum á ólíklegustu stöðum, sérstaklega í fyrri hluta myndarinnar sem er mun lang- dregnari en sá síðari. Ekki má gleyma Julie Walters. Hún ber myndina uppi, en nær ekki að koma henni á það flug sem telja má viðunandi. MJA STAÐARNEM! Öll hjól eiga að stöðvast

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.