NT - 22.11.1985, Blaðsíða 24
Vid tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leid ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiöir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
; Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495
Guðmundur Einarsson:
Sauðárkrókur:
Of dýrir verka-
mannabústaðir
- seljast ekki þrátt fyrir húsnæðisskort
■ „Það er ekki um offramboð
á húsnæði að ræða, hér er
raunar mikill húsnæðisskortur,
fólk er einfaldlega hrætt við að
leggja út í íbúðakaup í dag, auk
þess er verðið á þessum íbúðum
hátt,“ sagði Sveinn Friðvinsson
formaður stjórnar verkamanna-
bústaða á Sauðárkróki, í samtali
við NT en á Sauðárkróki er
verið að byggja verkamannabú-
staði sem fáir virðast ætla að
kaupa fbúðir í - aðeins er búið
að sækja um fjórar af fjórtán.
„Ein fjögurra herbergja íbúð
í þessu fjölbýlishúsi sem um er
að ræða kemur til með að kosta
um 4 milljónir með bílskúr
næsta haust þegar þær verða
tilbúnar og er þá miðað við 40%
verðbólgu yfir allan byggingar-
tímann. Þetta er bara bygging-
arkostnaðurinn sem er svona
miklu hærri heldur en söluverð
á fasteignum á landsbyggðinni,
notuð fjögurra herbergja íbúð
hér er miklu ódýrari.
Þótt útboðið hjá okkur hafi
verið þó nokkuð fyrir neðan
kostnaðaráætlun sem gerð var
af Húsnæðisstofnun ríkisins,
eru íbúðirnar samt svona dýrar,
en hefðu orðið mun dýrari ef
farið hefði verið eftir kostnaðar-
áætluninni.“
Sveinn sagði ennfremur að
heimild væri til um það í lögum,
að hægt væri aö afskrifa íbúðir
niður um ákveðinn hluta þannig
að verðið nálgaðist sem mest
markaðsverð á hverjum stað,
en ekki vildi hann segja um
hvort gripið yrði til þeirrar
heimildar a.m.k. ekki áður en
fjölbýlishúsið yrði fullbyggt.
Verða íbúðir þessar auglýstar
aftur upp úr áramótum og er þá
vonast til að eftirspurnin verði
meiri.
Armband keypt af skran
sala reyndist fjársjóður
■ Húsfreyja í Vesturbænum
datt í lukkupottinn í gær.
Frúin, sem ekki vill láta nafns
síns getið, hafði fengið arm-
band að gjöf frá eiginmanni
sínum, þegar þau hjón dvöld-
ust á Kanaríeyjum fyrir átta
árum. Kunningjarnir gerðu
grín að frúnni, þar sem arm-
bandið var keypt hjá skransala
og kostaði smáræði. í gær fór
frúin með armbandið til
úrsmiðs, og kom þá í ljós að
armbandið var úr átján karata
gulli. Verðgildi metið í kring-
um áttatíu þúsund krónur.
NT hafði samband við hús-
freyjuna í gær. „Þetta kom
mér ekkert á óvart, armbandið
var svo þungt, að ég vissi að
það gat ekki verið óekta. Synir
mínir höfðu gert grín að mér
fyrir að ganga með þetta drasl.
Sér er nú hvert draslið.“ sagði
húsfreyjan í samtali við NT.
Hún benti á að vel gæti verið
að sölumaðurinn sem seldi
manni hennar armbandið á
gamlárskvöld, fyrir utan hótel
þar sem þau dvöldust, hefði
stolið því. „Þó var greinilegt
að það var nýtt og maðurinn
var með fjöldann allan af slíkurn
armböndum."
Vill opinbera
rannsókn
- á svörum bankastjóra
■ Guðmundur Einarsson al-
þingismaður fór fram á það í
bréfi til viðskiptaráðherra í gær,
að fram færi opinber rannsókn
á rökstuðningi og sannleiksgildi
yfirlýsingar bankastjóra Út-
vagsbankans frá því í júní s.l.,
þess eðlis að fullnægjandi trygg-
ingar væru fyrir þeim lánum
sem Hafskip hafi fengið hjá
Útvegsbankanum. Beiðni Guð-
mundar er til komin vegna þess,
eins og segir í bréfinu, að aug-
ljóst er „samkvæmt fregnum að
fyrirtækið á ekki fyrir
skuldum“.
Halldór Guðbjarnason
bankastjóri sagði við NT í gær-
kvöld að hann hefði fyrst heyrt
um þetta bréf í kvöldfréttum
útvarps og gæti því lítið sagt að
Stolið
úr bíl
■ Brotist var inn í bíl sem stóð
við Tryggvagötu seinni part
dags í gær. Afturhurð bílsins
var opin og er talið að þjófur-
inn hafi farið þar inn í bifreið-
ina. í bílnum var skjalataska,
og í henni voru tólf þúsund
krónur í peningum, sem þjófur-
inn hafði á brott með sér. Ekki
er vitað hvort eigandinn saknaði
einhverra skjala í sömu tösku.
Lögregla hefur málið til rann-
sóknar.
svo stöddu. Þó sagðist hann
reikna með að bankastjórarnir
myndu svara þessu, þar sem
þetta væru þungir dómar sem
þarna kæmu fram.
■ Leiðir liggja til allra átta og strætóinn kemur og fer í ys dagsins. Sífellt koma nýir farþegar
og aðrir hverfa á braut. Hvert er allt þetta fólk að fara? NT-mynd Ámi Bjama.
Minnihlutinn í borgarstjórn mótmælir skipun í stjórn Granda hf.
Félagsmálaráðuneyti
úrskurði um lögmæti
Engin athugasemd gerð í borgarráði segir Davíð
■ Sigurjón Pétursson,
Alþýðubandalaginu mótmælti
harðlega, fyrir hönd minni-
hlutaflokkanna í borgarstjórn
vinnubrögðum Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra og borgar-
stjórnarmeirihlutans í skipun
stjórnar Granda hf, nýja fyrir-
tækisins sem BÚR og Isbirnin-
um hf. var steypt saman í 17.
nóvember sl. Sigurjón sagði á
borgarstjórnarfundi í gærkvöldi
að minnihlutinn hefði ekki vitað
af skipun stjórnarinnar, aðeins
frétt um stjórnarskipunina í
fjölmiðlum; hvað þá að minni-
hlutinn hefði fengið tækifæri til
að hafa eitthvað um stjórnar-
skipunina að segja.
Sigurjón vitnaði í reglugerð ■
um borgarstjórn Reykjavíkur
þ.e. um hlutverk borgarstjórnar
og borgarráðs en af þeirri reglu-
gerð væri ljóst að borgarstjóri
nefði ekki samskonar fram-
kvæmdavald ' í málefnum borg-
arinnar og ráðherra hefði um
málefni síns ráðuneytis og því
hlyti stjórnarskipunin í Granda
hf. að fara í bága við Sveitar-
stjórnarlög sem fyrrnefnd reglu-
gerð er byggð á. Minnihlutinn
ætlaði því að leita úrskurðar
félagsmálaráðuneytisins um
lögmæti þessarar „siðlausu at-
hafnar".
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að vegna blaðafrétta um
mál þetta hefði borgarritari gert
fyrir sig minnismiða þar sem
fram hefði komið að borgarrit-
ari hefði á borgarráðsfundi vak-
ið athygli á að borgarstjóri
nryndi á stofnfundi Granda hf.
skipa í stjórn félagsins og fara
með hlutafjáreign borgarinnar.
Enginn borgarfulltrúi minni-
hlutans hefði gert athugasemdir
við mál borgarritara á þeim
fundi.
Sigurjón Pétursson sagðist
ekki draga í efa að borgarritari
hefði sagt þessi orð en víst væri
að þau hefðu ekki verið sögð
með þessum hætti. En jafnvel
þótt svo hefði verið tækju orð
borgarritara ekki fram lögum
og reglugerðum um þessi mál.
Féll af
svölum
■ Maður féll af svölum á
húsi við Norðurstíg í
Hafnarfirði í gærdag. Fall-
ið var fjórir til fimm metr-
ar að sögn lögreglu, og var
maðurinn fluttur á slysa-
deild, þar sem meiðsli
hans voru rannsökuð í
gærkvöldi. Ekki er vitað
hversu alvarlega hann
meiddist. Maðurinnvar að
vinna við viðhald á svölun-
um þegar slysið varð.