NT - 23.11.1985, Síða 8
Máisvarl frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstj.: Helgi Pétursson
Ritstjórnarfulltr.: Níels Árni Lund
Framkvstj.: Guömundur Karlsson
Auglýsingastj.: Steingrimur Gislason
Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson
Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavik.
Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300
Kvöldsimar: ÁskriH og dreifing 686300. ritstjórn
686392 og 686495, tækmdeild 686538.
ÍIMINBÍ
Verð í lausasölu 35 kr.og 40 kr. um helgar. Áskrift 400 kr.
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Kvöldsimar: 686387 og 686306
Það er nú það
■ í Staksteinum Morgunblaðsins í gær er fjallað
um það sem þeir Morgunblaðsmenn nefna Arásir
N.T. á Sjálfstæðisflokkinn.
Þótf Morgunblaðið vilji ekki öllum stundum
ganga undir það jarðarmen að vera stjórnað af
Sjálfstæðisflokknum, þá rennur því blóðið til
skyldunnar þegar á flokkinn er hallað.
Nú skal það játað að það er hvorki Framsóknar-
flokkurinn eða forsætisráðherra sem stýra skrifum
N.T. en vera má að skoðanir þessara aðila falli oft
og tíðum saman. Hitt er aftur á móti alveg ljóst að
ekki eru nein tök á því fyrirstóran hluta þjóðarinn-
ar að verasammála Sjálfstæðisflokknum umþessar
mundir og m.a. hafa þær raddir heyrst í N.T. -
Svona einfalt er það.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að átta sig á því að
enda þótt hann sé stærsti flokkur þjóðarinnar þá
leyfist honum ekki allt og auðvitað getur fylgi hans
hrakað eins og annarra flokka, svo sem nýleg
skoðanakönnun í Helgarpóstinum gefur til kynna.
Þjóðin hefur tekið cftir því hvernig sjónvarpið
hefur að undanförnu gefið frambjóðendum Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum tæki-
færi til að kynna sig. Um helgina fer fram prófkjör
þeirra. Vissulcga er misjafnt fréttamat manna og
einhverjir telja að þær fréttir sem frambjóðendurn-
ir sögðueigi erindi í sjónvarpið en eftirtektarvert
var hvað þær bera allar upp á svipaðan tíma.
Margir cru undrandi og óánægðir með þetta.
Þá fylgjast menn nieð umræðum um okurlán á
Alþingi. Því verður ekki neitað að ræðuhöld
Matthíasar Bjarnasonar viðskiptaráðherra vekja
eftirtekt og nokkra undrun.
Viðskiptaráðherrann bað menn að hafa það í
huga að okurlánastarfsemi hefði viðgengist hér á
landi í langan tíma og þar að auki fannst honum að
þeir sem væru að bjarga eignum sínum með því að
taka okurlán ættu ekki skilið að eiga eign.
Hvað svo sem ráðherrum Sjálfstæðisflokksins
finnst um þetta mál þá geta þeir ekki orðið
undrandi þótt fólkið í landinu sé þeim ekki
sammála. Hafi vaxtaokur viðgengist hér í langan
tíma þá er tími til kominn að það verði upprætt.
Við eigum ekki að láta það líðast og taka því með
þcgjandi þögninni að einstaka menn græði óhófleg-
ar fjárfúlgur með ólöglegum hætti. Hafi einn eða
fleiri ráðherrar í ríkisstjórnum íslands vitað um
slíkt athæfi, þá bar honum eða þeim að stöðva
athæfið strax.
Getur það verið að íslenskir ráðamenn séu svo
vanir að sjá spillingu í fjármálum þjóðarinnar að
þeir líti á hana sem eðlilegan hl.ut? Ef svo er þá er
ekki nema vona að efnahagur þjóðarinnar sé
slæmur.
í þessu sambandi er einnig rétt að minna á stöðu
Hafskips við Útvegsbankann og hvernig það mál
hlýtur að skaða bankann fjármálalega og rýra
hann trausti. Þjóðin vill fá að vita hvernig það mál
er í raun og veru vaxið. Nú hefur verið farið fram
á opinbera rannsókn í málinu og er það ekki
óeðlilegt miðað við það sem á undan er gengið.
Það er öllum fyrir bestu að sannleikurinn komi í
ljós.
Laugardagur 23. nóvember 1985 8
Vettvangur
Gylfi Guðjónsson:
Ár æskunnar á 20. öld
■ Frá ulda öðli hefur verið
æðsti draumur flestra foreldra
að koma börnum sínum til
man’ns, eða svo skyldi maður
ætla. Ýmsir örðugleikar verða
á vegi foreldranna við þetta
verkefni m.a. má þar tclja
fram geðslag og hátterni for-
eldranna sjálfra, aðrar aðstæð-
ur og umhverfi, síðast en ckki
síst þjóðskipulag sem viðkom-
undi ungmenni býr við.
A okkar dögum hefur æ
meir orðiö vart við að ungt
fólki gangi út á refilstigu, það
sýni lífi sínu og annarra skeyt-
ingarleysi og gangi á skjön við
hiö kerfisbundna þjóðfélag
scm þaö fæddist inn í. - Þéss
vcgria hafa hin ráðandi öfl
þeirra eldri í þjóðfélögunum
sett upp allskyns ráð og stofn-
anir til að afla gagna, halda
fundi og vinna bug á þessum
vanda. Það er unnið látlaust í
málinu, haldnir fundir heima
og crlcndis til að bera saman
bækurnar. - Þrátt fyrir það
halda unglingarnir áfram að
gera eitthvað af sér í augum
hinna cldri og reyndari.
Mér varð því ekki um sel,
þegar sírninn heima hjá mér
hringdi skyndilega um kl.
19.00 í marsmánuði 1983, ég
var beðinn að ákveða innan
klukkustundar hvort ég tæki
að mér að fara á ráðstefnu um
vandamál ungs fólks í Strass-
burg í Frakklandi 21.-26. mars
1983, en forföll hefðu oröið
hjá manni þeim, sem senda
átti. - Ég velti þessu fyrir mér,
fannst vandinn mikill. Mér
fannst ég tæpast hæfur óundir-
búinn að takast þetta á hendur,
en minntist þess, að ég hafði
starfað í lögreglunni mörg ár.
Laust fyrir kl. 20.00 gaf ég
jákvætt svar, flaug til Luxem-
burg daginn eftir ásamt öðrum
manni, sem sendur var, Ragn-
ari A. Þórssyni. Ragnarreynd-
ist skemmtilegur ferðafélagi,
og vel máli farinn og komu
fram á ráðstefnunni mótaðar
og athyglisverðar hugmyndir
hans.
Ferðalagið til Frakklands
var skemmtilegt, ekið með lest
frá Luxemburg um Þýskaland
og inn í Frakkland. Þessi fall-
egu lönd hafa upp á margt að
bjóða fyrir þegna sína og
æskulýð, margt sem við höfum
ekki hér á norðlægri eyju. Mér
sýndist ég sjá í gamalt virki á
leiðinni, og gaddavír umhverf-
is hulinn hávöxnu gulnuðu
grasi. Þá varð mér hugsað til
síðari heimsstyrjaldar, þessi
ógn sem kom fram með svo
undarlegum hætti. - Unga
fólkið sem þá var og hét, hafði
ckki beðið um þessi læti, en
það tók að sjálfsögðu þátt í
ieik fullorðna fólksins því allt
ungt fólk er því marki brennt,
að það vill taka þátt í því
uppbyggingarstarfi sem full-
orðna fólkið hefur í frammi
fyrir börnin sín. Lestin liðaðist
áfram um sögufrægar slóðir
Evrópu, en ég varð hugsi - til
hvers hafði ég fæðst og hvert
var erindi mitt inn í þessi
lönd...
í Strassburg eru höfuðstööv -
ar Evrópuráðsins (Evrópu-
þingið, alþjóðleg samtök ungs
fólks og Mannréttindadóm-
stóllinn.) Það var hálfkalt á
höfuðstaö allra þessara mann-
réttinda Evrópu, er íslenska
sendinefndin hélt sína innreið.
Við útjaðar borgarinnar mátti
þó sjá eina og eina rollu kroppa
grængresið.
Við komum á sunnudegi, á
mánudagsmorgni hófst ráð-
stefnan. Það var mikil vinna
þessa sex daga, byrjað snemma
og stundum sétið til kl. 21.00 á
kvöldin. - Við íslendingarnir
urðum þeirrar ánægju aðnjót-
andi að hitta þarna um hádeg-
isveröarleytið á miðvikudegin-
um Þór Vilhjálmsson, hæsta-
réttardómara og Unnar Stef-
ánsson frá Sambandi ísl. sveit-
arfélaga. Þeir sýndu okkur
þingsal Evrópuþingsins, þar
sem íslendingar eiga þrjá full-
trúa. Þingsalurinn er gífurlega
fallegur og íburðarmikill, enn-
fremur sýndu þeir okkur vmsa
aðra aðstöðu.Evrópuráðsins. -
Báðir þessir menn voru að
gegna þarna skyldustörfum um
þetta leyti, Unnar fyrir sveitar-
félögin og Þór sem dómari
fyrir íslands hönd hjá Mann-
réttindadómstólnum.
Umræður ráðstefnunnar
snerust mest hvað varðaði
undirbúning og kynningu
fyrsta daginn. Síðan snerust
umræðurnar að því hvað væri
æska, eða í rauninni hve Iengi
æskan varaði hjá fólki. Hver
mörkin væru þegar maður
hætti að vera ungur. Ég, sem
kom svo uppfullur af vanda-
málum unga fólksins varðandi
atvinnumál, tómstundir, hús-
næðismál, leiðindi og grautfúlt
fullorðið fólk, fékk ekki sam-
hengi í það hvernig vel skipu-
lögð ráðstefna í miðri Evrópu
gat fengið sig til að gera þetta
að aðalumræðuefni. - Hol-
lendingur nokkur, sem að jafn-
aði hélt góðar tölur, óskaði
eftir því að æska fólks mældist
eftir skólagöngu. Þá var síðan
rifist um það, ef fólk væri í
háskóla fram á fertugsaldur,
hvort það væri enn á æskualdri.
Inn í þetta fléttaðist fjármagn
sem ríkisstjórnir létu af hendi
rakna til „æskufólks'-.
Ég hafði grun um að
þessi maður væri að undirbúa
prófkjör fyrir sig heima í Hol-
Íandi, því hann eyddi tveimur
dögum ráðstefnunnar í þetta
karp. Reyndar vorum við sam-
ferða seinna til Luxemburg í
lest og hann óskaði eftir að
hafa samband við mig ef hann
kæmi einhverntíma til íslands
með konuna og drengina tvo.
Ég setti upp gamalkunnugt
andlit frá ísíandi, sem-kallað
er hundshaus, tók ekki þátt í
umræðum, lét þetta fólk um
karpið sitt varðandi endalok
æskunnunar. - Á miðvikudegi
var ég spurður, hvers vegna ég
væri svo fúll. Svarið var að mér
kæmi undarlega fyrir sjónir
þessar umræður um æskuárin,
án þess að festa sjónir á vanda-
málum unga fólksins. - Reynd-
ar kom fram í máli Hollend-
ingsins, að 50% ungs fólks í
Hollandi væri atvinnulaust og
það væri vandamál. Mjög at-
hyglisverð kona frá Sviss,
Monika Spinatsch að nafni,
gaf út þá yfirlýsingu að ráð-
stefnan væri tómt orðarugl sem
enginn skildi - það væri ruglað
um æskutímann, mcnn frá
Skandinavíu kæniu inn löngu
eftir setningu ráðstefnunnar
létu ljóst sitt skína um okki
nokkurn skapaðan hlut. (Mig
minnir að eftir allt karpið hafi
endir æskunnar orðið um 19
ára).
Eftir að Monika komst á
skrið, skýrði hún frá því að
æskulýðsmiðstöðvar hefðu
verið settar upp víða um Evr-
ópu. Unga fólkið, sem væri
vandamál í þjóðfélögunum
sneiddi fram hjá þessum
húsum. Þetta fólk kærði sig
ekki um nein afskipti af þjóð-
félagskerfum. Þetta fólk settist
upp í járnbrautalestir, tvö,
þrjú. fjögur eða fleiri saman,
Öfgar markaðshyggjunnar eru farnar
að móta viðskiptasiðgæði islendinga
Á okurhneykslið sér formælendur?
■ Þðð er fróðlegt að fylgjast
með blöðum hægri aflanna og
markaðshyggjupostulanna
þessa síðustu daga, hvort sent
það cr Morgunblaðið, blað
gömlu, hreinlífu háklerkanna.
eða Dagblaðið Vísir, blað
hinna nýríku. blað gervifrjáls-
hyggjunnar um fram allt.
Hafa menn tekið eftir því að
Dagblaðið Vísir, sem venju-
lega kallar sjálft sig DV, á í
hálfgerðu basli upp á síðkast-
ið? Þetta gerist á þeim tíma,
þegar meira og magnaðra
fréttaefni (og leiðaraefni) berst
blöðum landsins en dæmi eru
um í áraraðir. Hafa naumast
stærri atburðir orðið í fjár-
málalífmu í seinni tíð en okur-
hneykslið og rekstrarvandræði
Hafskips h/f. Málin eru inn-
byrðis ótengd, en stórmál
hvort um sig og einstæð að
sínu leyti.
Getgátur og gróusögur
Það vekur athygli að Dag-
blaðið Vísir fer sér hægt í
skrifum uni okurmálin. Þar fer
blaðið með löndurn og hættir
sér ekki út á neinn ólgusjó
fullyrðinga ogofsafrétta. Blað-
ið varar lesendur við getgátum
og gróusögum, sem á kreiki
eru í skammdegismyrkri
höfuðborgarinnar um aðild
manna að þessu hneyksli.
Ekki skal þessi afstaða Dag-
blaðsins Vísis löstuð, því að
síst er það hlutverk fjölmiðla
að ala á gróusögum. En samt
munu margír verða til þess að
veita þessari gætni Dagblaðs-
ins Vísis eftirtekt, því að ekki
hafa aliir gleymt hlut forvera
þessa blaðs (Dagblaðsins sem
þá var og gamla Vísis í umfjöll-
un stórglæpamála sem uppi
voru fyrir 8-10 árum. Þá var
ekki svo mjög varað við getgát-
um og gróusögum. Það er gott
að arftakarnir, sem nú ráða
sameinuðu blaði, hafa lært af
reynslu forvera sinna um að
ekki skuli ýta undir gróusögur.
Batnandi mönnum er best að
lifa.
Skelfilegt mál.
Okurmálið er skelfilegt mál
og nauðsynlegt að komast fyrir
rætur þess. Þar verður fyrst og
fremst að treysta iögreglu- og
dómsyfirvöldum, og blöðin
ættu að sameinast um að gera
kröfur á hendur réttum yfir-
völdum að rannsaka þessi mál
svo vandlega sem frekast er
kostur og draga þá sem brot-
legir eru til dóms og láta þá
svara til saka eins og lög segja
fyrir um. Okurstarfsemina
verður að uppræta. Blöðin
ættu að sameinast um það að
krefjast aukins lögreglueftirlits
og virkrar dómgæslu í okur-
málum og skattsvikamálum.
Þar liggur heiður þessarar
þjóðar við.
Umræðan um „frelsið11
En hvað sem dómsmálum
líðuroghvers konarforvarnar-
starfi í löggæslu og eftirrekstri
yfirvalda gagnvart lögbrotum,
sem þegar hafa átt sér stað, þá
væri ástæða til að hyggja að
því, hvort almenn stjórnmála-
umræða eins og hún hefur
verið að þróast á síðustu árum,
á ekki sinn þátt í þessari miklu
fyrirferð okurmálsins, sem nú
er mest rætt um. Allt skrafið
um markaðsfrelsið, þ.á.m.
vaxtafrelsið, og hvers konar
hegðunarfrelsi, svo í kaup-
sýslu- og bankastarfsemi sem í
lifnaðarháttum yfirleitt. er far-
ið að segja til sín í uppátækjum
íslenskra fjármálamanna.
Þeim er upp á lagt að vera
djarfir í athöfnum sínum, enda
leiti dirfska þeirra ..jafnvægis".
auk þess sem þeim er innrætt